Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 24. marz 1974. TÍMINN 11 | Orðabókarhöfundur í bændastétt ++-+++++++++++++++++++ +++++++++++++ Á siðast liðnu hausti kom út á landi hér spænsk-islenzk orðabók. Höfundur hennar er Sigurður Sig- urmundsson, bóndi i Hvitárholti. Það þykir sjálfsagt ekki tiðindum sæta. þótt út komi ný orðabók i öllum þeim fjölda námsbóka, sem við gefum út, en hitt er áreiðan- lega einsdæmi hér á landi, og þótt viðar sé leitað, að sveitabóndi semji slikt verk. Það var þvi sjálfgefið að taka Sigurö taii, þeg- ar hann skrapp til Reykjavikur á dögunum, og spyrja hann nokkru nánar um hans sérstæða framlag til islenzkra menningarmála. Saga handritsins — Hvenær fékkst þú tækifæri til þess að læra spænsku svo vel, að þú gætir samið annað eins verk og orðabókina? — Ég gerði nú þetta fyrst og fremst til þess að geta lært málið. Ég var ekki i neinum skóla, ekki einu sinni bréfaskóla, en var að burðast við að læra máliö af sjálf- um mér með aðstoð orðabóka. Það var að visu til kennslubók i spænsku, en hún var mjög þung og miklu þyngri en svo, að mér notaðist hún. Orðabók i spænsku var engin, og ég sá,að ég myndi gefast upp á þvi að fletta alltaf upp hverju orði og þurfa til þess tvær orðabækur, aðra enska og hina islenzka. Ég tók þá upp þann hátt að þýða hvert orö og skrifa það hjá mér jafnóðum. Svona byrjaði þetta. — Hafðir þú lært ensku áður? — Ég hafði lært dálitið hrafl i henni, svo ég skildi létta ensku, en meira var það nú ekki. — Varð þá orðabókin til hjá þér nokkurn veginn jöfnum höndum og þú lærðir málið? — 1 raun og veru má segja, að svo hafi verið. Ég man nú ekki, hversu mörg ár þetta tók. Það var óhemjuverk að skrifa allt þetta upp, það eru á milli fjórtán og fimmtán þúsund orð. Ég greip i verkið stund á hverjum degi og það smá-tosaðist áfram. Það mun hafa verið árið 1953, sem ég byrj- aði á þessu, og það liðu vist ein sex ár, þangað til handritið var tilbúið. Siðan lá það hjá mér i mörg ái; og ég notaði það við lest- ur. en ég hugsaði ekki þá hugsun, að þetta yrði nokkru sinni gefið út. Handritið varðþvæltog máð af notkun og þarfnaðist hreinritun- ar. — Þú hefur ekki vélritað hand- ritið i upphafi? — Vélritun hef ég aldrei lært. Aftur á móti hef ég tamið mér að skrifa þannig, að hver stafur og hvert orð sé skýrt og auðlesið. — Svo hefur þaö oröið úr, að þú sendir handritið frá þér til birt- ingar? — Já, ég sendi tsafold þetta, en það beið nokkuð, aö tekin væri ákvörðun um útgáfu, Þaö varð þö úr að gefa handritið út, enda sölu- horfur sæmiiegar. einkum vegna sivaxandi ferðalaga til Spánar. — En veizt þú um gengi bókar- innar þessar vikur, sem liönar eru. siðan hún kom út? — Mér-er sagt, að henni hafi verið vel tekið og að salan hafi orðið fyllilega eins mikil og búizt haföi verið við. Langskólanám freistaði min ekki — Þú hlýtur að hafa haft góða undirstööumenntun, fyrst þú lagðir i annað eins verk og samn- ingu örðabókar? — Ja, það er nú svo. Faðir minn var læknir aö Laugarási i Biskupstungum, svo aö ég hefði sjálfsagt getaö gengið hinn svo- kallaða menntavegjef hugur minn hefði staðið til þess. En einhvern veginn var það nú svo, aö mig langaði aldrei til þess að stunda langskólanám. Ég var á iþrótta- verið. En kona min er mikil hestakona og er þekkt á þvi sviði. Dætur okkar sömuleiðis. Þær hafa rekið tamningastöð og eru orðnar þekktar fyrir þá starf- semi. Bændur mega gjarna vera bókhneigðir — Þú hefur auðvitaö alltaf lesið mikið, eins og löngum hefur verið siður bænda? — Já, og ég hef meðal annars lesið talsvert af þvi, sem skrifað hefur verið um islenzka bændur. Sveinn Pálsson læknir getur þess, að hann hafi hitt bónda austur i öræfum, einhvern tima fyrir 1800. Sá var fjölmenntaður á evrópska visu, segir Sveinn, kunni meðal annars skil á latneskri og griskri málfræði. Slikar frásagnir hljóta að festast i manni. og um mig er það að segja. að mig langaöi til að sýna fram á,að þetta væri lika hægt á tuttugustu öld. Að bændur gætu verið sæmilega aö sér nú á dög- um, engu siður en áður. þrátt fyr- ir allt það sem glepur fyrir mönn- um nú. Það hafa alltaf verið til bændur. sem vissu ýmislegt og áttu sér áhugai^iál utan sins dag- lega verkahrings, og mér finnst það gjarna mega halda áfram og vera svo. Þrátt fyrir alla sérhæf- ingu nútimans get ég ekki séð neitt, sem mælir með þvi, að bændur og aðrir, sem stunda likamlega vinnu, þurfi endilega að vera sálarlausir aular, enda verður það vonandi aldrei svo. — En er ekki orðið litiö um næði i sveitum, eins og annars staðar, til þess að stunda fræða- störf? — Það hefur óneitanlega versnað mikiö og er oröiö gerólikt þvi sem áður var. Það er ekki að- eins ónæðið. sem fylgir blessuö- um börnunum, á meðan þau eru litil. heldur eru sjónvarp og út- varp lika komin til sögunnar. Það er ákaflega timafrekt, ef maður ætlar að fylgjast með þvi, sem fjölmiðlarnir hafa upp á að bjóða. — Átt þú sjálfur mörg börn til þess að glepja þig? — Þau eru átta, en að visu eru flest uppkomin nú. Kona min heitir Elin Kristjánsdóttir. Hún fæddist i Haukadal i Biskupstung- um, en foreldrar hennar bjuggu siðar á Felli i sömu sveit. Eins og ég sagði áðan, er hún fræg fyrir hestasýsl, en þaö er ég aftur á móti ekki. Ég hef aldrei blandað mér neitt inn i þau mál, þótt bæði kona min og dætur hafi náð þar miklum árangri. Hef þar nokkra sérstööu — Nú hefur þú mikiö grúskað i tslendingasögunum. Hvaö viltu segja mér um þær? — Helzt ekki neitt. Ég synja ekki fyrir að hafa áhuga á þeim. og hann meira aö segja mikinn, en það er á nokkuð annan hátt en algengast hefur verið um bændur. Ég hef þar nokkra sérstöðu. sem ekki er staður eða stund til að ræða hér. Svo hef ég lika veriö handgenginn sögum Jóns Trausta og þekki þá islendinga. sem þar koma fram. Það mun vera regla. þegar menn hafa nýtega sent frá sér bók, að spyrja hvort ekki sé önnur á leiðinni. Má ég ekki spyrja þig að þessu, Sigurður? — Vitanlega er heimitt aö spyrja. en hins vegar veit ég ekki hverju svara skal. Ef þessi bók selst upp, er ekki óhugsandi að einhvern tima þyrfti aö prenta hana upp aftur. Og ef til þess á eftir að koma. er vel liklegt, aö nauðsynlegt yrði að gera á henni einhverjar endurbætur, ef mér ynnist til þess timi. —VS Langskólanám freistaði mín ekki Bóndastaðan var lokatakmarkið Sigurður Sigurmundsson þar. Seinna var ég einn vetur i búnaðarskólanum á Hólum, en þar var ekki málakennsla. Aftur á móti fékk ég að halda áfram með iþróttaiðkanirnar. Bóndastaðan var lokatakmarkið — Þaðhefur ks.nnski alltaf ver- ið búskapurinn. sem heillaði þig? Eiginlega veit ég ekki. hvort rétt er að segja. að hann hafi heillað mig. Ég var ekki talinn neitt sérlega gefinn fyrir skepnur. Þó held ég nú, aö þaö hafi alltaf verið mitt lokatakmark að vera bóndi, og sjálfur tel ég ekki, að ég hafi lent á rangri hillu i lifinu. Mér hefur verið gefinn hraustur likami og gott starfsþrek. og ég held. að það hefði átt illa við mig að fara á mis við líkamlegt erfiði. Það er hollt að reyna á sig. — Ertu eingöngu með kúabú- skap? — Nei, ekki er það nú. Ég hef lika talsvert af kindum. Framan af árum þóttu mér kýr skemmti- legastar alls búpenings, en eftir þvi sem árin hafa liðiö, hefur mér þótt æ meira variö i blessaöar kindurnar. Og nú er svo komið. að ég hef langmestar mætur á að fást við þær. Svona breytist mað- ur. — En’ hestarnir? — Hestamaður hef ég aldrei skólanum hjá Sigurði Greipssyni i Haukadal, kom þangað haustið 1930, þá fimmtán ára. Ekki var ég þó neitt sérstaklega hrifinn af iþróttum, en reyndi þó að gera mitt bezta, enda er það rikt i eðli minu að vilja ná eins góöum ár- angri og ég get i hverju þvi, sem ég tek mér fyrir hendur. íþróttir stundaði ér svo fjóra vetur. bæði i Haukadal og annars staðar, og held að ég hafi komizt dálitið áleiðis. I Haukadal fékk ég dálitla nasasjón af ensku og reyndar fleiri tungumálum. Þegar ég var sautján ára, var ég einn vetur i Samvinnuskólanum i Reykjavik, en það er sannast að segja, að ég bætti ekki miklu við lærdóm minn ++++++++++-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.