Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Miðvikudagur 21. nóvember 1973. iiFiniTiii Þarf að stórhækka hita- veitugjöld í Reykjavík til að hitaveita komist í Kópavog og Hafnarfjörð? MAGNÚS Kjartansson iðnaðar- ráðherra svaraði á Alþingi i fyrradag fyrirspurn frá Stefáni Gunnlaugssyni um hitaveitu- framkvæmdir i Ilafnarfirði, Kópavogi og Garðahreppi á veg- um llitaveitu Reykjavikur. Fyrirspurnin var svohljóðandi: „Hver er afstaða rikisstjórnar- innar til óska Hitaveitu Reykja- víkur um gjaldskrárhækkanir, en ákveðin arðsemi af rekstri þess fyrirtækis er háð þvi, að fram- kvæmdahraði vegna lagningar hitaveitu á vegum Hitaveitu Reykjavikur i Hafnarfjörð, Kópa- vog og sennilega einnig i Garða- hrepp geti orðið svo sem gert er ráð fyrir i samningum?” t svari ráðherrans kom m.a. þetta fram: Fyrirspurn þessi gefur tilefni að rifja upp i örfáum orðum for- sögu máls þessa. Viðræður for- ráðamanna Kópavogs og Hafnar- fjarðar annars vegar og fulltrúa Reykjavikurborgar og Hitaveitu Reykjavikur hins vegar um að Hitaveita Reykjavfkur taki að sér lögn og rekslur hitaveitu á þess- um stööum, mun hafa hafizt fyrir alvöru 1971 og lauk svo sem kunnugt er með samningi milli bæjarstjórnar Kópavogs og Reykjavikurborgar, dags. 30. nóv. 1972, og siðan sams konar samningi milli bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og Reykjavikur- borgar, sem dagsett var i október s.l. t báðum þessum samningum er I 2. gr. þeirra ákvæði um tima- mörk framkvæmda þeirra, er Hitaveita Iteykjavikur tekur að sér, þ.e. lögn dreifikerfis i Kópa- vogi á árunum 1973-1976 og lögn aðfærsluæðar og dreifikerfis i Hafnarfirði á árunum 1974-1978. t báðum tilvikum eru skuld- bindingar Hitaveitu Reykjavikur með þeim fyrirvara, að gjaldskrá Hitaveitu Reykjavikur verði á ofangreindum timabilum ákveðin þannig, að árlegur rekstrararður verði a.m.k. 7% af endurmetnum fjárfestingum veitunnar. Verði þvi skilyrði ekki fullnægt, áskilur Hitaveita Reykjavikur sér rétt til endurskoðunar á fram- kvæmdahraða og lengingar á timaáætlun framkvæmda, og skuli um þær breytingar höfð samráð við hlutaðeigandi bæjar- stjórnir. Þá er rétt að vikja nokkuð að beiðnum Hitaveitu Reykjavikur um hækkun á gjaldskrá, sem taldar eru koma þessu máli svo mjög við. Með bréfi borgarstjórans i Reykjavik, dags. 6. des. 1972, var óskað eftir gjaldskrárhækkun sem næmi 13%. Hinn 28. sama mánaðar er þessi hækkunarbeiðni talin nauðsynleg 17,9% og loks er með bréfi borgarstjórans i Reykjavik, 28. febr. 1973, óskað eftir hækkun sem næmi 29,6%. t samræmi við umsögn Fram- kvæmdastofnunar, dags. 8. marz 1973, var leyfð 20% hækkun og ný gjaldskrá staðfest hinn 12. marz 1973, sem fól þessa hækkun i sér. Með bréfi borgarstjórans i Reykjavik, dags. 22.08.73, var þó enn óskað eftir hækkun, sem næmi 12%. Að athuguðu máli taldi rikis- stjórnin ekki unnt að verða við þessari siðustu hækkunarbeiðni Hitaveitu Reykjavikur og synjaði henni með bréfi , dags. 8. þ.m. Samningurinn milli bæjar- stjórnar Hafnarf jarðar og borgarstjórnar Reykjavikur um hitaveitu i Hafnarfirði hefur verið staðfestur af bæjarstjórn og borgarstjórn, og hinn 18. okt. s.l. fór bæjarstjórinn i Hafnarfirði fram á það við iðnaðarréðuneyt- ið, að heimilað sé framsal einka- leyfis til Hitaveitu Reykjavikur til að starfrækja hitaveitu i Hafnarfirði meö þeim skilmálum, sem nánar er frá greint i samningunum. Ráðuneytið hefur haft þennan samning til athugunar og óskað umsagnar Orkustofnunar á hon- um. Orkustofnun telur, að nokkuð þurfi að athuga þennan samning með tilliti til Orkulaga, og skulu þá nefnd aðallega þrjú átriði. 111. gr. samningsins er gert ráð fyrir einkarétti Hitaveitu Reykja- vfkur til jarðhitaleitar. Einka- réttur þessi hlýtur að takmarkast af ákvæðum 15. gr. Orkulaga um rétt rikisins til að láta rannsaka jarðhita hvar sem er á landi hér og skyldur landeigenda til að þola óhindraðan aðgang þess vegna að landareigninni. 