Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 13
Miövikudagur 21. nóvember 1973.
TÍMINN
13
Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna.
Ritstjórar og ábyrgöarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur Ragnar
Grimsson, Pétur Einarsson .____
AAiðstjórnarfundurinn
og baróttumól S.U.F.
Um siðustu helgi var haldinn i Kópavogi aðal-
fundur miðstjórnar Sambands ungra framsókn-
armanna. 40 miðstjórnarmenn úr öllum kjör-
dæmum landsins komu á fundinn. Þar var rætt
um málefni SUF og Framsóknarflokksins af al-
vöruþunga og hreinskilni, og mörkuð af einhug
stefna i helztu baráttumálum SUF, jafnt i þjóð-
málum sem i innri málefnum Framsóknarflokks-
ins.
í stjórnmálayfirlýsingu miðstjórnarfundarins,
sem birt er i heild hér á siðunni, var itrekuð sú
skýra og einbeitta vinstri stefna, sem mótuð var
á siðasta þingi SUF, og bent á, að i baráttumálum
SUF hafi á sumum sviðum náðst nokkur árangur
frá SUF-þinginu, en á öðrum þurfi mjög að knýja
á um stórtækari, ákveðnari og skipulegri aðgerð-
ir.
Miðstjórnarfundurinn markaði siðan stefnu i
þremur stórum þjóðmálaflokkum, sem stjórn
SUF var falið að vinna að á næstunni. Þessir
málaflokkar eru byggðamálin, utanrikis- og
varnarmálin og sameiningarmálið.
í byggðamálunum var lögð áherzla á, að fylgt
yrði róttækri og skipulegri byggðastefnu, sem
megi að stöðva byggðaröskunina i landinu og
snúa óheillaþróun undanfarandi áratuga við. Er
bent á nokkrar meginleiðir jafnframt þvi, sem
minnt er á hina itarlegu byggðastefnu samtak-
anna, sem mörkuð var fyrr á þessu ári.
t utanrikis- og varnarmálum er lögð þung
áherzla á að hvergi verði hvikað frá sjálfstæðri
utanrikisstefnu. Er sérstaklega bent á nauðsyn
þess, að bandariska herliðið hverfi af landi brott
fyrir lok kjörtimabilsins, og aðild ísland að
NATO verði tekin til vandlegrar endurskoðunar.
t sameiningarmálinu er sérstaklega bent á
nauðsyn þess, aðFramsóknarflokkurinn einangri
sig ekki frá þvi starfi, sem nú er unnið til þess að
gera sameiningu jafnaðar- og samvinnumanna
að veruleika, og að flokkurinn fari þær leiðir i
sameiningarmálinu, sem tryggi, að áttundi
áratugurinn verði timabil vinstri stefnu á ís-
landi.
Jafnframt þvi, sem stjórn SUF var falið að
knýja á um að Framsóknarflokkurinn fylgi ofan-
greindum baráttumálum fram, var lögð mikil
áherzla á ýmsar mikilvægar umbætur innan
Framsóknarflokksins sjálfs. Þær umbætur
snerta bæði aukið lýðræði innan flokksins, gagn-
gera endurnýjun i trúnaðarstöðum, málgagn
flokksins og húsnæðismál og ýmsa aðra þætti i
flokksstarfinu. Þar er sérstök áherzla lögð á
nauðsyn þess að æðstu kjörnu forystumenn
flokksns á hverjum tima séu, og vilji vera, for-
ystumenn flokksins i heild, en séu ekki i reynd
aðeins leiðtogar ákveðinna hópa innan hans.
Þannig var mörkuð skýr og ákveðin stefna i
helztu baráttumálum SUF, jafnt á þjóð-
málasviðinu sem i innri málum Framsóknar-
flokksins, — stefna, sem er i beinu framhaldi af
fyrri ákvörðunum.
Fundurinn gerði sér jafnframt grein fyrir þvi,
að hlutverk SUF innan Framsóknarflokksins, og i
islenzkum stjórnmálum, hefur aldrei verið mikil-
vægara en einmitt nú. Fundurinn fagnaði þeirri
vaxandi samstöðu með baráttumálum SUF, sem
komið hefur i ljós undanfarið, og hvatti eldri og
yngri skoðanabræður innan Framsóknarflokks-
ins til að efla samstarf sitt málstaðnum til styrkt-
ar — EJ
Stjórnmálayfirlýsing miðstjórnar SUF 1973:
Ákveðin stefna í
baráttumálum SUF
Aðalfundur miöstjórnar SUF,
haldinn i Félagsheimili Kópa-
vogs dagana 17.-18. nóvember
1973, itrekar þá skýru og
einbeittu vinstri stefnu, sem
mótuö var á síöasta þingi sam-
bandsins. Þessi stefna er sá
málefnagrundvöllur, sem bar-
átta samtakanna byggist á.
