Tíminn - 14.10.1973, Side 13

Tíminn - 14.10.1973, Side 13
Sunnudagur 14. október 1973. TÍMINN 13 ÞANNIG VENURÐU ÞIG AF REYKINGUM HVERNIG á að hætta að reykja? Margir velta þvi fyrir sér á sama hátt og fjöldi fólks hugsar um hvernig það getur megrað sig. En þetta er allt annað en auðvelt Það er stöðugt verið að gera reykingamönnum góð ráð og námskeið til að venja fólk af reykingum eru haldin. Það eru alltaf einhverjir, sem geta vitnað um hve góðan árangur námskeiðið hefur borið, sér- staklega ef þeir eru spurðir stuttu eftir að þeir voru á námsiceiðinu. Það getur náðst árangur, en eftir einn eða tvo mánuði er allt i sama, gamla farinu. Engin leið? Er þá ómögulegt að hjálpa fólki til að verða bindindis- menn á tóbak og þar að auki grannir? Nei, ekkert er ómögulegt, en vandinn er sá að maðurinn á að hjálpa sér sjálfur. Allir þekkja áhættuna við að reykja og borða of mikið. En flestir eru miklir bjartsýnis- menn. Við höldum öll, að við getum ekki veikzt, þangað til einn góðan veðurdag liggjum við i rúminu. Og við erum einnig sannfærð um að við verðum meðal þeirra 90% sem deyja úr öðru en ofnotkun tó- baks, þar til hið gagnstæða er sannað. Það eru aðeins til erfiðar leiðir til að hætta reykingum. Foreldrar og kennarar ættu að hætta að reykja til að vera börnunum gott fordæmi. Ráð læknisins stoða litið, meðan hann sjálfur reykir. En þó að þessir aðilar væru til fyrir- myndar, þá hafa félagarnir „poppstjörnurnar”, sem ung- lingarnir taka sér oft til fyrir- myndar, þó ennþá meira að segja. Keðjureykingamaöurinn Þegar sá dagur kemur að löngunin kemur aftur, þá á að segja hið stóra NEI. Þó reykingamaðurinn geti hætt aðeins einn dag, þá er hálfur sigur unninn. Auðvitað er þörfin fyrir tóbak jafn gifurleg næsta dag, en þá hefur sýnt sig að hann er ekki algjör þræll. Úrslitadagarnir Ef manninum tekst að hætta i tvær vikur, eru miklar likur til að hann byrji ekki aftur. Hann verður að gera allt, sem hann getur til að styrkja sig i baráttunni á þessu timabili. Tóbak á ekki að vera i nánd við hann og hann á hvorki að hafa eldspýtur eða kveikjara á sér, og alltaf að hafa sykur- laust tyggigúmmi i vasanum. 1 hvert skipti þegar reykinga- löngunin þyrmir yfir manninn á hann að hugga sig við tyggi- gúmmíið. Jórtrið er þrátt fyrir ailt ekkert óskemmtilegra fyrir umhverfið, en stöðugur tóbaksreykúr. Og tyggi- gúmmíið er skásta huggunin. Vinir og kunningjar eru yfir- leitt ekki mjög hjálplegir. Þú getur verið viss um að þeir reyni að freista þin, og gera þér erfitt fyrir með að reykja fyrir framan nefið á þér. Geti maður haldið sig frá reyk- ingum i 14 daga, og sé stað- ráðin i að hætta og reykingar- nar hafi verið komnar á það stig að ánægjan var beggja blands, þá er sigurinn á næsta le;i ti. Staðföst ákvörðun reykinga- mannsins sjálfs er veiga- meiri en allar töflur og námskeið. - Kringumstæður- nar geta ráðið, hversu bjarg- föst ákvörðunin er. Standi þannig á að maðurinn taki þátt i samkvæmislifi á þessu timabili eða eigi i einhverjum erfiðleikum þá reynist allt miklu erfiðara og hættan á að falla i freistingu er mun meiri. Þaí er hægt, jafnvel fyrir keðjureykingamann, að venja sig af ósiðnum. Það krefst alls vilja hans og sálarþreks. Reykingamaðurinn saknar tó- baksins lengi eftir að hann er hættur reykingum. En það er lika hægt að komast yfir það. Hvernig? Bezta aðferðin er að verða veikur. Það er nefni- lega erfiðara að hætta, þegar það er ekki gert þegar maður er orðinn verulega leiður á reykingum og afleiðingum þeirra. Hóstinn, vont bragði munninum, reykur i augun ergir mann. Fyrst eftir tvær sigarettur kemur nautnin af reykingunum. Það er fjöldi reykingamanna, oftast fólk um fertugt eða eldra, sem finnur þessi einkenni. Þetta fólk ætti að gleðjast yfir háls- bólgu, inflúenzu, eða litils háttar ofkælingu, þvi þá geta komið tveir, þrir, jafnvel fjór- ir dagar,sem maður hefur ekki mikla löngun i sigarettur. Laun sigursins Kannske er maður ekki svo heppinn að veikjast þrátt fyrir gifurlegar reykingar. Þá er bezt að venja sig af ósiðnum á rólegum tima, t.d. i sumar- leyfi. Ef ekki eru veikindi fyrir hendi er hægt að byrja bind- indið með að hætta smátt og smátt. Til að byrja með skaltu ákveða áð reykja ekki fyrir morgunverð og ekki eftir kvöldmat og fikra þig siðan áfram. Þetta er áhættusöm aðferð, þvi reglurnar vilja æði oft verða þverbrotnar, en sumum heppnast þetta þó. Eftir eina eða tvær vikur á fyrsti tóbakslausi dagurinn að koma. Það liður heilt ár áður en löngunin eftir „smók” er alveghorfin. Eftir þann tima er hægt að setja allan sinn viljastyrk i að losna við auka- kilóin. Það er aðeins ein að- ferð, sem er betri, mikill vilja- styrkur og það er að byrja aldrei. lauslega þýtt og endursagt. — gbk RowenlA Kaffivélin laqor allt fró 2-8 bollum af ilmandi kaffi á ca. 5 mínútum — Heldur heitu Quick-grill steikir t.d. kótelettur á á 3 minútum og gefur þeim gómsætt bragð Brauðgrill Heildsala — Smdsala Djúpsteikingar pottur Hórþurrkuh jólmur Vöramarkaðurinn hi. J ÁRMÚLA 1A • SÍMI 86-112 Rowenla.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.