Tíminn - 29.06.1974, Qupperneq 3

Tíminn - 29.06.1974, Qupperneq 3
Laugardagur 29. júnl 1974. TÍMINN 3 Orlofsféð verð- ur greitt — fullyrðingar AAbl. eru aðeins kosningablekkingar HHJ-Rvlk — Morgunblaðiö er alla jafna ekki ýkja vant að virö- ingu sinni sem fréttablað. Þö tek- ur út yfir allan þjófabálk, þegar kosningar eru i nánd eins og les- endur þess hafa mátt sanna undanfarnar vikur. Þá er einskis svifizt og ekkert um þaö skeytt, hvort fariö sé meö rétt mái eöa ekki. Þannig hefur Morgunblaðiö aö undanförnu birt grein eftir grein, þar sem þvi hefur verið haldiö fram aö nánast væri um þurrö aö ræöa I öllum fjárfestingarsjóöum og fjármál rikisins i kaldakoli. Þessum fullyrðingum Morgun- blaösins hefur öllum verið hrund- iö. I slikum tilvikum birta heiöar- leg blöð leiöréttingar, en Morgun- blaöiö hefur ekki haft fyrir þvi og bltur raunar höfuðið af skömm- inni meö þvl að fullyröa I gær, að um sjóöþurrð sé að ræöa hjá Pósti og sima, þannig að ekki sé unnt aö standa skil á orlofsfé til þeirra launþega, sem rétt eiga á þvi á næstu vikum. Auk þess er Jóni Skúlasyni, póst- og simamála- stjóra borið á brýn að hafa eytt verulegum hluta af orlofsfé launagreiöenda til annarra þarfa. Þessum ásökunum Morgunblaös- ins veröur póst og símamálastjóri vitaskuld aö svara sjálfur, þegar og á þann hátt er hann kýs. Hins vegar verður ekki hjá þvi komizt aö leiörétta fullyröingar Morgunblaösins, hvaö greiöslu orlofsfjár áhrærir. Staðhæfingar þess um að Póstur og slmi geti ekki greitt orlofsféð eru tilbún- ingur einn, birtur I þvi skyni að vekja ugg I brjóstum orlofsþega vegna þess aö kosningar eru i nánd. Tlminn hafði samband viö Magnús Torfa ólafsson félags og samgönguráðherra vegna þessa máls. Magnús Torfi sagöi: Þessi grein Morgunblaösins er fram- hald á þvi, sem það hefur þrá- stagast á að undanförnu um f jár- vöntun i öllum hugsanlegum sjóö- um. Um þetta atriði er það að segja, aö Póstur og simi hefur hingaö til staðiö viö allar skuld - bindingar sinar um greiöslu or- lofsfjár og séð verður um, að svo veröi áfram. Þetta er aðeins ein af tilraunum Morgunblaðsins til þess að vekja ótta hjá orlofsþegum vegna þess aö kosningar eru I aðsigi. Kaupmáttur ellilífeyris hefur stóraukizt — í tíð núverandi stjórnar, en minnkaði hins vegar á ,,vidreisnar"-árunum HHJ-Rvik. — t siöasta hefði Sam- vinnunnar ritar Þórir Bergsson tryggingafræöingur grein um fjárhagslega stööu aldraöra. Meöal þess sem Þórir fjallar um I grein sinni er , hver veriö hefur þróun kaupmáttar lágmarks- tekna ellillfeyrisþega. Þar kemur skýrt fram hversu mjög kjör hinna öldruðu bötnuöu jafnskjótt og núverandi stjórn settist aö völdum 1971. Eins og ráöa má af linuriti þvl, sem fylgir grein Þór- is, hefur kaupmáttur ellillfeyris- ins stóraukizt s.l. þrjú ár og fer enn vaxandi. önnur var öldin á „viöreisnar”- árunum. Þá var lltt um það hirt, hver væru kjör hinna öldruðu, enda minnkaði kaupmáttur elli- llfeyrisins og raunar allra laun- þega stórlega á siöustu árum „viöreisnar”. Þegar stjórn Ólafs Jóhannes- sonar tók viö völdum 1971, var stefnunni I þessum efnum sem öðrum gjörbreytt til betri vegar og ellilifeyrir sem og állar trygg- ingabætur stórhækkaöar. Hitt er þó ekki minna um vert aö raun- verulegur kaupmáttur hefur