Tíminn - 04.11.1973, Síða 12

Tíminn - 04.11.1973, Síða 12
12 TÍMINN KÁTT OG LÍFSGLATT FÓLK ER LANGLÍFAST Fíngerð og smávaxin gömul kona dettur niöur rafmagnsstiga i stóru vöruhúsi. Hún liggur neðan við stigann og hreyfir sig ekki. Fólk kemur þjótandi aö, meðal annars lögreglumaður, sem finn- ur fljótlega nafnskirteini gömlu konunnar, litur á það og dregur djúpt andann. Svo segir hann í undrunartón: — En hér stendur, að hún sé hundraö ára. I>að getur ekki ver- ið... En þá kemur lif i konuna. — Ójú, vist er það rétt. Hjálp- aðu mér á fætur, ungi maður. Einn þeirra, sem heyrði þetta atvik, var þýzki rithöfundurinn Norbert Lebert. Hann fékk nafn og heimilisfang gömlu konunnar og heimsótti hana. Hún hafði ekki fengið eina skrámu við fallið. Hvers vegna ætti hún þá að vera að fara á slysavarðstofu? Nei, og Emma Scheunemann gat einnig sagt honum, að hún notaði aldrei gleraugu, heyrði vel og þyrfti ekki að ganea við staf. Þeear hún var 95 ára kom hún í fyrsta sinn i flugvél, og siðan hefur hún verið á ferð og flugi. — Ég elska aö fljúga, sagði hún himinlifandi. Haldið þér kannske, að Emma sé eitthvert sérstakt tilfelli? Nei, langt i frá. Sagan um hana er að- eins ein hinna mörgu, sem Nor- gert Lebert hefur safnað i bók sina „Glaðlynt fólk lifir lengst”. Efninu I bókina hefur hann safnaö I mörg ár og hefur verið natinn við að verða sér úti um visinda- legar upplýsingar, sem styðja þá kenningu, að við getum hlakkað til ellinnar, séum við glaðlynd að eðlisfari. Lebert vill gjarna losa okkur við gamlar kreddur um ellina. Það er alls ekki satt, að við verð- um endilega hálfblind og heyrnarlaus fyrirbrigði, sem að,- eins geta vænzt vorkunnsemi Hann segir það tóma dellu, að við þurfum að lifa einhverri skugga- tilveru i ellinni. Þetta mál kemur okkur svo sannarlega við núna,þegar fólk verður langlifara en nokkru sinni fyrr, og velferðarþjóðfélög hafa efni á að setja á eftirlaun fólk, sem enn hefur fulla starfsorku. Mörgum finnst þetta eins og samfélagið sé að afskrifa þá frá daglega lifinu og setja þá I bið- stofu dauðans. Maður skyldi ætla, að eftir þvi sem fólk lifir lengur og heldur sér betur, verði ellin auðveldari. En þróunin hefur orð- ið i gagnstæða átt. Æskan hefur aldrei verið dýrkuð eins og nú og það svo, að unga fólkið heldur, að það eitt að vera ungur, sé það eina, er einhvers virði er i Iffinu. Hinn broslegi árangur af þessari dýrkun er sá, að blessuðum ung- lingunum hrýs hugur við að verða 25 ára og eru handvissir um að öllu sé lokið um þritugt.. Og við hin verðum l'yrir áhrif- unum. Okkur finnst næstum skammarlegt að vera komin yfir þritugt, og ef við hleypum i okkur kjarki og segjum eins og er, að það sé hreint ekki sem verst, trúir okkur enginn. Það er þessi nýmóðins hjátrú, sem Lebert vill útrýma. Ef heils- an er i lagi og við kærum okkur kollótt um alla þá vitleysu um ell- ina, sem okkur hefur verið talin trú um frá blautu barnsbeini, get- um við lifað stórkostlegu lifi á ellilaunaaldri. Lebert hefur rætt við sérfræðinga viðs vegar um heim, og kemur sigri hrósandi með hvert dæmið af öðru. Og svo sannarlega eru þau ekki fá. Er hræðilegt að verða 100 ára? t Bandarikjunum átti að taka viðtöl við 500 manns, sem komnir voru yfir 100 ár. Þegar viðmælandinn kom til að hitta einn þeirra, var honum sagt, að hann væri úti að höggva tré. Undrandi gekk viðmælandinn i áttina til hans, og gamli maður- inn hætti andartak aö höggva, þegar hann fékk heimsóknina. Dauðskelkaöur blaðamaðurinn horföi á hann ýta eitursnák til hliðar, áöur en hann tók til máls: — Þaö er allt morandi af þessu hérna. I gær drap ég sjö. Annar maður, sem var á listan- um, hafði miklar kvartanir fram að færa. Hann fékk enga vinnu: — Það er eins og fólk haldi, að ég sé of gamall, sagöi hann. Honum fannst það ranglátt, þar sem hann hafði ekki verið lasinn nema einu sinni um ævina, og svo las hann gleraugnalaust, heyröi ágætlega og var stálhraustur. A ttaliu fékk Lebert eftir- farandi sögu: — Læknir, þér verðir að athuga i mér augun, ég skil ekki,hvað það getur verið, en ég get ekki þrætt nál lengur, sagði fallega gráhærða konan. Hana furðaði á þvi, að læknirinn skyldi stinga upp á þvi að hún fengi sér gleraugu. Döpur á svip hristi hún höfuðið. — Úff, ég er liklega að verða gömul. Hún var 102 ára. Hver hefur breitt út þá vitleysu, að það sé hræðilegt að verða 100 ára? Lebert heldur þvi fram, að við séum svo hárviss um að gamalt fólk missi minni og