Tíminn - 04.11.1973, Page 31
Sumiudagur 4. nóvember 1973.
TÍMINN
31
Sýning á vatns-
litamyndum
opnuð í Asgríms-
safni í dag
í dag verður haust-
sýning Ásgrimssafns
opnuð. Er hún 40. sýning
safnsins, siðan það var
opnað almenningi árið
1960.
Aðal uppistaða
þessarar sýningar eru
vatnslitamyndir,
málaðar á hálfrar aldar
timabili.
Nokkrar af vatnslita-
myndunum eru nú
sýndar i fyrsta sinn,
meðal þeirra ein af
siðustu myndum Ás-
grims, Hekla, séð frá
Vatnagörðum, máluð i
september 1957.
É1 á Þingvöllum er
máluð i október 1953.
foreldrum sinum og þjóðfélaginu,
yfirleitt, segir frú Elin Sörensen.
— Það iæra dönsk börn ekki á
sama hátt. Ég álit að mjög mikil-
vægt sé að kenna börnunum að
vera hagsýn og gleðjast yfir vinn-
unni... Eins og þið getið heyrt er
ég dálitið gamaldags, en ég tel
enga skömm að þvi. Þvi má bæta
við, aðég er heldur enginn áhang-
-andi nýtizku uppeldisaðferða...
Allir taka þátt i vinnunni
Þessar skoðanir hafa aldrei
haft nein áhrif á uppáhaldið sem
fjölskydlan hefur á börnum og nú
eru þau að hugleiða ættleiðingu
eins fósturbarnsins ennþá, kóre-
anskt barnaheimilisbarn dóttur
amerisks hermanns og konu frá
Kóreu. Auk þess kemur til fjöl-
skyldunnar á hverju sumri þýzk-
ur kynblendingsdrengur Mikefrá
Nurnberg og svo hefur Elin
Sörensen lika smábörn i dag-
gæzlu. Það er þó aðeins til að
hjálpa góðum vinum sem eiga
erfitt um vik vegna skólanáms og
atvinnu og aðeins nokkrum sinn-
um i viku.
En frú Sörensen tekur öllu með
hinni stökustu ró, hún er lika orð-
in vön. Um áraraöir hafa verið
börn i dagfóstri hjá fjölskyldunni,
nú orðin 34 i allt (og allt að sex
börnum i einu), sum meira en ár i
einu. — Annanhvern dag vinnur
hún átta tima vakt á elliheimili.
Það veldur samt engum vand-
ræðum heimafyrir, þvi dagleg
vinna á heimilinu er vandlega
skipulögð. öll börnin, stór og smá
hafa skyldum að gegna. Frú
Sörensen og elzta dóttir hennar
skiptast á um að hugsa um
smábörnin, tvær þeirra elztu af
stúlkunum búa til mat og útbúa
matarpakka á morgnana, einn
þvær upp, annar þurrkar og sá
þriðji setur leirtauið á sinn stað.
Þegar Elin er að vinna, hugsar
Knud Sörensen um yngstu börnin
á kvöldin — og það er oftast hann,
sem sinnir þeim, ef þau vakna á
nóttunni.
„Ekki dýrara en þegar við
vorum fjögur".
Þessi gifurlega fjöl-
skydlustækkun hefur á engan hátt
eyðilagt fjárhaginn, þó að Elin
Sörensen viðurkenndi, að áður
hafi hana langað til að vinna úti,
en nú sé þessi hálfsdagsvinna
sprottin af nauðsyn til að bæta við
tekjur Knuds, sem vinnur á
rannsóknarstofu.
Þau skortir samt engin þæg-
indi. Fjölskydlan á litasjónvarp,
sumarbústað og stórt hús. sem
var byggt ekki alls fyrir löngu.
Fjölskyldan bókstaflega óx út úr
Einnig eru myndir úr
Mývatnssveit og
Borgarfirði á sýning-
unni.
Eins og undanfarin ár
kemur út á vegum Ás-
grimssafns nýtt jóla-
kort. Er það prentað
eftir vatnslitamyndinni
Úr Skiðadal, sem Ás-
grimur Jónsson málaði i
siðustu ferð sinni til
Norðurlands, og er þetta
kort fyrsta kynning
kortaútgáfunnar frá
þeim slóðum.
Ásgrimssafn, Berg-
staðastræti 74, er opið
sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl.
1.30-4. Aðagangur
ókeypis.
gamla húsinu Flesta undrar,
hvernig fjölskyldan gat eiginlega
framkvæmt þetta. — Það er þvi
að þakka, að fjármálin voru i
lagi, þegar við tókum börnin og
einnig þvi, að við erum mjög
sparsöm, útskýrði Elin Sörensen
— Þarfir okkar eru ekki miklar.
Eg reyki ekki, hef engan áhuga
fyrir fötum og maðurinn minn
notar mjög litla vasapeninga....
Heimilishaldið nú er ekki dýr-
ara, en þegar viö vorum bara
fjögur, segir Elin. — Það er að
þakka skipulagningu heimilis-
haldsins , sem nú er byggt á
hagsýnum innkaupum. Keypt er i
stærri skömmtum i einu. Egg og
kartöflur fáum við ódýrt og þegar
fjölskydlan er i sumarbústaðnum
eigum við hagstæð viðskipti við
fiskimennina á staðnum.
Knud og Elin Sörensen fá auð-
vitað hið lögboðna barnameðlag,
en aðeins fyrir dönsku börnin og
þýzku drengina.
Vietnamska stúlkan Ming-Ly
og Kóreud' ngurinn Choi hafa
bæði orðið barðinu á mænu-
veiki og fá fjárhagsaðstoð frá
styrktarfélagi fyrir fatlaða.
Fjölskyldan hefur aldrei fengið
aðstoð frá þvi opinbera og hefur
aðeins einu sinni fengið fjárhags-
aðstoð. Það var þegar Kóreu-
drengurinn átti að far til hins nýja
heimkynnis sins i Danmörku.
Flugferðin kostaði 3000 danskar
krónur, sem erfitt reyndist að út-
vega, þangaö til einkaaðilar
hlupu undir bagga og borguðu
mestan hluta farmiðaverðsins.
— Við höfum mætt mikilli vel-
vild jafnt frá ókunnugum, sem
vinum og kunningjum. M.a. hefur
fólk skrifað okkur hlýleg bréf og
við höfum aldrei fengið eitt ein-
asta óvinsamlegt bréf. Fólk hefur
einnig verið svo hugulsamt að
senda okkur gjafir og vinir okkar
lafa verið skilningsrikir og ekki
gert neinar athugasemdir, þó að
margir hafi örugglega verið
steinhissa á okkur aö taka svona
mörg börn ...
Flestir bréfritaranna hafa be-
iðið um ráð. hvernig sækja á um
að ættleiða barn með svona
jákvæðum árangri, en Knud og
Elin hafa ekki getað veitt neina
hjálp.
— Við höfum ættleitt eftir
venjulegum leiðum og við höfum
átt i alveg jafnmiklum erfiðleik-
um og annað fólk, sem vill ætt-
leiða, segir Knud Sörensen. Mér
finnst við hafa staöið i gifurlegri
ikriffinnsku. Málin eru alltaf
dregin á langinn og nokkrar
umsóknir hafa beiðið i meira en
:vö ár.
(Þýtt og endursagt. — gbk).
l r Kortfaríirði, Okift.
ÞM
Nú er hálkan og snjórinn komin og snör handtök þarf
til aö koma bílnum á snjóbaröa.
Viö viljum spara þér tímann og birtum hér verö á
nokkrum algengum stæröum Yokohama snjóbaröa.
Ef þú hefur tíma, skaltu hringja víðar og bera saman
viö aðra. Ef ekki, máttu taka orö okkar fyrir því, aö þaö
er leit aö hagstæöara veröi á jafn góöum snjóböröum
og Yokohama.
ÞÉR ERU ALLIR VEGIR FÆRIR Á
YOKOHAMA
Komiö inn úr kuldanum meö bilinn
á meðan viö skiptum um.
HJÓLBARÐAR
Höföatúni 8 • Símar 16740 og 38900
YOKOHAMA
fullnegldir 4ra striga
snjóbaröar.
600-12 Kr. 2.528-
560-13 - 2.884 -
615-13 - 2.882-
645-13 - 3.337 -
600-15 - 3.316-
JEPPADEKK
6 strigalaga.
700-15 Kr. 5.661-
750-16 • - 6.456-
VÖRUBÍLADEKK
12 strigalaga,
án nagla.
1000-20 Kr. 18.549-
1100-20 - 19.716-
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA • VÉLADEILD
Verö meö söluskatti.
■