Tíminn - 21.11.1973, Qupperneq 10

Tíminn - 21.11.1973, Qupperneq 10
10 TÍMINN Miðvikudagur 21. nóvember 1973. segjum, að hún sé góð „kjöt- dúfa”. — Eru dúfur yfirleitt notaðar til manneldis í Danmörku? — Já, og þær þykja mjög góður matur. — Hefur þú haft þær til matar hér á tslandi? — Já, það geri ég mjög mikið. Það má næstum segja, að ég hafi alið þær upp til þess að borða þær. Þetta verður lika að vera, þvi að ef það er ekki gert, fjölgar þeim alltof mikið, svo framarlega sem sæmilega hefur verið með þær farið. Þá verða til hinir stóru dúfnahópar sem verða að hreinni plágu sums staðar. Dúfur, sem hafa gott hús og njóta réttrar umhirðu, eiga ekki að þurfa að verða neinum til óþæginda. Það fylgja þeim ekki óþrif, þvi yfirleitt halda þær sig alveg við kofann sinn, sitja þar oftast og eru alltaf inni um nætur. Af þessu leiðir, að óþrifin, sem þær valda, eru inni en ekki úti. Þær dúfur, aftur á móti, sem látnar eru sitja i löngum röðum á húsaþökum, eru ekki til neinnar prýði. Ég get vel viðurkennt, að það se' sóðaskapur að láta slikt viögangast. Það verður að hindra of- fjölgun — Hvað er þinn dúfnastofn stór? — Siöan ég fluttist i Kópavog, hef ég oftast átt þetta tuttugu til þrjátiu fullorðnar dúfur. Það táknar, aö ungarnir verða áttatiu til hundrað á ári. Það er auövelt að sjá, aö þegar viökoman er slik, þarf eitthvað aö gera til þess að halda fjöldanum niðri. Auðvitað tekur maður alltaf beztu og fallegustu ungana frá til þess aö láta þá lifa, þvi ekki dugar annað en að halda stofninum við. Þá er lika nauösynlegt að kynna sér, hverjar eru beztar til flugs og ala upp undan þeim. — Það væri óneitanlega gaman, ef hægt yrði einhvern tima að koma á smá- keppni um það, hver fljótust yröi, til dæmis frá Akureyri til Reykjavikur. — Er megintilgangur þinn með dúfnaeldinu að afla ljúffengs kjöts? — Nei, ekki vil ég segja það. Ég geri þetta fyrst og fremst vegna þess, að ég hef ákaflega gaman af þvi að hafa dýr i kringum mig, ekki sizt fugla. En ég veit lika, að það er aldrei hægt að fara vel með neinar skepnur, sem maður hefur undir höndum, ef ekki er séð um aöhalda fjölda þeirra innan hæfi- legra takmarka. Og þetta á ekki aðeins við um dýrin. Við vitum það öll, að halda þarf fðlksfjöld- anum i skefjum, ef mannkyninu á að vegna vel á jörðinni. Eiginleikar bréfdúfna — En hvað um bréfdúfurnar? Geturðu sent dúfu að heiman frá þér, hvert á land sem þú vilt? — Nei, það get ég ekki. Aftur á móti get ég sent þær heim, þótt ég sé staddur i mikilli fjarlægð frá heimili minu. Það er ákaflega gaman að veita bréfdúfum athygli, þegar þeim hefur verið sleppt úr kassanum i þeim tilgangi að láta þær fljúga heim. Fyrst fljúga þær beint upp i loftið, allhátt. Siðan fljúga þær sólarsinnis tvo til þrjá hringi umhverfis staðinn, þar sem þeim hafði verið sleppt. Þegar hringurinn hefur stækkað og þær eru komnar nokkuð hátt upp, þverbeygja þær allt i einu út úr hringnum og taka beina stefnu heim. Þar skeikar ekki hárs- breidd. Þegar dúfur eru æfðar til lang- flugs.eroft reyntaðhaga þvi svo, að alltaf sé sama áttin heim á meðan þjálfunin stendur yfir, en þó er það engan veginn nauðsyn- legt. Það er lika hægt að senda þær úr þveröfugri