Tíminn - 12.01.1974, Side 4
4
TÍMINN
Laugardagur 12. janúar 1974
Hunang hækkar
gífurlega
Nýlega bárust biflugnaeigend-
um um allan heim þau gleði-
tiðindi, að eftirspurn eftir hun-
angi vex óðfluga þessa dagana.
Og þessa eftirspurn* telja
menngleðileg tiðindi vegna
þess, að það eru hin fátæku þró-
unarlönd, sem framleiða mest
af þvi hunangi sem selt er ðg
neytt er i veröldinni.
Eftirspurnin er sögð hafa vaxið
svo mikið, að þau 60 prósent
hunangsframleiðenda i heimin-
um, sem i þróunarlöndunum
búa, og hafa hingað til aðeins
getað sinnt hunangsræktinni i
fristundum, geta nú snúið sér að
biflugnaræktuninni sem aðalat-
vinnu. Það munu vera Japanir.
sem þjóða mest hafa kippt við
sér og eru farnir að.skófla i sig
hunangi eins og sáluhjálpar-
meðali upp á siðkastið.
Tæknin og
stórfyrirtækin
1 haust var mikil sýning á vélum
og tækninýjungum fyrir stór-
fyrirtæki nútimans. Sýningin
var haldin i Hamborg og vakti
þar margt mikla athygli, eins og
gengur á sýningum. Meðal
annars kom þar fram hugmynd,
sem reyndar er byrjuð að ryðja
sér til rúms i Þýzkalandi, en hún
er sú, að fólk fái að koma til
vinnu nokkrum stundum siðar
en nú gerist almennt eða fara
heim fyrr en ella, ef það af ein-
hverjum ástæðum þarf þess
nauðsynlega. 1 staðinn þarf það
að vinna upp þessar fristundir
utan venjulegs skrifstofutima.
Til þess að hægt sé að hafa eftir
lit með að allir vinni tilskilinn
tima þarf fullkomnar stimpil-
klukkur, sem sjálfar sjá um
timaútreikning fyrir fólkið.
Annað var þarna á sýningunni,
sem á að geta sparað nokkuð
hjá stórfyrirtækjum. Þetta tæki
sjáið þið hér á myndinni, en það
er skrifvél, sem undirritar skjöl
fyrir forstjórann með hans eigin
penna. Stúlkan á myndinni
stjórnar vélinni með mikilli
ánægju, en vélin getur skrifað
allt að 20 þúsund sinnum undir
skjöl fyrir forstjórann. Vonandi
verður þetta þó ekki til þess að
auðvelda svikahröppum og
fölsurum að ná raunverulegum
undirskriftum manna, sem eiga
mikla peninga eða eru áhrifa-
menn á ýmsum sviðum.
DENNI
DÆAAALAUSI
Það eina góða við hrein föt er
lyktin af þeim, þegar verið er að
strauja þau.