Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 21. nóvember 1973.
Paola og Tony hugga hvort annað
Snowdon lávarður tók þátt i
myndasýningu,sem haldin var i
Brussel og kallaðist Europalic
1973. Snowdon er mikill ljós-
myndari og hefur oft hlotið
viðurkenningu fyrir myndir
sinar. A sýningunni, og meðan
Snowdon var i Briissel, sást
hann oft á ferð með Paolu prin-
sessu. M.a. kom Paola ein án
eiginmanns sins til sýningarinn-
ar, og þá var meðfylgjandi
mynd tekin af henni og lávarð-
inum, en að sjálfsögðu var hann
konulaus. Töldu margir, að þau
Paola og Snowdown hefðu rætt
hjúskaparvandamál sin, en eins
og allir vita er af nógu að taka-
Litli dýrlingurinn
Nú ma hann James Bond ekki
taka of fast á, eða Dýrlingur-
inn öðru nafni, eða kannski við
köllum hanna bara Roger
Moore i þessu hlutverki. Hér
heldur Moore á litla syni sinum,
Christian David Michael, i
fyrsta skipti fyrir framan ljós-
myndarann. Annars er Moore
orðinn þrautþjálfaður i að hugsa
£1
um son sinn. Hann skiptir um
bleiur á honum ogbaðarhanog
gerir hvað sem er til þess að
láta honum liða vel. Hann sýnist
lika kunna mætavel handtökin.
Afsökun innbrotsþjófsins
Lögreglan I Uppsölum i Sviþjóð
segist hafa heyrt margar
skrýtnar afsakanir og úskýr-
ingar um dagana, þegar þeir
gripa þjófa að verki, en út-
skýringin sem þeir fengu nú
nýlega sló þó allt út! Þeir náðu
innbrotsþjófi upp á þaki á stórri
byggingu i Uppsölum, og var
hann að reyna að komast inn um
þakglugga, sem hann hafði
opnað. — Nei, nei, hann var
ekki aö brjótast inn, en hann
hafði verið að æfa sig i karate
(japanskri kraftaiþrótt ) á
götunni fyrir neðan, og i látun-
um þeyttist tréskórinn af
honum, sagði hann, og i háa loft
og upp á þakið, og kannski fór
hann inn um gluggann. Ég varð
auðvitað að reyna að finna skó-
inn minn, sagði maðurinn. Lög-
reglu-þjónninn benti honum á að
skórinn væri fundinn. Maðurinn
var með báða tréskóna á fótun-
um. — En gott, þakka þér fyrir,
þetta voru uppáhaldsskórnir
mlnir, sagði hann þá glaður i
bragði!
*♦+***********+********************+*********
Hver er tvífari Mark Spitz?
Að minnsta kosti 80 háir, grann-
ir og myndarlegir iþróttamenn
komu til viðtals, eftir að auglýst
hafði verið eftir tvifara Marks
Spitz i sambandi við komu
hans til Englands i nóvember.
AÖ lokum voru valdir fjórir
skeggjaðir ungir menn, og hér
sjáið þið myndir af þeim, en efst
er Mark sjálfur. Cr hópi þess-
ara fjögurra var endanlega val-
inn Peter Willis, sem er neðst til
hægri. Hann á að vera eins kon-
ar tálbeita, sem dregur athygli
fólks frá hinum raunverulega
Spitz, sem óttast að eiga eftir að
lenda i vandræðum i Englandi
vegna þess að hann er Gyðing-
ur. Mark Spitz kemur til Eng-
lands I þeim tilgangi að sýna
þar sundfatnað.
DENNI
DÆMALAUSI
Og svo vorum við búnir meö
tómatsósuna. Ég sagði þér
alltaf, að sex flöskur myndu
ekki nægja.