Tíminn - 24.01.1974, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 24. janúar 1974.
TÍMINN
13
*
Tímamyndir:
G.E.
*
Ahorfendur sitja m jög nálægt leiksviðinu i Þjóðleikhúskjaliaranum eins og sjá má á þessari mynd. Myndin cr tekin á „generalprufu”.
FYRSTA FRUMSÝNINGIN í
ÞJÓÐLEIKHUSKJALLARANUM
S.l. þriðjudagskvöld var leikritið
„Liðin tið” frumsýnt i Þjóðleik-
húskjallaranum. Var þetta jafn-
framt fyrsta leikritið, sem frum-
sýnt er á hinu nýja sviði i Þjóð-
leikhúskjallaranum. Næstum
húsfyllir var á frumsýningunni,
en salurinn tekur 120-150 manns
eftir þvi hvernig sætum er fyrir
komið i salnum. 1 byrjun
sýningar flutti Sveinn Einarsson
stutt ávarp i tilefni þessarar
fyrstu sýningar i Þjóðleikhús-
kjallaranum, Leiknum var vel
tekið.
Leiksviðið i Þjóðleikhúskjall-
aranum er hringsvið og sitja
áhorfendur á þrjá vegu i kringum
það og þei'r fremstu mjög nálægt,
eins og sjá má á einni af með-
fylgjandi myndum.
Hringsviðið þykir henta vel
fyrir leikrit með fáum leikendum
og eru t.d. aðeins þrir leikendur i
„Liðinni tið”, þau Þóra Friðriks-
dóttir, Erlingur Gislason og
Kristbjörg Kjeld. Leikstjóri er
Stefán Baldursson, en leikmynd
gerði tvar Törok.
önnur sýning á „Liðinni tið”
var miðvikudagskvöld. Aðeins er
hægt að sýna leikritið fyrri hluta
vikunnar, þvi Þjóðleikhús-
kjallarinn er eftir sem áður
notaður til dansleikjahalds um
helgar. Með tilkomu hringsviðs-
ins i Þjóðleikhúskjallaranum má
segja að Þjóðleikhúsið sé fullnýtt,
þvi að auk sýninga þar og á aðal-
sviðinu sýnir Islenzki dans-
flokkurinn i æfingarsal Þjóðleik-
hússins. —gbk.
Vinkonurnar (Kristbjörg Kjeld og Þóra Friöriksdóttir) ræöa saman
yfir kaffibolla.
Atriði úr leiknum. Kristbjörg Kjeld (vinkona eiginkonunnar) og Erlingut Gislason (eiginmaöurinn).
Leikendur og aörir aöstandendur leiksins aö sýningu lokinni. Frá vinstri: Stefán Baldursson leikstjóri.
ivar Torók, höfundur leikmy ndar, Kristinn Danlelsson Ijósa meistari, leikkonurnar Kristbjörg Kjeld og
Þóra Friðriksdóttir, Randver Þorláksson aöstoöarmaöur leikstjóra, Þorlákur Þóröarson leiksviöss-
stjóri og frentst á myndinni er Erlingur Gislason leikari