Tíminn - 28.11.1973, Page 3
Miðvikudagur 28. nóvember 1973.
TÍMINN
3
Fleiri og stærri hitaveitur
svo fljótt sem verða má
HINN 23. nóvember s.l. fól iðnaö-
arráðuneytið verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsens að fram-
kvæma „könnun á þvi, hvernig
unnt sé með sem skjótustum hætti
Grein Ólafs R.
Grímssonar
í GREIN Ólafs Ragnars
Grimssonar, sem birtist á
siðu S.U.F. i dag, er svo
mikið af rangfærslum og
missögnum, að það myndi
laka mikið rúm i blaöinu, ef
hnekkja ætti því öllu. Rit-
stjórar blaðsins telja rúmi
þe s betur varið tii annars en I
elta ólar við slika hugaróra.
Grein þessari verður því
ekki svarað frekar en fyrri
grein sama höfundar á
SUF-siðunni um Ólaf
Jóhannesson forsætisráð-
herra, Kristin Finnbogason
og laugardagsbyltinguna,
enda af sama toga spunnin.
Þess skal aðeins getið, að
það var gerð samþykkt af
blaðstjórninni með öllum at-
kvæðum gegn einu að birta
ekki ávarp og fréttatil-
^nningu Möðruvallahreyf-
íngarinnar.
að nýta innlenda orkugjafa I stað
oiiu til húsahitunar og annarra
þarfa". Var verkfræðistofunni
falið að liafa samráð við opinber-
ar stofnanir og aðra aöila, sem
hlut eiga aö máli, um fram-
kvæmd þessarar könnunar og
hraða henni, svo sem kostur er.
A sviði hitaveituframkvæmda á
könnunin m.a. að beinast að þvi
að flýta framkvæmdum i Kópa-
vogi, Hafnarfirði og öðrum ná-
grannabyggðum Reykjavikur,
lögn hitaveitu frá Svartsengi til
þéttbýlisstaðanna á utanverðu
Reykjanesi, lögn hitaveitu frá
Deilartunguhver i Borgarfirði til
Akraness og Borgarness og að
ýmsum smærri hitaveituáform-
um, eftir þvi sem hagkvæmt er
talið.
A sviði raforkuframkvæmda er
verkfræðistofunni ætlað að
kanna, hvernig unnt sé að flýta
áformum um notkun raforku til
húshitunar, m.a. með samteng-
ingu orkuveitusvæða, þannig að
næg raforka verði fáanleg á sama
heildsöluverði um land allt og
unntað nota hana til húshitunar á
Austfjörðum, Vestfjörðum og i
öðrum byggðarlögum, þar sem
jarðhiti er ekki tiltækur eða notk-
un hans ekki hagkvæm. 1 þvi
sambandi er nú unnið i iðnaöar-
ráðuneytinu að frumvarpi til laga
um heimild til allt að 55 MW jarð-
gufuvirkjunar á Kröflusvæðinu til
þess að styrkja raforkukerfið á
Norðurlandi og Austfjörðum.
Þá hefur iðnaðarráðuneytið
snúið sér til Seðlabankans og far-
ið þess á leit, að bankinn hefji
undirbúning að gerð f jármögnun-
aráætlunar um sem skjótasta
nýtingu innlendra orkugjafa i
samvinnu við Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsens.
Slasaðist af
völdum
hvellhettu
ÞAÐ bar við á Stokkseyri fyrir helgina, að 11
ára drengur fann hvellhettu við hús eitt, sem
stendur autt. Vissi drengurinn ekki,hvaða hlut-
ur þetta var, en fékk sér hamar til að kanna
hann nánar. Var þá ekki að þvi að spyrja, að
hvellhettan sprakk og slasaðist drengurinn all-
nokkuð á höndum og fótum. Eins og dæmin
sanna, er aldrei of oft brýnt fyrir fólki að
fleygja ekki frá sér hlutum sem þessum. Litli
drengurinn frá Stokkseyri er nú á Sjúkrahús-
inu á Selfossi. — SB.
Leynast krabbameinsvaldar ogönnur
skaðleg efni í matvælum hérlendis?
Skrá um viðbótarefni í undirbúningi í heilbrigðismálaráðuneytinu
A hlÐASTA áratug hefur stór-
aukizt notkun viðbótarefna af
ýmsu tagi i matvælaiðnaði. Þau
efni, sem hér um ræðir, eru
bragðefni ýmis, litarefni og rot-
varnarefni, svo að nefndir séu
höfuðflokkarnir. Með notkun
þessara efna hefur mátt gera
matvæli mun f jölbreyttari en
áður var, en jafnframt hefur auk-
izt hættan á því, að slfk efni séu til
þess notuð að gera lélega vöru að-
laðandi i augum neytenda og villa
þeim sýn á þann hátt. Sýnu alvar-
legra er þó, að ýmis viðbótarefni,
sem áður voru talin hættulaus,
hafa við nánari athugun vlsinda-
manna reynzt hættuleg. Nokkur
hluti þessara efna reyndist valda
krabbameini eða óeðliiegum
vexti liffæra I tilraunadýrum, og
Bandarikjamenn t.d. hafa af
þessum sökm bannað um 20 efni
frá striðslokum. Flestar þjóðir
hafa komið sér upp listum eöa
skrám, þar sem greint er, hvaða
viðbótarefni er leyfilegt að nota I
matvæli. Slík skrá hefur ekki ver-
ið til hér á landi, en er nú i smið-
um á vegum heilbrigðismála-
ráðuneytisins.
Timinn hafði samband við Jón
Óttar Ragnarsson matvælaverk-
fræðing og spurði hann, hvað liði
rannsóknum á þessu sviði hér-
lendis, en hann hefur umsjón með
matvælarannsóknum efnafræði-
stofu Raunvisindastofnunar Há-
skóla íslands.
— Fram til þessa hefur slikum
rannsóknum litt eða ekki verið
sinnt hér á landi, sagði Jón Óttar,
en i starfsgrundvelli matvæla-
rannsóknadeildarinnar er svo
ákveðið að hún skuli sinna rann-
sóknum á efnainnihaldi ýmissa
innlendra og erlendra matvæla i
þvi skyni að meta næringargildi
þeirra. Jafnframt mun þá koma i
ljós, hvort notuð eru næringar-
snauð fylliefni eða skaðleg við-
bótarefni.
Brýna nauðsyn ber til, að samin
verði skrá af þvi tagi, sem nú er
unnið að á vegum heilbrigðis-
málaráðuneytisins, þvi að annars
er ekki hægt að henda reiður á
þvi, hvað leyfilegt er og hvað
ekki. Til þess að skrá sem þessi
verði annað og meira en pappirs-
gagn, er auðvitað nauðsynlegt, að
haft verði eftirlit með notkun við-
bótarefna i islenzkum matvæla-
iðnaði og fylgzt með þvi, hver
brögð eru að þeim i innfluttum
matvælum.
— Er skaðleg efni að finna i
matvælum hérlendis, islenzkum
eða innfluttum?
— Þessu er vandsvarað, þvi að
rannsóknir skortir á þessu sviði,
en þó er óhætt að segja, að þess
eru dæmi, að notuð séu slik efni.
Það má nefna efni eins og nitrit,
sem viða á Vesturlöndum er
notað i kjötvörur ýmsar og getur
myndað nitrósamin við vinnslu,
en þau valda aftur ýmiss konar
meinsemdum. Nitritið er notað af
tveimur ástæðum fyrst og fremst,
annars vegar er það rotvarnar-
efni, og hins vegar gefur það kjöt-
vörunum fallegan, bleikrauðan
lit. t tilvikum sem þessu finnst
mér, að e.t.v. kæmi til greina að
leyfa að nota nitrit i matvæli, þar
sem það er nauðsynlegt til rot-
varnar, en banna notkun þess,
þegar þvi er ekki ætlað annað
hlutverk en að fegra matinn i
augum neytenda.
Hvað innflutt matvæli áhrærir,
er þess að geta, að reglur um
notkun viðbótarefna eru mjög
misstrangar eftir löndum, þannig
að efni, sem bönnuð eru i einu
landi, eru kannski leyfð annars
staðar. Þannig er t.d. þráa-
varnarefnið BHT bannað i Bret-
landi, en leyft viða annars staðar.