átt, þær rata yfirleitt alltaf heim. En vitanlega er það ennþá öruggara að láta þær alltaf eiga i sömu átt að sækja heim, og lengja vega- lengdina smám saman, eftir þvi sem æfingatimum fjölgar. — Hefur flughraði bréfdúfna ekki verið mældur? — Jú, það hefur oft verið gert. Þegar veður ekki hamlar, fljúga þær með niutiu til hundrað kiló- metra hraða á klukkustund, en ef þær fá mótvind, — eða hliðarvind, sem er ennþá verra —, seinkar þeim að sjálfsögðu. Er ekki mikill vandi að temja og æfa bréfdúfur? — Bréfdúfur eru svo ákaflega heimakærar, að heita má ógerningur að losa sig við þær lifandi. Selji maður bréfdúfu, má hann eiga það vist, að hún skilar sérheim aftur viðfyrsta tækifæri, að minnsta kosti ef hún er full- orðin. Eina ráöið er að kaupa unga og láta þá strax vera frjálsa úti við, svo þeim lærist að taka tryggð við nýja staðinn. Siðan er æfingin fyrst og fremst fólgin i þvi að fara með þær spölkorn frá heimilinu og láta þær fljúga heim. Þessa vegalengd verður svo auðvitað aö stækka jafnt og þétt, eftir þvi sem aldur og þrek ungans vex. — Hvað gætir þú hugsað þér að fulloröin bréfdúfa væri lengi að fljúga frá Akureyri tl Reykja- vikur? — Ég veit það ekki, þvi þetta hef ég aldrei reynt, en mér dettur I hug, að hún yrði svona þrjá til fjóra klukkutima. — Er þeim heimþráin með- fædd? — Já, hún er algerlega með- fædd. Annars má geta þess til gamans, að bréfdúfur eru kyn- bótaræktun frá fjalladúfunni i Sviss. Hún lifir i svissnesku ölp- unum, heldur sig alltaf á sömu slóðum og er afbragðs flugfugl. Mér er kunnugt um danskan mann, sem oft hefur tekið þátt i kappflugi dúfna þar i landi. Hann keypti eitt dúfnapar frá Hollandi, en þar er mjög mikið af ágætum bréfdúfum. Maðurinn gaf fjórtán hundruð danskar krónur fyrir þessar tvær dúfur, og það var ekki svo litill peningur fyrir fimm árum eða svo. Siöan hefur hann látiðþessar dúfur taka þátt i flug- keppni, og nú á hann stórt spjald á vegg meö mörgum heiðurs- merkjum og verðlaunapeningum fyrir utan drjúga fjárupphæð, sem hann hefur hlotið i verölaun. Ég þori ekki aö nefna neinar tölur, en ég veit, að það er ekki svo litill skildingur, sem kemur i rikiskassann sem nokkurs konar skemmtanaskattur, þegar háð er keppni milli bréfdúfna. Hér vantar alveg upp- fræðslu um dúfnarækt — Þér finnst liklega ekki mikið koma til hegðunar okkar Islendinga i sambandi við dúfur? — Hér á landi vantar alveg félagsskap á þessu sviði. Það vantar alveg fræöslu þeim til handa, sem eiga dúfur, hvort sem það eru unglingar eða fullorðnir. Húsin, sem þær eru hafðar i, eru ekki nærri nógu góð, og þar að auki eru þau oft alltof litil, eða verða það að minnsta kosti fljótt, þvi ekki þarf að efast um fjölg- unina. Það þarf lika að kenna fólki að matbúa dúfur á réttan hátt og siðan að borða þær. Gamlar dúfur eru sjaldnast góður matur. Þær verða strax seigar, þvi þetta eru svo vöðvamikil dýr. Það verður að segja fólki þetta og kenna þvi að slátra ungunum og matbúa þá á réttum tima. Það koma oft til min unglingar, einkum á vorin, til þess að spyrja mig, hvernig þeir eigi að fara með dúfur. Ég reyni að leiöbeina þeim eftir beztu getu, en vitan- lega hrekkur það skammt. Hér er ekki nein uppfræðsla