Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 3
Sliðvikudagur 21. nóvember 1973. TÍMINN 3* MIKIL SÖLUAUKNING HJÁ ICELAND PRODUCTS í USA 1. nóvember. Samingar tókust ekki vegna þess, að verkalýðs- félagið bauð aðeins upp á eins árs samning. Siðan hafa samninga- umleitanir leitt til þess, að verka- lýðsfélagið hefur fallizt á að gera nýjan samning til þriggja ára. Munur á kröfum verkalýðsfélags- ins og tilboði Iceland Products er nú svo litill. að búast má við sam- komulagi innan fárra daga. t stjórn félagsins voru kjörnir: Erlendur Einarsson forstj., Guðjón B. Ólafsson framkv. stj., Benedikt Jónsson framkvstj. og William Boswell lögfræðingur i Ilarrisburg. Fáar sölur - gott verð FAIR sildarbátar hafa selt undanfarna daga i Danmörku, og mun aðalástæðan vera sú, að bræla hefur verið á miðunum við Hjaltland. Þeir sem selt hafa, hafa hins vegar fengið gott verð fyrir sildina, og er þess skemmst að minnast, að Loftur Baldvins- son fékk kr. 48.18 fyrir kilóið af sildinni 15. þessa mánaðar, en magnið var 11.5 lestir. 1 gær seldu tvö skipi Hirtshals i Danmörku, Þorsteinn RE 33.6 lestir fyrir 1.2 milljónir,meðal- verð kr. 37.45 og Harpa RE 13.4 lestir fyrir 507 þús. meðalverðkr. 37.88 fyrir hvert kg. t fyrradag seldu þrjú skip afla i Danmörku. Guðmundur RE seldi fyrir 900 þús., magnið var 25.7 lestir og meðalverðið 34,63. Bjarni Ölafsson seldi 44.9 lestir fyrir 1.6 millj., meðalverð 37.40, og Jón Garðar seldi 17.3 lestir fyrir 609 þús., meðalverð kr. 35.24. Varnarmálin á þingi í gær Tillaga Alþýðuflokksins um að endurskoðun varnarsamningsins við Bandarikin beinist að þvi, að Islendingar taki við rekstri mannvirkja og eftirlitsflugi og herstöðin verði gerð að vopn- laustri eftirlitsstöð á vegum Atlantshafsbandalagsins var til umræðu siðla dags i gær i sam- einuðu Alþingi. Nánar verður sagt frá þessum umræðum i blaðinu á morgun. Þjónaverkfallið: Gistihúsunum lok- að á föstudaginn? Lögregluþjónar, þjónar og mat- reiðslumenn og mikill mannsöfn- uður i kringum þá. — Timamynd: Róbert. Klp-Reykjavik. Þófið við Veit- ingahúsið óðal hélt áfram i gær eins og undanfarna daga. Þaö hófst um hádcgið, er eigendur óðals höfðu hugsað sér að opna. Varð þá fyrst eitthverl orðaskak á milli þeirra og þjóna, sem stóðu verkfallsvakt, og endaði það ineð þvi, að fleiri þjónar komu og lok- uðu inngangi að óðali, bæði frá Austurvelli og Austurstræti. Til einhverra handalögmála kom á milli verkfallsvarða ann- ars vegar og eiganda hússins og I Það hefur verið tekið óþyrmilega i jakkaermi Páls, sem var einn úr hópi þjóna i Austurstræti um hádcgið i gær. En hann er glað- logur á svip eigi að siður. — Timamynd: Róbert. eiganda Öðals hins vegar. Þó voru þetta mest hrindingar, en eitthvað mun hafa rifnað af föt- um. Annað markvert gerðist ekki i gær en þetta þóf við óðal. Ekki er útlit fyrir að samkomulag verði i deilunni á næstunni, en til þessa hafa aðeins verið haldnir tveir l'undir með deiluaðilum. A hádegi á föstudag rennur út frestur sá, sem Félag Iram- reiðslumanna gaf á þjónustu i gistihúsum. Orn Egilsson, blaða- iulllrúi félagsins, sagði, að engin ákvörðun hafi verið tekin i þvi máli, en helzt væri að sjá, að til lokunar yrði að koma, þvi ekki hefði verið boðað til lundar um það né annað er varðaði þessa deilu. Kjarasamningur við starfsfólk til þriggja óra ICELAND Products, sem er eign Sambandsins og frystihúsa innan samtaka SAFF, hélt aðalfund sinn mánudaginn 19. nóvember 1973. Fundarstjóri var Benedikt Jónsson, framkvæmdastjóri i