Tíminn - 04.11.1973, Page 14

Tíminn - 04.11.1973, Page 14
14 TÍMINN Sunnudagur 4. nóvember 197:}. Greinagerð um holræsamá! Reykjavíkurborgar: SKOLPINU VERÐUR VEITT í SJÓ Á ÞREM STÖÐUM Nú eru útrennslisrörin þrjátíu A borgarráðsfundi var lögð fram greinargerð gatna- málastjóra um holræsamál Reykjavikurborgar með tilliti til umhverfisverndar. Eins og nú standa sakir i þessum málum rennur skolp úr um 30 holræsum út i sjó alltumhverfis Reykjavik og er sjórinn mjög mengaöur, aðalíega i Skerjafiröi og út af Skúlagötu. Athuganir hafa verið gerðar á leiðum til úrbóta og fjallar greinargerðin um niður- stöður þeirra. Borgarstjóri og gatnamála- stjóri skýrðu blaðamönnum frá þessari greinargerð og ræddu þeir leiðir, sem einkum koma til greina til úrbóta. Allar tillögur- nar, sem gerðar voru, gera ráð fyrir að engu skolpi verði veitt i Skerjafjörð, en aftur á móti verði skolpið leitt út i sjó út af Gróttu. 1 einni tillögunni er jafnvel gert ráð fyrir að veita öllu skolpi frá Reykjavik og nágrenni þar i sjóinn, þar sem straumar taka við þvi og dreifa um hafið. En vegna kostnaðar og tæknilegra örðugleika kemur sú tillaga vart til greina. Alls eru tillögurnar sex, en að sögn borgarstjóra er einkum ein þeirra, sem kemur til greina og ætti að veröa viðráðan- leg. Er hún á þá leið að skólpi frá Reykjavik og nágrenni verði veitt i sjó á þrem stööum, frá Gróttu, frá Laugarnesi og Geldingarnesi. Kostnaður við þá framkvæmd er áætlaður tæplega 1,5 milljarður króna, miðað við verðlag 1. okt. 1 framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir, að leiðslan út af Gróttu nái 900 metra út í sjó, en frá Laugarnesi og Geldinganesi 300 metra út i sjó. Viö leiðsluna út af Laugarnesi verður heinsistöð, og mun skolpið sem þar fer um verða hreinsað með efnafræði- legum aðferðum áður en þvi er veitt i sjóinn, en þar eru straumar minnstir og hættan mest á að skólpiö safnist saman og mengi sjóinn nærri landi. Að sjálfsögðu þarf núverandi holræsakerfi borgarinnar mikilla breytinga og lagfæringa við til að samræmast nýju kerfi. Er þvi brýn þörf á að hafa hraðan á að ákveða hvort hefja á þessar framkvæmdir i náinni framtið eða ekki. Kvað borgarstjóri æski- legast að borgarstjórn tæki ákvörðun um máliö fyrir áramót, eða áður en fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár verður fullgerð. Um fjármögnun til fram- kvæmdanna taldi hann helzt koma til greina, að leggja á skatt, sem sambærilegur er við vatns- skattinn, og væri heimild fyrir þvi i lögum og yrði þá skatturinn helmingur núverandi vatns- skatts, eöa um 45 millj. kr. á ári, og mundi hann innheimtur með fasteignagjöldum. Enn er þetta mál á umræðu- stigi. Ekki hefur verið haft sam- ráð við nærliggjandi sveitarfélög um það, en á miklu veltur aö samvinna takist. Varlegt mun að áætla að verkið taki 10 til 15 ár áður en þvi er fulllokið. OÓ Þátttakendur á framhaldsnámskeiðinu ásamt leiðbeinendum Merk starfsemi Æskuiýðsráðs ríkisins: Efndi til framhaldsnámskeiðs fyrir félagsmálakennara «- MEDAL þeirra verkefna, sem mest eru aðkallandi á vettvangi æskulvðsmála, er þjálfun og Iræðsla félagsforystumanna og leiðbeiuenda. Skortur fleiri hæfra leiðtoga og leiðbeinenda kemur á ýmsan liátt i veg fyrir eðlilega þróun og eflingu æskulýðsstarfs i landinu. Æskulýðsráð rikisins markaði sór þvi i upphafi þá stefnu, að eitt af fyrstu verkefnum ráðsins skyídi vera að beita sér fyrir samræmdu og yfirgripsmiklu átaki