Tíminn - 02.03.1974, Síða 4

Tíminn - 02.03.1974, Síða 4
TÍMINN Laugardagur 2. marz 1974. David Frost ennþd einu sinni í óndð hjd BBC! Hinn snjalli sjónvarpsmaður David Frost hefur oft verið nokkuð djarfur þáttum sínum 1 sjonvarps- og komið mörgum merkum mönnum i mesta bobba með nærgöngulum spurningum, er hann hefur átt viðtöl við þá, eða þá sagt eitthvað sjálfur, sem alls ekki hefur átt að koma fyrir al- menningssjónir (eða heyrn). Stundum hefur hann verið kallaður vandræðabarn brezka sjónvarpsins. Honum hefur samt leyfzt ýmislegt, sem aðrir venjulegir frétta- eða viðtals- menn hefðu aldrei komizt upp með. Loks var svo komið, að honum var sagt upp.og BBC til- kynnti honum, að þeir kærðu sig ekki um fleiri þætti hans.En sjónvarps- og útvarpsnotendur vildu heyra meira og sjá til Davids Frost, svo að BBC samdi frið við hann á ný, en nú var hann beðinn að forðast við- kvæm pólitisk mál og koma ekki með spurningar, sem yllu hneykslun eða óánægju valda- manna i Bretlandi, en einungis að leggja áherzlu á að vera fyndínn og skemmtilegur — eins og hann er frægur fyrir. En hann gat ekki á sér setið, heldur varð hann að segja brandara um verkfall kolanámumanna og segja skrýtlur um.hvað geti leitt af húskuldanum og orku- skorti, og klykkti svo út með að láta syngja gamanbrag um ástandið i Bretlandi — og nú segir i bréfi frá BBC til Davids Frost, að ,,þvi miður” hafi þeir ekki not fyrir fleiri sjónvarps- þætti hans. Undir fölsku flaggi Blöð i Bretlandi hafa talað um . það, að i oliukreppunni, sem hrjáir Breta, eins og fleiri riki nú til dags, hafi allar dyr staðið opnar hjá yfirvöldunum fyrir hvers konar oliubröskurum, og hefur verið gert hálfvegis grin að þvi, hve smjaðrað hefur ver- ið fyrir þeim. Blaðamaður frá Lundúnablaðinu Punch getur' staðfest þetta. Hann gerði sér litiö fyrir og dulbjó sig sem ara- biskan oliufursta, og án bess að sýna nokkurs staðar skilriki, eða sönnunargögn fékk hann greiðan aðgang að bústað for- sætisráðherrans i Downing- stræti 10 i London. Varðmennir- nir heilsuðu með hermanna- kveöju og tóku frá tálmun, sem var i vegi fyrir fina Rolls Royce-bilnum, er blaðamaður- inn hafði leigt sér með bilstjóra, Ensku prinsessurnar elska hesta! Marina prinsessa, sem er dóttir prinsins og prinsessunnar af Kent, er nýjasta reiðkonan i brezku konungsfjölskyldunni. Hún er aðeins sjö ára og fyrir stuttu var henni gefin brúnn, litill hestur (pony), sem hún er mjög hrifin af. Siðan hún fékk hestinn, hefur allt snúizt um hann hjá litlu prinsessunni. Þegar átti að fara að kenna henni að sitja á hestinum og byrjunaratriði reiðlistar, þá var hún svo fljót að læra tökin á ★ svo að hann gæti ekið fyrir- stöðulaust upp að dyrum. Lög- reglumaðurinn við dyrnar hringdi og talaði i dyrasimann, og áður en ég vissi af, stóð ég inni i þessu fræga húsi og þar stóð þjónn tilbúinn að fylgja mér inn i mótökusalinn, segir Alan Coren blaðamaður. Hann notaði samt ekki tækifæriö til að heilsa upp á Heath, heldur fór við svo búið. Seinná fór Coren i sömu klæðum I kauphöllina i London til að vita, hvaða áhrif koma hans hefði þar. Þar var honum tekið með illilegu augnaráði frá mörgum fjármálamönnum og sumir æptu á hann: Komdu þér burtu héðan, farðu út! eða þá: Olia, olia olia! hestinum og hvernig ætti að sitja hann, að reiðkennarinn sagði, að það væri engu likara, en að hún hefði frá frumbernsku æft hestamennsku, eða alizt upp með hestum, svo óhrædd og dugmikil var Marina. Margir spa' þvi, að Marina litla eigi eftir að verða fræg fyrir reið- listina ekki siður en Anna prinsessa, frænka hennar, sem eins og allir vita hefur tekið þátt i mörgum frægustu hesta- mótum heims við góðan orðstir. ★ Fljótandi fiskverksmiðja Hin fljótandi fiskverksmiðja „Sovétrikin 50 ára” er komin til baka til Vladivostok eftir vel- heppnaða reynslusiglingu. Þetta er hraðskreitt skip, smiðað i Leningrad. Samtimis er það mjög fullkomin fiskverk- smiðja, og er framleiðslan alsjálfvirk. Hún framleiðir frosin flök af ýmsum fisk- tegundum, fiskfars, fiskimjöl og frosinn fisk i smápökkum. Brátt mun fiskiskipaflotanum i austustu héruðum Sovétrikj- anna bætast annað slikt verk- smiðjuskip.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.