Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 21

Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 21
■SS. ...-«»*(HS'JMMK J: ■& LEIKLISTARSKOU SAL O Takmarkið er heildagsskóli Leiklistarskóli SAL á sér enga hliðstæðu i skóla- og menntunar- sögu tslands. Frumkvæðið kom frá ungu fólki með áhuga á við- komandi námsgrein, þ.e. leiklist. Það framtak, og sá dugnaður, sem hefur verið eins og rauður þráður í öllu þess starfi, mun vafalitið verða mönnum minni- stætt og öðrum til eftirbreytni. Astæðurnar eru kunnar: Eng- inn leiklistarskóli var starfandi á tslandi. Skóli Leikfélags Reykja- vikur hætti störfum 1969 og Þjóð- leikhússkólinn tók ekki inn nem- endur eftir 1970. Það er þvi ærin ástæða, að taka til kynningar starfsemi Leiklist- arskóla SAL, og þessari siðu er einmitt það hlutverk ætlað að þessu sinni. Saga skólans. Ekki er gjörlegt að fjalla ná- kvæmlega um aðdraganda og sögu skólans, en þó verður reynt að drepa á það helzta. Stofnfundur „samtakan áhuga- fólks um leiklistarnám” hófst i Norræna húsinu 23. júli 1972. Var boðað til fundarins af „undirbún- ingsnefnd”, en hún átti rætur sin- ar að rekja til þátttöku fjögurra nýútskrifaðra leikara frá Þjóð- leikhúsinu, á móti leiklistarnema frá Norðurlöndunum, er haldið var 3.-8. júli 1972 i Danmörku. Fundinn sóttu áttatiu manns og innrituðust i samtökin 54 nem- endur. Skipað var i starfshópa og átti hver hópur að ræða saman inn- byrði.s.til næsta allsherjarfundar, sem ákveðin'n >..r- Hu dögum seinna. Þá átti að taka dilögur hópanna til umræðu og ganga endanlega frá stofnun skólans, — sem og var gert. Samin var tillaga að reglugerð fyrir samtök áhugafólks um leik- listarnám og segir þar m.a.: „Við krefjumst leiklistarskóla, sem kennir okkur að vinna úr at- hugunum okkar, þannig að okk- ur sé i framtiðinni kleift að meta starf okkar og afleiðingar þess, sem þýðir, að i öllum leiklistar- skólum skuli rikja lýðræði, þann- ig: Allsherjarfundur er æðsta stjórn skólans...” Um námið segir: „Grundvallarfög, fræðileg fög og hagnýt leikhúsvinna skulu fylgjast hæfilega að, þ.e.a.s. við úrslaun verkefna verða kennarar að hafa náið samstarf, sem sifellt verður að eflast. Kennsluform skólans og náms- tilhögun voru mjög i samræmi við þær stefnur, sem rutt höfðu sér til rúms á Norðurlöndunum og við- ar, og er svo enn. 3. október var fyrsti kennslu- dagurinn og námstimabilið náði til 1. mai. Fékk skólinn inn: áó Frikirkjuvegi 11. ?iiar lét Reykjavikurborg sKólanum i té húsnæði i kjallara Tónabæjar og hefur 2. bekkúr skólans verið þar i vetur, en 1. bekkur er áfram að Frfkrikjuvegi 11. Billy lygari Þegar ég leit niður i kjallara Tónabæjar um daginn, var Þór- hallur Sigurðsson leikari að starfi með nemendum SÁL-skól- ans i námsgrein sem nefnist leiktúlkun. Verið var að æfa leikritið Billy iygara.eftir Keith Waterhouse og Willis Hall. Billy lygari sefur i næsta her- bergi, en á sviðinu er amman á heimilinu og tautar með sjálfri sér: — Hann er alltaf jafn slæmur. Hún lætur allt eftir honum. Hann er alltaf i rúminu. Og hvar er teygjubindið, sem þau ætluðu að ná i handa mér? Það er Sólveig Halldórsdótti^ sem er i hlutverki gömlu konunn- ar. Hjónin á heimilinu koma inn, konuna leikur Anna Einarsdóttir og manninn leikur Evert Ingólfs- son. Þau setjast við borðið og amm- an kemur til þeirra: það er morgunte (leikritið gerist i Eng- landiL Faðirinn tekur til máls: — Það er ekki hægt að segja neitt frá sér i þessu húsi, án þess að einhver andskoti þvi til og frá. Hver tekur alltaf reikningana mina út þessum vasa? Þórhallur gerir athugasemd og setningarnar koma aftur. Billy, sem leikinn er af Sigurði Sigur- jónssyni, er nú vaknaður, og um leið og hann kemur inn á sviðið,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.