Tíminn - 04.11.1973, Page 40

Tíminn - 04.11.1973, Page 40
rGHÐTl fyrir góóan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS - Sendimenn Samhjálpar í kirkjunni á Akranesi: Bón um liðsinni samborgaranna til bjargar fólki á refilstigum Georg Viöar, forstöðumaOur Samhjálpai;! ræðustóli i Akraneskirkju á miOvikudagskvöldiO. 'Þar var húsfyllir, og um tuttugu þúsund krónur söfnuOust til hinnar fyrirhuguOu hjálparstofnunar, auk þess sem útbýtt var um sextiu giróseOIum. —Ljósmyndir: Hlynur Eggertsson. liðsinni til þess að gera tilraun með sams konar stofnun og sænskir hvitasunnumenn reka i Sviþjóð. Áætlaður kostnaður rikisins af rekstri Litla-Hrauns árið 1974 er þrjátiu milljónir, og svo eru hælin i Viðinesi og Gunnarsholti, Flókadeild og deildir á Kleppi, vinnutap þjóð- félagsins af völdum drykkjuskap- ar, stóraukinn löggæzlukostnað- ur, óteljandi slys og mikið mann- fall af völdum áfengis og eitur- lyfja. Allt næmi þetta hundruðum milljóna, ef saman væri talið, auk þess sem ekki verður metið til fjár. Og nú spyr ég: Finnst ekki nógu mörgum þess vert að styrkja okkur i Samhjálp til þess að reyna að bjarga einhverju af þessu fólki öllu, sem farið er i hundana eða á leið til tortiming- ar? Ekki sizt þegar i okkar hópi eru menn, sem okkur hefur þegar tekizt að bjarga af refilstigum. Hvers vegna ættum við ekki að geta gert það, sem tekizt hefur i sviþjóð, spyr Georg Viðar að lok- um, ef við fáum aðstöðu til þess? Við förum fram á að geta veitt drukknum mönnum og brotafólki aðhlynningu, hjúkrun og leiðsögn og talað um fyrir þvi i stað þess að láta það hrekjast úti i myrkri, þar sem það er dæmt til þess að halda áfram á sömu braut. Vilja ekki nógu margir leggja okkur lið við það, svo að við getum sýnt ótvirætt, hverju við kunnum að geta komið til leiðar? Einar Gislason, forstöðumaður Fíladelfíusafnaöanna, flytur boöskap sinn. — PAi) er geigvæniegt, hve viða er böl og neyð af völduin áfengis- drykkju og eiturlyfjaneyzlu. I»vi verður tæpast með orðum lýst, hvað einstaklingar og fjölskldur eiga við að strfða vegna þess arna. Fólk stcypir sér i glötun hópum saman, og ættingjar þess og vandafólk eiga uin sárt að binda. 95% allra fanga á l.itla- llrauni cru þangað komnir vegna þess, að þeir hal'a flæk/.t i drykkjuskap, og svo eru allir hin- ir, utan liæla og innán, sem ýmist eru komnir á y/.tu þröm eða i hráðri liættu staddir. IMér cr nær að halda, að langflestir eigi cin- hvern náinn ættingja, vanda- mann eða vin, sem stendur höll- um l'æti vegna ofneyzlu áfengis. Sá heitir Georg Viðar, er lét þessi orð falla við Timann. Hann er úr Filadelfiusöfnuðinum i Reykjavik og lorystumaður hreyfingar, sem stolnað hefur verið til innan safnaðarins til bjargar drykkjusjúklingum og eiturlyfjaneytendum og hlotið nafnið Samhjálp. Markmið Sam- hjálpar er að koma fyrst upp hjálparstöð i Reykjav. og kaupa siðan jörð, þar sem endurhæfing getur l'arið fram við bústörf, unz fólkið hel'ur sigrazt á veikleika sinum og er fært um að taka á ný upp störf á venjulegum vinnu- markaði. Um þessar mundir er Samhjálp að hefja samkomur viða um land til þess að kynna aðíerðir sinar og leita fjárframlaga i þessu skyni, og var hin fyrsta haldin i kirkj- unni á Akranesi á miðvikudags- kvöldið, og munu siðan fleiri fylgja á