Tíminn - 24.03.1974, Page 3
Sunnudagur 24. marz 1974.
TÍMINN
3
\
Veturliöi á sýningu sinni að Kjarvalsstöðum.
Timamyndir Gunnar.
NÚ JÁ, HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ
FÁ AÐ VITA
Ef gengið er suður Laufásveg
og hugað að bakhúsum, má sjá, að
eitt þeirra er umkringt sérkenni-
lega sjósorfnum steinum og hval-
beinum. Þar býr Veturliði
Gunnarsson listmálari.
Veturliði heldur þessa dagana
myndlistarsýningu að Kjarvals-
stöðum. Það er nokkurs konar
yfirlitssýning, æði margbreytileg
eins og sýningar eiga að vera. En
þótt sýningin að Kjarvalsstöðum
beri skapara sinum fagurt vitni,
er ekki ætlunin að skrifa um
hana. Nú skal rætt við lista-
manninn sjálfan.
— Nú já, hvað viljið þið fá að
vita?
— Já, fyrst þú ert að sýna, væri
ekki úr vegi að spyrja þig um álit
þitt á listsmekk fólks
Veturliði hallar sér i stólnum,
lætur lappirnar upp á borð. Eftir
nokkra bið hefur hann komið sér
vel fyrir. Og þá stendur ekki á
svarinu.
— Vinur okkar Steinn Steinarr
var einu sinni spurður: yrkir þú
fyrir fólkið? Fólk, hvað er nú það,
sagði Steinn, er það kannski vinur
minn Dósóþeus Timóteusson?
Já, ég hef að minnsta kosti álit
á listsmekk þess fólks, sem kaup-
ir myndir af mér, og oft hefur
glatt mig að sjá aðra gamla
meistara vikja plássi fyrir min-
um myndum á heimilum. Annars
er smekkur ekki hæstíréttur i
mati á list, heldur þekking og
skilningur.
— En finnst þér ekki oft eins og
það fólk, sem kaupir myndlistar-
verk, sé að kaupa nöfn lista-
manna frekar en verk þeirra?
— Sérstaklega verður maður
þess var á uppboðum. Þar er
snobb og heimska, vanþekking og
sálarkreppa allsráðandi. Alls
konar rusl eldri manna, og sér-
staklega dauðra, seljast dýrt, en
góð verk yngri manna seljast á
smánarverði. Auðvitað vill fólk
ekki kaupa myndir af ungum
mönnum, sem kannski eiga eftir
að fara i hundana. Það er mann-
legt að skjátlast.
— Ert þú einn þeirra manna,
sem gengið hafa með myndlistina
i maganum frá ómunatið?
— Nú hlær Veturliði og fær sér
kaffi. Sumir segja, að kaffi sé
andleg driffjöður.
— Þegar ég var 17 ára, sá eg
fyrst málverk. Svo gekk ég með
myndir i magnaum, þangað til
maginn var tekinn úr mér, og
siðan annað lungað úr berklum.
Það var eftir alla þá holskurði,
sem Kjarval hvatti mig til að
kaupa utanborðsmótor. Siðan hef
ég gengið með myndir i höfðinu,
og eins og annað lif heimtar það
að fæðast. Þess vegna verða
myndir til, og þar af leiðandi mál-
verkasýningar.
Og nú skal dregin játning upp
úr meistaranum.
— Hvað og hverjir hafa haft
mest áhrif á listsköpun þina?
— Fyrst og fremst barna-
teikningar, sem tjá heiminn
óspilltum augum, og þar næst ljóð
þeirra höfunda, sem skrifa með
blóði, blóði hjartans. Jóhann
Sigurjónsson og Jóhann Jónsson
eru minir menn, ásamt austur-
lenzkum höfundum, Li Po, Kahil
Gibran, Hiroshige, Sotatsu og
Sharaku.
Ýmsir eiga erfitt með að skilja,
hvi islenzkir myndlistarmenn
sækja viðfangsefni sin svo mjög
út i náttúruna?
— Mitt er að yrkja — ykkar að
Frá sýningu Veturliða
skilja, og þeir sem ekki skilja,
ættu annað hvort að biðja guð að
hjálpa sér eða pissa á sig. Þeir
sem ekki hafa lifað sólarupprás i
Hvallátrum, Flateyjarsund um
lágnættið og Sviðnur, eiga bágt.
Það er einfaldlega ekki hægt
annað en trúa á Guð á slikum
stundum.
— Hvað finnst þér markverðast
i islenzkri samtiðarmyndlist?
