Tíminn - 24.01.1974, Blaðsíða 17
sr*y? y » r »-t>
Fimmtudagur 24. janúar 1974. TÍMINN 17
SVEITA-
KEPPNI
í BAD-
AAINTON
SAMKVÆMT samþykkt siðasta badmintonþings
efnir Badmintonsambandið til sveitakeppni i
badminton. Liðum verður skipt i 2 flokka, og
fer undankeppni fram á svæðum, sem ákveðin
verða, þegar séð verður um þátttöku, og eipnig
verður miðað við samgöngumöguleika.
Badmintonsambandiö annast siðan um úrslitakeppni, og er stefnt
að þvi að henni verði lokið eigi síðar en 15. april. Hins vegar mun
keppni á einstökum svæðum verða lokið eigi siðar en 15. marz.
í meðfylgjandi reglum, er samþykktar voru á siðasta badminton-
þingi, greinir nánar frá fyrirkomulagi keppninnar.
Þessi svæðakeppni verður auglýst nánar á næstunni, og þá greint
endanlega frá þátttökutilkynningu o.fl. varðandi keppnina.
Tillaga um sveitakeppni i badminton.
1. Liðum verði skipað i tvo flokka, fyrsta og annan flokk. I fyrsta fl.
séu þau liö, sem hafa þrjá m.fl. leikmenn eða fleiri. t öðrum flokki
verða þau önnur lið, sem þátt taka.
2. Hvert lið sé skipað eigi færri en 10 keppendum, ef um karla og
kvennakeppni væri aðræða, þó er heimilt að veita undanþágu um
fækkun keppenda i B-flokk.
3. Keppt verði i 4 einliðaleikjum karla, þrem tviliðaleikjum karla,
tveim einliðaleikjum kvenna, tveim tviliðaleikjum kvenna og
tveim tvenndarleikjum. Hver keppandi má ekki taka þátt i fleiri
en tveim greinum.
4. Keppni I öðrum flokki fari fram á svæðum, og það lið sem sigrar á
hverju svæði, mætir til úrslitakeppni, sem fer fram á svæðunum
til skiptis. Fjöldi og stærð svæða fari eftir þátttökutilkynningum
og samgöngutilhögunum.
5. Er þau lið, sem mæta til úrslita, hafa keppt, og endanlegur sigur-
vegari er fenginn, getur hann (þ.e. sigurvegarinn) tekið þátt i 1.
flokks keppninni á næsta ári, ef hann óskar þess. Sigur i öbrum
flokki þýðir ekki, að sigurvegarinn verði að keppa i fyrsta flokki.
6. Hvert félag hefur rétt til að senda að minnsta kosti þrjú lið i hvorn
flokk. Þá má enginn keppandi taka þátt i keppni nema i öðrum
flokknum, og verður að tilkynna viðkomandi keppendum með
nægilegum fyrirvara.
7. Lið innan svæðis semja um framkvæmd svæðakeppninnar, t.d.
hvort svæðiskeppnin fari öll fram á einum stað á sama tima, eða
liðin heimsæki hvort annað. Ekki er reiknað með nema einni um-
ferð. Einnig væri reglugerð um það, að svæðakeppninni væri lokið
eigi seinna en 15. marz.
8. B.S.l. sjái um skipulag úrslitakeppninnar og veiti fjárhagslegan
stuðning til hennar. Endanleg úrslit i öðrum flokki séu kunn ekki
seinna en 15. april.
9. t fyrsta flokki sé leikin tvöföld umferð, og sigrar það lið, sem flest
stig hefur að annarri umferð lokinni.
10. Stig séu reiknuð þannig, að 1 punktur fáist fyrir hvern unnin leik,
en 2 stig fyrir unna keppni. Verði lið jöfn að keppni lokinni, gildi
fjöldi punkta. Sé einnig jafnt þá, skal keppt til endanlegra úrslita
á hlutlausum velli.
öllum ágreiningi um keppnina skal visað til B.S.t. Athuga mætti,
hvort ekki væri hægt að halda keppni með svipuðu formi i unglinga-
flokkum og væri það æskilegt að mati tillögusemjanda. Einnig ósk
um við eftir að menn utan af landi láti i ljós álit sitt á keppninni,
hvort sem þeir mæta á þingi eður ei.
SEX STÓRMÓT í
GLÍAAU í VETUR
Glimusamband íslands efnir til 6 glímumóta i
vetur. Verða þau sem hér segir:
9.febrúar: Sveitaglima íslands ’73 (úrslit).
16. febrúar: Bikarglima GLl, fullorðnir
17. marz: Bikarglima GLÍ, unglingar.
30. og 31. marz: Landsflokkagliman.
27. aprfl: íslandsgliman.
12. mai: Sveitaglima Islands ’74 (ljúki i mai).
Keppnisstaðir verða auglýstir siðar, en þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borizt mótanefnd GLl, Box 997, Reykjavik, eigi siðar
en 14 dögum fyrir viðkomandi mót.
Stjórn Glimusambands Islands hefur skipað mótanefnd GLÍ fyrir
árið 1974.1 nefndinni eru: Sigurður Ingason, Reykjavik, formaður,
Sigurður Geirdal, Kópavogi, Gunnar R. Ingvarsson, Reykjavik.
Stjórn GLI hefur falið eftirtöldum aðilum að sjá um fjórðungs-
glimur 1974.
