Fréttablaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 7
6 23. janúar 2005 SUNNUDAGUR
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur
samþykkt umsókn Straums Fjár-
festingarbanka um kaup á virkum
eignarhlut í Íslandsbanka með
skilyrðum.
Straumi eru sett þau skilyrði
að við kjör stjórnarmanna í Ís-
landsbanka og Tryggingamiðstöð-
inni séu valdir einstaklingar sem
séu óháðir Straumi og tengdum
aðilum. Krafa er gerð um að
Straumur geri eftirlitinu grein
fyrir hvernig athvæðarétti verði
beitt í stjórnarkjöri.
Fjármálaeftirlitið gerir kröfu
um að Straumur geri eftirlitinu
grein fyrir því ef samstarf verði
við annan aðila um eignarhluta í
Íslandsbanka og ef Straumur hafi
frumkvæði að því að boða til hlut-
hafafundar.
Fjármáleftirlitið telur að
Straumur geti ekki, vegna hættu á
hagsmunaárekstrum, verið virkur
eigandi, beint eða óbeint bæði í
Tryggingamiðstöðinni og Íslands-
banka og dótturfélögum bankans.
Fjármálaeftirlitið áskilur sér
rétt til að setja frekari skilyrði í
ljósi reynslu fyrir meðferð eigna-
hlutarins. - hh
Bandaríkjamenn hlynntir því að vinna að lýðræði erlendis:
Sammála forsetanum en efins um árangur
BANDARÍKIN Meirihluti Bandaríkja-
manna er sammála því markmiði
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta að koma á lýðræði sem víðast
í heiminum, meirihlutinn er þó
jafnframt efins um að Bandaríkin
megni að gera það samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir
CNN og USA Today.
68 prósent aðspurðra sögðu að
það ætti að vera eitt af höfuð-
verkefnum Bandaríkjastjórnar að
koma lýðræði á sem víðast, 23
prósent sögðu að ekki ætti að
leggja mikla áherslu á það og níu
prósent sögðu að það ætti ekki að
leggja neina áherslu á það.
Ekki eru þó allir á því að verk
Bandaríkjastjórnar hafi verið í
samræmi við orð Bandaríkjafor-
seta. „Orðræðan er gallalaus en
stefnan er ruglingsleg. Stað-
reyndin er sú að stríðið gegn
hryðjuverkum hefur orðið til þess
að Bandaríkjastjórn hefur orðið
vingjarnlegri í garð ólýðræðis-
legra stjórnvalda,“ sagði Thomas
Carothers hjá Carnegie Endow-
ment for International Peace, í
viðtali við Washington Post.
Meðal þeirra einræðisríkja
sem Bandaríkin hafa átt samstarf
við í stríðinu gegn hryðjuverkum
eru Egyptaland, Pakistan, Sádi-
Arabía og Úsbekistan. ■
Full ástæða til
aukins eftirlits
Eftirlit með erlendu ólöglegu vinnuafli hér á landi er á hendi lögreglu, segir
dómsmálaráðherra. Ráðuneyti hans hefur ekki haft þessi mál sérstaklega til
skoðunar að undanförnu. Félagsmálaráðherra vill hert eftirlit.
ATVINNUMÁL Ráðuneytið hefur ekki
haft starfsemi erlends, ólöglegs
vinnuafls í byggingariðnaði hér á
landi sérstaklega til skoðunar
undanfarna daga, að sögn Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra.
Formaður Samiðnar, sambands
iðnfélaga, telur að slík atvinnu-
starfsemi hafi aukist hratt á síð-
ustu misserum. Sé hún farin að
hafa áhrif á markaðslaun í bygg-
ingariðnaði.
„.Athygli mín hefur verið vak-
in á þessu,“ sagði Árni Magnússon
félagsmálaráðherra um málið.
„Við höfum rætt þetta við dóms-
málaráðherra og ég tel að það sé
full ástæða til að auka þetta eftir-
lit.“
„ Lögreglan sinnir þessu eftir-
liti,“ sagði Björn. „Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið hefur ekki
bein afskipti af þessum málum.
Ráðuneytið hefur á hinn bóg-
inn lagt á það ríka áherslu, að lög-
regla sinni þessu eftirliti. Þessari
áherslu til áréttingar hefur til
dæmis verið efnt til sérstakrar
fræðslu um eftirlitið og fram-
kvæmd þess fyrir stjórnendur
lögreglunnar á vegum Lögreglu-
skóla ríkisins auk þess sem sér-
stök námskeið hafa verið fyrir
lögreglumenn.“
Spurður hvort dómsmálaráðu-
neytið hygðist hafast eitthvað
frekar að til að sporna við þessari
þróun, sagði Björn að ráðuneytið
og stofnanir á þess vegum færu
að lögum við töku ákvarðana um
komu útlendinga til landsins og
eftirlit á þessu sviði.