Á þeim tima, sem siðan er
liöinn, hefur þegar náðst nokkur
árangur i baráttumálum SUF á
sumum sviðum, en á öörum
þarf mjög aö knýja á um
stórtækari, ákveðnari og skipu-
legri aðgerðir.
Um leið og aðalfundurinn
fagnar hiklausri baráttu fyrir
stefnumálum sambandsins
siðastliðið ár, leggur hann
áherzlu á, að i næstu framtið
verði af einurð unnið aö fram-
gangi eftirfarandi baráttumála:
1. Aðaðgeröir i byggðamálum
verði grundvallaðar á róttækri
og skipulegri byggðastefnu,
sem megni aö stöðva byggða-
röskunina i landinu og snúa
óheillaþróun undanfarandi
áratuga við.
Fundurinn minnir á hina itar-
legu byggðastefnu SUF og
leggur sérstaka áherzlu á:
AÐ unnið verði skipulega að þvi
inarkmiði byggðastefnunnar,
að viðhalda og cfla blómlega
byggð um landið allt og koma á
efnalegu, menningarlegu og
stjórnarfarslegu jafnrétti
þegnanna hvar á landinu sem
þeir búa,
AÐ gerð verði heildaráætlun um
æskilega þróun byggðar á
islandi fram til ársins 1985.
Þessi áætlun nái jafnt til
byggðaþróunar i hinum
einstöku landshlutum sem
nýtingar landsins og gæða þess I
heild.
AÐ Alþingi útvegi þaö fjár-
magn, scm raunhæfar
úrlausnir i byggöamálum
krefjast. A næstu 10 árum verði
lagt árlega sem nemur 3% af
þjóöartekjum i byggðasjóð, sem
skipt verði niður i dcildir eftir
landshlutum. Sveitarfélög hvers
landshluta kjósi stjórn sinnar
deildar, en stjórnir landshluta-
deildanna ráðstafi þvi fjár-
magni, sem kemur I þeirra hlut
hverju sinni.
AÐ landinu veröi skipt i sérstök
áherzlusvæði eftir þvi hver
byggðavandinn er i hverjum
landshlua, en þessi
svæðaskipting verði slöan lögö
til grundvallar aögeröum I fjár-
f est inga r má lu m, skatta-
málum, húsnæöismálum, sam-
göngumálum, menntamálum
heilbrigöismálum og öðrum
málaflokkum, sem hafa áhrif til
lausnar byggðavandans. Á þeim
svæöum, sem lögð veröur mest
áliezla á, veröi fyrirtækjum
veitt meiri fyrirgreiðsla, lán til
húsbygginga verði hag-
kvæmari, framkvæindum við
byggingar skóla og sjúkrahúsa
hraðað, og önnur opinber
þjónusta sniðin að áherzlu-
skiptingunni, sem endurskoöuö
verði á fjögurra ára fresti.
AÐ lögð verði megináherzla á
uppbyggingu atvinnulifs lands-
byggðarinnar eftir félagslegum
leiðuin. Jafnframt verði at-
vinnulifiö gert fjölbreyttara
með uppbvggingu smáiðnaðar I
ölluin héruðum landsins.
Stofnaðar verði þjónustu-
miðstöðvar fyrir atvinnullf
livers byggðarlags, svo scm á
sviði bókhalds, hagræðingar og
tækniþjónuslu.
AD valdakerfi rikisins verði
endurskipulagt með flutningi
opinberra stofnana til hinna
einstöku landshluta til að skapa
lýðræðislegl jafnvægi i stjórn
landsins og styrkja framfara-
kraft landsbyggðarinnar.
2. Að hvergi verði hvikað frá
þeirri sjálfstæðu utanrikis-
stefnu, sem mörkuð hefur verið,
og sem veitt hefur lslendingum
nýja reisn á alþjóðavettvangi.
Fundurinn leggur sérstaka
áherzlu á:
AD bandariska herliðið hverfi
af landi brott fyrir lok kjörtima-
hilsins.
