Tíminn - 24.03.1974, Page 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 24. marz 1974.
Sunnudagur 24. marz 1974
gb
4
Vatnsberinn:
Það er nú algjör óþarfi að láta skemmtanalifið
ná á sér slikum tökum, að það gangi út yfir allt
annað, sem sagt, að þú hafir bara ekki þrek til
annars. Hristu af þér slenið og komdu þér út i
góða loftið.
Fiskarnir:
Ef þú lendir i slikri og þvilikri klipu, að þú
verður að segja af eða á um eitthvað, eða velja á
milli tveggja atriða, þá láttu umfram allt rödd
hjartans ráða, en ekki blákalda skynsemina,
annars fer illa.
Hrúturinn:
Það litur helzt út fyrir, að þú krefjist alltof
mikils af þinum nánustu, jafnframt þvi sem þú
gerir litlar sem engar kröfur til sjálfs þin. Ef
þetta er rétt, skaltu skoða hug þinn betur, þetta
borgar sig ekki.
Nautið:
Astin og skilningurinn, sem þú leitar eftir, eru
miklu nær þér heldur en þú heldur, og kannski
þarftu ekki annað en opna augun til að sjá þetta.
Anægjulegur dagur, sen þú skalt eyða með
yngra fólkinu.
Tviburarnir:
Þú skalt gera þér grein fyrir staðreyndunum:
með vinnu, sem hefur einhvern tilgang, nærð þú
þvi takmarki, sem þú ert að sækjast eftir. Þú
gerir ekkert skynsamlegra i dag en gera þér
þetta reglulega ljóst.
Krabbinn:
Hamingjan er á næsta leiti við þig, þú verður að
færa þér i nyt þann hagnað og þá mgöguleika,
sem hversdagsstritið færir þér til þess að hreppa
hana. Þú skalt sýna meiri samvinnuvilja og þér
gengur betur.
Ljónið:
Vertu ekki alltaf að hugsa um, hvað aðrir hugsa
og hvaða skoðanir aðrir hafi. Meðan maður
gerir ekki á hluta annarra, hefur hver og einn
rétt á þvi að fara sinar eigin götur óáreittur og
hafa sinar skoöanir.
Jómfrúin:
Þú verður liklegast dálitið á ferðinni i dag og
umgegnst marga, og það er hætt við þvi, að þú
fáir tilboð, sem þérfinnstdálitiðtilum. Þúskalt
nú samt ekki flana að neinu, heldur hugsa málið
vandlega.
Vogin:
Ætli það sé ekki i dag, sem kemur að heimboði,
sem þú hefur verið að biða eftir um nokkurt
skeið, eöa einhverjum kunningjafagnaði, sem
þér finnst mikið til um. Þú skalt ekki hugsa þig
um — góða skemmtun.
Sporödrekinn:
Ef þér finnst tilveran eitthvað dapurleg og
ómöguleg i dag, skaltu gera þér það ljóst, að það
er engum að kenna nema sjálfum þér. Lyftu þér
upp, farðu út og njóttu góða veðursins, það ætti
að hressa þig.
Bogmaðurinn:
Mundu það, að maður á ekki alltaf að biða eftir
þvi,að aðrir taki fyrsta skrefið. Þú getur gert það
lika og i þessu máli, sem þú ert að brjóta heilann
um, er það blátt áfram skylda þin. Þú veizt,
hvað það er.
Steingeitin:
Láttu alls ekki hafa þig út i það að baknaga eða
tala illa um aðra persónu. Þú þekkir ekki nógu
vel til málanna,til þess að þú megir þetta, og þar
að auki er söguburður viðurstyggilegt athæfi I
hæsta máta.
