Fréttablaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 11
L ýsi er með þekktari vöru-merkjum á Íslandi, enda áLýsi hf. sér langa sögu.
Stofnað 1938. Hollusta fram-
leiðsluvörunnar er runnin Íslend-
ingum í merg og bein og efa-
lítið liður í góðum lífslíkum þjóð-
arinnar.
Katrín Pétursdóttir er fram-
kvæmdastjóri Lýsis hf., og var
heiðruð af Félagi kvenna í at-
vinnurekstri fyrir störf sín í
atvinnulífinu. Fyrirtæki hennar
og fjölskylda keyptu Lýsi hf. árið
1999 og sameinuðu eigin fyrir-
tæki. „Það leit út í tilkynning-
unum vegna verðlaunanna eins og
ég væri kraftaverkakona sem
hefði snúið tapi í hagnað. Þetta er
ekki rétt og ranglátt gagnvart for-
verum mínum.“ Hún segir að
áhrifin af sameiningu hafi strax
skilað sér í hagkvæmari rekstri,
auk þess sem áhugi á Omega-3
fitusýrum og öðrum vörum fyrir-
tækisins hefði vaxið. „Sá hluti
framleiðslu okkar sem fer á neyt-
endamarkað gefur hæsta fram-
legð,“ segir hún. Aukin meðvitund
um hollustu og nýjar rannsóknir
sem renna enn frekari stoðum
undir hollustu framleiðslu Lýsis
hafa stutt við uppbyggingu fyrir-
tækisins. Lýsisframleiðslan sjálf
veltir um einum og hálfum millj-
arði á ári, en auk þess á Lýsi hf.
fiskþurrkun í Þorlákshöfn sem
þurrkar og selur Þorskhausa til
Nígeríu og Fóðurblönduna sem
framleiðir dýra- og fiskafóður og
var keypt í ársbyrjun 2003.
Túnfisklýsi fyrir heilann
Þorskalýsið er það sem flestir
Íslendingar þekkja, en 90 prósent
af lýsisframleiðslunni er flutt út.
Það er heldur ekki einungis
þorskalifur sem er hráefnið. Há-
karl og Túnfiskur eru einnig upp-
spretta í lýsisframleiðslunni. Tún-
fiskurinn kemur á óvart „Það eru
tvær megin fitusýrur sem eru í
Omega-3,“ segir Katrín „EPA og
DHA. EPA er sú sem vinnur gegn
hjarta- og æðasjúkdómum, en
DHA er sú sem hefur áhrif á
frumur, heila, augu, sæðisfrumur
og svo framvegis. Menn telja að
ef skortur er á DHA á fósturstigi,
þá nái heilinn ekki að þroskast. Í
Bandaríkjunum er bönnuð sala á
dufti í barnamat sem ekki inni-
heldur DHA. Þá kemur að túnfisk-
lýsinu sem er mjög ríkt af DHA.“
Túnfiskur er ekki mikið veidd-
ur hér við land og Katrín segir að
hráefnið komi frá Asíu. „Heila
málið er að allt byggir þetta á
þeirri þekkingu sem er í fyrirtæk-
inu. Sú þekking sem er hér innan-
dyra er gríðarlega mikil og það er
fyrst og fremst hún sem er verð-
mæti fyrirtækisins. Fólkið hér
hefur mikla þekkingu á með-
höndlun vörunnar, bæði efnunum
sjálfum og markaðnum.“
Katrín hefur verið í samstarfi
við foreldra sína. Faðir hennar
stofnaði lifrarbræðsluna í Þor-
lákshöfn 1983. „Ég fór síðan í að
setja vörur á markaðinn í sam-
keppni við Lýsi. Við stóðum í
mjög harðri samkeppni við Lýsi á
sínum tíma, þangað til 1999 að við
keyptum fyrirtækið og sameinuð-
um reksturinn í eitt fyrirtæki.“
Hollustan gleður
Sameiningin lukkaðist vel og eft-
irspurn eftir vörum fyrirtækisins
hefur vaxið dag frá degi. Fram-
leiðslugetan annar varla eftir-
spurninni og ný verksmiðja rís nú
við Ánanaust. „Sem betur fer
erum við að fá nýja verksmiðju
sem tvöfaldar framleiðslu-
getuna,“ segir Katrín með til-
hlökkun. Eina skuggann sem ber
á reksturinn er óhagstæð þróun
gjaldmiðla fyrir útflutningsfyrir-
tæki. Krónan er sterk og dollar-
inn veikur. „Við seljum mikið í
dollar og við vildum gjarnan sjá
hærri EBIDTA-tölur í þessum
framkvæmdum. Það er hins veg-
ar ekkert við þessu að gera og
maður verður að bíða þetta af
sér.“
Björtu hliðarnar eru miklu
fleiri. „Neytendamarkaðurinn
vex ört og við erum byrjuð að
selja neytendavörur til Banda-
ríkjanna sem ekki hefur verið
markaður okkar mjög lengi. Það
hafa opnast margir möguleikar.
VIð erum með sterkan neytenda-
markað í Finnlandi og Póllandi og
svo í Rússlandi og Eystrasalts-
ríkjunum. Magnframleiðslan fer
meira á Asíumarkað.“ Katrín
segir margt breytast við tilkomu
nýju verksmiðjunnar. „Við erum
á einstökum markaðssetningar-
punkti. Verksmiðjan er með
gæðastaðal sem er lyfjafram-
leiðslustaðall sem er einstakt. Við
erum alltaf að færast nær lyfja-
fyrirtækjunum, bæði í sölu og
samkeppni.“ Katrín segir að þetta
gildi bæði um vöru sem er þróuð
úr lýsi eins og Omega-3 hylkin og
fljótandi lýsisafurðir. „Það koma
nánast nýjar rannsóknir á hverj-
um degi um jákvæð áhrif af lýsi
og lýsisafurðum. Hugsaðu þér
10 23. janúar 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
„Við horfum hér í fyrirtækinu á fullnýtingu sem part af okkar virð-
ingu fyrir umhverfinu og landi og þjóð. Þannig reynum við að koma
fram af virðingu við allt og alla.“
9 3
Nafnávöxtun frá 01.12.2004 - 31.12.2004 á ársgrundvelli
Hollusta í heimsviðskiptum
Lýsisafurðir njóta
vaxandi hylli um heim
allan. Katrín Péturs-
dóttir stýrir Lýsi hf. sem
er í mikilli sókn og tek-
ur í notkun nýja full-
komna verksmiðju til að
anna vaxandi eftir-
spurn. Hún segir
ánægjuauka í rekstrin-
um að vörur fyrirtækis-
ins bæti heilsu og lífs-
gæði.
GÆTUM NOTAÐ HELMINGI
MEIRA Katrín Pétursdóttir fram-
kvæmdastjóri Lýsis hf. segir fyrir-
tækið geta nýtt tvöfalt meiri
þorskalifur en fyrirtækið fær frá
íslenskum sjómönnum. Miðað
við kvóta má gera ráð fyrir að
magn lifrar gæti verið fjórfalt það
sem nú er. Lýsi hf. lítur á nýtingu
á hráefni sem þátt í virðingu fyrir
umhverfi og verðmætum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI
STÆKKANDI FYRIRTÆKI Fóðurframleiðsla fellur vel að rekstri Lýsis og er spennandi geiri.
Neytendamarkaður-
inn vex ört og við
erum byrjuð að selja neyt-
endavörur til Bandaríkjanna
,,