um dúfna- rækt, og danskar bækur, sem til eru um þessi efni, eru bæði stórar og dýrar auk þess sem ungling- arnir geta flestir hverjir ekki lesið þær. Ég veit, að Dýra- verndunarfélagið ætlaði að reyna að bæta úr þessu með þvi að birta Ljósm. Timans G.E. allan þann tima hef ég haft dúfur hér. Ég bjó á Frikirkjuvegi 11 i 24 ár, og var með dúfur þar. Eftir að ég flutti i Kópavoginn var ég mest með hvitar dúfur, en svo fékk ég mér nokkrar bréfdúfur og hef ræktað þær siöast liðin fjögur ár. — Hefur þú æft þær mikið? — Ég hef flogiö dálitið með þær, eins og við köllum það i Dan- mörku, en það hefur ekki verið neitt venjulegt kappflug og ekkert veðmál i sambandi við það, enda enginn hér til þess að veðja við. Ég hef farið með dúfurnar austur á Kambabrún og sleppt þeim þar, og þær hafa verið mjög fljótar að fljúga heim aftur. — Það hafa ekki verið bréf- dúfur sem þú kynntist á barns- árum þinum i Danmörku? — Jú. Ég ólst upp i sveit á Norður-Jótlandi, og það var alltaf siður að selja dúfnaunga til Ála- borgar — við fengum fimmtiu aura fyrir stykkið. Bréfdúfan er mjög brjóstmikil og fremur stór, svo hún er talin ágæt til þess að ala upp unga til slátrunar. Við Valdiniar Sörensen heldur hér á eiimi dúfunni sinni. ÞAÐ er mikið til af dúfum á íslandi. í Eeykjavik þarf að eyða þeim skipulega, ef kyn þeirra á ekki að aukast svo úr hófi fram, að þær verði hrein plága. En þrátt fyrir þessa miklu mergð, hafa íslendingar aldrei lært að umgangast þennan ágæta fugl, að heitið geti. Þeir hafa að minnsta kosti ekki enn lært að ala dúfur til manneldis og leggja þær sér til munns, að hætti margra annarra þjóða. Dúfnaát er allt að þvi öþekkt á landi hér. Og fyrst okkur hefur aldrei lærzt að snæða dúfur, en þess er lftil von að við kunnum að temja þærá þann hátt, sem aðrar þjóðir hafa lært fyrir löngu. Bréfdúfur þekkjum við aðeins af afspurn. Danir framleiða dúfna- kjöt til manneldis Þó er einn maður á Islandi — raunar ekki Islendingur, heldur Dani, — sem kann með bréfdúfur að fara. Hann heitir Valdimar Sörensen og er dómvörður i Saka- dómi Reykjavikur. Valdimar er nú hingað kominn og ætlar að tala um dúfurnar sinar, ef það mætti verða til þess að vekja áhuga okkar fyrir eiginleikum þessara fallegu og sérstæðu fugla. — Valdimar! Hvenær hófust þin nánu kynni af dúfum? — Þau hófust þegar ég var ungur drengur heima i Danmörku — og það er orðið langt siðan! Nú eru næstum þrjátiu og fimm ár liðin siðan ég kom til Islands, og „Af alúð og athygli..." Miðvikudagur 21. nóvember 1973. TÍMINN 11 Svona eiga dúfnakofar að vera. Þegar vel er að dúfum búiö, eru þær hinar skemmtilegustu skepnur og skila aröi, rétt eins og hver önnur húsdýr. grein i Dýraverndaranum um meðferð dúfna, og ég vona, að hún geri eitthvert gagn. — Það má þannig segja, að við hvorki kunnum að fóðra dúfur eða borða þær? — Nei, þvi miður er þetta alveg rétt, þið kunnið ekki heldur að fóðra þær. Það halda margir, að tiúfur geti lifað þvi sem næst af sjálfu sér, eins og villtir fuglar, án þess að maðurinn komi þar nokkuð við sögu, en er mjög fjarri þvi, að svo sé. Dúfurnar, sem sitja á húsaþökum og verða að miklu leyti að -sjá um sig sjálfar, eru ekki vel haldnar. Það