Tíminn - 10.12.1974, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.12.1974, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Þriðjudagur 10. desember 1974. Jómfrúrræða Pdls Péturssonar á Alþingi: Stækkun Áburðarverksmiðjunnar er hagsmunamól þjóðarinnar allrar FYRIR skemmstu lagði Páll Pét- ursson alþingismaður fram þingsályktunartillögu um stækk- un Aburðarverksmiöjunnar. A fundi sameinaðs þings s.l. föstu- dag mælti Páll fyrir tillögunni, en þetta var jafnframt jómfrúrræða hans. i ræðu sinni benti Páll á, að stækkun Aburðarverksmiðjunn- ar, væri ekki aðeins hags- munamál islenzks landbúnaðar, heldur væri hún bráðnauðsynleg vegna hagsmuna þjóðarinnar allrar, þar sem áburðarkaup væru stór tilkostnaöarliður viö búrekstur og áburðarverðiö hefði afgerandi áhrif á verðlagningu landbúnaðarafurða hverju sinni. i greinargerð meö tillögunni bendir Páll á, að innfluttur áburður sé mun dýrari en sá, sem framieiddur er hjá Aburðar- verksmiðjunni i Gufunesi og islendingar veröi að kaupa 1/3 hluta þess magns, er þeir nota, erlendis frá. Hér á eftir fer ræða Páls Péturssonar: „Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja svohljóðandi tiltölu til þingsályktunar. „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að láta nú þegar gera könnun á þvi, hvort ekki sé tima- bært aö hefjast þegar handa um stækkun Aburðarverksmiðju rik- isins I Gufunesi, þannig að hún geti sem allra fyrst fullnægt þörf landsmanna fyrir framleiðslu- vöru verksmiðjunnar. Ennfrem- ur verði gerð könnun á þvl, hvort ekki komi til greina stækkun verksmiðjunnar meö útflutning áburðar fyrir augum. Ef könnun þessi leiöir það i Ijós, að stækkun verksmiðjunnar sé þjóöhagslega hagkvæm, felur alþingi rikis- stjórninni að láta semja og leggja fram á Alþingi frumvarp um stækkun verksmiöjunnar. Könn- un þessari verði hraðað svo sem frekast er kostur, þannig að niðurstöður hennar liggi fyrir áður en þeirri raforku, sem tiltæk verður I landinu i nánustu framtið, er ráðstafað til annarra greina orkufreks iðnaðar.” Tillögu þessari lét ég fylgja svohljóðandi greinargerð, sem ég mun nú lesa með leyfi hæstvirts forseta. „Það er alkunna, hversu áburð- arverð I veröldinni hefur hækkað stórkostlega undanfarið. Sam- kvæmt upplýsingum Aburðar- verksmiðju rikisins mun áburð- arverö til bænda a.m.k. tvöfald- ast á næsta vori. Bændur hafa af þvi miklar áhyggjur, hvernig þeir geti mætt þessari stórfelldu hækkun. Það er augljóst, að allra leiða verður að leita til þess að halda niðri áburðarverðinu, enda hefur það áhrif á afkomu lands- manna allra. Fyrirsjáanlegt er, að notkun áburðar ætti að stór- aukast i landinu á næstu árum, m.a. vegna þess að ákveðið hefur veriö aö gera mikið átak i land- græðslu. Nú mun áburðarverk- smiðjan framleiða um 2/3 af ár- legri áburðarþörf landsmanna, og það er fyrst og fremst hið háa kaupverð á þeim þriðjungi, sem við flytjum inn, en gætum að mestu leyti framleitt sjálfir, sem sprengir upp áburðarverðið svo mjög sem raun ber vitni. Þar sem framleiðsla áburðar I Gufunesi byggist að langmestu leyti á raf- orku úr fallvötnum, en ekki á oliu, eins og viðast er erlendis, hafa forsendur eldri áætlana breytzt islenzkri framleiðslu i hag. Flutningsmaður leggur áherzlu á það, að eðlilegra sé að verja þeirri raforku, sem tiltæk verður i landinu i næstu framtið, til áburð- arframleiðslu fremur en til ann- arra greina orkufreks iðnaðar. Reynsla og verkkunnátta Is- lendinga við áburðarframleiðslu er fyrir hendi. Þörfin á auknu framleiðslumagni er brýn, fram- leiðslan veldur ekki náttúru- spjöllum, heldur hið gagnstæða, Páll Pétursson verkefnið er ekki stærra en svo, að það er viðráðanlegt fyrir íslendinga og eðlilegra að islenzk fallvötn mali fremur þessari þjóð gull en útlendingum.” Hér lýkur greinargetðinni og viö hana vil ég einungis bæta þessu: „Um tuttugu ára skeið hefur Aburðarverksmiðja rikisins verið starfrækt i Gufunesi. Fyrstu starfsár verksmiðjunnar gat hún framleitt meiri köfnunarefnis- áburö en landsmenn höfðu þörf fyrir, en s.l. 13 ár hefur verk- smiðjan þurft að flytja inn erlent köfnunarefni. Nú er svo komið, að við verðum að flytja inn meira en 1/3 af þeim áburði, sem við þurfum að nota. Nú er verðlagi áburðar i heiminum þannig hátt- að, að það hefur hækkað geysi- lega á siðasta ári, einkum vegna hinnar ógurlegu hækkunar á oliu- verði, en flestar þjóðir aðrar en íslendingar nota oliu i staö vatns- orku til framleiðslunnar. Málum er svo komið, að sá hluti áburðar, sem við þurfum að flytja inn, er mjög miklu dýrari heldur en sá hluti, sem framleiddur er i Gufu- nesi, svo sem lauslega var drepið á i greinargerðinni. 1 tillögu þess- ari er bæði farið fram á að könnun verði gerð, með stækkun verk- smiðjunnar i Gufunesi fyrir aug- um, þannig að hún geti fullnægt þörf okkar fyrir framleiðsluvörur verksmiðjunnar, og i öðru lagi beinist könnunin að þvi, hvort út- flutningur áburðar og þá væntan- lega ammoniaks gæti komið til greina i stórum stil. Ég mun fyrst geta nokkuð um útflutningsframleiðslu. I öðrum löndum eru stór'ar verksmiðjur taldar hagkvæmastar. Þær fram- leiða 800 til 1200 tonn af ammoni- aki á dag, og nota yfirleitt oliu. Til svo stórrar verksmiðju þarf geysimikla raforku, u.þ.b. 500-600 megawött i virkjun, þannig að ljóst er, að til þeirrar framleiðslu getur ekki komið hér i allra nán- ustu framtið, þó að sjálfsagt sé að Ihuga möguleika á þess háttar framleiðslu og ég sé þess ekki fullviss, að verksmiðjur með framleiðslugetu minni en 800 tonn geti e.t.v. verið hagkvæmar rekstrareiningar á heims- markaðinum. Ég mun þá ræða sérstaklega um þá áfangastækkun verksmiðj- unnar i Gufunesi, sem mér sýnist mögulég og nauðsynleg hið fyrsta, vegna brýnna hagsmuna islenzks landbúnaðar. Stækkun Aburðarverksmiðjunnar i Gufu- nesi gæti verið tviþætt. í fyrsta lagi þarf aukningu á ammóniaks- framleiðslugetu verksmiðjunnar. Nú munu vera framleidd i Gufu- nesi 30 tonn af ammoniaki á dag. Framleiðsla ammoniaks byggist hér á rafgreiningu vatns til vatns- efnisframleiðslu. Til framleiðslu á hverju tonni ammóniaks þarf l/2megawatti virkjun, þannig að til tvöföldunar núverandi fram- leiðslu, úr 30 tonnum i 60 tonn á dag, þarf viðbótarafl um 15 megawött. Við athugun, sem gerð var seinnipartinn i sumar, kom i ljós, að hvert tonn ammoniaks framleitt i Gufunesi kostaði 177 dollara, en hvert tonn af þvi ammoniaki, sem Aburðarverk- smiðjan átti kost á að kaupa frá útlöndum, kostaði þá 450 dollara komið i Gufunes. Þannig að auðséð er, að eftir nokkru er að sækjast. Þetta lága framleiðslu- verð I Guíunesi byggist þó m.a. á þvi, að verksmiðjan er ekki þung 1 afskriftum og býr við hagstætt orkuverð. I öðru lagi þarf nauðsynlega aukningu á framleiðslu saltpét- urssýru. Hráefni til framleiðsl- unnar er fyrst og fremst ammoni- ak. Þessi framleiðsla er ekki mjög orkufrek. Ný áætlun um kostnað við byggingu sýruverk- smiðju i Gufunesi af hentugri stærð bendir til þess, að hún myndi kosta um 470 millj. kr. Sú verksmiðja getur risið, þótt ekki yrði úr ammóniaksframleiðslu. Ef nægileg saltpéturssýra væri fyrir hendi i Gufunesi, væri rekstur hinnar nýlegu MPK-verk- smiðju þar gerður mun hag- kvæmari, þar sem skortur á salt- péturssýru hindrar, að hún sé rekin meö fullum afköstum allt árið. Framleiðslugeta hennar er 65 þús. tonn á ári, en afköstin nú eru um 40 þús. tonn eða nýting um 65%. Ég vil taka það sérstaklega fram, að ég tel að þessi stækkun þessar framkvæmdir, séu ekki meiri en svo, eða mikilfenglegri, Takasæti á þingi t GÆR tóku sæti á Alþingi i fyrsta sinn þau Ragnheiður Svein- björnsdóttir, bæjarfulltrúi i Hafnarfirði, og Sverrir Berg- mann læknir. Ragnheiður tekur sæti fyrir Jón Skaftason alþingis- mann, sem undanfari&hefur setið á þingi Sameinuðu þjóðanna i New York. Sverrir Bergmann tekur sæti Einars Agústssonar utanrikisráðherra, sem verður fjarverandi á næstunni vegna erinda erlendis. Þá tók sæti á Alþingi i gær Skúli Alexandersson oddviti, sem tekur sæti Jónasar Árnasonar (Ab) i Vesturlandskjördæmi. Skúli hefur áður átt sæti á Alþingi sem varamaður. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir Sverrir Bergmann. að við íslendingar ættum að geta hrundið þeim i framkvæmd einir, og án mjög mikilla tafa, ef fljót- lega verður hafizt handa um undirbúning verkefnisins. Mér er ennfremur kunnugt um það, að stjórn Aburðarverksmiðjunnar og forráðamenn hennar hafa fullan hug á þvi að athuga möguleika á stækkun verksmiðjunnar, og hafa snúið sér til hlutaðeigandi yfirvalda með óskir þar um. Stéttarsamband bænda óskaði eftir þvi á síðasta aðalfundi, að slik könnun yrði gerð. Ég nefndi áðan hagsmuni is- lenzks landbúnaðar. Ég hefði fremur átt að segja, að stækkunin væri bráðnauðsynleg vegna hags- muna þjóðarinnar allrar. Að sjálfsögðu er öllum háttvirtum þingmönnum það ljóst, að fyrir- sjáanleg stökkhækkun á áburð- arverði er ekki mál okkar bænda einna. Aburðarkaup eru i lang- flestum tilvikum einn af stærstu tilkostnaðarliðum við hvert bu' i landinu, og hefur áburðarverðið afgerandi áhrif á verðlagningu landbúnaðarafurða hverju sinni. Aburðarliðurinn vegur nú um 9,03% I verðlagsgrundvellinum. 100% hækkun á áburðarverði, sem gengi beint út I verðlagið miðað við verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara, hækkar fram- færsluvisitölu um 5,1 stig, og kaupgjaldsvisitaka hækkar þá um 2,5 stig, svo framarlega sem visitalan er I fullu sambandi, og 2,5 stig i kaupgjaldsvisitölu gera 2,3% I almennri kauphækkun, ef visitölukerfið er i fullu sambandi. Núna i haust var skipuð nefnd til þess að kanna, á hvern hátt bráðasta vanda áburðarhækkun- arinnar yrði bært frá i bili. Nefnd- in hefur þegar unnið mikið starf. Hún hefur unnið að gagnasöfnun, og t.d. sent út fyrirspurnir til bænda, m.a. um það, hvort þeir telji sig geta dregið úr áburðar- notkun. Ég tel ekki, að bændur geti né megi draga úr áburðar- notkun. Landið gefur okkur ekki þá uppskeru, sem við þurfum, nema við gætum þess vandlega að rányrkja það ekki. A þjóöhátiðarfundi Alþingis á Þingvöllum i sumar var .samþykkt myndarleg land- græðsluáætlun. Hún hefur einnig i för með sér stóraukna áburðar- notkun á næstu árum, og vel er það, ef við getum greitt að nokkru þá skuld, sem við erum i við þetta land, sem hefur haldið lifinu i þessari þjóð i 1100 ár. Ef vel tekst til, þá getum við bætt landið að nokkru og skilað þvi betra og byggilega i hendur eftirkomenda okkar en við tókum við þvi. Auöæfi þessarar þjóðar eru land hennar, haf hennar og menning hennar, og við eigum að gæta vel þessara auðæfa, gæta þeirra fyrir ásælni annarra og fyrir skamm- sýni okkar sjálfra, búa hér sjálfir, búa hér einir, og búa hér með það i huga, að eftirkomendur okkar geti átt hér góða daga og langan aldur I ómenguðu landi, sem þeir eiga sjálfir og einir, við sjó sem þeir hafa einir umráð yfir og við þá menningararfleifð, sem þeir eiga sjálfir. Þess vegna, herra forseti, leyfi ég mér að vekja sérstaka athygli á þvi, að Aburðarverksmiðjan i Gufunesi er islenzkt fyrirtæki, fyrirtæki okkar sjálfra og okkar einna. Þannig fyrirtæki eiga að minum dómf nokkurs konar frumburðarrétt til þeirra þroska- möguleika, sem islenzkar orku- lindir geta veitt, og til þeirrar for- sjár, sem Alþingi íslendinga hefur tök á að veita. Þess vegna treysti ég þvi, að Alþingi taki til- lögu þessari vel. Hæstvirtur land- búnaðarráðherra veit ég að er máli þessu hlynntur. Ég vona, að rikisstjórnin láti hraða þeirri könnun, sem farið er fram á, og ef hún reynist á þann veg, sem ég tel liklegast, að stækkun sé hagkvæm, þá verði undirbúningi stækkunarinnar hraðað og tillit tekið til orkuþarfa verksmiðjunn- ar, áöur en gengið verður frá þvi að ráðstafa þeirri orku, sem tiltæk verður i landinu á næst- unni, til annarra greina orkufreks iðnaðar. Að lokinni umræðu um þetta mál hér i dag vil ég leyfa mér að gera tillögu um að málinu veröi visað til háttvirtrar at- vinnumálanefndar. b!Sb illli Lýstu sig and- víga breytingu á útvarpslögum langan tima, áður en fljótfærnis- leg breyting var gerð á kosningu útvarpsráðs með lögunum frá 1971. Rakti menntamálaráðherra i stuttu máli, hvernig kosningu I útvarpsráð hefði verið háttað. 1 upphafi tilnefndu vissar stofnanir menn i útvarpsráð, eða frá 1930- ’34. Árið 1934 varð sú breyting á, að Alþingi kaus 3 menn, en 3 voru tilnefndir frá stofnunum. Árið 1942 var síðan gerð sú breyting, að Alþingi kaus alla menn i ráðið á fyrsta þingi eftir hverjar kosningar. Sú skipan hélzt óbreytttil 1971, en þá var gerð sú breyting, að ákveðið var að kjósa til fjögurra ára, án tillits til þess, hvenær kosningar færu fram. Menntamálaráðherra sagði það vera sina skoðun, að skipan út- varpsráðs ætti jafnan að vera i samræmi við skipan Alþingis, úr þvi að það fyrirkomulag gilti, að útvarpsráð væri kosið af Alþingi. í GÆR mælti Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra fyrir frumv. um breyt- ingu á útvarpslögum I efri deild. Urðu nokkrar umræður um málið i deildinni, og tóku til máls Alþýðubandalagsþingmennirnir Ragnar Arnalds og Helgi Seljan, Alþýðuflokksmaöurinn Jón Ar- mann Héðinsson og Sjálfstæðis- flokksmaðurinn Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson. Mæltu þeir allir gegn frumvarpinu. Menntamála- ráðherra sagði, að sér kæmi á óvart, hve mik- inn áhuga þing- mennirnir sýndu þessu frumvarpi. Málið væri mjög einfalt. Um það væri að ræða að breyta kosningu útvarps- ráðs i það form, sem gilti um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.