Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 17

Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 21. nóvember 1973. TÍMINN 17’' Aðeins eitt langskot hafnaði í marki Svía í síðari hálfleik íslenzka landsliðið virðist ekki geta verið án Geirs Hallsteinssonar. Tapaði í gærkvöldi fyrir Svíum með þriggja marka mun, 13:16 Það verða að teljast hæpin meðmæli fyrir is- lenzkan handknattleik, að svo mikið skuli muna um einn leikmann, að það skipti algerum sköpum um árangur landsliðsins. Án Geirs Hallsteinssonar var íslenzka landsliðið hvorki fugl né fiskur í landsleikn- um gegn Svium í gærkvöldi og tapaði með þriggja marka mun, 13:16. Sigur Svíanna var fyllilega sann- gjarn, og maður hafði-það allan tímann á tilf inningunni, að þeir væru betri aðilinn. Og jafnvel þegar rúmar 4 mínútur voru til leiksloka og Axel Axelssyni hafði tekizt að minnka muninn í 13:15, hvarflaði það tæpast að nokkrum hinna 3 þúsund áhorfenda, að islenzka liðinu myndi takast að brúa bilið. Ekki fyrir þá sök, að sænska liðið væri afburðasterkt, heldur ein- faldlega vegna getuleysis íslenzku sóknarmannanna, sem ýmist voru of ragir við að skjóta eða skutu of laust, þegar þeir létu verða af því. Meira að segja Axel var með þessu sama marki brenndur, enda þótt hann skoraði langflest mörkin. En þó ber að taka tillit til þess, að Svíarnir léku vörnina mjög framarlega og virtust einsetja sér að stöðva hann. Ef hægt er að tala um einhvern ljósan punkt i þessum leik, þá var það markvarzla ólafs Benedikts- sonar i siðari hálfleik. Aftur og aftur varði hann hörkuskot sænsku leikmannanna, þrátt fyrir, að vörnin, sem lék fyrir framan hann væri opin eins og gatastigti oft á tiðum. Nei, það er ekki hægt að hrósa islenzka landsliðinu fyrir leikinn i gærkvöldi, til þess var viðvaningsbragurinn of mikill Mistök á mistök ofan, auk þess, sem linumennirnir voru einstak- lega klaufskir, þegar þeir komust I dauðafæri. A einni og sömu minútunni misnotuðu Sigurberg- ur Sigsteinsson og Auðunn Óskarsson þrjú dauðafæri, svo dæmi séu nefnd. Alvarlegast er þó sú staðreynd, að sóknar- mennirnir brugðust. Það er erfitt að sætta sig við það, að islenzka landsliðið geti ekki verið án Geirs Hallsteinssonar, sérstaklega, þegar á það er litið, að i raun hef- ur hann yfirgefið islenzkan hand- knattleik. Axel, Viðar Simonar- son og Hörður Sigmarsson brugð- ust allir meira og minna, þó að þaö verði ekki skafið af Axel, að hann stóð að mestu að baki þess, sem jákvætt var i sóknarleiknum. Af Guðjóni Magnússyni var ekki búizt mikið, enda hefur hann ekki einu sinni staðið sig vel með félagsliði sinu. En þrátt fyrir að svona hafi tekizt til i gærkvöldi, er ástæðu- laust að gefa alla von á bátinn vegna HM. Enn er timi til stefnu til að lagfæra það, sem miður fór, enda þótt það sé óneitanlega nokkuð kyndugt, að samstilling landsliðsins skuli ekki vera meiri, tæpum tveimur mánuðum fyrir lokakeppnina. t stuttu máli gekk leikurinn i gærkvöldi þannig fyrir sig, að Sviar skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Það var ekki fyrr en á 9. minútu að Island komst á blað, en þá skoraði Axel úr vitakasti. I hálf- leik skildu 2 mörk á milli, 9:7, Svium i vil. Af þessum 7 mörkum tslands hafði Axel skorað 5, þar af 3 úr vitaköstum. Það er eftir- tektarvert, aö aðeins 3 mörk eru skoruð með langskotum i fyrri hálfleik. En enn þá alvarlegri er sú staðreynd, að i siðari hálfleik er skorað aðeins 1 mark með langskoti. Fátt sýnir betur hvað langskyttur okkar brugðust illi- lega i gærkvöldi. 