Tíminn - 29.06.1974, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 29. júni 1974.
Laugardagur 29. júni 1974
- f Vatnsberinn: (20. jan.-18. febr.)
Þú skalt ekki taka fjármálalegar ráöleggingar
hátfðlega i dag, og það sem meira er: Þú skalt
ekki halda, að þú fáir eitthvað fyrir ekki neitt.
Kvöldið gæti orðið ágætt ef þú leystir hnút I
tilfinningamálunum.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Staðreyndir, sem alls ekki eru þér hagstæðar,
gætu breytt áformum þinum varðandi þennan
dag, sérstaklega i sambandi við ferðalög.
Einkum skaltu reyna að koma þér undan hvers
konar misskilningi eða klögumálum I dag.
Hrúturinn. (21. marz-
april)
Þú ættir að hafa hægt um þig i dag, einfaldlega
af þvi að þú hefur gott af að slaka á og hvila þig
Annað er það, sem þú skalt hafa sérstaklega
hugfast I dag: Gættu þess, aö skapsmunirnir fari
ekki úr jafnvægi út af smámunum.
Nautið: (20. april-20. mai)
Það litur út fyrir, að margt heimti tima þinn I
dag. Þú þarft á öllu þinu að halda idag til þess að
verða ekki kaffærður i önnum, og þú skalt búa
þig undir að þurfa að standa á máli þinu af allri
skapfestunni.
Tviburamerkið: (21. maí-20. júni)
Þetta verður fremur þægilegur dagur, og þú
skalt búa þig undir að fá heimsókn i kvöld. Það
litur út fyrir, að einhver fjölskyldumeðlimur
hafi komið sér i einhverja klipu, og þú skalt ekki
liggja á liði þinu við að losa hann úr henni hið
bráðasta.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þaö er alltaf varhugavert aö taka þátt i hvers
konar baktjaldamakki og undirróðri, og sérstak-
lega 1 dag. Yfirleitt skaltu vara þig á að sýna
nokkrum trúnað i dag. Ferðalög gætu orsakaö
leiðindi, að ekki sé meira sagt.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
í dag skaltu blanda geði við vini þina, og þá sér-
staklega þá, sem eru af gagnstæöa kyninu —
ástamálin eru nefnilega undir sérlega hagstæð-
um áhrifum. Þú skalt búa þig undir fréttir,
þegar liður á daginn, gleðifréttir.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Staöreyndirnar eru alltaf hollastar. Þessar loft-
kastalabyggingarog skýjaborgir taka á
taugarnar. Þú skalt fara að gera þér þetta ljóst
og það er kominn timi til fyrir þig að fara að
sýna meðfædda persónueiginleika þina.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Það hefur einhver misskilningur orðið, og þú
skyldir varast að fara aö leggja trúnað á
sögurnar, sem þú heyrðir I dag. Þú gerðir bezt i
þvi að láta allt slikt algerlega afskipalaust og
láta, sem þú vitir ekki neitt.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Þú ert I nokkuð erfiðri aöstöðu I ákveðnu máli,
en þú stendur þig, af þvi að þú gerir þér þetta
ljóst, og það veröur til þess, aö þér verður sýnt
ennþá meira traust. Láttu ekki velgengni stiga
þér til höfuös.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þaö litur út fyrir, að það hlaupi á snærið hjá þér i
dag, þó að þú gerir þér kannski alveg strax ljóst,
á hvern hátt það hefur orðið. Mundu bara að láta
ekki aukaatriðin glepja þig, og gakktu hreint til
verks.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Ýmislegt getur orðið til aö raska ró þinni i dag,
og ýmislegt bendir til, aö heimilislifið fari með
einhverju móti úr skoröum. Liklega verður þú
gagnrýndur fyrir eitthvað, sem þú gerðir 1
mesta sakleysi.
t 14444 3
mutm
® 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
1h !!: III, ffl If Slf, Ih !! fflHf!,.: ffllf ffl .fflH.llfi,,
Tii vímuefnaprédikarans
MAÐURINN, seni elskaði frelsið
og hataði allt helsi, tók allt I einu
að gylla gálgann — sagði aö snar-
an væri „vikkandi” afl, nauösyn
þeim, sem eru á móti þjóðfélag-
inu. Auvitað smeygðu menn henni
einungis um hálsinn annað veifið
eins og hverju öðru skrauti til
hátiðabrigða — likt og töfrasnúru,
er um stund drægi menn brott frá
úreltri þjóðfélagsskipan
einokunaraðila og mútuþega inn I
veröld Ijóss og friðar. Vissulega
væri þaö gömul hjátrú, sagði
hann, að snaran hertist saman,
þegar minnst varði, og hengdi
fólk. Hvilik hindurvitni.
Sjálfur eins og herragarðseig-
andil Suður-Ameriku, sem greið-
ir langsoltnu fólki cocablöö i
vinnulaun, gengur þessi ,,mál-
svari frelsisins” I lið með
morðingjanum L.S.D. og Hassian
keisara, argasta arðræningja og
eiturgassdrápara — málar á
skjöld sinn merki friðar og rétt-
lætis. Hver trúir honum?
Don Helder Camara notar ekki
vímugjafa — hann tekst á við
vandann, deigið, sem sýrir
brauðið. Hans verður heimurinn,
ef við hin tökum höndum saman,
virkjum orku hugans, og mátt
samtakanna i stað þess að drepa
hvert annað I beztu meiningu og
bliðri trú á eigin vangetu og
undirokun.
Tónlist — himinn, mold, haf,
ljós — mannleg tengsl, allt sem
unnt er að gera. Hvað er ölvandi,
€
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CARRENTAL
*24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI
OPIO
Virkadaga Kl. 6-jlOe.h.
Laugardaga kl. 10-4 e.h.
,.ó< BILLINN BÍLASALA
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
ef ekki þetta óskilgreinanlega
undur — lifið, sem er til að lita
þvi?
öll eiturefni eru geislavirk —
seinvirk stundum, en ætið á móti
betri þjóðfélagsskipan — banda-
menn hungurs, fáfræði og sjúk-
dóma. Ævarandi Hirosima og
Nagasaki.
Það undarlega er, að Ibúarnir
skuli lofsyngja eyðinguna, meðan
þeir eru að tærast upp úr eymd
og kvöl. Enn furðulegra, að þeir
skuli halda sig vera að bæta
heiminn.
(Jtvarpshlustandi.
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
Sjálfboðaliðar
og bílar á kjördag
Kosningaskrifstofurnar i Reykjavik vantar
sjálfboðaliöa til starfa. Unnið er öll kvöld til kl.
10.
Þeir, sem vilja lána bila á kjördag eru vinsam-
lega beðnir að hafa samband við kosninga-
skrifstofurnar og láta skrá bila sina. Einnig er
gott að þeir, sem ætla að vinna á kjördag, til-
kynni það sem fyrst.
CAR REIMTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
Eingöngu:
VÖRUBÍLAR
VINNUVÉLAR
7J&~s7o^
Viögeröir á fólksvögnum
Höfum til sölu fólksvagn.
Skiptivélar frá Danmörku.
SlMAR 81518 - 85162
SIGTÚNI 7 - REYKJAVlK
SIG. S. GUNNARSSON
Bílaverkstæðið
EKILL
BRAUTARHOLTI 4, SlMAR: 28340-37199
Sólaóir
hjólbaróar
til sölu ó ýmsar stærðir fólksbíla.
Mjög hagstætt verð.
Full óbyrgð tekin á sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu.
H
ARMULA7W3050I&84844