1 14444 V 25555
wFfífíÍF/O/fí BÍLALEIGA
WLUnlLlUin CAR RENTAL
BORGARTÚN
Nýlega komu til landsins tveir trúboðar af flokki Votta Jehóva, Kjell og Iiris Gelnard, sem iokið hafa
námskeiði i bibliufræðslu og trúboðsstarfi I Giieað, bibliuskóia Varðturnsfélagsins I New York. Myndin
sýnir Kjell Geinard (i miðju), sem er sænskur að uppruna og hefur starfað á Islandi siðan árið 1963, og
konu hans, Iiris. A myndinni með þeim er Gc rard Devoe frá Kanada.
Þau erumeð uppflettibók, þar sem getið er um hvern einasta mann, stað, jurt og dýr, sem nefnt er i
bibliunni.
Frönsk kvikmyndavika í Háskólabíói 27. marz - 3. apríl:
Gamansemi —
hvorki ofbeldi,
stjórnmál né kynlíf
Miðvikudaginn 27. marz hefst i
Háskólabiói frönsk kvikmynda-
vika. Sýndar verða sjö nýjar,
franskar myndir, gerðar á árun-
um 1971-1973, og verður hver
þeirra á dagskránni þrjá daga, en
aldrei á sama tima. Sýningar
verða kl. 5,7 og 9. Ef ágóði verður
af kvikmyndasýningunum, renn-
ur hann til islenzka Rauða kross-
ins.
Frakkar efna til þessarar kvik-
myndaviku i þvi skyni að efla vin-
áttu og menningarviðskipti milli
tslands og Frakklands. Fyrir
4. árum var efnt til franskrar
kvikmyndaviku hér. Nú hefur sú
nýbreytni verið tekin upp, að
myndirnar eru allar með enskum
textum, svo fleiri geti notið þeirra
en þeir, sem mæltir eru á franska
tungu.
Allar myndirnar á kvikmynda-
vikunni nú hafa orðið þekktar, og
sumar hafa náð mikilli frægð.
Vikan verður sett á miðvikudags-
kvöldið kl. 9, en þá verður sýnd
mynd Truffauts La nuit ameri-
caine, sem hlotið hefur verðlaun
og vinsældir viða um lönd. At-
hygli skal vakin á þvi, að sið-
degissýningar eru einnig á mið-
vikudag. Kl. 5 verður sýnd mynd-
in Le Viager (Erfið viðskipti) og
kl. 7 La raison du plus fou (Sá
brjálaðasti kann að hafa mest vit
i kollinum). A fimmtudag verða
sinfóniutónleikar i Háskólabíói,
en siðan verða kvikmyndasýning-
ar föstudag til miðvikudags.
t mynd sinni La nuit ameri-
caine gerir stjórnandinn tvennt,
hann segir sögu,eins og gengur og
gerist i kvikmynd, en einnig leyfir
hann áhorfendum að skyggnast
inn i heim kvikmyndafólksins.
Meðal leikenda er Jacqueline
Bisset, sem er ensk og náð hefur
frægð fyrir leik sinn. Kvikmynda-
fólkið leikur sjálft sig, m.a.
Truffaut sjálfur.
Erfið viðskipti (Le Viager)
fjallar um fasteignaviðskipti,
sem fram fara með- nokkuð öðr-
um hætti en tiðkast hér á landi, og
freista óneitanlega til að gripa
fram i fyrir örlögunum. Þetta er
gamanmynd, og meðal leikara er
Michel Serrault. Efnið spannar
yfir allt að 40 ár. Stjórnandi er
Pierre Tchernia, en Michel
Serrault er meðal leikenda.
La raison du plus fou fjallar
eins og Kertalog Jökuls Jakobs-
sonar um ungt par á geðveikra-
hæli. Garðyrkjumaður hælisins
hjálpar þeim til að strjúka, en
forstöðumaðurinn og frú hans
elta þau eftir sólrikum ströndum
Miðjarðarhafsins. Myndin er létt
og spennandi, en þó alvara að
baki. Stjórnandi er Francois
Reichenbach.
