Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 21.11.1973, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 21. nóvember 1973. TÍMINN 15 Ungverskur listmálari Gabor Attalai sýnir um þessar mundir hjá SÚM. Hefur hann áöur sýnt verk sin i f jölda þjóölanda, auk þess hefur hann gefiö út listatimarit. Gabor Attalai hefur einu sinni sýnt hér áöur, á listahátiöinni 1972. Til þessarar sýningar nýtur hann stvrks frá menntamálaráöi. Efri röö- ina á myndinni hér aö ofan nefnir listánaðurinn .Króaöur af”, en hina neöri kallar hann ,,AÖ vera sköll- óttur”. Hugmynd að þeirri myndaröö segist hann hafa fengiö, er hann var barn, en úr efniviöinum vann hann ekki fyrr en 1972, er hann kynntist svissneskum lækni. Þannig eru 28 ár milli þess, að hugmyndin kviknaði þar til hún varð veruleiki. Timamynd:GE Tilkynning frá Vatnsveitu Kópavogs ti! húsbyggjenda í Kópavogi Athygli húsbyggjenda i Kópavogi er vakin á þvi að ekki er heimilt að láta vatn si- renna. Þar sem vart verður við að þessi regla sé ekki haldin, verður umsvifalaust lokað fyrir vatn á húsinu. Rekstrarstjóri Kópavogsbæjar. Landsþing menntaskólanema: Nómslaunakerfi til launajafnréttis UAGANA 16. 17 og 18. þessa mánaðar var landsþing LÍM, landssambands isl. menntaskóla- nema, haldiö i Menntaskólanum viö Hamrahlið. Margvislegar ályktanir voru samþykktar á þinginu. Þeirraámeöal má nefna ályktun um námsmanna- h r e y f i n g u , m e n n t a m á 1, þjóömál, rikisvaldið, fjölmiðla og margar fleiri. í fréttatilkynningu frá LÍM segir, að i umræðum um þjóðfélagsmál hafi komið berlega I ljós, aö vinstri menn höfðu þar meirihluta. 1 fréttatilkynningunni segir m.a. svo: ,,Þingiö sóttu fulltrúar allra menntaskólanna og einnar menntadeildar, og voru þing- fulltrúar alls 40. Helztu mál þingsins voru undirbúningur að stofnun einnar allsherjar náms- mannahreyfingar allra fram- haldsskólanema og margvislegar ályktanir um mennta- og þjóðfélagsmál. Viðræður hafa undanfarið verið á vegum LIM við aðra fram- haldsskóla um stofnun þessarar hreyfingar. Hafa þær viðræður leitt i ljós, að mikill áhugi er á stofnun slikrar hreyfingar. Meginmarkmið hennar verða lik- lega að vinna að hagsmunum framhaldsskólanema og að vera virkt pólitiskt afl i islenzku þjóðfélagi.” 1 ályktun um fjölmiðla bendir þingið á, að islenzkir fjölmiðlar, þar á meðal Rikisútvarpið, sem gæta eigi óhlutdrægni, hafi heimildir sinar eingöngu frá vestrænum fréttastofum. Um landhelgisútfærsluna segir, að ekki hafi veriðum annað að ræða, en útfærslu borgarastéttarinnar á efnahagslögsögu sinni. Þingið lýsti yfir fullum stuðn ingi við baráttu dreifbýlisins og krefst þess, að rikisvaldið snúi sér af einhug að þessum málum. Um námslaunakerfi segir svo: Verkalýðsstéttin berst mjög fyrir launajafnrétti. Hún bendir á, að menntamenn hafa oft á tiðum fimmföld laun á við almenna, ómenntaða verkamenn. Svar við þessu hefur yfirleitt gengið i þá átt, að benda á, að reikna beri menntamönnum til tekna nám þeirra. Þingið krefst þess, að námslaunum verði komið á þannig, að grundvelli þessa launamisréttis verði kippt brott. Segja má, að allar álytkanir þingsins séu heldur vinstri- sinnaðar, sérstaklega á lyktanirnar um þjóðfélagsmál- in. Fimm lulltrúar Mennta- skólans i Reykjavik létu gera sér- bókun, þar sem segir, að þar sem þeir geti ekki talið þingfulltrúa skoðanafulltrúa nemenda, sitji þeir hjá i umræðum og atkvæða- greiðslu um ályktanir þjóðmála- deildarinnar. -hs- Hreindýr á Grænlandi ENGINN veit, hvenær hreindýr komu fyrst til Grænlands, en vafalaust hafa þau