i félagsmálafræðslu æsku- lýðsfélaga og samtaka með þvi að standa fyrir samningu náms- efnis fyrir félagsmálanámskeið og að veita æskulýðsfélögum nokkurn fjárhagslegan stuðning við framkvæmd slikra nám- skeiða. A s.l. vetri efndi æskulýðsráð, i samráði við fræðslunefndir UMFI og I.S.I., til námskeiðs fyrir félagsmálakennara að Leirár- skóla i Borgarfirði, og lagði þar fram námsefni til nota á félags- málanámskeiðum. Hafa félagasamtök og skólar nú þegar haldið 24 námskeið með alls 488 þátttakendum, þar sem farið hefur verið yfir námsefni þetta. Fóru námskeiðin fram undir handleiðslu áðurgreindra félagsmálakennara og með nokk- urri aðstoð æskulýðsráðs. Æsku- lýðsráð hefur átt góða samvinnu við fjöimarga aðila um fræðslu- starfsemi þessa, og hefur þáttur Ungmennafélags tslands verið þar stærstur. Um siðustu helgi efndi Æsku- lýðsráð rikisins til framhalds- námskeiðs fyrir félagsmálakenn- ara i Álftamýrarskóla i Reykja- vik. Á námskeiði þessu var einkum fjallað um kennslufræðileg atriði, framkvæmd félagsmálanám - skeiða og uppbyggingu slikrar fræðslu i náinni framtið. Leið- beinendur á námskeiðinu voru Reynir G. Karlsson æskulýðsfull- trúi. Sigurður R. Guðmundsson skólastjóri. Guðmundur Gislason kennari og Sigurþór borgilsson fulltrúi i kennslufræðideild Fræðsluskrifstofu Reykjavikur. Að námskeiðinu loknu fengu þátttakendur afhent skirteini. sem veitir þeim rétt til þess að kenna námsefni Æskulýðsráðs rikisins á félagsmálanámskeið- um. Þeir. sem hlutu þessa viður- kenningu. voru: ArnaldurM. Bjarnason, Fosshóli, S-Þing. Birgir Karlsson, Leirárskóla, Borgarfirði. Birgir Olsen, Ytri-Njarðvik. Guðmundur H. Einarsson, Reykjavik. Guðmundur Gislason, Reykjavik. Guðmundur Guðmundsson, Vorsabæjarhjál., Árn. Guðmundur Sigurmonsson, Ytri- Tungu, Snæf. Guðni Jónsson, Reykjavik. Guðni Björn Kjærbo, Keflavik. Gunnlaugur Snævarr, Reykjavik. Helgi Gunnarsson, Vik i Mýrdal. Helgi Gunnarsson, Vik i Mýrdal. Helgi Jóhann Þórðarson, Egils- stöðum. Hólmbert Friðjónsson, Keflavik. Ingimundur Ingimundarson, Sauðárkróki. Jóel Blomquist Jacobsson, Reykjavik. Jóhannes Sigmundsson, Syðra- Langholti, Árn. Karl Eysteinn Rafnsson, Höfn, Hornafirði. Kristján L. Möller, Siglufirði. Magnús Ölafsson, Sveinsstöðum, A-Hún. Niels Á. Lund, Miðtúni, N-Þing. Ólafur Oddsson. Hálsi, Kjós. Pétur Þórarinsson, Reykjavik. Rikharður Jónsson, Akranesi. Sigurður Geirdal, Kópavogi. Sigurður Ragnarsson, Reykjavik. Sigvaldi Ingimundarson, Reykja- vik. Tryggvi Gunnarsson. Reykjavik. Sig. Valdimar Bragason, Dalvik. bóroddur Jóhannesson. Akur- eyri. Þorvaldur Páimason. Borgar- firði. Kostaboð frá Kína LEIRTAU A VERÐI SEM VEKUR UNDRUN 1 SETT KR. 175 8 SETT KR. 1350 16 SETT KR. 2650 Sendum gegn póstkröfu Búsáhöld og gjafavörur MIDBÆR, Iláaleitisbraut 58-60, simi 35997 GLÆSIBÆ, Alfheimum 74, simi 86440 OPIÐ TIL KL. 10 í GLÆSIBÆ. Bella auglýsir Gæðavara á ótrúlegu verði! — Engin af- sláttarkort. Komið, og þið munuð sann- færast um verð og gæði. Drengjaföt á 1-4 ára. Tclpukjólar á 1-10 ára. Náttlot a alla fjölskylduna. Nærfatnaður á börn og fullorðna. Kvenund- irfalnaður I miklu úrvali. Drcngjaskyrtur. Sokkabuxur fyrir börn og ulloröna. Barnaúlpur. Regnfatnaður. Tilbú- inn sængurfatnaður. I.éreft, straufritt. Damask. Allur ungbarnafatnaöur. Fallegar sængurgjafir i úrvali. Glæsilegt vöruúrval. — Póstsendum. BELLA Laugavegi !)í) — Simi 26-0-15.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.