Tíminn - 24.01.1974, Qupperneq 13

Tíminn - 24.01.1974, Qupperneq 13
Fimmtudagur 24. janúar 1974. TÍMINN 13 * Tímamyndir: G.E. * Ahorfendur sitja m jög nálægt leiksviðinu i Þjóðleikhúskjaliaranum eins og sjá má á þessari mynd. Myndin cr tekin á „generalprufu”. FYRSTA FRUMSÝNINGIN í ÞJÓÐLEIKHUSKJALLARANUM S.l. þriðjudagskvöld var leikritið „Liðin tið” frumsýnt i Þjóðleik- húskjallaranum. Var þetta jafn- framt fyrsta leikritið, sem frum- sýnt er á hinu nýja sviði i Þjóð- leikhúskjallaranum. Næstum húsfyllir var á frumsýningunni, en salurinn tekur 120-150 manns eftir þvi hvernig sætum er fyrir komið i salnum. 1 byrjun sýningar flutti Sveinn Einarsson stutt ávarp i tilefni þessarar fyrstu sýningar i Þjóðleikhús- kjallaranum, Leiknum var vel tekið. Leiksviðið i Þjóðleikhúskjall- aranum er hringsvið og sitja áhorfendur á þrjá vegu i kringum það og þei'r fremstu mjög nálægt, eins og sjá má á einni af með- fylgjandi myndum. Hringsviðið þykir henta vel fyrir leikrit með fáum leikendum og eru t.d. aðeins þrir leikendur i „Liðinni tið”, þau Þóra Friðriks- dóttir, Erlingur Gislason og Kristbjörg Kjeld. Leikstjóri er Stefán Baldursson, en leikmynd gerði tvar Törok. önnur sýning á „Liðinni tið” var miðvikudagskvöld. Aðeins er hægt að sýna leikritið fyrri hluta vikunnar, þvi Þjóðleikhús- kjallarinn er eftir sem áður notaður til dansleikjahalds um helgar. Með tilkomu hringsviðs- ins i Þjóðleikhúskjallaranum má segja að Þjóðleikhúsið sé fullnýtt, þvi að auk sýninga þar og á aðal- sviðinu sýnir Islenzki dans- flokkurinn i æfingarsal Þjóðleik- hússins. —gbk. Vinkonurnar (Kristbjörg Kjeld og Þóra Friöriksdóttir) ræöa saman yfir kaffibolla. Atriði úr leiknum. Kristbjörg Kjeld (vinkona eiginkonunnar) og Erlingut Gislason (eiginmaöurinn). Leikendur og aörir aöstandendur leiksins aö sýningu lokinni. Frá vinstri: Stefán Baldursson leikstjóri. ivar Torók, höfundur leikmy ndar, Kristinn Danlelsson Ijósa meistari, leikkonurnar Kristbjörg Kjeld og Þóra Friðriksdóttir, Randver Þorláksson aöstoöarmaöur leikstjóra, Þorlákur Þóröarson leiksviöss- stjóri og frentst á myndinni er Erlingur Gislason leikari

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.