Rotvarnarefnið hexamin, sem
notað er i fiskafurðir á borð við
kaviar, er leyft i Danmörku og
Noregi, en bannað viðast annars
staðar. Einnig má nefna brómað-
ar jurta-oliur, sem notaðar hafa
verið i gosdrykki, og þannig
mætti halda áfram að telja upp
efni, sem geta verið skaðleg.
Þetta býður auðvitað hættunni
heim, þvi að setjum við ekki regl-
ur um notkun viðbótarefna og
höldum uppi eftirliti á þessu sviði,
er hætt við, að ýmis skaðleg efni
leynist i vörum, sem fluttar eru til
landsins frá þeim löndum, þar
sem engar eða vægar reglur gilda
um slikt. Auk þess höfum við
enga tryggingu fyrir þvi, að út-
lendir framleiðendur og útflytj-
endur matvæla noti ekki fleiri
viðbótarefni i þau matvæli, sem
ætluð eru til útflutnings, en leyfö
eru i heimalandi þeirra.
— Hvaða lönd eru viðsjárverð-
ust i þessu tilliti?
— Þvi mundi ég viljasvara með
þvi að snúa spurningunni við og
geta þá þeirra landa, sem strang-
astar hafa reglur um þetta og
bezt eftirlitið, en það eru án efa
Bandarikin, Norðurlönd og löndin
i Vestur-Evrópu. — IIIIJ.
VERÐUR VERKFALL ÞJONA
TIL ÞESS AÐ VEITINGA-
HÚSIN BREYTI UAA?
Sum þeirra íhuga að taka upp aðra starfsemi og fækka þjónum
a11 verulega
Klp-Reykjavik. í gær
boðuðu veitinga- og
gistihúsaeigendur tií
fundar með blaða-
mönnum, þar sem rædd
var deila þeirra við
framreiðslumenn.
Ekki var annað að heyra á
fundinum en að langt yrði að biða
þar til samningar næðust, jafnvel
eitthvað fram i janúar eða febr-
úar og jafnvel lengur. Þó sögðu
veitingamenn, að þeir væru til-
búnir til að mæta öllum sann-
gjörnum kröfum þjóna.en þó ekki
þeim, sem þeir nú færu fram á.
A fundinum kom það fram, að
nokkrir veitingastaðir hér i
bænum hafa hug á að gera gjör-
breytingu á starfsemi sinni á
næstunni, og getur hún m.a. þýtt
það, að fjölda þjóna verði sagt
upp störfum.
Sögðu fundarboðendur, aö
ástæðan væri m.a. sú, að þeir
gætu ekki lengur starfrækt þessa
staði, þegar rekstur þeirra væri
stöðvaður hvað eftir annað af
litlum hluta starfsfólksins, sem i
langflestum tilfellum væru
þjónar, enda færu þeir allt að
tvisvar sinnum á ári i verkfell,
eins og t.d. i ár.
Nokkrir staðir, þ.á.m. Hótel
Saga, Hótel Holt og Hótel Loft-
leiðir hafa talað um að breyta
starfseminni þannig, að leigja
sali ýmsum félagasamtökum
til skemmtanahalds, eins og viða
tiðkast með rekstur félags-
heimila.
Hótel Saga mun i dag eða á
morgun auglýsa eftir starfsfólki
til að annast þjónustu fyrir gesti.
Á fundinum var spurt um, hvort
þetta gætu talizt löglegar að-
gerðir, og var þvi tilsvarað, að
hvergi stæði i lögum, að sá sem
afgreiddi vin þyrfti að vera
lærður framreiðslumaður.
Það hefði fólk séð bezt á
veitingastöðum undanfarin ár,
þar sem stúlkur, sem ekki væru
lærðir þjónar, aðstoðuðu við
þessi störf, án þess að nokkuð
hefði verið við þvi amazt. Og i
flestum tilfellum væru þessar
stúlkur á launum hjá fram-
reiðslumönnunum við þessi störf.
1 þessum tilfellum munu
félagasamtökin sjálf sækja um
vinveitingaleyfi til dómsmála-
ráðuneytisins, eins og venja hefur
verið i slikum tilfellum.
Upphæðin nemur
10. milljónum
1 sambandi við yfirstandandi
deilu kom m.a. fram á fundinum,
að um mörg undanfarin ár hafi
verið ágreiningur á milli þjóna og
veitingamanna um framkvæmd
álagningar á þjónustugjald.
