Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 21. nóvember 1973.
ELLEN
DUURLOO:
Geymt
en
ekki
gleymt
________________30_
Nú jæja, glæsilegt hafði brúð-
kaupið þó verið. Sendiherrann i
skrautlegum einkennisbúningi
var svaramaður hennar, og i
móttökunni á eftir vigslunni haföi
margt heldra fólk verið viöstatt
til þess aö óska þeim tii ham-
ingju.
Nú stóð hún hér á þilfarinu og
sigldi i átt til lands þess, sem
hafði að geyma hið nýja heimili
hennar, herragarðinn á Norður-
Sjálandi
John var ekki meö þeim.
Herbert hafði verið sammála
henni að það myndi einungis
skaða John að taka hann úr
skólanum svona skyndilega.
Bella var himinlifandi yfir þvi að
hann leit þannig á máliö, hún
hafði verið dauðhrædd um að
hann vildi að drengurinn kæmi
með þeim til Danmerkur þegar i
stað. Henni fannst alls ekki heppi-
legt að hún yrði kynnt i sam-
kvæmislifinu, sem móðir tiu ára
drenghnokka. Hau komu sér
saman um að bezt væri, aö hann
yrði i Englandi sem lengst, hann
hal'ði það gott, þar sem hann var.
Þar að auki vissi hún, að enda
þótt Herbert vissi hve gamall
John var, þá imyndaði hann sér
hann alltaf sem ungabarn.
— Komdu nú, ástin min, sagði
Herbert v. Lútten, við skulum fá
okkur eitthvað að borða, við
eigum langa járnbrautarferð
fyrir höndum.
Bella snéri sér að honum og
sendi honum geislandi bros.
— Já vinur minn, en ég er svo
spennt, að ég held að ég komi ekki
niður matarbita.
Maður hennar hló við.
— Maður skyldi halda að þú
værir fermingarstúlka, en ekki
slik heimskona, sem þú ert. Þú
sem hefur feröazt i kringum
hálfan knöttinn.
— Það er allt annað, sagði Bella
og brosti. Ef ég stæði hér á leið til
Kaupmannahafnar til þess eins
að halda tónleika, það myndi ég
ekki kippa mér upp við, en að
koma hingað sem eiginkona þin
og hitta fjölskyldu þina og
kunningja.
— Ö, fjölskylda min, en ég sagði
þér...
— Já, já, en maður verður
samt sem áður að taka gamlar
frænkur og frænda með i
reikninginn. Ég er svo tauga-
óstyrk, Herbert, þú verður að
hjálpa mér.
— Astin min, treystu mér...
— Það geri ég og þú veizt það,
annars væri ég ekki hingað
komin.
— Við hvað ertu svona hrædd?
— Ekki neitt alls ekki neitt, ég
haga mér eins og stelpukjáni.
Bella haföi að vissu marki lagt
sig alla fram við að haga sér eins
og stelpukjáni. Henni var ljóst
hve ánægður Herbert var, þegar
hann fékk tækifæri til að leika
riddara! Sterki og hugaði
maðurinn, sem varði ástina sina
með oröum og vopnum. Eins og
nú stóð á féll henni hlutverk sitt
mætavel i geð, hún var farin að
þreytast á að vera stöðugt yfir
aðra hafin og sjálfstæð. Vissulega
hafði Goldmann séð um öll
viðskipti fyrir hennar hönd, en
hún hafði þó alltaf hagað sér
gagnvart honum, sem heimurinn
tilheyrði henni einni. Það var
ágætt að hvila sig i dálitinn tima.
En það verður sjáifsagt ekki
lengi, hugsaði hún með áer. Henni
fannst aðeins að það væri betra að
vera ekki alltof áberandi fyrst i
stað, og sjá hvers konar fólk þetta
væri, sem hún nú myndi
umgangast.
í járnbrautarklefanum fór
Bella að spyrja mann sinn um
heimili þeirra, og kunningja
hans. Herbert hafði sagt henni frá
ýmsu, en ekki frá þvi, sem hún
helzt vildi fá að vita. Hann hafði
lýst fyrir henni búgarði sinum,
ættarsetrinu, sem lá á nesi i
stærsta stöðuvatni Sjálands.
Umhverfis búgarðinn var mikill
og þéttur skógur, og þar var hann
vanur að stunda veiðar. Hann
haföi i þjónustu sinni tvo ráðs-
menn, sem sáu um rekstur
jarðarinnar, sjálfur hafði hann
ekkert vit á búskap.
Þetta vissi hún, en hvað um
fólkið i nágrenninu, sem þau
kæmu til með að umgangast,
hann hafði ekki sagt annað en að
það væri indælis fólk. Oft hafði
hún verið að þvi komin að spyrja
hann hvort hann þekkti nokkuð til
Jean Pierre Deleuran, sem hafði
keypt búgarð i Danmörku fyrir
tiu árum. En hún hafði gætt tungu
sinnar. Hún mátti alls ekki nefna
það nafn. Það væri alltof hættu-
legt aö gefa i skyn að hún þekkti
Jean Pierre, af þvi að þá varð hún
að gefa skýringu á hvernig hún
þekkti hann, og ef svo Jean Pierre
einhvern tima gæfi aðra
skýringu, eöa léti sem hann hefði
aldrei séð hana fyrr, nei, þá
áhættu gat hún ekki tekið.
Járnbrautarlestin rann af stað.
Bella hnipraði sig saman i einu
horninu á klefanum, og horfði út
um gluggann.
— Er langt frá okkur til
nágranna okkar, spurði hún, mér
virðast bæirnir liggja svo nálægt
hver öðrum, er það eins heima
hjá okkur?
— Þeir liggja enn þéttar þar, en
þaö eru ekki allt búgarðar, sem
við höfum samskipti við. Sá sem
býr næst okkur er yfirskógar-
vörður Torstensen svo er Gylling
hirðveiðivöröur á Gyllenlund.
Presturinn og kona hans eru
nokkuð við aldur. Þau eru
reyndar öll nokkuð við aldur.
— Er enginn á okkar aldri?
— Mikil ósköp, jú, vitlausi
vesturindia maðurinn eins og við
erum vön að kalla hann. Að visu
viröist hann hafa stillzt svolitið
eftir að hann kvæntist. Það er
indælis kona, sem hann á. En
hann hafði óneitanlega skrýtnar
hugmyndir um ýmsa hluti, átti
dálitið erfitt með aö aölagast um-
hverfinu...
Bella lokaði augunum og var
fegin að rökkrið huldi roðann er
breiddist um andlit hennar.
— Nú, jæja sagöi hún, við
komum sjálfsagt ekki til með aö
umgangast þau neitt að ráði.
— Ég veit það ekki, við héldum
honum vissulega i nokkurri
fjarlægð fyrstu árin, Hann hafði
eins og ég sagði áðan talsvert
undarlegar hugmyndir um lifið,
Hann hafði verið þrælahaldari og
mikill maður þarna suðurfrá að
þvi er virtist. Honum fannst að
hann gæti hagað sér eftir eigin
höfði fyrst þegar hann kom til
Danmerkur. Hann átti nóg af
peningum, og varði stórfé til að
betrumbæta búgarðinn og keypti
rándýr húsgögn i allt húsið. A
þennan hátt komst hann i
samband við borgarastéttina i
Kaupmannahöfn. Hann skemmti
sér vist mjög mikiö á þessum
árum, að þvi að sagt, er, bætti
hann við, eins og hann væri
hræddur um að hún héldi að hann,
Herbert, hefði hitt þennan
skemtanafýkna mann á vafa-
sömum stöðum. Hann hefur
einnig alið veiðihunda og hesta,
presturinn hefur sagt mér að
hann fáist við hina undarlegustu
hluti. Hann kvað hafa smiðað,
forláta fiðlu, sem hann leikur
stundum á. Hann kvæntist
þessari stúlku sem ég minntist
áðan á fyrir sex eða sjö árum.
Hún er dótturdóttir Werners
gamla, það er frægur trésmiða-
meistari og hönnuður, húsgögn
hans eru fræg um gjörvallt
landið. Hann smiðaði húsgögnin
sem prýða Sct. Jans Minde, það
er búgarðurinn hans sem heitir
svo, ja þetta er ekki búgarður
heldur einungis ibúðarmikið
ibúðarhús, sem einungis kostar
peninga, en gefur ekkert i aðra
hönd. En honum má vist á sama
standa, hann á nóg af peningum.
— Heldur þú ekki að mér gæti
litizt á konuna hans? Það væri
gaman að hafa einhverja konu,
sem ég gæti umgengizt i
nágrenninu.
— Jú, sjálfsagt, en ég held að
þið séuð ákaflega ólikar, hún er
indæl en ákaflega borgaraleg.
Hún er prestsdóttir frá Noregi.
Annars held ég að hjónabandið
hafi haft góö áhrif á Deleuran.