Héraðssambandi Snæfellsness- og Hnappadalssýslu: Fjórðungs-
glimu Vesturlands.
HéraðssambandiSuður-Þingeyinga: Fjórðungsglimu Norðurlands.
Ungmenna- og Iþróttasambandi Austurlands: Fjórðungsglimu
Austurlands.
Héraðssambandinu Skarphéðni: Fjórðungsglimu Suðurlands.
OPPSAL
LEIKUR
FYRRI
LEIKINN
HEIAAA
Liðið mætir
rússnesku
meisturunum í
Evrópukeppninni
í handknattleik
NORSKA meistaraliðið i
handknattleik, Oppsal leikur
gegn rússneska liðinu 1. mai
i 8-liöa úrslitunum i Evrópu-
keppni meistaraliða. Oppsal
leikur fyrri leikinn i Noregi
24. marz, en síðari leikurinn
fer fram i Rússlandi 31,
marz.
VILJA
KAUPA
MORRIS
TVÖ AF botnliðunum i ensku
1. deildinni, Stoke og
Norwich, vilja nú kaupa
miðvallarspilarann Peter
Morris frá Ipswich. Þá hefur
2. deildarliðið Crystal Palace
einnig áhuga á Morris, en
liðiö er i fallhættu i 2. deild-
inni.
V-ÞJOÐVERJAR
OG TÉKKAR
ERU
BJARTSÝNIR...
peir tei|a sig oru
úrslitin í HAA
VESTUR-ÞJÓÐ-
VERJAR og Tékkar,
sem leika i sama riðli
og íslendingar i
heimsmeistarakeppn-
inni i handknattleik i
Austur-Þýzkalandi,
eru nú byrjaðir að
undirbúa sig fyrir
keppnina af fullum
krafti. Vestur-Þjóð-
verjar og Tékkar
leika nú hvern lands-
leikimUá fætur öðrum
og ekki nóg með það,
því að þeir taka þátt i
alþjóðlegu handknatt-
leiksmóti, sem fer
fram i Vestur-Þýzka-
landi um helgina. Sú
keppni er fjögurra
landa keppni og taka
Tékkar, V-Þjóðverj-
ar, Júgóslavar og
Norðmenn, þátt i
keppninni.
Á þessu sést, að Vestur-
Þjóðverjar og Tékkar telja sig
örugga i 8-liða úrslitin og þvi
skiptir það engu máli fyrir þá,
þó að landsliðin þeirra leiki i
sama æfingarmótinu, svona
rétt fyrír HM-keppnina. Á
meðan landslið V-Þjóðverja
og Tékka undirbúa sig sem
bezt fyrir HM-keppnina, þá
leika lslendingar og Danir,
sem leika i sama riðli, af full-
um krafti i deildunum hjá sér.
Á þessu sést, að það er
nauðsynlegt að islenzka lands-
liðið fái að minnsta kosti 1-2
landsleiki fyrir HM-keppnina.
Stjórn HSl verður þvi að róa
að þvi eins og hægt er að fá
landsleiki.
Hluti af keppendum unglingamóts KIÍ i badminton ásamt þjálfara sinum, Reyni Þorsteinssyni.
Badminton:
UNGUNGASTARF
KR BER ÁRANGUR
KR-ingar ættu að eignast marga ógæta
badminton-leikmenn ó næstu órum
Innanfélagsmót ung-
linga í badminton var
haldið i KR-húsinu 19.
janúar. Mikill fjöldi
þátttakenda mætti til
leiks, og var keppnin oft
mjög skemmtileg. Það
er auðsýnt, að þjálfun
unglingaflokkanna i KR,
undir stjórn Reynis Þor-
steinssonar, ber góðan
árangur, þvi að á móti
þessu mátti sjá, að
keppendur eru i mikilii
framför. Með sliku
áframhaldi á unglinga-
starfsemi ætti KR að
eignast marga ágæta
badminton-leikmenn á
næstu árum.
Athyglisverðustu leikmennirnir
er fram komu á mótinu voru:
i sveinaflokki: Jón Bergþórs-
son, Kristinn Helgason, Reynir
Guðmundsson, Ágúst Jónsson,
Friðrik Halldórsson og Kjartan
Birgisson.
Flokkur 12 ára og yngri: Þor-
valdur Þorsteinsson og Valdimar
Guðlaugsson.
Meyjaflokkur: Arna Steinsen.
Björg Sif Friðleifsdóttir og Þór-
unn óskarsdóttir.
Úrslit: Mey jaflokkur : Arna
Steinsen sigraði Björgu Sif Frið-
leifsd. 11-6, 11-2. Flokkur 12-ára
ogyngri: Þorvaldur Þorsteinsson
sigraði Valdimar Guðlaugsson i
aukalotu 11-5, 5-11, 11-4. Sveina-
flokkur: einliðaleikur: Jón
Bergþórsson sigraði Ágúst Jóns-
son 12-9, 11-2. Sveinaflokkur.
tviliðaleikur: Jón Bergþórsson og
Ágúst Jónsson sigruðu þá Kristin
Helgason og Reyni Guðmundsson
i aukalotu: 18-14, 13-15, 15-10.
Á þessu ári verður KR 75 ára,
og i tilefni þeirra timamóta mun
verða efnt til afmælismóts i bad-
minton. þar sem keppt verður i A-
flokki og meistara-flokki. Mótið
verður auglýst siðar.