1 öðru lagi réttindaafsal á jarð- hitaréttindum i Krýsuvik af ákvæðum i afsali rikissjóðs til Hafnarfjarðar á Krýsuvikur- réttindunum i afsali dags. 20. febrúar 1941 sbr. heimildarlög af- salsins nr. 101 1940 og nr. 11 1936. Hafnarfjarðarkaupstaður þarf, sem landeigandi skv. 16. gr. Orkulaga, leyfi ráðherra til að skilja jarðhitaréttindin frá jörð sinni Krýsuvik, en i 11. gr. 2. mgr. samningsins virðist vera um slik- an aðskilnað að ræða. Samningsaðilum verður nú gerð nánari grein fyrir þessum lögfræðilegu atriðum, en að þeim leiðréttum sér ráðuneytið ekkert þvi til fyrirstöðu, að samningur þessi verði, ef báðir aðilar óska, staðfestur, og þá væntanlega i þvi formi, að gefið verði út heildar- leyfi fyrir Hitaveitu Reykjavikur, sem spanni yfir Reykjavik, Kópa- vog og Hafnarfjörð og Garða- hrepp, ef þess verður óskað. í háskól- 5. landsþing íslenzkra kennaranema: Innganga kennara ann, aðstaða utanbæjarnema SAMTÖK islenzkra kennara- skólanema hcldu fimmta lands- þing sitt um siðustu helgi, og var þar ineðal annars samþykkt að koma upp starfshópi, er skal fjalla um gruniiskólafrumvarpið, kosti þess og galla, og halda um það ráðstefnu innan fjögurra mánaða. Mest var fjallað um mál, sem snerta kennaranema sérstaklega. Meðal annars lýsti landsþingið undrun sinni á þeirri meðferð, sem umsóknir kennara um inn- göngu i háskólann hafa fengið, og taldi, að allur gangur málsins hefði brotið i bága við gefin loforð fyrrverandi rektors, sem og til- lögur tengslanefndar og Svein- bjarnar Björnssonar sem byggð- ar hefðu verið á rækilegri rannsókn. Krafðist þingið þess, að kennarar fengju tafarlaust inngöngu i háskólann. Það lýsti einnig stuðningi sinum við kröfur hjúkrunarfólks um, að þvi verði gefinn kostur á að auka þekkingu sina á þann hátt, sem það telur eðlilegastan. Þá var einnig skorað á alþingi og rfkisstjórn að beita sér fyrir, aö komið verði upp mötuneyti og heimavist handa þvi utanbæjar- fólki, sem stundar nám i Reykja- vik. Taldi það lausn til bráða- birgða að taka Hótel Esju eignar- námi til starfrækslu á nemenda- bústað og mötuneyti, og gæti þetta komið til framkvæmda haustið 1974. Vegna mikilla húsnæðisvandræða skóla i Reykjaneskjördæmi benti þingið á hið mikla húsnæði á Keflavikur- flugvelli, sem losnar þegar bandariski herinn hverfur brott. Þar gæti fengizt skólahúsnæði, mötuneyti, iþróttahús og ibúðar- húsnæði handa skólum i kjördæminu. Tryggvi Gunnarsson var áður formaður samtakanna, en nú voru kosnir i stjorn Jóhann Geirdal formaður, Margrét Bóasdóttir ritari, Borghildur Jósúad. gjaldkeri og Guðrún Þóra Hallgrimsdóttir og Guðrún Ásgrimsdóttir meðstjórnendur. 1 lok fréttatilkynningar um landsþingið segir, að hin ný- kjörna stjórn vilji taka það fram, vegna yfirlýsingar frá i vor um endurskoðun á aðild að Æ.S.I., að hún hafi verið gefin út af stjórn, sem raunar hafði ekki umboð samtakanna, og sé afstaða núverar.di stjórnar, að þeim beri að starfa innan Æ.S.t. Ekið fyrir Hestfjörð G.S. isafirði. Það voru að öllum likindum siðustu vöruflutuiuga- bilarnir að sunnan á þessum vetri, sem komu til isafjarðar i gær. Fcrðin var mjög erfið og voru bílarnir viku að komast vestur. Ekki verða fjallvegir á Vest- fjörðum ruddir aftur á þessum- vetri, og má þvi búast við þvi að þetta séu síðustu ferðir vöru- flutningabifreiða frá Reykjavik. Farið er að aka á jeppum fyrir botn Hestfjarðar, og hefur svo verið undanfarnar vikur, en reiknað er með að vegurinn, sem er mikil samgöngubót, verði fullgerður næsta ár, ári á undan áætlun. -hs- Rætt við for- stöðumenn 100 stofnana ÓLAFUR Jóhannesson forsætis- ráðherra svaraði i gær fyrirspurn um störf stofnananefndar. Svar forsætisráðherra var svohljóð- andi: Forsætisráðuneytið skipaði i april 1972 nefnd sjö manna til að „kanna staðarval rikisstofnana og athuga, hverjar breytingar koma helzt til greina i þvi efni”. Formaður nefndarinnar er dr. Ólafur Ragnar Grimsson prófess- or. Nefndin hefur hagað störfum sinum á eftirfarandi hátt: 1 fyrsta lagi hefur nefndin rætt tilgang og eðli stofnanaflutnings, þá erfiðleika sem honum eru samfara og hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til þess að hann beri tilætlaðan árangur. A grundvelli þessar umræðu hefur nefndin komið sér saman um ákveðin atriði, sem sérstaklega veröur að taka tillit til við ákvörð- un um, hvort flytja eigi opinbera stofnun eða ekki. Meðal þessara atriða eru: a) Skipulag stofnunar og helztu einkenni starfsemi hennar. b) Tengsl stofnunarinnar við aðrar stofnanir og hlutfalls- legt sjálfstæði hennar i starfi. c) Möguleikar á skiptingu stofnunar i deildir eða útibú. d) Starfs mannafjöldi stofnunar og sérhæfni starfsfólks, e) Húsakostur stofnunar,hvort hún býr i varanlegu húsnæði eða i leiguhúsnæði, hverjar eru húsnæðisþarfir hennar á næstu árum. f) Likleg áhrif af flutningi stofnunar á atvinnulif, þjónustu- starfsemi, vaxtarmöguleika og fleiri þætti almennrar byggða- þróunar. 1 öðru lagi hefur nefndin tekið til meðferðar um 150 opinberar stofnanir. Nefndin hefur aflað margvislegra gagna um starf- semi þeirra.og nú þegar rætt sér- staklega við forstöðumenn um 100 stofnana til þess að kanna nánar möguleika á flutningi stofnan- anna. Á grundvelli gagna og við- tala tekur nefndin afstöðu til þess, hvort og þá á hvern hátt eigi að flytja viðkomandi stofnun. Nefndin hefur nú þegar tekið slika afstöðu til tæplega 50 stofn- ana. Á næstu tveimur mánuðum mun nefndin ljúka viðtölum sin- um við forstöðumenn rikisstofn- ana og taka afstöðu til flutnings þeirra stofnana, sem eftir er að meta. 1 þriðja lagi hefur nefndin kynnt sér umræður og skýrslur um stofnanaflutning i nágranna- löndum. Störf nefnda af þessu tagi hafa yfirleitt tekið þrjú til fimm ár erlendis. 1 fjórða lagi hefur nefndin aflað sér gagna um liklega framtiðar- skipan nokkurra þjóðfélagsþátta, sem móta ’mjög skilyrði til stofnanaflutnings. Má sem dæmi nefna framtfðarþróun sam- gangna. Nefndin áformar að skila áliti i febrúar n.k. (Jr nýju búðinni í höfuðstað Norðurlands r Gunnar Asgeirsson opnar útibú á Akureyri GUNNAR Asgeirsson h.f., sem stofnað var 9. janúar 1960, og hef- ur stöðugt verið I örum vexti síð- an, hefur nú ásamt nokkrum aðil- um á Akureyri sett á stofn verzl- un að Glerárgötu 20. Stofnun þessa fyrirtækis er til þess ætluð, að auka og jafnframt bæta, þjónustu Gunnars Asgeirs- sonar hf. við Norðurland. . Verzlunin er i nýju húsnæði, og hafa innréttingar verið hannaðar af Gunnari Magnússyni innan- hússarkitekt. Smiði á innrétting- um annaðist Trésmiðjan Týr. Raflagnir annaðist Norðurljós, og var öll málningarvinna unnin af Guðmundi Jónatanssyni málara- meistara. Stærö verzlunarinnar er um 200 fermetrar. Þarna veröa á boðstólum allar þær vörur, er Gunnar Ásgeirs- son hf. hefur umboð fyrir. Einnig verða þar til sölu ýmsar vörur frá öðrum aðilum, til að auka vöru- valið. Verzlunin mun jafnframt veita fyrirgreiðslu um varahluta- og viðgerðaþjónustu, á þeim vör- um, sem Gunnar Asgeirsson hf. hefur til þessa selt á Norðurlandi. Þar má m.a. nefna allar vörur frá Husquvarna, Blaupunkt, Lenco og Bosch rafmagnsverkfæri. Verzlunarstjóri er Aðalsteinn Pétursson, sem starfað hefur hjá Gunnari Asgeirssyni hf. i Reykja- vik s.l. tvö ár. Lesta fisk og rækju á Isafirði G.S. ísafirði — ÞRJU skip voru á isafirði i gær að lesta unna rækju og frystan fisk, og mun heildar- verðmæti þessara sjávarafurða nema rúmlega 160 milljónum. Skipin, sem unnið var við að lesta, voru Selfoss, Goðafoss og Lagarfoss, en ilofsjökull mun væntanlegur i næstu viku i sömu erindagjöröum. Þessar sjávarafurðir koma að mestu leyti frá Isafirði, enn einnig frá Súðavik og Hnifsdal, og er um að ræða 106 lestir af fullunninni rækju, að útflutnings- verðmæti um 35 milljónir, og 57.000 kassa affrystum fiski að verðmæti um 130 milljónir. -hs-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.