Tveir gamalkunnir leikarar, Si-
mone Signoret og Jean Gabin,
bera hitann og þungann af mynd-
inni Kötturinn.sem Pierre Grani-
er Deferre stjórnar. Mynd þessi,
sem gerð er eftir skáldsögu
Simenon, sýnir á áhrifamikinn
hátt,hvernig samlif ósköp venju-
legra aldraðra hjóna þróast i hat-
ur, en baksviðið er úthverfi
Parisarborgar, þar sem ýtur eru
að ryðja öllu gömlu I rúst, svo
rúm fáist fyrir nýja skýjakljúfa.
Jean Pierre Blanc tekur feimn-
ina til meðferðar á nærfærnisleg-
an hátt i myndinni Piparmeyjan
(La vielle fille). Aðalleikendur
eru Annie Girardot og Philippe
Noiret, em eru meðal vinsælustu
leikara Frakka um þessar
mundir. Hlutverk þeirra eru
vandasöm, en þau tala sáralitið i
myndinni sakir óframfærni.
Myndin er full af gamansemi.
Yves Montand leikur Soninn i
samnefndi mynd ( Le fils). Hann
er Korsikubúi, sem flutzt hefur til
Bandarikjanna og gerzt bófafor-
ingi. Myndin gerist þegar hann
kemur i heimsókn að sjúkrabeði
móður sinnar. Hann fær löngun til
að snúa við blaðinu og láta af
glæpamennsku, en það reynist
erfitt.
Jean Yanne heitir þekktur
söngvari og leikari, sem einnig
fæst við kvikmyndagerð. Nýjasta
mynd hans, sem enn eru ekki
hafnar sýningar á, f jallar um inn-
rás Kinverja i Parisarborg. Á
frönsku kvikmynda'vikunni verð-
ur sýnd fyrsta myndin, sem hann
gerði upp á eigin spýtur, Tout le
monde il est beau, tout le monde il
est gentil (Allir eru fallegir, allir
eru góðir). Mynd þessari var tek-
ið forlátavel. 1 myndinni ræðst
Yanneá lygar fjölmiðla og hæðist
að ofnotkun imyndar Jesú Krists i
poppóperum og öðrum tizkufyrir-
brigðum. Hins vegar er brugðið
upp sannleika, einlægni og fals-
leysi. Myndin hefst á eins konar
formála, þar sem lýst er blaða-
manni, Gerber að nafni, sem ein-
um manna tekst að ná viðtali við
foringja Tupamaros skæruliða
lengst inni i frumskógum
Suður-Ameriku og ljósmyndum
af honum. Hann glatar spólum
sinum og myndavél, en skömmu
siðar slá fölsuð viðtöl i gegn I
öllum fjölmiðlum, og hann er
rekinn úr starfi. Þessi mynd
sviptir hulunni af innri hlið út-
varpsstöðvar og auglýsinga-
mennsku, eins og La nuit
americaine sýnir lif kvikmynda-
fólksins. Þá fær leikhússtjóri
einn, vinur blaðamannsins, hann
til að semja leikverk um Jesú
Krist, sem nær strax miklum
vinsældum.
i þessum sjö frönsku kvikrríynd-
um, þótt meðal þeirra sé eitt
dramatiskt verk, tvileikur þeirra
Jean Gabin og Simone Signoret.
Við tökum undir orð franska
ambassadorsins á Islandi, Jaques
de Latour Dejean, þegar hann
kynnti okkur myndirnar: — Ég
vona.að fólk njóti þeirra, þótt þær
fjalli hvorki um ofbeldi, stjórn-
mál né kynlif.
SJ
32 bls.
vegna
yfirvofandi
verkfalls
VEGNA yfirvofandi verkfalis
var þvi miður ekki unnt að
liafa Timann nema 32 siður i
dag, i stað 40, eins og blaðið er
venjulega á sunnudögum.
Þar sem þetta tölublað var
að mestu leyti prentað um
miöja siðustu viku, reyndist
ógerlegt að liafa framhalds-
sögu og framhaldsmyndasög-
ur mcö að þessu sinni, og eru
lesendur beðnir velvirðingar á
þvi.