Keflavik. Erlendur Einarsson, forstjóri flutti skýrslu stjórnar- innar. Skýrslur um einstaka þætti starfseminnar voru fluttar af Othari Hanssyni framkv.stj. og Þóri S. Gröndal sölustjóra. Ennfremur skýrði Jón Finnsson hrl. frá málflutningi i máli Mr. Pauls Kitchen. Heildarsala félagsins árið 1972 var 26.5 millj. dollara á móti 20.5 millj. árið 1971. Sala á fram- leiðsluvörum verksmiðjunnar var 15.000 tonn að verðmæti 16.5 millj. dollara, en var 11.500 lestir að verðmæti 12 millj. dollara árið áður. A yfirstandandi ári, til 1. nóvember, nemur heildarsalan 31.5 millj. dollara. Afkastageta verksmiðjunnar var aukin um þriðjung á árinu, og framleiðir hún nú um 9% af heildarmagni fullunnins fisks, sem seldur er á Amerikumarkað- inn. Fyrir fimm árum var hlut- deild félagsins um 3% Eins og kunnugt er urðu mikil flóð, sem ollu gifurlegu tjóni, i Harrisburg og nágrenni i júni 1972. Ekki urðu neinar teljandi skemmdir á mannvirkjum Ice- land Products i flóðunum, en þau orsökuðu miklar tafir á byggingaframkvæmdum og ollu ýmsum öðrum erfiðleikum, sem áhrif höfðu á reksturinn. Eins og kunnugt er af fréttum, þá er félagið aðili að málssókn Mr. Pauls Kitchen. Mál þetta var hafið f. rúml. 3 árum. Málflutningi i héraðsdómi lauk fyrr i þessum mánuði, en dóms er eigi vænta fyrr en eftir áramót. 1 skýrslu Jóns Finnsson- ar á fundinum kom fram, að lög- menn Sambandsins og Iceland Products væru bjartsýnir á úrslit málsins, enda væru kröfur stefn- anda fjarstæðukenndar og ekki i neinu samræmi við meint tilefni. Kjarasamningur við starfsfólk verksmiðjunnar frá 1970 rann út Stjórn B.S.A.B. ber af sér sakir: Héraðsdómur í innheimtu- móli gekk félaginu í vil Annar brezkur til ísafjarðar BREZKI togarinn Port Vale kom til ísafjarðar I gær vegna bilunar, og er það annar tog- arinn, sem kemur I Islenzka höfn siðan „striðinu" iauk. Að sögn Guðmundar Sveins- sonar á Isafirði er togarinn með bilað reykrör frá katli, en St. Leger, sem kom til Isa- fjarðar á sunnudag, var einnig með bilun i katli. Virð- ast ketilbilanir algengar hjá þeim brezku, og þeir virðast ennfremur kunna að meta þá þjónustu, sem þeim er veitt. Brezkir sjómenn eru vafalaust fengnir þvi, að endi hefur ver- ið bundinn á landhelgis- deilurnar. hs- VEGNA skrifa blaðs yðar um félag vort í laugardagsblaöinu 17. þ.m., þar sem bornar eru hinar alvarlegustu sakir á hendur B.S.A.B. í grein, sem undirrituð er af h.s. leyfum vér okkur aö koma á framfæri eftirfarandi at- hugasemdum: B.S.A.B. varð vegna stórfelldra vanskila, að höfða mál gegn ein- um heimildarmanna h.s. Ármanni Magnússyni. Er mál það nú fyrir hæstarétti, og visum vér að öðru leyti til niðurstöðu héraðsdómsins, en lögmaður vor, Þorvarldur Þórarinsson hrl., hefur óskað eftir birtingu á niðurstöðum hans I blaði yðar. Samskonar innheimtumál er rekið einnig gegn öðrum heimildarmanni h.s. fyrir bæjarþingi Reykjavikur af sömu ástæðu. Forsendur héraðsdómsins i máli Armanns Magnússonar skýra bezt.hvers eðlis ásakanir hans og félaga hans á hendur B.S.A.B. eru, en þar segir m.a um mála- rekstur Armanns: „Þá leiðréttir hann i yfirlitinu byggingar- reikning á þann hátt, að taka eitt ár út úr og telja það heildar- kostnað yfir ákveðinn kostnaðar- liö byggingarinnar og krefjast lækkunar þess vegna, en taka ekki tillit til kostnaðar við þann byggingarlið á öðrum árum. Erfitt er að sjá, hvaöa tilgangi þetta eigi að þjóna, öðrum en þeim að villa um fyrir dómstóln- um. Þegar á allt þetta er litiö, verður ekki hjá þvi komizt aö finna alvarlega