AD aðild tslands að Atlants-
hafsbandalaginu verði tekin til
vandlcgrar endurskoðunar I
ljósi fcnginnar rcynslu. Stjórn
SUF leggi ákveðnar lillögur þar
að lútandi fyrir næsta þing SUF.
3. Að óhikað verði unnið að
framkvæmd þeirrar yfir-
lýsingar siðasta flokksþings, að
Framsóknarflokkurinn muni á
þessu kjörtimabili „vinna að
mótun sameiginlegs stjórn-
málaafls allra þeirra, sem
aöhyllast hugsjónir jafnaðar,
samvinnu og lýðræðis”, og þess
ávallt gætt, 'áð flokkurinn
einangri sig ekki frá þvi starfi,
sem nú er unnið til þess að gera
sameiningu jafnaðar- og
samvinnumanna að veruleika.
Fundurinn leggur sérstaka
áhcrzlu á:
AD FramSóknarflokkurinn
ræki kröftuglega það grund-
vallarhlutverk silt, að vcra
forystuafl vinstri manna i
landinu og höfuðandstæðingur
Ihaldsaflanna,
AD Framsóknarflokkurinn hafi
forystu um, að farnar vcrði þær
leiðir I sameiningarmálinu, sem
tryggi aö áttundi áratugurinn
veröi timabil vinstri stefnu á
islandi.
Aðalfundur miöstjórnar SUF
itrekar samþykktir siðasta
SUF-þings um málefni Fram-
sóknarflokksins, og harmar að
þær skuli ekki hafa náð fram aö
ganga.
Jafnframt þvi, sem fundurinn
felur stjórn SUF að knýja á um,
að Framsóknarflokkurinn fylgi
fram þeim baráttumálum, sem
að framan eru rakin, leggur
hann mikla áherzlu á eftir-
farandi uinbætur innan
Framsóknarflokksins:
AD lýðræði innan flokksins
vcrði aukið með þvi að halda
flokksþing á 2ja ára fresti og
kjósa framkvæmdastjórn og
aðra æðslu trúnaöarmenn
flokksins beinni kosningu á
flokksþingi.
AD gagnger endurnýjun verði i
t r ú n a ð a r s t ö ð u in i n u a n
flokksins, svo að óeðlileg
öldungasljórn viki fyrir
samsljórn kynslóðanna.
AD aöalmálgagn flokksins verði
ávallt i rcynd málgagn allra
flokksmanna, og verði stjórn-
endur blaðsins hverju sinni
valdir með það markmið i huga.
AD Fra m sóknarf lokkurinn
komi sér upp viðunandi
húsnæðisaðstöðu i hinum ýmsu
kjördæmum, en hætti iillu húsa-
braski í Iteykjavik.
Að fastaerindreki flokksins
verði jafnan úr röðum ungs
l'ólks. .lafnframt verði starfsemi
flokksskrifstofunnar e n d u r -
skipulögö.
AD þess sé gætt i hvivetna, að
a'ðstu kjiirnu forystumenn
flokksins á hverjum tima séu,
og vilji vera, forystumenn
flokksins i lieild, en séu ekki i
reynd aðeins leiðtogar
ákveðinna hópa innan hans.
Fundurinn telur þessar
umbætur nauðsynlegar til þess
aö efla og slyrkja Framsóknar-
flokkinn.
Aðalfundur miðstjórnar SUF
telur, að hlutverk SUF innan
F'ramsóknarflokksins og i
islenzkum stjórnmálum hafi
aldrei verið mikilvægara en
einmitt nú. Fundurinn fagnar
þeirri vaxandi samstöðu með
baráttumálum SUF, sem komið
hefur i ljós að undanförnu, og
hvetur til þess, að yngri sem
eldri skoöanabræöur innan
Framsóknarflokksins efli
samstarf sitt málstaðnum til
styrktar.
VATNS-
HITA-
lagnir
og síminn er
1-30-94
OPIÐ:
Virka daga kl. B-lOe.h.
Laugardaga kl. 10-4 e.h.
BILLINN BILASAL/
HVERFISGÖTU 18-sim. 14411
Kúplings-
DISKAR
í flestar gerðir
bifreiða
fyrirligg jandi
m» he
Ármúla 24 * Sími 8-14-30
Díselrafstöð til sölu
12 og hálft kw, 3ja fasa, 220-380 volt, með
mælaborði.
Upplýsingar i sima 93-1217.