skilning, að við litum á þá sem undantekningar, sem eru friskir á allan hátt. En eru þeir það? Bandariskir sérfræðingar, sem Lebert ræddi við, segja, að heyrnarleysið stafi öllu fremur af of miklum hávaða i of langan tima en af elli. Auðvitað hafi ellin áhrif á heyrn og sjón, en alltof oft sé ellinni kennt um skaða á þess- um liffærum, þó að aðeins um- hverfinu sé um að kenna. — Æðakölkun er alls ekki eitt- hvað, sem heyrir ellinni til, segir Paul Overhage, þekktur mann- fræðingur. Bæði hjartað og æða- kerfið getur verið ungt til hárrar elli.Kirtlar framleiöa einnig fram á elliár, og hvað blóöið áhrærir, gætum við vist lifað að eilifu. Þegar þvi er haldið fram, að þessi eða hinn sé orðinn ellimóð- ur, þá trúið þvi ekki. Það er röng sjúkdómsgreining að sögn Leberts. Látið engan telja ykkur trú um, að þið þurfið endilega að verða sjúklingar, með takmark- aðan skilning á umhverfinu, þeg- ar þið eldist. Litið bara á Adenauer gamla. Hann var 73 ára, þegar hann varð kanslari, og gegndi embættinu i 14 ár. Eöa Goethe? Bæði hann sjálfur og vinir hans töldu hann hafa óendanlega möguleika, þeg- ar hann var áttræður. Michelang- elo var 73 ára, þegar hann tók að sér að stjórna byggingu Péturs- kirkjunnar i Róm. Ekki var Churchill heldur neitt unglamb, þegar hann stóð i þvi að búa til mannkynssögu. Nú munuð þið vafalaust tauta eitthvað um, að það sé ekki rétt að bera okkur, þessi venjulegu, saman við undantekningarnar. Lebert hefur lfka séð við þvi. Hann kemur fram með alveg ófræga skozka kennslukonu. Hún var 100 ára þegar hún skrifaði bók, sem meira að segja var gefin út. Framkvæmdasemi lengir lifið Lebert vill að við spyrjum, hvort við höfum öll tækifæti til að lifa lengi. Og auðvitað svarar hann játandi, skilyrðislaust. Litið bara á herra Turner. Hann er 91 árs og er að læra frönsku, vegna þess eins, að hann langar til að skreppa til Frakklands. Hann hefur rétt lokið við að læra heilmikið um tónlist, bókmenntir og heimspeki og lærði ensku, áður en hann byrjaði á frönskunni. Eða þýzka póstafgreiðslumanninum, sem kenndi sjálfum sér norsku, þegar hann var á áttræðisaldri. Hvers vegna? Jú, hann langaði til að lesa norsk ljóð á frummálinu. Það eru margir, sem eru ekki feimnir við að byrja á einhverju nýju, þó að þeir séu svo gamlir, að flestir telji þá búna að vera og dauða úr öllum æðum. Spurningin er bara, hvort við höfum kjark, vilja og löngun til áð byrja. Flest- ir þurfa að visu að byrja á þvi að yfirvinna hræðslu og öryggis- leysi, sem allar kreddurnar hafa skapað. öll reynsla sýnir, að þeir geta lært, það tekur bara aðeins lengri tima. Reyndur kennari, sem Lebert vitnar i, segir það oft taka nokkurn tima að sannfæra fólk um, að það geti lært. Það eru margir, sem eru ekki feimnir við að byrja á einhverju nýju, þó að þeir séu svo gamlir, að flestir telji þá búna að vera og dauða úröllum æðum. Spurningin er bara, hvort við höfum kjark, vilja og löngun til að byrja. Flest- ir þurfa að visu að byrja á þvi að yfirvinna hræsðlu, og öryggis- leysi, sem allar kreddurnar hafa skapað. öll reynsla sýnir, að þeir geta lært, það tekur bara aðeins lengri tima. Reyndur kennari, sem Libert vitnar i, segir það oft taka nokkurn tima að sannfæra fólk um, að það geti lært. Dæmi: Prófessor við banda- riskan háskóla hafði 1103 manneskjur og lét þær gangast undir eins konar gáfnapróf. Einkum var þarna um að ræða vísindi, listir og almennan fróð- leik ýmsan. Tólf árum siðar rannsakaði hann þetta sama fólk, og niðurstaöan varð sú.. ja, hvað haldið þið? Jú, að meðaltali var greindin mun meiri en hún var fyrir tólf árum, og hæfileikarnir til að draga ályktanir einnig. Þetta er ekki eina rannsóknin, sem sýnir, að þeir eldri eru þeim yngri fremri, þar sem lifið og reynslan hefur eitthvað að segja. AÍlt, sem viö kemur raunveru- leika lifsins, er þeim ljósara en hinum yngri, en efni eins og stærðfræði og rafeindir er þvi fjarlægara, nema það hafi sér- stakan áhuga á þvi. Þá eru þeir gömlu heldur ekki jafn færir, munuð þér kannske segja. En enn sér Lebert við þvi, meira að segja með visindalegum stuðningi: Hinir eldri gera miklu færri vitleysur yfirleitt. Þá geng- ur það upp. Hægt en örugglega færumst við nær lykilorðinu: Framkvæmda- semi. Það er með greind eins og vöðva. Það þarf að nota hana. Einhæfni, leiðindi og áhugaskort- ur er eins hættulegt fyrir heilann og likamleg leti fyrir vöðvana.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.