að málatilbúnaði stefnda." Þarf ekki að hafa fleiri orö um ásaknir þeirra félaga. Vér hörmum það, að blað yðar skuli flytja slíkan einhliða og órökstuddan áróður gegn sam- vinnufélagi og slá sliku upp sem einhverri rosafrétt. Vér væntum þess, að þér birtið þessar athugasemdir vorar á jafnáberandi stað i blaði yðar og grein þá, sem hér um ræðir. Stjórn B.S.A.B. íbúðaldnakerfið Björn Jónsson félagsmála- ráðherra flutti fyrir skömmu erindi uin húsnæðismál á ráð- stefnu Fjóröungssambands Norðurlands. Ræddi hann þar vandann i ibúðalánakerfinu og hina miklu aukningu i hús- byggingum. Björn sagði m.a.: „Hitt þarf vist engan að undra, að þegar fjárfesting i ibúðabygginguin vex um mcira en 2 milljarða á einu ári og umsóknir um lán úr Byggingasjóði eru orðnar á 3ja þúsundinu, skapist nokkur vandi, sem ekki verður i skyndi leystur nema til bráða- birgða. 1 þessu sambandi vil ég taka fram. að i rikisstjórn- inni rikir full samstaða, um að leysa skynsamlega fjárþörf Byggingasjóðs. i fyrstu með bráðabirgðaaðgerðum, eins og gert hefur verið, og svo er þiug kcmur saniaii, til lengri frainbúöar með nauðsvnlegri fjáröflun til þess að eðlilegri og æskilegri og sem jafnastri byggingastarfsemi verði hald- ið uppi. Vandi er vissulega fyrir hendi i þessum efnuin, en það er ástæðulaust með öllu að örvænta um sæmilega lausn hans. — Eins og fundarmönnum er kunnugt voru á siðasta Aiþingi samþykkt lög um byggingar leiguíbúða á vegum sveitarfélaga, e'n þau lög gefa fyrirheit um byggingar 1000 ibúða á næstu 5 árum utan höfuðborgarsvæðisins við lánakjörum þeim sömu, sem Frainkvæmdaáætlun Breið- holts veitir siiiu fólki. fcg tel alveg nauðsynlegt, sanngjarnt og sjálfsagt að framkvæmd þessara laga hafi algeran for- gang við liliö verkamanna- bústaðakerfisins, — 300 itiúðir á ári, — þegar frá upphafi næsta árs, og ég a.m.k. hef látið mér til liugar koina, að ekki væri útilokað að fram- kvæma þessa áætlun á skemmri lima cn 5 árum, e.t.v. á 2-3 árum. Um það tel ég þó of snemnit að fullyröa, hvort unnt reynist, Eg er lika þeirrar skoðunar, að við framkvæmd þessara laga heri að leggja sérstaka áherzlu á aukna hagkvæmni í byggingaaðferð eða aðferð- um, bæði kostnaðar vegna og einnig vegna þess, hvc stór hluti landsbyggðarinnar er illa settur með byggingamenn og byggingatæki. T'ilbúin hús eða einingahús, sem samtök væri um að byggja og Húsnæðismálastjórn hefði for- giingu um, kæntu þvi vel til at- hugunar að einhvcrju leyti, og má vera að slikt auðveldaði lika fjármögnun að verulegu marki. En tengsl þessa stóra máls, við vöxt útlutnings- framleiöslunnar gæti vel rétt- lætt, að leitað væri eftir er- lendu fjármagni til að fram- kvæma þennan þátt i lausn húsnæðismála landsby ggðar- innar fljótt og myndarlega. Ekki sýnist heldur útilokað, að beizla mætti áhuga ýmissa at- vinnufyrirtækja til að fá aukið vinnuafl i þjónustu sina f sam- bandi við fjármögnun, og er mér raunar kunnugt um, að þess eru dæmi að slikt sé i at- hugun. Samvinna fleiri eöa færri sveitarfélaga um þessar byggingaframkvæmdir væri að sjálfsögðu bæði gagnleg og æskileg. Um hugsaöa framkvæmd þessara laga er það að segja, að spurningalistar verða sendir út til sveitarfélaganna, þar sem leitað er eftir áliti þeirra á þvi, hvernig bezt veröi að framkvæmdum stað- ið og einnig eftir upplýsingum um önnur atriði, sem máli skipta. Hefur þetta verið tal- inn nauðsy nlegur undir- búningur, að setningu sam- hæfðrar og heppilegrar reglu- Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.