verið þar um aldir, liklega um þúsundir ára. Ef til vill hafa þau verið um allt Grænland, þegar norrænir menn námu þar land. En þröng kjör þeirra og þört' fólks fyrir hrein- kjöt olli fækkun og aðeins litið af villtum dýrum hefur verið þar á litlu svæði til þessa. En nú er reynt að búa þar við tamin hreindýr. F'yrir nokkrum árum voru tamin dýr flutt til Grænlands, á svæðið við firðina inn af Godthábfirði. Samar voru fengnir til þess að hirða um hjörð- ina og þeir áttu að kenna Græn- lendingum búskap af þessu tagi. Þetta hefur ekki gengið vel, en vonlaust er það ekki. Grænlenzkir eru veiðimenn frá fornu fari og stundum hefur gengið treglega að halda veiðimönnum frá tömdu hjörðinni. Á hinu leitinu hafa Grænlendingar ekki r'eynzt sér- lega fúsir til að læra þennan búskap. Það var Konunglega græn- lenzka verzlunin, sem gekkst fyr- ir flutningi dýra frá Noregi árið 1952, og þar hefur verið unnið á þessum vettvangi siðan á miðstöð er nefnist Itivnera. Ungur Norðmaður, sem stundað hefur hreinrækt heima, ferðaðist um nokkur svæði Svefnstóll er lausnin vesturstrandar Grænlands s.l. sumar, einkum við Holsteinsborg og Sykurtoppinn, undraðist, að ekki skyldi lögð meiri stund á þennan atvinnuveg en raun er á, þvi að honum sýndist þar vera ákjósanlegt til hreinbúskapar. Honum virðist sem þar sé ekki lakari aðstaða til hreinræktar en i Alaska og Kanada, en á þessum stöðvum hafa norskir Samar reynt hreindýrabúskap að undan- förnu, með misjöfnum árangri, að sögn. t þessu sambandi er vert að geta þess, að i haust voru rúm- lega 48 tamin hreindýr flutt til Suður-G rænlands (vestur- landsins), til hinna fornu byggða norrænna manna. Það gerði ung- ur bóndi, sonur eins mesta fjár- bónda Grænlendinga, Ole Kristiansen, heitir pilturinn, en hann hefur flutt umræddan stofn á norðurströnd Breiðafjarðar. Þetta er skoðað sem tilraun, en .spurningin er svo, hvort betur gengur hreindýrabúskapur eða sauöfjárbúskapur á þessum stað. Grænnlenska málgagnið „Umingmak” tjáir undrun sina s.l. sumar yfir þvi, aö aðeins einn Grænlendingur, sem hefur kynnt sér hreinrækt, skuli sinna þessu hlutverki,þar eð nóg sé af hrein- landi alla leið frá Godthab og suður úr á vesturströndinni, og nógur markaður, ,,og hann ágæt- ur” sé fyrir þetta kjöt. Hins vegar Framhald á bls. 19 Hestamenn — bændur Tapast hafa tvö mer-trippi: M á i Rauð veturgömul hryssa og rauðblesótt, ■ V tveggja vetra, mark: FJÖÐUR AFTAN IIÆGRA. VjW Þeir sem gætu gefið upplýsingar, vin- I y , samlegast hafið samband við Þorgeir * * y Jónsson Gufunesi; simi 84081 og i sima 16947. # Klukkan 9 á morgnana opnar auglýsingastofa Tímans, Aðalstræti 7. Tekið er á móti auglýsing- um, sem birtast eiga næsta dag, til klukkan 4 siödegis. Auglýsingar i sunnudags- blöð þurfa að berast fyrir klukkan 4 á föstudögum. Þeir auglýsendur, er óska aðstoðar við gerð aug- lýsinga, eru beðnir að skila handritum tveim sólar- hringum fyrir birtingar- dag. Simanúmer okkar eru 1-95-23 & 26-500 VW BILALEIGAI JóaasanVJiarls ARMULA 28 Ml 81315 BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL *24460 í HVERJUM BÍL PIONEER ÚTVARP OG STEREO CASETTUTÆKI BILALEIGfl CAR REINITAL 21190 21188 BILALEIGA Car rental 660 & 42902 SVEFN BEKKJA Nýr, vandaður svefnstóll á hjólum með rúmfata-_________________ geymslu. | X 3E> JT A 3K Fáanlegur i gulum, rauðum, græn- Höfðatúni 2 - Sími 15581 1 14444 % mniFim * 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL um og hvitum lit. Áklæöi í stíl. Reykjavík BORGARTUN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.