Fréttablaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.12.2004, Blaðsíða 2
2 24. desember 2004 FÖSTUDAGUR Frank Michelsen: Skógarþröstur flaug inn í hitann VERSLUN Skógarþröstur brá sér í heimsókn í verslun Frank Michel- sen við Laugaveg í gær. Frank Ú. Michelsen úrsmíðameistari segir að „jólaboðinn“ hafi komið fljúg- andi inn úr myrkrinu „til að hlýja sér í jólailminum, birtunni og lita- gleðinni“ rétt rúmlega níu í gær- morgun þegar nýbúið var að opna verslunina. „Hann settist upp á eina mynd- bandstökuvélina sem ég er með í tengslum við þjófavarnakerfið og sat þar smástund, svo settist hann í blóm og var þar svolitla stund, fór loks niður á gólf og spásseraði inn í herbergi þar sem ég er með betri stofu, svokallað Rolex her- bergi. Þar var hann smá stund. Svo labbaði hann út eins og fínn maður,“ segir Frank. Starfsmenn verslunarinnar vildu ekki styggja fuglinn og leyfðu honum bara að njóta hit- ans. „Þetta var svo skemmtilegt og gaman að sjá, ekki síst þegar hann settist í blómið. Hann sat þar bara rólegur og yljaði sér. Manni varð hlýtt í hjartanu við sjónina,“ segir Frank. - ghs Enn ágreiningur um uppgjör Opinberunar Kvikmyndagerðarmenn eru ósáttir við að Kvikmyndamiðstöð kalli ekki eftir uppgjöri vegna myndar Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hannesar. Stjórn félags tekur málið upp. KVIKMYNDIR Ágreiningur er uppi um hlutverk og skyldur Kvik- myndamiðstöðvar vegna uppgjörs á kvikmynd Hrafns Gunnlaugs- sonar, Opinberun Hannesar. Félag kvikmyndagerðarmanna beindi því fyrir um það bil ári til þá- verandi Kvikmyndastofnunar, sem síðar varð Kvikmyndamið- stöð, að kallað yrði eftir greinar- gerð um notkun opinberra fjármuna í myndina. Forstöðu- maður Kvikmyndamiðstöðvar segir það ekki verða gert. „Í þessu tilviki voru grunsemd- ir uppi um að ekki hefði verið vel með fé farið,“ sagði formaður fé- lagsins, Björn Br. Björnsson. „Í ljósi þeirra ásakana sem komu frá einstaklingum ályktuðum við og hvöttum Kvikmyndastofnun til að fara yfir bókhaldið á þessu máli til að hreinsa það upp, þannig að menn lægju ekki undir grun um að hafa fengið miklu meira fé til einhvers verks en það kostaði.“ Opinberun Hannesar vakti mikla athygli á sínum tíma þegar myndinni var neitað um styrk hjá Kvikmyndasjóði. Þorfinnur Ómarsson, forstöðumaður þá- verandi Kvikmyndastofnunar, setti sig upp á móti styrknum, sætti rannsókn Ríkisendurskoð- unar og varð skömmu síðar að hætta þegar menntamálaráðherra vísaði honum tímabundið úr starfi. Lögfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að brottvikn- ingin hefði verið ólögmæt og Þor- finnur fékk starfið tímabundið aftur eða þar til embætti hans var lagt niður. Á seinustu dögum sín- um í starfi ákvað hann að veita mynd Hrafns styrk upp á 22 millj- ónir króna. Menntamálaráðherra óskaði eftir því að Ríkisendur- skoðun færi yfir málið. Niðurstað- an varð sú að Þorfinni hefði verið óheimilt að styrkja myndina án leyfis ráðherra. Sjónvarpið keypti síðan sýningarrétt á henni fyrir tíu milljónir. „Þessi úthlutun kom til áður en Kvikmyndamiðstöð varð til úr Kvikmyndastofnun,“ sagði Laufey Guðjónsdóttir forstöðu- maður stöðvarinnar. „Þetta var al- gjörlega á milli kerfa og fram hjá þeim. Hrafn sagði á opinberum vettvangi, að hann myndi skila inn uppgjöri, en meira hefur ekki gerst, svo ég viti.“ „Við getum ekki gert neitt í þessu,“ sagði Laufey. „Eins og ég les samninginn sem Þorfinnur gerði við Hrafn, þá getur hann komist hjá því að skila uppgjöri til okkar.“ „Kvikmyndamiðstöð getur ekki þvegið hendur sínar af þessu,“ sagði Björn. „Ég veit ekki betur heldur en að hún hafi tekið við að fylgja eftir öllum málum Kvikmyndastofnunar. Ég geri ráð fyrir að stjórn okkar félags muni ræða þetta mál.“ jss@frettabladid.is Umferðarstofa: Umferð um kirkjugarðana KIRKJUGARÐAR Sérstakar ráðstafan- ir hafa verið gerðar til að greiða sem mest fyrir umferð við Foss- vogskirkjugarð og Gufunes- kirkjugarð. Þeir sem ekki þurfa nauðsynlega að fara Bústaðaveg í dag eru hvattir til að velja sér aðr- ar leiðir. Umferð að Fossvogskirkjugarði fer um Bústaðaveg og Suðurhlíð. Þeir sem fara úr garðinum í Kópa- vog, Garðabæ eða Hafnarfjörð er bent á að fara niður Suðurhlíðina og út á Kringlumýrarbraut. Þeir sem fara í Gufuneskirkju- garð þurfa að hafa í huga að ein- stefna verður í gegnum garðinn þar sem farið verður inn frá Gagnvegi og umferð út úr garðin- um fer út á Borgaveg. - hrs FENGU JÓLAGJÖF FRÁ AKUREYRARBÆ Íris Árnadóttir, Olga Einarsdóttir og Kristján Þó Júlíusson þegar styrkir voru afhentir. Engin jólakort: Styrkir í stað jólakorta JÓLAKORT Fé sem ætlað var til að prenta og senda út jólakort til starfsmanna Akureyrarbæjar hefur verið gefið til styrktar- félaga. Er það gert í annað sinn. Jón Birgir Guðmundsson, verk- efnastjóri bæjarráðs, segir átján hundruð starfsmenn bæjarfélags- ins falla það vel. Þeir hafi nær all- ir aðgang að netinu og jólakveðjur séu því sendar í tölvupósti. Styrkinn hlutu Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, og Aflið, systursam- tök Stígamóta á Akureyri, 75 þús- und krónur hvort. - gag Ríkið sýknað: Foreldrar fá ekki bætur DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði rík- ið af skaðabótakröfu foreldra fjöl- fatlaðs drengs í gær. Foreldrarnir fóru fram á 25 milljónir króna í bætur þar sem þau álitu að lélegt mæðraeftirlit og fæðingarhjálp hefðu leitt til þess að drengurinn skaðaðist. Ríkisútvarpið greindi frá því að dómurinn teldi ósannað að móðir drengsins hafi kvartað um að barnið hreyfði sig minna í mæðra- skoðun í maí 1993. Fullvíst megi telja að fötlun drengsins hafi orðið fyrr á meðgöngunni. - gag VLADÍMIR PÚTIN Forseti Rússlands varði kaupin í gær. Yuganskneftegaz: Ríkið keypti MOSKVA, AP Dótturfélag Yukos er nú komið í hendur ríkisfyrirtæk- isins Gazprom. Þessir málavextir komu ekki á óvart þótt rússnesk yfirvöld hefðu gefið í skyn að þau hyggðust ekki eignast fyrirtækið. Dótturfélagið var selt á upp- boði fyrir verð sem talið er mikl- um mun lægra en verðmæti þess gefur tilefni til. Algjörlega óþekkt fyrirtæki keypti reksturinn. Grunsemdir um að félagið væri leppur fyrir ríkisstjórnina hafa nú verið staðfestar. Vladimír Pútín forseti varði kaupin í gær og sagði að ríkið væri að standa vörð um hags- muni sína með því að festa kaup á þessu mikilvæga framleiðslu- fyrirtæki. ■ Fréttablaðið: Útgáfa á mánudag ÚTGÁFA Fréttablaðið kemur næst út mánudaginn 27. desember. Afgreiðsla blaðsins verður lok- uð í dag og á morgun. Hún verður hins vegar opin frá klukkan 9 til 17 á sunnudaginn. ■ „Hó hó hó. Nei ekki aldeilis. En ég fékk fjölmörg merkikerti.“ Kertasníkir kom til byggða í nótt og gaf þægum börnum í skóinn og mörg börn voru svo hugul- söm að skilja eftir kerti handa honum sem hann tók með til fjalla þar sem hann heldur upp á jólin með bræðrum sínum tólf ásamt hinum geðþekku foreldrum sínum, Grýlu og Leppalúða. SPURNING DAGSINS Kertasníkir, fékkstu nokkur grýlukerti í nótt? KVIKMYNDIR „Ég skila uppgjöri til skattsins og auðvitað fylgir grein- argerð með eins og með hverri einustu mynd sem ég geri,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson, spurður um hvort hann myndi gera Kvik- myndamiðstöð Íslands grein fyrir þeim fjármunum sem hann fékk til gerðar myndar sinnar, Opin- berunar Hannesar. Hrafn kvaðst ekkert hafa heyrt um að málið væri enn í gangi. Forráðamenn Kvikmynda- miðstöðvar og kvikmyndagerð- armenn yrðu að fá að hafa sínar skoðanir á því, þótt þær færu ekki saman. „Ég hef lítið fylgst með þessu máli,“ sagði hann. „Ég fer eftir þeim reglum og lögum sem mér eru sett. Ég hef alltaf hreinsað mín mál upp og skilað þeim. Ég hef aldrei fengið athugasemdir um nokkurn skapaðan hlut sem ég hef gert í mínum fjármálum alla ævina. Ég mun skila þessu af mér, eins og mér ber, og svo verða menn að taka því hvernig sem það er. Ég held að menn eigi fremur að ræða þetta mál þegar skatturinn er búinn að fá upp- gjörið í febrúar.“ - jss OPINBERUNIN Mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hannesar, er enn í umræðunni, nú vegna ágreinings kvikmyndagerðarmanna og Kvikmyndamiðstöðvar. Myndin er úr umræddri kvikmynd. LEIKSTJÓRINN Hrafn Gunnlaugsson segist skila sínu til skattsins. Hrafn Gunnlaugsson: Skila uppgjöri til skattsins SKÓGARÞRÖSTUR YLJAR SÉR Skógarþröstur flaug inn í verslun Frank Michelsen við Laugaveg í gærmorgun og settist meðal annars á þetta blóm. „Manni varð hlýtt í hjartanu,“ segir Frank Ú. Michel- sen úrsmíðameistari um heimsóknina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.