Tíminn - 24.03.1974, Síða 20
20
TÍMINN
Sunnudagur 24. marz 1974.
Ég geri mitt til
þess að hjálpa
drottningunni
— segir konan, sem er
svo nauðalík Elizabetu
Englandsdrottningu, að
hún gæti verið
tvíburasystir hennar
Fólk hefur alltaf litiö á þessa
konu sem konungborna. Menn
hafa numið staöar á götum úti,
þegar þeir hafa mætt henni og
hvislað: — Er þetta ekki....?
En nei, hún er ekki Elizabeth
Englandsdrottning. Það skiptir
ekki máli, þótt hún neiti þvi, að
hún sé drottningin, fólk vill þrátt
fyrir það fá hana til þess að skrifa
nafnið sitt i minningabækur þess
og ljósmyndarar vilja fá að taka
af henni myndir. Enginn trúir
henni.
Konan, sem hér um ræðir, er frú
Jeanette Charles i Essex i Eng-
landi. Hún getur ekki gengið um
göturnar, án þess að allir nær-
staddir veiti henni eftirtekt og
stari á hana eins og naut á ný-
virki. Jeanette er þriggja barna
móðir, húsmóðir og er gift fram-
kvæmdastjóra oliufyrirtækis
nokkurs. Auk þess er hún næstum
þvi ótrúlega lik Elizabethu
drottningu. Meira að segja eigin-
manni Jeanette finnst drottningin
og kona hans svo mjög likar.
Frú Charles á heima hjá sér
heilt safn af hárkollum, höttum
og fötum, sem nú getur farið i, ef
hana langar til þess aö bregða
sér út og hún vill, að fólk haldi, að
hún sé raunverulega drottningin.
— Ég veit svo sannarlega,
hvernig það er að vera stöðugt
undir eftirliti fólks. Ég kenni i
brjóst um vesalings drottning-
una, sem aldrei getur um frjálst
höfuðstrokið og getur ekki hreyft
sig, án þess að henni sé veitt at-
hygli.
Annars finnst frú Charles.aö út-
litið og svipurinn, sem hún hefur
af drottningunni, sé eins konar
gupðsgjöf. Hún metur drottning-
una og konungsættina mikils. Hún
segir, að svipurinn, sem er með
henni og drottningunni, hafi veitt
sér tækifæri til þess að koma
fram og auglýsa drottninguna, ef
svo má að orði komast. Hún gerir
lika sitt bezta til að auglýsa
drottninguna vel.
Jeanette hefur lika notið góðs
af útliti sinu. Hún hefur komið
fram i sjónvarpi, vegna þess hve
hún er lik drottningunni. Hún hef-
ur verið fengin til þess að leika i
auglýsingakvikmyndum, og
alltaf er einhver blaðamaðurinn
að koma til hennar og biðja um
viðtal og aö fá að lýsa lifi konunn-
ar, sem gæti næstum verið
drottningin sjálf.
— Þetta myndi ég þó aldrei
gera fyrir peninga, segir Jean-
etta. — Mér finnst þetta skemmti-
legt, en alls ekki óviðeigandi, eins
og sumir hafa viljað láta i veðri
vaka.
Heima hjá sér I Essex á Jean-
ette Charles myndir i stórum
bunkum. — Þaö eru svo margir,
sem vilja fá myndir af mér með
eiginhandaráritun minni, segir
hún. Og það enda þótt ég sé ekki
drottningin! Já, fólk er sannar-
lega undarlegt. Eitt er þó
áreiðanlegt, og það er, að fólk
elskar og dáir konungsfólkið, og
það finnst mér lika vera rétt, bæt-
ir hún við. — Ég geri mitt bezta
og reyni að segja fólki allt, sem ég
veit um drottninguna og fólk
hennar.
Eru þær skyldar?
Jeanette er eftirmynd
drottningarinnar i einu og öllu.
Það er ekki aöeins andlitið, sem
erlikt, heldur lika vöxturinn. Hún
er einu ári yngri en drottningin.
Enginn annar i fjölskyldu
Jeanette likst i hinu allra minnsta
nokkrum úr konungsfjölskyld-
unni. Jeanette veit i rauninni alls
ekki, hvers vegna hún er svona lik
drottningunni eða hverjum hún á
það að þakka, að hún skuli vera
svona lik henni, þar sem hvorki
móðir hennar eða faðir likjast
konungsfólkinu á nokkurn hátt.
Hún trúir þvi þó ekki, að þetta sé
einhver tilviljun.
