Tíminn - 21.11.1973, Qupperneq 5
Miðvikudagur 21. nóvember 1973.
TÍMINN
5
Hluthafar í
Samvinnu-
bankanum
þúsund
NÝLOKIÐ er hlutafjárútboöi
Samvinnubankans, er hófst hinn
17. nóv. f fyrra á 10 ára afmæli
bankans, þegar ákveöiö var aö
auka hlutafé hans úr 16 i 100 miiij.
kr.
Sala hlutabréfanna gekk vel og
höfðu þegar um sl. áramót selzt
bréf fyrir 65 millj. krónur eða 3/4
hlutar hlutfjáraukans. I vor var
sýnt að hlutabréfin myndu seljast
upp, en þá lágu fyrir pantanir fyr-
ir allri hlutfjáraukningunni.
Hlutafjárútboðinu var þó haldið
opnu fyrir einstaklinga fram til
17. nóv. s.l. er rétt ár var liðið frá
upphafi þess.
Hlutabréf hafa nú verið gefin
út, og hefst afhending þeirra
innan skamms.
Hluthafar bankans eru um 1000
talsins, og nemur innborgað fé nú
81 milljón kr.
Hækkun fram-
færslu- vísitölu
KAUPLAGSnefnd hefur reiknaö
vlsitölu framfærslukostnaöar I
nóvemberbyrjun 1973, og reyndist
hún vera 226 stig eða 16 stigum
hærri en I ágústbyrjun 1973.
Hækkun framfærsluvisitölu, frá
ágústbyrjun til nóvemberbyrjun-
ar 1973 var nánar tiltekiö 16,1 stig,
eða 7,67%. Um var að ræða
veröhækkanir á mörgum innlend-
um vörum og á ýmissi þjónustu,
og einnig á mörgum innfluttum
vörum.
Þriðjungur af hækkun visitöl-
unnar stafaði af hækkun búvöru-
verðs í september siðastliðnum.
Þá tók gildi nýr verðlagsgrund-
völlur, og jafnframt var lækkuð
niðurgreiðsla á kjötverði og
kartöfluverði. Frá októberbyrjun
voru fjölskyldubætur lækkaðar úr
18.000 kr. i 15.000 kr. með hverju
barni á ári, og olli það 2,2ja stiga
visitöluhækkun.
Kaupgreiðsluvlsitala timabilsins
1. desember 1973 til 28. febrúar
1974.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
kaupgreiðsluvisitölu fyrir tima-
bilið 1. desember 1973 til 28.
febrúar 1974, samkvæmt ákvæð-
um kjarasamninga og i samræmi
við fyrirmæli i 1. tölulið 8. gr.
laga nr. 4/1973 um neyðarráð-
stafanir vegna jarðelda á Heima-
ey. Er þessi kaupgreiösluvisitala
149,89 stig, og skal samkvæmt þvi
greiða 49,89% verðlagsuppbót á
grunnlaun á nefndu timabili.
Kemur þessi verðlagsuppbót i
stað 39,54% verðlagsuppbótar,
sem gildir : .' til 30. nóvember
1973.
Auglýsing um
deiliskipulag í
Njarðvíkurhreppi
Tillögur að deiliskipulagi hafnar-
svæðisins i Ytri-Njarðvik voru sam-
þykktar á fundi hreppsnefndar Njarð -
víkurhrepps 13.marz s.l., og i skipulags-
stjórn rikisins 8. okt. s.l.
Samkvæmt 17. og 18. grein skipulagslaga
nr. 19, 21. mai 1964, liggja skipulagsupp-
drættir frammi almenningi til sýnis á
skrifstofu Njarðvikurhrepps, Fitjum, i 6
vikur frá birtingu þessarar auglýsingar.
Athugasemdum við tillöguna skal skilað
til hreppsnefndar Njarðvikurhrepps inn 8
vikna frá sama tima.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir
við skipulagstillögu þessa innan áður-
greinds frests, teljast hafa samþykkt til-
löguna.
Njarðvik, 15. nóv. 1973,
Sveitarstjórinn i Njarðvikurhreppi,
Jón Ásgeirsson.