„Ef skipulega er staðið að því
til dæmis að flytja inn ólöglegt
vinnuafl frá nýjum aðildarríkjum
Evrópusambandsins, en launþeg-
ar nýju ESB-ríkjanna þurfa hér
atvinnu- og dvalarleyfi, er það
sérstakt viðfangsefni fyrir lög-
regluna,“ sagði ráðherra.
Hann sagði að félagsmálaráðu-
neytið hefði frá því á síðasta
hausti haft frumkvæði að sam-
ráðs- og samstarfsfundum ráðu-
neytanna og stofnana þeirra um
þessi mál.
„Útgáfa dvalarleyfa útlend-
inga er á vegum dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins en atvinnu-
leyfa á vegum félagsmálaráðu-
neytisins.“ sagði Björn. „Það eru
tvær stofnanir ,Útlendingastofn-
un og Vinnumálastofnun, sem
fjalla um leyfisumsóknir. Ég hef
látið í ljós þá skoðun, að útgáfa
dvalar- og atvinnuleyfa eigi að
vera á einni hendi og á verksviði
dóms- og kirkjumálaráðuneytis-
ins, með því yrði stjórnsýslan ein-
földuð og tryggð betri samfella
milli leyfisveitinga og eftirlits.“
jss@frettabladid.is
RÉTTAÐ AFTUR Eini maðurinn
sem hefur verið sakfelldur fyrir
hryðjuverkaárásina í Omagh á Ír-
landi 1998, sem kostaði 29 manns
lífið, hefur fengið það í gegn að
réttað verður aftur í máli hans.
Áfrýjunardómstóll í Dyflinni
komst að þeirri niðurstöðu að
nokkur atriði hefðu orkað tví-
mælis í réttarhöldunum yfir
manninum.
VÍN STRÍÐSGLÆPAMANNS Króat-
ískur víngerðarmaður hefur
nefnt tvö vína sinna eftir Ante
Gotovina, hershöfðingja í Króa-
tíuher á tímum borgarastríðsins í
Júgóslavíu. Gotovina hefur verið
á flótta frá árinu 2001 þegar hann
var ákærður fyrir stríðsglæpi.
Hann er sakaður um að hafa látið
myrða 150 Serba.
Á OPNUN GRÆNNAR VIKU
Mariann Fischer Boel, framkvæmdastjóri
landbúnaðarmála hjá ESB, Martins Rose,
landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Lett-
lands og Árni Mathiesen.
Græn vika í Berlín:
Áhersla
á ufsa
SJÁVARÚTVEGUR Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra var við
opnun Grænu vikunnar í Berlín
(Die Internationale Grüne Woche)
dagana 20.-21. janúar. Heimsótti
hann meðal annars sýningarbás
þar sem Árni Simsen matreiðslu-
maður matreiddi íslenskan ufsa
að viðstöddum gestum.
Græna vikan, sem er alþjóðleg
matvælasýning, er nú haldin í sjö-
tugasta skipti. Þetta árið á að gera
fisk og fiskafurðir enn meira
áberandi en áður, og vakin er sér-
stök athygli á heilnæmi, gæðum
og hollustu fisksins. Verkefnið er
fjármagnað af þýsku aðilunum en
Íslendingum var boðið að taka
þátt og kynna sínar afurðir enda
Ísland stór fiskútflytjandi á þýsk-
an markað. Í ár er lögð sérstök
áhersla á ufsa. - ss
Hajj-hátíðin:
Aldrei fleiri
pílagrímar
SÁDI-ARABÍA, AP Fleiri pílagrímar
sækja hajj, trúarhátíð múslima,
heim í ár en nokkru sinni fyrr.
Meira en tvær og hálf milljón
pílagríma var
komin til Sádi-
Arabíu í gær á Eid
al-Adha, hátíð
fórnarinnar, sem
er mikilvægasti
h e l g i d a g u r
múslima.
Pílagrímarnir
eru hálfri milljón
fleiri í ár en þeir
hafa nokkru sinni
verið áður og nær
800 þúsund fleiri
en þeir voru 1995.
Undanfarin ár
hefur fjöldi fólks troðist undir þeg-
ar mannfjöldinn og atgangurinn
hefur orðið hvað mestur. Sérstakar
ráðstafanir voru gerðar í gær
þegar pílagrímarnir grýttu djöful-
inn, hentu steinum í klett í hreins-
unarathöfn. ■
Hæstiréttur Danmerkur:
Höfuðblæjur
má banna
DANMÖRK Hæstiréttur Danmerkur
komst að þeirri niðurstöðu að
stórmarkaðurin Føtex mátti
banna íslömskum konum að bera
höfuðblæju í vinnunni og reka 26
ára konu sem neitaði að taka
blæjuna niður. Þar með staðfesti
Hæstiréttur dóm undirréttar frá
desember 2003. Þetta kemur fram
í frétt Danmarks Radio.
Niðurstaða Hæstaréttar er að
bann gegn höfuðblæjum sé leyfi-
legt því samkvæmt starfsreglum
stórmarkaðarins þurfi allir
starfsmenn að klæðast einkennis-
búningi. Føtex bauð konunni ann-
að starf, sem hún afþakkaði. Því
var henni sagt upp störfum. ■
Takmarkað
vínveitingaleyfi:
Ákvörðun
kærð
BORGARMÁL Veitingahúsið við Þjóð-
hildarstíg í Grafarholti hefur
kært ákvörðun borgaryfirvalda
um að það fái aðeins leyfi til að
veita áfengi til klukkan þrjú að-
faranætur laugardaga og sunnu-
daga. Úrskurðarnefnd um áfeng-
ismál er með málið til skoðunar.
Forsvarsmenn veitingahússins
sóttu um leyfi til að veita áfengi
til klukkan hálf sex aðfaranætur
laugardaga og sunnudaga en því
var hafnað. Telja borgaryfirvöld
að þar sem íbúðarhús séu í 35
metra fjarlægð frá veitingahús-
inu sé ekki heimilt að veita áfengi
þar lengur. Í reglum borgarinnar
standi að aðeins sé heimilt að
veita áfengi fram undir morgun
séu ekki íbúðir í innan við 100
metra fjarlægð frá viðkomandi
stöðum. - th
Hassinnflytjandi:
Laus úr haldi
LÖGREGLA Rúmlega þrítug íslensk
kona sem handtekin var á Kefla-
víkurflugvelli á þriðjudag var
með tæp 390 grömm af hassi inn-
vortis og í fórum sínum. Hún var
úrskurðuð í gæsluvarðhald til
föstudags en var sleppt úr haldi á
fimmtudagskvöld.
Rannsókn málsins er enn í
gangi en ekki þótti ástæða til að
halda konunni lengur í gæslu-
varðhaldi. Konan var að koma
með eftirmiðdagsflugi frá Kaup-
mannahöfn þegar hún var hand-
tekin. Heimildir blaðsins segja
rannsókn beinast meðal annars að
því að finna vitorðsmenn konunn-
ar hér á landi. - hrs
■ EVRÓPA
Munt þú blóta þorrann?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tókstu þátt í að velja kyn-
þokkafyllsta mann ársins á
Rás 2?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
40.82%
59.18%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
KONUR Í PÍLAGRÍMSFÖR
Hajj-pílagrímsförin náði hámarki í gær
þegar 2,56 milljónir múslima voru við-
staddar hátíðahöldin.
FJÖLDI
PÍLAGRÍMA
Aðsókn í
milljónum
2005 2,56
2004 2,02
2003 2,04
2002 1,90
2001 1,90
2000 1,83
1999 1,83
1998 1,83
1997 1,94
1996 1,86
1995 1,78
Heimild: AP
PÁLL GUNNAR PÁLSSON, FORSTJÓRI
FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS
Fjármálaeftirlitið telur ekki standast að
Straumur fjárfestingarbanki eigi virkan hlut
bæði í Tryggingamiðstöðinni og Íslands-
banka til lengdar.
Eignarhlutur Straums í Íslandsbanka:
Skilyrði sett fyrir virkum hlut
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
Vill aukið eftirlit.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Sérstakt viðfangsefni lögreglu.
Formaður Samiðnar telur að ólögleg at-
vinnustarfsemi útlendinga í byggingariðn-
aði hér á landi hafi aukist hratt á síðustu
misserum. Myndin er ekki í tengslum við
fréttina.
GEORGE W. OG LAURA BUSH
Í innsetningarræðu sinni lagði Bandaríkjaforseti áherslu á að vinna að lýðræðisuppbygg-
ingu þar sem einræði ríkir.
EKKERT SPURST TIL BENGTSONS
Ekkert hefur spurst til Fabians
Bengtsons, sænska kaupsýslu-
mannsins sem talið er að mann-
ræningjar hafi numið á brott.
Ekkert hefur heyrst frá mann-
ræningjunum. Foreldrar Bengt-
sons komu fram í sjónvarpi og
skoruðu á mannræningjana að
láta í sér heyra.
■ NORÐURLÖND