auk- izt aö miklum mun og fer enn vaxandi. Linurit þetta fylgir grein Þóris Bergssonar tryggingafræöings um fjárhagslega stööu aldraðra, sem birtist i siðasta hefti af Samvinnunni. Linuritiö sýnir hver verið hcfur kaupmáttur ellilifcyris undan- farna áratugi, boriö saman viö kaupmátt verkamannalauna. Eins og sjá má hefur oröiö stórfeild aukn- ing á kaupmætti ellilífeyris I tiö rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Raunar var ekki vanþörf á aö bæta kjör hinna öldruðu, svo hraklega sem aö þeim var búið á meöan „viöreisnar”-herrarnir vöru viö völd. . ^ JU m m Stjórnarstefnan ræður úrslitum Sú velmegun, sem nú er rlkjandi, skapast ekki af sjálfu sér. Ytri aðstæöur ráöa aö visu miklu um afkomu fólks, en þaö, sem ræöur úrslitum, er stjórnarstefnan. Sá munur er á stefnu rikis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar og viöreisnarstjórnarinnar, aö nú- verandi stjórn hefur alla tiö lagt sérstaka áherzlu á atvinnuupp- byggingu um landið allt, en viöreisnarstjórnin lét reka á reiðan- um I þeim efnum. Þar sem áöur var allt I kaldakoli sökum at- vinnuleysis, eru nú vlöast blómlegar byggöir. Fólkiö streymir til þessara staöa til aö taka þátt I atvinnulifinu, og heimamenn kvarta helzt undan húsnæðisskorti, þar sem fyrir aöeins þremur til fjórum árum var svo ástatt, aö hús stóöu auð. Afkoma fólks er svo góð, að óhætt mun vera að fullyrða, að hún hafi aldrei veriö betri ; i sögu þjóðarinnar. „Varizt vinstri slysin" En þrátt fyrir góöa afkomu, og aö bjartsýni riki á fratiöina, hrannast dökk óveöursský á himininn. Svo getur farið aö sú stjórn, sem beitt hefur sér fyrir atvinnuuppbyggingu og margs konar umbótum, ekki slzt I ffelagsmálum, falli i kosningunum á sunnudaginn. Þvl veldur ekki betri stefnuskrá Sjálfstæöisflokks- ins eöa hæfari foringjar þess flokks heldur sú óeining, sem átt hefur sér stað meöal vinstri manna ilandinu. Margir smáflokkar biöla til sömu kjósenda og beita ákaft þeim áróöri, aö Fram- sóknarflokkurinn hafi svo og svo mörg umframatkvæði. Þessi áróöur er svo hættulegur, aö hann gæti hugsanlega leitt til þess, að Framsóknarflokkurinn tapaöi kjördæmiskosnum þingmönn- um. Sjálfstæðisflokkurinn hefur I þessum kosningum varað kjós- endur við vinstri slysum. Framsóknarflokkurinn tekur heilshug- ar undir þau vigorð. Vinstra fólk á aö varast vinstri slysin og hætta að dreifa atkvæðum sinum, en kjósa þess I stað heilsteypt- asta og stærsta vinstri flokkinn, sem er Framsóknarflokkurinn. Léleg skipti Andstæöingar Framsóknarflokksins I Reykjavik vega hart aö Einari Agústssyni. Framsóknarmenn I Reykjavlk ganga þess ekki duldir, aö þingsæti hans er I hættu. Framsóknarflokkurinn þarf ekki aö tapa mörgum atkvæðum frá borgarstjórnar- kosuingunum til aö Einar falli. Sllkt má ekki undir neinum kringumstæðum ske. Þaö yröu léleg býtti, ef Reykvlkingar fengu I staöinn fyrir Einar fulltrúa frá verzlunar- og kaup- mannastétt Sjálfstæöisflokksins. Einar Ágústsson hefur ekki einasta verið I rööum beztu þingmanna Reykvfkinga, heldur hefur hann veriö I eldllnu utanrikismálanna s.l. þrjú ár og rækt störf utanrikisráðherra meö slikum ágætum, aö viröing islands á erlendum vett- vangi hefur aukizt stórkostlega. Þann mann mega Reykvlkingar ekki missa af þingi. Þann stutta tima, sem til kosninga er, þurfa stuðningsmenn Framsóknar- flokksins I Reykjavik aö nota vel til aö tryggja kosningu Einars Ágústssonar. Hættulegur dróður um umframatkvæði Áróöur andstæöinga Framsóknarflokksins um svokölluö um- framatkvæöi, er hættulegur. Þessi áróöur er mikiö notaöur i Reykjaneskjördæmi gegn Jóni Skaftasyni. 