Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 1
fóðurvörur
ÞEKKTAR,
UM
LAND
ALLT
»11««
271. tölublað — Miðvikudagur 21. nóvember — 57. árgangur.
10-20 þúsund lesta skip úr höfn með vikurfarm annan hvern dag:
Ef Þjóðverjar kaupa hér
tvær milljónir lesta ó óri
Sjópróf
— í móli
St. Legers
á morgun
SJÓPRÓF vegna áreksturs
brezka togarans St. Leger’s
og Ægis hefjast væntanlega á
isafirði á morgun, og veröur
þá reynt að leiöa i Ijós, hvaö
skráð er i dagbækur skipsins
um áreksturinn og ennfrem-
ur veröur reynt aö fá vitnis-
burð skipverja um árekstur-
inn. Það er réttarlegur
möguleiki á þvi aö skipiö
verði kyrrsett ef fram koma
kröfur um skaöabætur.
Aðspurður sagði Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri i
dómsmálaráðuneytinu i
gærkvöldi, að ekki væru
miklar likur áþvi at skipið
yrði kyrrsett og yrði þess
tæplega þörf, vegna þess að
skipið kemst ekkert vegna
Framhald á bls. 19
Grundvöllur fyrir stórskipahöfn ó suðurströndinni
Gylfi Örn
losnaði
á flóðinu
Gylfi örn GK 303,
sem strandaði i
innsiglingunni til
Grindavikur i
fyrrakvöld, losnaði
af skerinu á flóðinu,
eins og búizt hafði
verið við, og komst
að bryggju með
hjálp annars báts.
Gylfi örn mun litt
skemmdur eftir
strandið.
„LÍKLEGT má telja, að á Heklu-
svæðinu séu um fimmtiu milljónir
tonna af vikri, er nota mætti i
steypu”, segir i grein eftir Hörö
Jónsson verkfræöing formann
gosefnanefndar, i nýju hefti
Iönaöarmála. Hann skýrir þar
einnig frá þvi, að þýzkt fyrirtæki
hafi leitað hófanna um kaup á
einni til tveim milljónum lesta af
vikri á ári, svo fremi sem hann
fáist fyrir samkeppnisfært verö.
bjóðverjar framleiða margs
konar hleðslusteina úr vikri og
nota um 6-7 milljónir lesta vikurs
á ári hverju. Vikur i Þýzkalandi
er nú svo aö segja uppurinn, og
hafa Þjóðverjar orðið að fá vikur
frá Grikklandi hin siðari ár.
Flutningsleið er iengri frá Grikk-
landi heldur en tslandi, en með
þvi að mest af honum er á eyjum i
Grikklandshafi, fer flutningurinn
■fram á skipum á tiltölulega ódýr-
an hátt.
Hörður skýrir frá þvi, að hér
hafi verið unnið að athugunum á
ýmiss konar flutningaaðferðum,
og hefur meðal annars borið á
góma, að pipur verði lagðar frá
Heklusvæðinu og vikrinum dælt i
vatni til strandar. En einnig komi
til mála að setja vikur i sivala
dreka og fleyta slikum drekum i
pipum.
Væru fluttar héðan tvær
milljónir lesta af vikri á ári, segir
i grein Haröar, yrði tiu til tuttugu
þúsund lesta skip að leggja úr
höfn með vikurfarm annan hvern
dag, og væri þá ef til vill kominn
grundvöllur fyrir stórskipahöfn
við suðurströndina, þannig að
stórfelld hagnýting vikursins
stuðlaði jafnframt að mikilvægu
framfaramáli af öðru tagi.
Hörður segir enn fremur, að
næsta skref i útflutningi vikurs, ef
til hans kemur, yrði að sjálfsögðu
framleiösla byggingareininga,
þar sem hagnýttur yrði mikill
jarðvarmi, sem enn er ónýttur, til
dæmis i Hveragerði.
Hörður segir að lokum, að þessi
mál séu á byrjunarstigi, en samt
sé ekki óliklegt, að grunntölur,
sem byggja megi á framhaldsat-
huganir, verði til reiðu fyrir lok
þessa árs.
FYRSTA LANDHELGISBROT
EFTIR SAAAKOAAULAGIÐ
— Northern Sky sviptur veiðiheimild
BREZKI togarinn Northern Sky
hcfur nú veriö felldur niöur af
skrá yfir skip, sem vciöiheimild
hafa innan 50 mílnanna sam-
kvæmt bráðabirgðasamkomulag-
inu milli Breta og tsiendinga. Var
þaö vegna brota á samkomulag-
inu, en varðskipið Týr kom aö
togaranum á friðaða svæöinu
noröur af Kögri á mánudaginn.
Var skipið þar ásamt hópi
brezkra togara, en Northern Sky
var þeirra innstur, þrjár sjómilur
inni á friöaða svæöinu.
t fréttatilkynningu frá dóms-
málaráðuneytinu segir svo:
,,t gær, mánudag 19. nóvember
um kl. 15.30, kom varðskipið Týr
að hópi brezkra togara að veiðum
við friðaða svæðið norður af
Kögri. Fór varðskipið að innsta
togaranum, sem reyndist vera
Northern Sky, GY 25, og gaf hon-
um stöðvunarmerki, gerði
staðarákvarðanir og setti út dufl.
Hin veiðiskipin, sem utar voru,
sigldu jafnframt burt. Skipherra
varðskipsins tilkynnti togaran-
um, að hann, samkvæmt mæling-
um varðskipsins, væri um 3 sjó-
milur inni á friðaða svæðinu og
væri brotlegur gegn ákvæðum
bráðabirgðasamkomulagsins
milli tslands og Bretlands. Varð-
skipið náði siðan sambandi við
eftirlitsskipið Miranda, sem var
inni á Isafirði i sjúkraflutningum,
og hélt eftirlitsskipið á staðinn til
að sannreyna málsatvik. Togara-
skipstjórinn neitaði ekki, að hann
væri inni á friðaða svæðinu, en
taldi þó að hann væri minna fyrir
innan en mælingin gaf til kynna.
Miranda kom á staöinn seint i
gærkvöldi og var sammála niður-
stöðu varðskipsins. Dómsmála-
ráðuneytinu var jafnframt gefin
skýrsla um málsatvik um hendur
Landhelgisgæzlunnar. Að mála-
vöxtum könnuðum taldi ráðu-
neytið upplýst, að togarinn hefði
gerzt brotlegur við ákvæði sam-
komulagsins, og bæri að fella
hann niður af skrá yfir skip, sem
veiðiheimild hafa samkvæmt
samkomulaginu.
Togarinn Northern Sky mun nú
hafa haldið heimleiðis af Islands-
miðum.
Utanrikisráðuneytinu hefur
verið tjáð, til frekari tilkynning-
ar, að Northern Sky GY 25 hafi
verið felldur niður af skránni.”
Blaðafulltrúi Landhelgisgæzl-
unnar var að þvi spurður i gær,
hvort ekki hafi verið möguleiki á
þvi, að fleiri skip en þetta eitt hafi
verið innan friðaða svæðisins. Og
ef svo hefði verið, hvort ekki hefði
verið unnt að gera fleiri staðar-
ákvarðanir, t.d. sigla að skipi,
sem greinilega væri innan
svæðisins, og sanna svo með ljós-
myndum og öðrum gögnum, að
skip, sem væru enn innar, hefðu
einnig verið að ólöglegum veiö-
um.
Ekki sagði blaðafulltrúinn að
þetta væri mögulegt, heldur yrði
aö ákvarða stöðu hvers skips fyr-
ir sig með þeim aðferðum, sem
tiltækar væru, þ.e. radar og Lor-
an C miðunartæki. Ekki sagði
Hafsteinn Hafsteinsson, blaða-
fulltrúi Gæzlunnar, að til frekari
aðgerða hefði komið á miðunum
siðan á mánudag.
—hs—
HOTEL LOFHfllOV?
SUNDLAUGIN
ereitl af mörgu, sem „Hótel Loftleiðir"
hefur til síns ágætis og umfram önnur
hótel hérlendis. En það býöur líka afnot
af gufubaðstofu auk snyrti-, hárgreiðslu-
og rakarastofu.
VISID VINUM A HOTEtr
LOFTLEIÐIR.
Enn
eitt
sölu
ADAI.UPPISTAÐAN i afla
Hramiar VK, seni er tæplega
200 lesta netabátur, var ufsi,
en skipiö landaöi i Brenter-
haven i gær. Menn áttu þvi
ekki von á neinu sérstiiku
veröi fyrir aflann, þar sem
ennfreinur var vitaö. aö hann
var frekar lélegur. llrönn setti
sanit sem áður sölumel, og
fékk hvorki meira né minna en
01.35 krónur fyrir livert kg.
Var þvi slegið met llamars,
kr. 00.93, sem sett var fyrir
sköminu. Ilamar sló þá met
Surtseyjar frá 9. okt. scm var
kr. 50.70 fyrir liverl kg.
Athyglisvert er, að Ltú l'ékk
skeyti, þar sem greinl var lrá
sölunni, en i þvi sagði jai'n-
framt, að gæði aflans hefðu
verið léleg. Eftirspurnin hefur
þvi verið geysileg, úr þvi að
verðið fór svona hátt Hrönn
seldi 60,3 lestir fyrir 119.200
mörk eða tæpar 3,9 milljónir.
Meðalverðið var eins og áður
sagði kr. 64.35 pr. kg.
Togarinn Narfi landaði i gær
milli 80 og 90 lestum al' fiski i
Keykjavik, en i siustu viku
landaði Þormóður goði, 83
lestum. Einn bátur hefur
tilkynnl sölu i Bretlandi i
næstu viku. Er það Freyr frá
Keflavik, en hann mun
væntanlega selja þann 28.
nóvember n.k. Reiknað er
með góðu verði i Bretlandi,
þegar sölur hefjast þar, og má
jafnvel búast við enn fleiri
metum á næstunni.
— Iis —
V-þýzkir sérfræðingar
komnir til viðræðna
um veiðiheimildir
FYRSTI fundur islenzkra og
vestur-þýzkra sérfræöinga um
hugsanleg veiöisvæöi þýzkra
togskipa innan 50 milna mark-
anna veröur I dag. Þjóöverjarnir
komu til landsins I gær, en þeir
eru Fiskimálastjóri V-Þýzka-
lands, Möcklinhof, og dr. Mayer
frá v-þýzku hafrannsóknastofn-
uninni.
Hans G. Andersen, sem verður i
viðræöunefndinni af íslands
hálfu, sagði i viðtali að gengið sé
út frá þvi, að eftir þennan fund
verði viðræðum haldið áfram i
Bonn. A þessum fundi
verða aðeins undirbúningsviðræð-
ur, og er búizt við að
Þjóðverjarnir komi með ákveðn-
ar tillögur á fundinum i dag.-hs-
MIKIL VERÐHÆKKUN OG JAFN-
VEL SKORTUR Á VEIÐARFÆRUM
Olía undirstaða nútíma veiðarfæragerðar
UNDANFARIÐ hafa verið
miklir erfiðleikar á útvegun
veiðarfæra og hefur ástandiö
enn versnað síðustu vikurnar.
Liklegt má þó telja, að takist
að útvega þau net, sem þarf til
vertiöarinnar i vetur, en svo
er ekki gott að segja, hvernig
ástandiö verður eftir þaö.
Eins og kunnugt er, er olia
undirstöðuhráefni i fram-
leiðslu gerviefna, einnig
þeirra, sem veiðarfærin okkar
eru unnin úr. Þó að veiðar-
færaskorts hafi verið fariö að
gæta fyrir striðið fyrir botni
Miðjarðarhafs, kemur hann til
að aukast stórlega á næstunni.
Þessu fylgir að sjálfsögðu
mikil verðhækkun. Má geta
þess, að þau veiðarfæri, sem
tslendingar sömdu um kaup á
I Japan i sumar, hækkuðu um
60—80%, og það sem samið
hefur verið um siðan, hefur
hækkað enn meira. Þessar
hækkanir eru enn ekki farnar
að koma fram i tógframleiðsl-
unni, hvað sem siðar kann að
verða.
Timinn hafði samband við
Guðmund Isfeld, hjá Sjávar-
afurðadeild SIS um þetta mál.
Hann sagði, að eftirspurnin
hefði verið geysimikil undan-
farið og væri það vafalaust
vegna þess, að menn væru
uggandi um sinn hag. Deild-
inni hefði þó tekizt eftir mikla
eftirgrennslan og tilraunir að
útvega nokkur þúsund net frá
Noregi og yrðu þau afgreidd
frá næstu mánaðamótum og
fram i april og kæmu þvi að
gagni á næstu vetrarvertið.
Guðmundur kvaðst telja, að
öll þau net, sem þyrfti i vetur,
myndu fást, en hann vildi engu
spá um næsta vetur. — SB.