Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 24. marz 1974. Demis Roussos er vinsæli söngvari Það eru fáir söngvarar, segir i blaði frá Danmörku, sem hafa náð þvi marki að fleiri en eitt af lögum þeirra sé á vinsælda - listanum i einu. Hann Demis Roussos, griski söngvarinn um- talaði, (Goodbye, my love o.fl. lög) hefur slegið öll met i Dan- mörku með þvi að eiga 5 lög á vinsæfdalistanum i einu ( og þar af 3 af efstu 12 lögunum — nr. 1, nr. 4 og nr. 12! Hann þykir mjög sérstæður söngvariog plötur hans renna út eins og heitar lummur. Ekki spillir það fyrir vinsældunum, að fram- koma hans og klæðaburður er mjög áberandi, þannig að hann vekur alls staðar athygli. Hann ýmist býr sjálfur til lögin, eða fær góð lög og útsetur þau sjálfur með sinni sérstöku hljómsveit, og það er ekki verið að kasta höndunum að hlutunum, heldur er æft og æft, þangaðtil að meistarinn sjálfur er ánægður. Með honum vinnur griskur textahöfundur Ray Constantinas, sem ýmist þýðir griska texta á ensku eða frum- semur, og þykja þeir óvenju- góðir af dægurlagatextum að vera. Danskur blaðamaður fékk að vera viðstaddur er verið var að æfa nýtt lag og var það i Paris. Það var unnið langt fram á nótt og allir voru orðnir þreyttir, en spenntir og ánægðir — Þetta verður metlag, sagði Demis æstur og glaður — Hvað heitir það? spurði blaða- maðurinn — Ray, hvað heitir lagið aftur? kallaði lista- maðurinn. Constantinas svaraði: — Say You Love Me! Nú skulum við sjá hvort það verður ekki innan skamms komið á vinsældalistann á Islandi! DENNI DÆMALAUSI Ég ætla að hringja i Wilson og segja honum hvað ég var lengi á leiðinni heim. Hann er að hjálpa mér að setia met.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.