— Þvi er auðsvarað, það er
sýningin sem nú stendur yfir á
Miklatúni. Og jafnframt sá
veggur, sem.ég vann ásamt Þóri
Bergsteinssyni i Arbæjarskóla.
Enginn, sem ekki hefur séð þann
vegg úr islenzkum eðaisteinum,
veit hvað bezt er i nútimalist. Ala
Flóki.
— Tekurðu mark á kritikerum?
— Æi nei. Þetta eru yfirleitt
ungir menn, yfirfullir af
formúlum. Mynd á að vera svona,
en ekki svona, segja þeir. Þeir
vilja hafa steytta hnefa og byssu-
stingi á öllum myndum. Það
heitir vist að frelsa heiminn, eða
eitthvað i þá áttina. Það er þessi
popplist. Æpandi litir og maður
að drepa annan mann. Ég held að
þeir, sem þannig mála, noti lit-
skuggamyndir fremur en frjótt
hugmyndaflug. Og svo auðvitað
hvers konar timarit. Stundum
mætti ætla, að þeir klipptu úr
þeim myndir. Þessar myndir
veita aðeins augnabliks áhrif, og
þær má sjá i kílómetravis á
söfnum um allan heim. Allt um
strið og annað ofbeldi. Picasso
málaði strið i Guernica. Lengra
verður ekki komizt á þeirri braut
og þvi timi til kominn, að menn
snúi sér að einhverju öðru.
Nú er Veturliði i essinu sinu.
Meira kaffi og enn meira kaffi.
— Listamenn,segir hann, verða
að vera harðir gagnvart sjálfum
sér, þeir verða að aga sig. Að
öðrum kosti verða þeir i mesta
lagi snoppufriðir. Þegar ég var að
læra i Kaupmannah., voru þar
þrir Jótar.Þeim hafði verið sagt i
sinni heimabyggð, að einhvers
mætti frá þeim vænta. Svo þeir
drifu sig til Hafnar. Þarna á
skólanum var einn prófessor, sem
þótti sérdeilist harður i horn að
taka. En hann vildi nemendum
sinum vel og sagði þessum
Jótum þvi að fara heim til sin að
setja niður rófur. Þeir drápu sig
allir út af þessu. Einn kastaði sér
niður úr Sivaiaturni, af þvi að
hann var rómantiker, annar henti
sér I siki, en sá þriðji notaði
brennivin og pillur. Þetta mættu
ýmsir islenzkir „meistarar” taka
sér til fyrirmyndar. —
Nú jæja. vonandi ekki, en menn
geta þó haft þessi lokaorð bak við
eyrað.
PJETUR HAFSTEIN
LARUSSON
Viljið þér gefa
skíðabakteríu
í fermingargjöf ?
Sá, sem fær skíðabakteríuna er þaðan af veikur — fyrir
heilbrigSu útilífi og líkamsrækt. AS öðru leyti styrkist
hann. GefiS fermingarbarninu skíSanámskeiS í
Kerlingarfjöllum f sumar. ÞaSan kemur þaS ekki án
skíSabakteríu, slíkur urmull sem af þeim er f fjallaloftinu
uppi viS Hofsjökul.
skíðanámskeiðin í sumar:
Nr. Frá Rvík Dagafj. Tegund námskeiöa Verö Án kennslu
1 19. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
2 24. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
3 29. Júnl 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
4 4. Júlí 7 dagar Almennt námskeiö 15.800,00 ‘) 14.500,00
5 10. Júli 6 dagar FjölskyldunámskeiÖ 13.800,00 J) 12.800,00
6 15. Júlí 7 dagar Almennt námskeiÖ 15.800,00 14.500,00
7 21. Júlí 7 dagar Almennt námskeiÖ 15.800,00 14.500,00
8 27. iúlf 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 14.500,00
9 2. ágúst 4 dagar Alm. námsk. (skíðamót) 9.000,00 3)
10 6. Ágúst 6 dagar Almennt námskeið 13.800,00 12.800,00
11 11. Ágúst 6 dagar Unglingar 14—18 ára 10.800,00
12 16. Ágúst 6 dagar Unglinqar 14—18 ára 10.800,00
13 21. Ágúst 6 dagar Námsk. f. keppnisfólk 12.500,00
14 26. Ágúst 6 dagar Almennt nárnskeið 12.500,00
Bókanir og miðasala:
ZOEGA Útih'f G/æsibæ
FERÐASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5
Aíh.biðjiðum
upplýsingabælding.
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum