Tíminn - 20.07.1974, Page 1
Auglýsingadeild
Aðalstræti 7
Enn vex
bíla-
mergðin
HP.-Reykjavlk. Birt hefur
verið skýrsla um tollaf-
greiddar bifreiðar I janúar —
júnf þessa árs, sem Hag-
stofan lætur frá sér fara.
Skýrslan er gerð árs-
fjóröungslega og sýnir þá
viðbót við bifreiðaeign
landsmanna, sem verður á
hverjum ársfjórðungi.
Sýnir skýrslan glögglega
þá gifurlegu aukningu, sem
orðið hefur á innflutningi bif-
reiöa til landsins á þessu ári
og lætur nærri að áætla, að
hún sé meiri þessa tvo fyrstu
fjórðunga, en hún var allt
árið I fyrra. Bifreiðarnar eru
flokkaðar f fólksbifreiðar,
sendibifreiðar, vörubifreiðar
og aðrar bifreiðar.
Af nýjum fólksbifreiðum
hefur verið flutt 6.301 á móti
2.772 bifreiðum á sama tima
I fyrra. Nokkuö er misjafnt
hvaða tegundir eru hér
vinsælastar, en Ford hefur
selzt hér f 1528 eintökum, þar
af eru 567 Ford-Bronco bif-
reiðar. Næstur kemur svo
Ffat með 745 selda, þar af 407
af gerðinni Ffat 127. Bif-
reiöar frá British Leyland
eru 645 og er Austin Mini
gerðin þar hæst með 322 bif-
reiðar. Mazda og bifreiðar
frá General Motors slaga
hátt upp i þessar tölur, en
enginn nær þó amerísku
Bronco jeppunum. Má vera,
aðhagstæð staða dollars hafi
örvað þessi viðskipti. Notað-
ar fólksbifreiðar eru svo 490
á mót 371 i fyrra. Ber þar
mest á amerfskum bifreið-
um og einnig er Opel þar hátt
á lista.
Af sendiferðabifreiðum
hefur verið flutt inn 182, þar
af eru 18 notaðar. A sama
tima i fyrra voru fluttar inn
112 slikar bifreiðar. Mest ber
Framhald á bls. 19
MOlillM
126. tölublað —Laugardagur 20. júli — 58. árgangur
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
íslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
Skot í vélarrúmið stöðv
aði brezka veiðiþjófinn
— skipstjóri og óhöfn flúðu yfir
í brezkt eftirlitsskip
— skipstjórinn gamall kunningi
Landhelgisgæzlunnar
HP.-Reykjavik. — Mikill og
ævintýralegur eltingarieikur átti
sér stað á hafinu úti fyrir Hvalbak
og einar 100 mllur i haf út, ailan
daginn i gær. Átti varpskipið Þór
I höggi við brezka togarann
Forrester H 86( sem er skutt-
togari, byggður 1969 og staðinn
var að ólöglegum veiðum 1 1/2
mllu innan 50 mllna markanna
um 6 leytið I gærmorgun.
Togarinn skar af sér trollið, er
skipverjar uröu varir við
varðskipið og hélt hið bráðasta til
hafs. Sinnti hann engu stöðvunar-
merkjum varðskipsins, og einnig
fyrirmælum frá skipherra brezka
eftirlitsskipsins Asa, sem gaf
togaranum þegar fyrirmæli um
að stöðva. Barst leikurinn langt á
haf út og fylgdu varðskipsmenn
þolinmóðir á eftir og biðu þess er
verða vildi.
Siðdegis fór varðskips-
mönnum að leiðast þófið og voru
þá gefin fyrirmæli um að skjóta
að togaranum. Var skotiö 6 skot-
um, þar á meðal lenti eitt I vélar
rúmi og skemmdi það rafleiöslur
togarans það mikið, að vél hans
stöðvaðist. Fór skipstjórinn þá
þegar yfir i eftirlitsskipið ásamt
skipshöfn sinni, en kom fljótlega
aftur, er varðskipsmenn komu
um borð I togarann. Höfðu þeir
meðferðis björgunardælur, þvi að
litilsháttar leki kom að togaran-
um.
Kafari varðskipsins vann að
þéttingu skipsins, þvi að þvi kom
töluverð slagsiða. Ennfremur
var unnið við lagfæringu á raf-
leiðslunni. Skipstjórinn, sem
Reyndist vera góðkunningi land-
helgisgæzlunnar, Richard Taylor,
var hinn rólegasti svo og skips
höfnin öll. Richard þessi var
siðast til meðferðar hjá Land-
helgisgæzlunni 30. janúar 1965, er
hann var staðinn að ólöglegum
veiðum vestan Grimseyjar. Hafði
hann þá tvivegis verið dæmdur
fyrir landhelgisbrot og einnig
setið inni á Litla Hrauni fyrir
misþyrmingar á islenzkum lög-
regluþjóni, sem var að sinna
skyldustörfum á Isafirði. Fór
Taylor þá fyrir drukkinni skips-
höfn sinni með ólátum um götur
kaupstaðarins I nóvermber 1961.
Framhald á bls. 19
Landhelgisbrjóturinn Richard Taylor fyrir rétti á Akureyri í janúar
1965, en þá hafði hann verið tekinn fyrir ólögiegar veiðar út af Grfmsey.
Rannsókn á fjórreið-
um Áhaldahússins
— ógreiningur í borgarróði um meðferð mólsins
— Sjólfstæðismenn vilja, að mólið verði rannsakað
í kyrrþey
BH-Reykjavik. — Endurskoð-
unardeild Reykjavikurborgar
hefur aO undanförnu kannaO
starfsemi Áhaldahúss Reykjavlk-
urborgar og sent frá sér skýrslu
þar aO lútandi. Þar er fjallaO um
21 atriOi, sem endurskoOunar-
deildin telur, aO forstöOumaOur
Áhaldahússins þurfi aO gera grein
fyrir og upplýsa. Skrifieg svör
forstöOumannsins og athuga-
semdir endurskoOunardeildar við
þau hafa verið tekin til meOferðar
i borgarráði, og uröu talsveröar
umræöur um þessi mál á borgar-
ráösfundi I fyrrakvöld. Viröist
ljóst af framanskráðum gögn-
um.aö ýmis atriði þessa máls séu
enn óupplýst og þurfi frekari
rannsóknar viö. óskaöi fulltrúi
Framsóknarflokksins I borgar-
ráði, Kristján Benediktsson, aö
Veiting borgarlæknisembættisins:
Hvorki tekið tillit til
menntunar né starfsreynslu
- 5 borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og 3 borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins sam-
einuðust um að virða að vettugi hæfasta umsækjandann um borgarlæknisembættið
Þau tíðindi gerðust á fundi
borgarstjórnar Reykjavlkur á
fimmtudagskvöld, aö 5 borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og 3
borgarfulltrúar Alþýöubanda-
lagsins mynduöu meirihluta og
sameinuöust um aö kjósa Skúla
Johnsen I embætti borgarlæknis,
þótt fyrir lægi umsögn landlækn-
is, er taldi Björn önundarson
hæfastan umsækjenda, enda upp-
fyliir Björn, einn umsækjend-
anna, Itrustu kröfur sem gerðar
eru til embættisins og hefur auk
þess lengsta starfsreynslu að
baki sem héraösiæknir og
heimilislæknir. Atkvæöagreiöslu
lytkaöi svo aö Skúli hlaut 8 at-
kvæöi, en Björn 7, en þriöji
umsækjandinn, Þorgils Bene-
diktsson, hlaut ekkert atkvæöi.
Borgarfulltrúarnir Alfreð Þor-
steinsson, Kristján Benediktsson,
Björgvin Guðmundsson, Albert
Guðmundsson, og Ragnar Július-
son gerðu svohljóðandi athuga-
semd eftir að atkvæðagreiðslu
lauk:
,,Af þremur umsækjendum um
embætti borgarlæknis, iiggur fyr-
ir, aö aöeins Björn önundarson
uppfyllir itrustu kröfur, sem
geröar eru til embættisins, sam-
kvæmt lögum um heilbrigöis-
þjónustu frá 1973, kafla 1, en þau
taka gildi, er Alþingi ákveöur.
Auk þess hefur Björn önundar-
son lengsta starfsreynslu sem
héraöslæknir og heimilislæknir.
Hann er þvi tvimælaiaust hæfast-
ur umsækjenda, sbr. einnig
umsögn landlæknis, frá 16. júll.