Verölaunahafarnir I Ljóma-smáréttasamkeppninni, ásamt Davfö Sch. Thorsteinsson, framkvæmda-
stjóra Smörlikis, og Gunnari J. Friörikssyni úr stjórn fyrirtækisins. Frá vinstri: Þorbjörg Jósepsdóttir,
Þórunn Hauksdóttir, Linda Wendel.Sigurlaug Jónsdóttir og sigurvegarinn Geröur Guömundsdóttir.
(Timamynd Kóbert)
RÆKJUPÖNNUKÖKURNAR
METNAR Á 40 ÞÚSUND
— þdtttaka í Ljóma-keppninni mjög góð
Verölaun I LJÓMA-smárétta-
samkeppninni voru afhent á
sunnudagskvöldiö I hófi I Þing-
holti. Alis bárust um 270 fullgildir
réttir I samkeppnina, og var þaö
meira, en nokkur haföi búizt viö.
Þátttakendur voru frá öllum
landshornum. Fyrstu verðlaun
hlutu rækjupönnukökur, og bak
við dulnefniö ..Kötturinn Klói”
reyndist höfundurinn vera Gerö-
ur Guömundsdóttir, Sævarlandi
8, Keykjavik.
Geröur hlaut 40 þúsund krónur
fyrir réttinn. Onnur verðlaun
hlaut Humarréttur Sigurlaugar
Jónsdóttur, Stekkjarholti 4, Akra-
nesi. Var hann talinn 20 þúsund
króna virði. Þriðju verðlaun, 10
þúsund krónur, hlutu Tartalettur
með ostamauki, undir dulnefninu
ILWA. Höfundurinn reyndist vera
Linda Wendel, Blöndubakka 15,
Reykjavik. Þess má gela, að
Linda fékk einnig verðlaun i skyr-
réttasankeppninni um árið.
Fjórðu v rðlaun, fimm þúsund
krónur, hi. ut Krabbaskál, dul-
merkt „Bitti”, og var höfundur-
inn Þórunn .'auksdóttir, Lauf-
vangi 10, Hafi.arfiröi. Fimmtu
verðlaun hlaut , Tóbias”, öðru
nafni Þorbjörg 'ósepsdóttir,
llverfisgötu 31, Hafnarfirði, einn-
ig fimm þúsund krónur, fyrir
fyllta piparávexti m/kræklingi og
sveppum. Verðlaunauppskrift-
irnar voru birtar i Timanum á
Sunnudaginn.
t dómnefndinni voru: ilaukur
lljaltason, formaður, Agla Marta
Marteinsdóttir, Elsa Stefánsdótt-
ir, Iíröfn Farestveit, Jón Asgeirs-
son og Skúli Þorvaldsson. Var
starf dómnefndar, erlitt, en lik-
lega ánægjulegt. A dölinni er nú
að gefa út sérstakan bækling með
réttum úr samkeppninni.
—SB.
þessi auglýsing er ætluð
ástföngnu fólki úti á landi.
Eigum við að
trúlofa okkur?
Kæru elskendur! ÞaS er nú, sem við í Gujli og Silfri getum gert ykkur það kleift
a3 hringtrúlofast innan nokkurra daga, hvar sem þiS eruS stödd á landinu.
1. Hringið eða skrifið eftir okkar fjölbreytta myndalista sem inniheldureittfalleg-
asta úrval trúlofunarhringa sem völ er á og verður sendur ykkur innan klukkust.
2. Með myndalistanum fylgir spjald, gatað í ýmsurh stærðum. Hvert gat er núm-
erað og með þvi að stinga baugfingri í það gat sem hann passar í, finnið þið
réttu stærð hringanna sem þið ætlið að panta.
3. Þegar þið hafið valið ykkur hringa eftir myndalistanum skuluð þið skrifa
niður númerið á þeim, ásamt stærðarnúmerunum og hringja til okkar og við
sendum ykkur hringana strax í póstkröfu.
Með beztu kveðjum,
dttll ug §>Ufitr
Laugavegi 35 - Reyíc/avífc - Sími 20620
a
in