1 siðari hálfleik höfðu Sviar örugga forustu allan timann, oft skildu fjögur mörk á milli, en undir lokin virtist aðeins ætla að rofa til, þegar Axel minnkaði bilið niður i tvö mörk. En sigur Svianna var samt aldrei i neinni hættu og lokatölurnar urðu 16:13. Þrátt fyrir þá staðreynd, að sænska liðið heföi nokkra yfir- burði i leiknum i gærkvöldi, og þrátt fyrir þá staðreynd, að i þvi séu snjallir leikmenn eins og Bo AXEL AXELSSON.. sést hér skora mark með langskoti. Hann skoraði þrjii mörk með langskotum af sjö (Tfmamynd Gunnar). Andersson (no 3), þá hafa Sviar oftast teflt sterkari landsliðum fram gegn tslendingum. Það gerir ósigurinn i gærkvöldi enn súrari. Sem fyrr segir, var Ólafur Benediktsson, markvörður, sá leikmaður islenzka liðsins, sem stóð sig hvað bezt i gærkvöldi. öðrum er vart hægt að hrósa, nema kannski Björgvin Björgvinssyni, sem var iðinn á linunni, eins og fyrri daginn, og þó að hann skoraði ekki nema 2 mörk, fiskaði hann vitaköst. Mörk tslands skoruðu: Axel 7, (4 viti), Björgvin 2, Viðar, Hörður, Sigurbergur og Agúst 1 mark hver. Mörk Svianna skiptust nokkuð jafnt milli leikmanna. 'l’homas Person og Bengt Hansson skoruðu 3 hvor, Jan Andersson, Björn Anderson, Dan Eriksson, Bo Andersen 2 mörk hver. Göran Hard og Bertil Söderberg 1 hvor. Dönsku dómararnir Henning Svenson og Knud Hjuler dæmdu leikinn þokkalega, en ekkert umfram það. -alf. Gísli Halldórsson kjörinn formaður Olympíunefndar Á fundi Olympiunefndar ts- lands, sem haldinn var i gær, var Gisli Halldórsson, forseti ISt, kjörinn formaður nefndarinnar i stað Birgis Kjaran, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Varaformaður Olympiunefndar var kjörinn Sveinn Björnsson, en hann er jafnframt varaforseti ISt. Mun einhver styrr hafa staðið um það, hver yrði varaformaður, en ýmsir formenn sérsambanda BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON.. skorar af Ifnu. Hollend- ingar í HAA úrslit Ilolllendingar tryggðu sér rétt til að leika i úrslitunum i heimsmeistarakeppninni i knattspyrnu 1974. Holland gerði jafntcfli gegn Belgiu, 0:0. Holland er þvi tólfta land- ið, sem hefur tryggt sér rétt til að leika i úrslitunum i Vestur- Þýzkalandi næsta suntar. Staðan i riðlinum var þessi: Holland 6 4 2 0 24:2 10 Belgia 6 4 2 0 12:0 10 Noregur 6 2 0 4 9:17 4 Island 6 0 0 6 2:14 0 lSt munu hafa haft áhuga á þess- ari stöðu. Um kjör formanns mun þó hafa verið fullkomin eining. Uppá- stunga um Albert Guðmundsson fékk ekki hljómgrunn, en af ýms- um var talið, að hann væri heppi- legur til þess að veita Olympiu- nefndinni forstöðu eftir að hann hætti störfum fyrir KSl. Gisli Halldórsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.