Það kom fram, að þjónar hafa
talið sér heimilt að reikna sér 15%
þjónustugjald af söluskatti þeim
og viðlagasjóðsgjaldi, sem
Framhald á bls. 15.
Skipulag
ferðamála
Rikisstjórnin hefur nú end-
urflutt frumvarpið um
heildarlöggjöf um skipulag
ferðamála, en það varð ekki
útrætt á siðasta þingi.
Um tilgang fruni varpsins
segir svo i atliugasemdum:
„Það er tilgangur frum-
varps þessa að koma á skipu-
legri vinnubrögðum en áður i
ferðamálum islendinga, bæði
vegna ferðalaga landsmanna
sjálfra og útlendinga, sem til
landsins kona, svo og að auka
blutdcild islendinga i alþjóð-
legum ferðamálum, að þvi
marki, sem þjóðbagsleg bag-
kvæmni og umhverfis-
vernda rsjón a rm ið ley fa ”.
t frumvarpinu er sérstakur
kafli um eftirlit og umhvcrfis-
vernd. í athugasemdum frum-
varpsins segir m.a. svo um
ákvæði þess:
Ferðamál og
umhverfisvernd
„i gildandi lögum um ferða-
inál eru engin ákvæði um þau
verkefni, sem talin eru i þess-
um lið. Þessi verkefni eru um-
hvcrfis- og náttúruvernd,
vernd fornminja og annarra
menningarverðmæta, svo og
nauðsynlegar hreinlætiskröf-
ur. A siðustu árum hafa augu
heimsins opnast fyrir þeim
geigvænlega vanda, sem
ógætileg skipti mannanna við
náttúruna hafa stofnað til.
Ilvarvelna er rætt um nauð-
syn breyttrar stefnu. Það er,
eins og I 1. gr. frv. segir,
stefna þessa frv., að ferða-
mannaþjónustan verði skipu-
lögð i fullu samræmi við
raunsæ umhvcrfisverndar-
sjónarmið.
Loks er gcrt ráð fyrir, að
Ferðamálastofnunin kanni
kvartanir, scm berast kunna
um ófullnægjandi þjónustu
þeirra aðila, sem veita ferða-
fólki fyrirgreiðslu , cn
svokallaðar kvartanancfndir
hafa t.d. verið settar á stofn á
Norðurlnhdum til að fjalla um
slik mál, og starfa þær ckki
siz.t fyrir tilverknað ferða-
skrifstofanna sjálfra cða
heildarsamlaka þcirra”.
Hætturnar af
vaxandi ferða-
mannastraumi
Um hætlurnar samfara vax-
andi fcrðamannastraumi seg-
ir m.a. svo I athugasemdum
frum varpsins:
„Nú skal þvi ekki neitað, að
miklum straumi erlendra
fcrðamanna getur fylgt ýmis-
legt miður æskilegt og jafnvel
varasamt, einkum fyrir fá-
menna þjóð.
Þó er málið þannig vaxið, að
sýnu hættulegra er að opna
allar gáttir fyrir óskipulögð-
um fcrðamannastraunii eftir-
litslaust, en að vinna skipu-
lega að hæfilegri þróun og
aukningu á hlutdcild Islands i
hinum mikla alþjóðlega ferða-
þjónustumarkaði, þvi að
naumast aðhyllast margir þá
skoðun, að loka eigi íslandi
fyrir útlendingum með ein-
hvers konar Kínamúr af ótta
við mengun og menningar-
spjöll.
Frumvarp þetta hvflir á
þeirri meginskoðun, að is-
lendingar eigi að vera stoltir
af að sýna erlendu ferðafólki
náttúruundur landsins, og
leyfa því að njóta töfra is-
lenzkrar náttúru, að þvi marki
sem eðlileg umhverfisvernd
setur.
Hafa verður i huga, að Is-
lcnzkt atvinnulif er mjög ein-
hæft og óliklegt, að hinir hefð-
bundnu atvinnuvegir geti til
frambúðar tekið við öllum
hinurn mikla fjöida fólks, sem
árlega bætist við á islenzkum
vinnumarkaði. Hins vegar er
tækifæri fyrir verulegan hóp
fólks til að finna margs konar
störf i ferðamannaþjónustu ef
■aö henni er hlúð”. — TK.