— Móðurætt min er frá Þýzka-
landi og Hollandi, eins og ætt
drottningarinnar sjálfrar. Ég er
þvi viss um, að ættir okkar liggja
einhvers staöar saman, þótt það
kunni að vera einhvers staðar
langt aftur i ættum.
• Fátt þykir Jeanette Charles
skemmtilegra en að fara til
London og fara þar á söfn. Fólk
nemur staðar og starir á hana og
oftast gengur einhver til hennar
og segir:
— Afsakið, en þér eruð svo likar
drottningunni. Þér eruö þó ekki
drottningin sjálf, eða hvað?
Jeanette segist ekki vera
drottningin. — Fólk trúir mér þó
ekki og biður mig um eigin-
handaráritun, eða um mynd. Það
fá allir, sem þess óska.
Útlendingarnir eru hissa
Engir eru þó áhugasamari um
útlit Jeanette heldur en útlend-
ingar. Þegar hún fór eitt sinn til
ítaliu, ætlaði hún aldrei að losna
við aödáendur, sem hópuðust i
kringum hana. 1 New York
skyggði hún meira að segja á
sjálfan Sammy Davis. Enginn tók
eftir söngvaranum, en allra augu
beindust' að þessari ensku hús-
móður, sem þarna var komin, og
virtist vera drottningin i eigin
persónu. Þetta vildi til á flug-
vellinum i New York. Hópur
blaðamanna og ljósmyndara var
kominn til flugvallarins til þess
að taka á móti Sammy Davis, en
Jeanette Charles stóð þarna kyrr-
lát og hljóð úti i einu horni flug-
stöðvarbyggingarinnar og beið
eftir þvi að komast af stað með
flugvél. Þegar svo blaðamennirn-
ir komu auga á hana, gleymdu
þeir Sammy Davis, en þyrptust
þess i stað allir i kringum Jean-
ette — drottninguna, sem þeir
héldu að væri þarna komin. —
Sammy Davis varð heldur súr á
svip, segir Jeanette hin
ánægðasta.
Jeanette hefur fengið boð um að
koma fram til flugmannsins og
henni verið boðið kampavin, þeg-
ar hún hefur verið i ferðalagi með
flugvélum, vegna þess eins að
áhöfn flugvélarinnar hefur
haldið, að þarna væri konungbor-
inn farþegi með vélinni Jeanette
hefurlika oftar en einu sinni feng-
ið sér gönguferð fyrir framan
Buckingham-höll, og fylgzt með
þvi, hvernig fólkið, sem alltaf
stendur þar i von um að fá að sjá
drottninguna, hefur hreint og
beint gapað af undrun, þegar hún
hefur birzt.
— Það liður varla sá dagur, að
fólk spyrji mig ekki, hvort ég sé
drottningin, og ég get alls ekki að
þvi gert, að mér finnst það vera
skemmtilegt. Allt byrjaði þetta,
þegar Jeanette var 17 ára. Hún
var þá á göngu með móöur sinni I
götu i London, þegar ungur
maður gekk til hennar og sagði:
— Þér hljótið að vera Elizabeth
prinsessa.
— Vitleysa er þetta, sagöi móð-
irhennar og dró hana i burtu. En
allt frá þessari stundu hefur
drottningin núverandi verið
stór hluti af lifi Jeanette.
óvenjulegur fundur
1 eitt einasta skipti hefur Jean-
ette staðið augliti til auglitis við
Elizabethu sjálfa. Drottningin ók
i bil framhjá húsinu, sem Jean-
ette býr i, og i nokkur augnablik
horfðust „tviburarnir” i augu.
— Mér brá svo, aö ég varð að
fara inn og setjast niður og fá mér
tebolla, segir Jeanette. Þessi
fundur okkar hafði mjög mikil
áhrif á mig, og ég held, að sama
megisegja um drottninguna, sem
sá þarna spegilmynd sina.
Jeanette finnst drottningin vera
mjög fögur kona.
— Þar fyrir utan finnst mér þó,
að hún klæði sig alltaf dálitið
gamaldags. Ég á sérstaklega er-
fitt með að ganga með havta eins
ogþá, sem hún gekk með. Annars
finnst mér smekkur hennar i
klæðnaði hafa batnað i seinni tið,
og mér finnst hún vera farin að
velja sér miklu fallegri föt heldur
en hún gerði hér áður fyrr. Hún er
lika mun unglegri heldur en hún
var fyrir tiu árum. (Þýtt FB)
Jeanette Charles er mjög stolt yfir þvi, hversu lik hún er drottningunni
sjálfri. Hér heldur hún á mynd af Elizabethu drottningu.
Þetta er ekki drottningin, heldur konan, sem gæti veriö staðgengill
hennar hvar sem er, svo lik er hún henni.