Þegar ég fór að heiman, áttu þau
tvö börn og ég held að það þriðja
hafi veriö á leiðinni, það ætti að
vera fætt núna. Ég hef ekki
minnzt á þetta fólk fyrr, af þvi að
það tilheyrir ekki beinlinis okkar
stétt, og þar að auki virðast þau
vera hvort öðru nóg. Þau
umgangast mest fólk frá Kaup-
mannahöfn, og af eðlilegum
ástæöum hefur unga frúin haldið
sig heima við að mestu leyti. Ég
hef ekki umgengizt þau mikið, og
hvort á þvi verður einhver
breyting vil ég ekkert segja um
aö svo stöddu.
1558
Lárétt
1) Hitunartæki,- 6) Dropanna,-
10) Spil,- 11) Fléttaði.- 12)
Sætiö.- 15) Vendir.-
Lóðrétt
2) Gekk burt.- 3) Elska,- 4)
Skraut.-5) Nurla,- 7) Kærleik-
ur.- 8) Máttur,- 9) Miðdegi,-
13) Veinin,- 14) Hreyfist.-
Ráöning á gátu nr. 1557
Lárétt
I) Lómur.- 6) Italska.-10) Tá,-
II) Tá.- 12) Ilmanin.- 15)
Akafi.
Lóörétt
2) Óra.- 3) Uss.- 4) Lítil,- 5)
Barna.- 7) Tál.- 8) Lóa,- 9)
Kái.- 13) Mök.- 14) Nef.
/ Nei! Þeir hljóta )
^ að hafa sprengt ^
fjaliiö. Þaöer ekki hægt
Þú finnur það
ekki lengur, eöa
að þekkja landslagið.^x
! mmí i
Miðvikudagur
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar
14.30 Srðdegissagan: „Saga
Eldeyjar-H jalta ” eftir
Guðmund G. Hagalin
Höfundur les (11).
15.00 Miödegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15. Veöurfregnir.
16.20 Popphornið
17.10 Ótvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson GIsli
Halldórsson leikari les (11).
17.30 Framburðarkennsia i
spænsku
17.40 Tónleikar. T»il-
kynningar.
18.30 Fréttir. 18.45. Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Orð af orði
Umræðuþáttur um skóla-
húsnæði, sem Gerður
óskarsdóttir stjórnar.
19.45 Til umhugsunar Þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
20.00 Kvöldvaka a. Eggert
Stefánsson syngur islenzk
lög. b. Kaupstaöarferðir
Úthéraösmanna Halldór
Pétursson segir frá. c.
Kvæði eftir örn Arnarson.
Guðmundur Guðmundsson
les. d. „Ein er upp til fjalla”
Sigriður Guðmundsdóttir
flytur ævintyr um rjúpuna
eftir Eirik Sigurðsson. e.
Heiöarkolla og Smalarnir á
Gagnfellsheiði Hallgrimur
Jónsson frá Ljárskógum
flytur tvo stutt frásögu-
þætti. f. Kórsöngur. Alþýðu-
kórinn syngur undir stjórn
dr. Hallgrims Helgasonar.
21.30 Útvarpssagan:
„Dvergurinn” eftir PSr
Lagerkvist i þýðingu Mál-
friöar Einarsdóttur. Hjörtur
Pálsson les. (11).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Fram-
haldsieikritið: „Snæbjörn
galti” eftir Gunnar
Benediktsson Þriðji þáttur
22.50 Nútimatóniist Halldór
Haraldsson kynnir
„Lofræðu timans”, tónverk
fyrir hljóð úr sveifluvaka
eftir Wuorinen.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
18.00 Kötturinn Felix. Tvær
stuttar teiknimyndir.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.15 Skippi. Astralskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þýöandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.40 Svona eru börnin — á
Madagskar. Norskur
fræösluþáttur. Þýðandi og
þulur Ellert Sigurbjörnsson.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Litla bókin bláa.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
21.00. Krúnkaðá skjáinn.Þátt-
ur með blönduöu efni
varöandi fjölskyldu og
heimili. Umsjón Magnús
Bjarnfreðsson. Stjórn
upptöku Sigurður Sverrir
Pálsson.
21.40 Kúba I þrettán ár.Sænsk
yfirlitsmynd um þjóðfélags-
þróun og efnahags-
uppbyggingu á Kúbu fyrir
þrettánárum.sem liðin eru
frá byltingunni. Meðal
annars er lýst þætti unga
fólksins i uppbyggingar-
starfinu. Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.30 Jóga tii heilsubótar.
Bandariskur myndaflokkur
með kennslu i jógaæfingum.
Þýðandi og þiilur jpn O.
Edwald.
23.00 Dagskrárlok.