Meö þvl að meirihluti borgar-
fulltrúa hefur gengið framhjá
Birni önundarsyni hafa tvær
meginreglur, er gilda um em-
bættisveitingar veriö brotnar, þar
sem hvorki hefur veriö tekið tiliit
til menntunar né starfsreynslu.
SHku hljótum viö aö mótmæla.”
Fulltrúar Alþýðubandalagsins
á borgarstjörnarfundinum á
fimmtudaginn, er greiddu Skúla
atkvæði voru þau Adda Bára
Sigfúsdóttir, Sigurjón Pétursson,
og Guörún Helgadóttir. En
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
voru Birgir Isl. Gunnarsson,
Markús örn Antonsson, Páll
Gislason; Olfar Þórðarson og
Davið Oddsson. Meö Birni
önundarsyni greiddu atkvæði
borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins, Alfreð Þorsteinsson og
Kristján Benediktsson . Borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, Björgvin
Guðmundsson og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins þeir Albert
Guðmundsson, Ragnar Júliusson,
Ölafur B. Thors, og Magnús L.
Sveinsson.
Að lokum skal birt umsögn
Ólafs Ólafssonar landlæknis frá
16. júlí:
,,! ljósi þess, aö Birni önundar-
syni hefur formlega veriö veitt
sérfræöiviðurkenning i embættis-
lækningum og hefur þvl einn
umsækjenda sérfræöiviöurkenn-
ingu I heimilis- og embættis-
lækningum, tei ég hann hæfastan
af umsækjendum um borgar-
læknisembættiö. Frekari rök-
stuöningur þessa mats er m.a.
fólginn I eftirfarandi tilvlsun I lög
um heilbrigðisþjónustu nr.
56/1973 kafla II. gr. 7.1.
„Héraðslæknar skulu vera
sérmenntaöir embættislæknar
eöa hafa menntun f féiags-
lækningum og heilbrigöisfræöum,
sem teist jafngild”.
Þessi kafli iaganna tekur ekki
gildi fyrr en Alþingi ákveður, en
Framhald á bls. 19
eftir sér yröi bókuö athugasemd,
þar sem meöai annars segir svo:
„Sllk rannsókn veröur aö mlnum
dómi aö framkvæmast af opin-
berum aöila og ná yfir lengra
timabil en athugun endurskoöun-
ardeildar tók til. Meirihlutinn i
borgarráöi hefur lagzt gegn slikri
meöferö þessa máls. Tillaga hans
er sú, aö sakadómara i samráöi
viö endurskoöunardeild veröi fal-
iö aö athuga máiið I kyrrþey.”
Á borgarráðsfundinum I fyrra-
kvöld lögðu borgarráðsmenn
Sjálfstæðisflokksins fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Borgarráð hefur að undan-
förnu haft til umræðu skýrslu
endurskoðunardeildar um athug-
un á rekstri Ahaldahússins. At-
hugun endurskoðunardeildar hef-
ur ekki leitt I ljós stórfellt mis-
ferli, þótt sitthvað hafi reynzt at-
hugavert og annað þarfnist nán-
ari rannsóknar, m.a. vegna þess,
að framburðir stangast á. Borg-
arráö felur endurskoðunardeild
aö hlutast til um, að skýrslur frá
þeim aðilum, sem hún hefur yfir-
heyrt, verði staðfestar fyrir saka-
dómi, og að aðrir aðilar, sem end-
urskoöunardeild telur nauðsyn-
legt að yfirheyra, verði kallaðir
fyrir sakadóm til skýrslugjafar
um starfsemi Ahaldahússins svo
og þeir aðilar, sem talin er þörf á
að kalla fyrir. Þessi framhalds-
rannsókn endurskoðunardeildar
og sakadóms miðist að þvl að
leiða fram það, sem sannast er,
um þau atriði, sem þegar hafa
komiö fram i skýrslu endurskoö-
unardeildar, svo og önnur þau
atriði, sem nauðsynlegt er talið
að kanna. Þegar skýrslur um
rannsókn þessa liggja fyrir, mun
borgarráð taka afstöðu til þess,
hvort rétt sé að óska eftir opin-
berri sakarannsókn.”
Þeir Kristján Benediktsson og
Sigurjón Pétursson fluttu svo-
hljóðandi tillögu:
Framhald á bls. 19