Tíminn - 04.11.1973, Síða 10

Tíminn - 04.11.1973, Síða 10
10 TÍMINN Sunnudagur 4. nóvember 197S. Fyrrverandi kona Henry Kissingers, Anna Fleischer Henry Kissinger fær mörg kvennahjörtun tii aft slá hraðar. Fjöldi kvenna á þá ósk heitasta að fá að giftast honum. Það hefur alltaf verið talað uni hann sem piparsvein, þó að vitað sé. að sér- legur ráðgjafi Nixons sé frá- skilinn og eigi tvö börn. Það er þvi áfall fyrir þær konur, sem hafa haldið að hann væri ógiftur að uppgötva;að þetta er ekki rétt. Það er vitað mál, að þegar kvikmyndaleikari eða poppstjarna giftir sig, missir hann vanalega um helming af aödáendum sinum. Þegar ég geri þ'að heyrum kunnugt, að hinn glaðværi glaum- gosi frá hinu ijúfa lifi Parisar, Kómar, New York Washington, Saigon, Bangkok, Tokyo og röð annarra stórborga, frægastur allra piparsveina, sérlegur ráð- gjafi forsetans, Richard Nixons, og nú utanrikisráðherra,er i raun og veru fráskilinn og á tvö börn, vandlega geymd fyrir utan sviðs- ljósið, virkar þessi staðreynd oft truflandi á þá mynd sem hefur verið dregin upp af honum, sem alþjóðlegum glaumgosa. En Henry Kissinger er sem sagt íráskilinn og frjálst að gifta sig aftur, ef hann vill. Til er fólk, sem segir, að annað hjónabandið sé alltaf betra en hið fyrsta. En eitt er áreiðanlegt, að fyrir niu af hverjum konum, sem dást að honum i fjarlægð, er skilnaður töiuvert annað en að vera ein- mana piparsveinn á fimmtugs- aldri, sem biður eftir þvi að finna þá einu réttu, sem vill eyða ævinni með honum. Þaö fyrsta, sem kemur i huga manns við slika uppljóstrun, er, hver er konan i lifi hans? Og fleiri spurningar koma i kjölfarið. Hvernig getur það átt sér stað, að hún skuli yfirgefa slikan drauma- prins, eða var það kannski hann, sem fór og þá hvers vegna? Siðustu árin hefur Kissinger af tilviljun eða með vilja dregið upp af sér mynd sem alþjóðlegum. „playboy". Ilann sýnir sig með fegurstu konum heims og bara núna siðasta ár hafa blöð og timarit gift hann hvorki meira né minna en 31 konu, sem mörg hver gæti verið dóttir hans. En Henry Kissinger er orðinn vanur þessari athygli, sem hann vekur, og gerir ekkert til að koma i veg fyrir, að nafn hans sé á hvers manns vörum, það litur helzt út fyrir að hann njóti þess. Margar konur eiga þá ósk æðsta að verða frú Kissinger, en það er ein kona, sem elur ekki slika von i brjósti sér, fyrrverandi frú Kissinger, sem dró sig i hlé fyrir átta árum eftir skilnað, sem gekk fljótt fyrir sig og fór fram með mikilli leynd. Eyrir nokkru gerði blaðamaður sér ferð til Boston vegna máls, sem hann þurfti að athuga þar, og eins og ósjálfrátt kom upprhuga hans, hvers vegna ekki að íara i kurteisisheimsókn til fyrrverandi frú Kissinger? Kannski veitti húrt honum viðtal, kannski ekki. Hann hefði engu að tapa. Fer frá- sögn hans af þeirri för hér á eftir. „Anne Fleischer býr ásamt móður sinni, syni og dóttur i fallegu einbýlishúsi i Belmont. Þegar maðut kemur inn á lóðina kvikna sjálfkrafa ljós i svefnherbergjunum, stofunni, Lengi vel var það leikkonan Jill St. John sem var hans útvalda eldhúsinu og á nokkrum stöðum öðrum, þvi að undir hellulögðum stignum að húsinu eru rafmagns- merki, sem eru svo næm, að ef mús hleypur upp eftir stignum, kvikna ljós. Það er ekki það, að Anne Fleischer, móðir hennar, eða börn séu hrædd, þó að vitað sé að allir eru hræddir i þessu glæpamannaþjóðfélagi, Banda- rikjunum i dag. Astæðan er heldur ekki sú, að hún vilji ekki hitta einhvern úr sinum þrönga vinahópi. Blaðamenn og aðrir eru álika óvelkomnir og maður, sem haldinn er inflúensu. Ég var ekki velkominn, en þvi hafði ég heldur ekki búizt við. Ég ákvað að reyna að forvitnast um þessa dularfullu frú meðal nábú- anna. Ég var ekki velkominn, en þvi hafði ég heldur ekki búizt við. Ég ákvað að reyna að forvitnast um þessa dularfullu frú meðal ná- buanna. Samkvæmt gamalli hefð eiga nágrannar að vita allt hvorir um aðra' . En ekki i þetta skiptið. Ég rakst alls staðar á mérvegg, þegar ég nefndi þetta nafn,og ég fékk framan i mig næstum á ókurteislegan hátt: — Þessi kona er ekki til umræðu. Ef þér hafið komið til að tala um hana; er bezt; að þér hverfið á brott. Við höfum ekkert um hana að segja. Hvers vegna allur þessi leyndardómur? sagði ég alveg undrandi við einn nábúann. Hverju hefur frú Henry Kissinger að leyna? Er hún veik eða lömuð, eða hefur hún eitthvað gert af sér i fortiðinni, sem hún er hrædd um að komi i ijós i blaðaviðtali? Hún talaði einu sinni við blaða- mann fyrir mörgum árum, fékk ég að heyra, en þessi blaðamaður misnotaði sér traust Kissingers, og siðan ber hún ekki neitt traust til þeirra. — Nú jæja, — sagði einn nábúinn og bað mig um að nefna ekki nafn sitt, þvi hún var og vonandi er, góður vinur önnu Fleischer —. Hún og Henry gerðu með sér samning við skiinaðinn, um að tala aldrei hvort um annað við annað fólk. Hún segir ekkert um hann, og hann segir ekkert um hana. Hún er alltaf i varnar- stöðu gagnvart öðru fólki og þá sérjega blaðamönnum. Það, að til skuli vera fyrr- verandi frú Kissinger, er eitt af bezt geymdu leyndarmálum Bandarikjanna. Það er næstum eins og rikisleyndarmál,og sumir segja að þvi sé betur haldið leyndu en mörgum rikisleyndar- málum forsetans. t augum heimsins er Kissinger glaumgosi, ógiftur, frjáls. — Skilnaðurinn var óhjá- kvæmilegur, Henry var mikils metinn maður, og i starfi sinu þarfnaðist hann konu, sem hafði áhuga á starfi hans, konu sem Arið 1971 var það hin Ijóshærða Margaret Osmer, sem var borö damanhans viö opinber tækifæri. LEYNDARMAL HENRY KISSINGERS: KONAN SEM HANN YFIRGAF

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.