el'tir, l'yrst hér nærlendis og seinna viðar um latul. Hin næsta verður i Selfosskirkju á fimmtudaginn. — Eg er nýkominn frá Sviþjóð, sagði Georg Viðar við blaðið, þar sem hvilasunnusölnuðir reka stofnun, sem náð hefur ótrúlegum árangri við lækningu drykkju- manna og eiturlyfjasjúklinga, kennda við Lewy Pethrus, einn forystumanna hvitasunnu- hreyfingarinnar á Norðurlönd- um. Samkvæmt skýrslum sænska rikisins la-knast 1-2% þeirra manna, sem þar dveljast á rikis- reknum hælum, en 75% i stofnun hvitasunnusaínaðanna i Stokk- hólmi, og er það þrettán ára reynsla. Upphaf þessa björgunarstarfs i Stokkhólmi var það, að févana maður, sem bjó i einu herbergi, tók að verja tima sinum og þeim aurum, sem honum áskotnuðust, til þess að hjálpa drykkjumönn- um. Siðan gerðist það, er Lew Pethrus frétti að minnast ætti sjö- tugsafmælis sins með veizlu að hann óskaði þess, að frá þvi yrði horfið, en ijármunirnir látnir renna i sjóð til þess að koma upp hjálparstofnun. Uá var hús keypt og maðurinn, sem riðið hafði á vaðið, Erik Edin, kvaddur til þess að veita henni forstöðu. Nú hefur þessi hjálparslofnun limm hús til umráða, á fjögur sjálf, en hefur eitt, fimm hæða stórhýsi, að láni frá Stokkhólmsborg. Veltan er orðin hundrað milljónir islenzkra króna, þar af koma um sex milljónir frá Stokkhólmsborg, og starfsmenn um fimmtiu marg- ir fyrrverandi albrotamenn, drykkjusjúklingar og eiturlyfja- neytendur. Uegar Einar Gislason, for- stöðumaður Filadelfiusafnað- anna hér, átti fimmtugsafmæli, fór hann likt að og Lewy Pethrus l>á var Samhjálp stofnuð, og 150 þúsund krónum skotið saman, i stað þess að halda á annan hátt upp á afmæli hans. Georg Viðar hefur að undan- förnu búið i bilskúr, sem var inn- réttaður, svo að hann gæti heitið ibúðarhæfur, og þar eru löngum næturgestir, drykkjumenn og eilurlyfjaneytendur, sem hann hefur tekið upp á arma sina — einn og tveir og þrir og allt upp i sjö. En á daginn hefur hann orðið að sleppa af þeim hendinni vegna vinnu sinnar, og þá vill Istöðuleysið yfirbuga timbraða næturgesti hans. Og nú hefur hann verið kvaddur til þess að veita Samhjálp forstöðu i þeirri von, að upp komizt hjálparstöð, þar sem eitthvað svipað gæti gerzt og i Pelhrusarstofnuninni i Stokkhólmi. Sjálfur átti ég að baki ljótan feril, sagði Georg Viðar, er ég kom inn á samkomu hvitasunnu- manna i Sviþjóð. l>ar voru ræðu- menn, sem búnir voru að þræða Kór Ffladelfiusafnaðarins á samkomunni á Akranesi. öll hæli þjóðfélagsins og vitnuðu um frelsun sina. Gömul kona sat við hlið mér og hvatti mig til þess að standa upp og vitna. Ég hugs- aði sem svo: Maður er búinn að gera svo margar glorlurnar, að það munar ekki um, þótt ég bæti einni við. Upp frá þessari stundu var ég annar maður. En frá fyrri ferli minum hef ég reynsluna, og ég veit hvaö það er, að standa i sporum þeirra manna, sem ég nú reyni að bjarga. Ég held, að enginn geti útskýrt það, hvað gerist i brjósti manns, þegar kallið kemur. Uetta gerist oft allt i einu — iðulega á sam- komum, en lika stundum i ein- rúmi. Ég get bara sagt, að það er Kristur, sem kemur. Maður er leiddur til Krists og helgaður hon- um. Nú komum við og minir sam- starfsmenn til þjóðfélagsins og samborgaranna og biðjum um

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.