1 siöustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum hlaut Framsóknar- flokkurinn samtais 3500 atkvæöi I Reykjaneskjördæmi, en Sjálf- stæöisflokkurinn um 8500 atkvæöi og Alþýöubandalag og Alþýöu- flokkur 3000 atkvæöi hvor flokkur. Af þessu sést, aö staöa Fram- sóknarflokksins er slöur en svo örugg, en þing- menn Reykjaneskjördæmis eru 5. Stuðnings- menn Framsóknarflokksins I Reykjanesi verða þvi að vera vel á verði gegn áróðrinum um umframatkvæðin. Sérstaklega eru þeir varaðir við þvi að kasta atkvæðum sínum á glæ með þvi að kjósa Möðruvellinga. Jón Skafta- son hefur reynzt ötull þingmaöur, stefnufastur og málefnalegur, og fáir þingmenn kjördæmis- ins þekkja betur til málefna þess en hann. — a.þ. Sérfræðingur um búnaðar mál Dr. Ross B. Talbott, sérfræöingur um landbúnaðarmál I Banda- rikjunum, mun dvelja I Reykja- vlk dagana frá 30. júni til 2. júli n.k. á vegum menningarstofnun- ar Bandarlkjanna. Þetta stendur nú til boða í Svíþjóð ENN STENDUR is- lenzkum verkalýð til boða að leita til Svíþjóð- ar, ef „viðreisnar”- flokkarnir, Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðu- flokkurinn, fá aðstöðu til þess að taka upp þráð- inn, þar sem þeir urðu frá að hverfa eftir kosn- ingarnar 1971, og koma á óskadraumi sinum „hæfilegu atvinnu- leysi”. Fyrirtæki einu, sem heitir Högnas AB, tókst I vor aö ráða tiu Færeyinga til starfa hjá sér, og reynsla þeirra Færeyinganna hefur einmitt verið til umræðu i Þórshafnarblöðunum siðustu daga. „Þótt færeysku verkamönnun- um væri lofað góðum launum, góðum húsakynnum og góðum vinnuskilyrðum, kom eigi að sið- ur I Ijós, að veruleikinn var allur annar”, segir I blaðinu 14. sept- ember. „Unnið var með dufti úr járnsvarfi, og það var bæði vond vinna og óholl. Færeyingarnir komust að þvi, að ógerlegt var að fá Svia eða aðra Norðurlandabúa I þessa vinnu, og launin voru af- arlág. Þetta er vinna, sem „far- andverkamönnum” er venjulega ætluð.ogtil jafns við þá voru Fær- eyingarnir metnir.” Fleiri Færeyingar voru búnir að ráða sig hjá þessu fyrirtæki, en hættu við ferðina, er þeir höföu spurnir af þvi, hvaða kjör þeim voru ætluð. I stað þess að halda formlegan fyrirlestur á vegum stofnunar- innar, mun dr. Talbott hitta og ræða við áhugafólk um land- búnaðarmál hjá Menningarstofn- un Bandarikjanna að Neshaga 16 mánudaginn 1. júli frá kl. 15:30 til kl. 17:30. Þeir sem vildu hitta Dr. Talbott á einhverjum öðrum tima er bent á að hringja til Menn- ingarstofnunarinnar i sima 19900. Meðal verka eftir hann má nefna „The Policy Process in American Agriculture” eða I lauslegri þýðingu „Stefnumynd- un I ameriskum landbúnaði,” en þá bók samdi hann ásamt öðrum. Auk þess hefur hann ritað margar greinar I blöð og timarit sem fjalla um pólitiska afstöðu ame- riskra bænda og áhrif þeirra á landbúnaðarstefnu Bandarikj- anna. r r ■ Islandsmið handa Islendingum : x B

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.