sést bezt, ef frjósemi þeirra er borin saman við þá frjósemi, sem dúfum er eðlileg. Dúfur, sem vel er farið með, verpa og unga út sex sjö sinnum á ári, en dúfurnar á þökunum ekki nema einu sinni til tvisvar. Og ungarnir, sem alizt hafa upp á útigangi, eru ekki mannamatur. Hinir eru aftur á móti afbragðs fæða. — Já, vel á minnzt: Hvaö er hægt að gera ráð fyrir mörgum ungum á ári eftir hverja dúfu, ef hún er sæmilega fóðruð? — Fyrst er að þvi að huga, aö dúfurnar eru einkvænisdýr, sem lifa I strangheiðarlegu hjóna- bandi, oftast alla æfina, sama parið. Langoftast koma tveir ungar i senn, ef allt gengur vel, og þá má gera ráð fyrir að hjónin komi upp tólf til fjórtán ungum á ári. Ég hef að gamni minu reiknað út fóðrið þeirra annars vegar og verð á kjöti hins vegar, og ég hef komizt að þeirri niður- stöðu, að þessir tólf ungar geri betur en að borga það fóður, sem til þess þarf að koma þeim upp, og er þá miðað við ungakjötið sé álika verðmætt og gott lamba- kjöt. Það er þannig hægt að eiga dúfurnar sér að kostnaðarlausu, ef menn á annað borð hafa ánægju af þvi að umgangast dýr og kunna með að fara. Menn verða að skilja, að það er ekkert ósæmilegt við það að aflifa dýr, sé þaö gert á réttan hátt. Menn geta margt af þvi lært — Já, það geri ég sannarlega. Ef rétt er að farið, er þetta mjög holl tómstundaiðja. Það er ekki lltið fróðlegt, að fylgjast meö at- ferli bréfdúfna, ef fálki nálgast dúfnahóp, þar sem bæði bréf- dúfur og hvitar dúfur eru saman. Bréfdúfur fljúga þá beint upp i loftið, svo hátt, að fálkinn veit ekkert hvað af þejm verður. Ég veitekki, hversu hatt þær fara, en ég hef ekki getað fylgt þeim eftir með sjónauka, þótt skyggni hafi verið ágætt. Svo sem hálftima seinna koma þær aftur — alveg beint niður úr loftinu. Þetta er furðulegt á að horfa. Menn geta margt lært af sam- félagi við skepnur, ef þeir umgangast þær af alúö og athygli. -VS. Skrautlegt fiöurfé, — enda ber höfuöburðurinn vott um ánægju meö eigið útlit S. J. Míkines; "Sakn", oijuroálningur frá 1934. Bók um færeyskan listmólara 1 DANMÖKKU licfur veriö gefin út hók um færeyska listamanninn S. Joensen-Mikines eftir Ernst Ment/.e, sem áöur liefur skrifaö svipaöar bækur um ýmsa danska listamen n. t þessari bók er meðal annars lýst bernsku og uppvaxtarárum listamannsins úti i Mykines, baráttu hans við sjálfan sig, þrosaferli hans og vináttu hans við skáldið William Heinesen siðar á ævinni, en þessir tveir menn hafa haft mikil og örvandi áhrif hvor á annan. 1 henni er birt mikið af bréfum listamannsins til ættingja sinna. Þólt margt sé fallega sagt i þessari bók, hefur hún eigi að siður vakið hneykslun i Færeyj- um, þvi að mynd sú, sem dregin er upp af manninum S. Joensen - Mikines þykir annað en skyldi, og sumar lýsingar á færeysku mannlifi eru næsta lurðulegar. A einum stað stendur til dæmis: „Stærpi börnin kasta af „tilviljun” grjóti i K.. og L.., sem ganga um með bláa og græna bletti á fóturn og handleggjum. Það er mikil iþrótl að grýta hver annan og sérstaklega þessa naut- heimsku Dani.” Ummæli af þessu tagi þykja Færeyingum undarleg i bókinni um listamanninn. S. Joensen-Míkines

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.