Fréttablaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 41
Cordeiro situr með félögum sínum í
mötuneytinu á Kárahnjúkum og
borðar kjötsúpu af bestu lyst í
kuldagallanum sínum með húfu á
höfði eins og tíðkast þarna. Hann er
kátur og léttur í lundu og sam-
þykkir viðtalið glaðlega eftir að
borðfélagi hans hefur hafnað því
kurteislega.
Cordeiro segist vera kominn í
ævintýraleit til Íslands, þetta sé ný
reynsla fyrir sig og hann hafi
ákveðið að slá til eftir að hafa hlust-
að á vin sinn sem hafi starfað hér.
Atvinnuástandið í Portúgal sé
ekki nógu gott. Cordeiro er þó ekki
atvinnulaus því hann hefur starfað
í Volkswagen-verksmiðju nærri
Lissabon í tíu ár. Í dag vinnur hann í
táveggnum og segir ekkert vanda-
mál að vinna úti í kuldanum því að
verkamennirnir geti hlýjað sér ef
það er of kalt í veðri.
Cordeiro er nokkuð ánægður
með aðstæður á Kárahnjúkum og
segist fá miklu hærri laun en heima.
Verkamennirnir hafi hér mat og
sérherbergi og fái fötin sín hreinsuð
reglulega. Það sé ekki heldur neinn
staður til að eyða peningunum á svo
að fjölskyldan í Portúgal fái þá
nánast alla. Cordeiro er kvæntur
og á eina dóttur sem er komin í
grunnskóla.
Cordeiro hefur heimþrá og því
segist hann ætla að hætta á Kára-
hnjúkum þegar samningurinn er út-
runninn. Sumrinu ætlar hann að
eyða í notalegheitum með fjölskyld-
unni heima. - ghs
20 23. janúar 2005 SUNNUDAGUR
OPI‹: FÖSTUDAG 12 – 20 / LAUGARDAG 10 – 18 / SUNNDAG 13 – 18 / MÁNUDAG 12 – 20
LAGERÚTSALAN FER FRAM Á LAGER OKKAR AFTAN VI‹ LUMEX BÚ‹INA SKIPHOLTI 37, GENGI‹ INN FRÁ BOLHOLTI
ÞRIÐJI HLUTI
LÍFIÐ
Á KÁRAHNJÚKUM
Í ELDRI DEILDINNI Damiano Frontini ásamt nöfnunum Valentinu de Paris og Valentinu
Panetta. Þær eru báðar 10 ára.
KÁRAHNJÚKAR Samstarf er á milli
grunnskólans á Kárahnjúkum og
íslensks grunnskóla á Egilsstöð-
um. Skólarnir skiptast á heim-
sóknum og er jafnvel fyrirhugað
að vinna saman að verkefnum. Í
grunnskólanum á Kárahnjúkum
eru níu börn á aldrinum 6-12 ára,
sem öll nema eitt hafa verið hér á
landi frá því í haust.
Börnin fá einstaklingsbundna
kennslu samkvæmt ítalska skóla-
kerfinu, í ítölsku, ensku, sagn-
fræði, jarðfræði, stærðfræði og
vísindum, tónlist, listum, íþrótt-
um og kaþólskri trú. Í skólanum
geta börnin verið fram til 13 ára
aldurs en þurfa þá að fara annað.
Börnin hafa flest búið víða um
heim en kunna vel við sig á Kára-
hnjúkum, að sögn Francescu
Francesconi, skólastýru og kenn-
ara, og hafa aðlagast vel. Þeim lík-
ar vel að geta verið úti í snjónum
og njóta þess að stunda íþróttir
þar, ganga og gera æfingar, renna
sér á sleða og leika sér.
Kárahnjúkaskóli fór í skóla-
ferðalag að Mývatni og Dettifossi
í fyrra og í vor er fyrirhugað að
heimsækja bóndabæ.
- ghs
Hefur heimþrá
Portúgalinn Miguel Cordeiro er á öðrum samningi sínum á Kárahnjúkum.
Hann var á hálendinu í tvo mánuði í haust og nú er hann búinn að vera í tvo
mánuði til viðbótar. Samningurinn hans rennur út í júlí og þá segist hann
ætla heim og ekki koma aftur því hann hafi heimþrá.
Grunnskólinn á Kárahnjúkum:
Skiptast á heimsóknum
við aðra skóla
Í YNGRI DEILDINNI Francesca Francesconi, skólastýra á Kárahnjúkum, aðstoðar Tausi
Amonini, 10 ára, frá Afríku. Hin eru Leonardo Camosso, Francesca de Paris, Giulia Vittor
og Sheilla Amonini. Þau eru á aldrinum 6-8 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MIGUEL CORDEIRO Hann á konu og barn heima í Portúgal og finnst því gott að á
Kárahnjúkum sé enginn staður til að eyða laununum á.
Í MÖTUNEYTINU Starfsmennirnir koma
inn um tólfleytið til að fá sér að borða og
byrja svo aftur að vinna um eitt. Þeir sitja í
kuldagöllunum með húfurnar á höfðinu
meðan þeir skófla matnum í sig.
Félagsmiðstöðin:
Portúgalarnir duglegastir að koma
KÁRAHNJÚKAR Félagsmiðstöð er rekin
á Kárahnjúkum með bíósýningum
og fjöri á laugardögum, pitsu, diskó-
teki, karaókí og annarri dagskrá.
Félagsmiðstöðin er vel sótt að sögn
Sóleyjar Arnardóttur klúbbstjóra,
sérstaklega af Portúgölunum, enda
er reynt að hafa fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá.
Í félagsmiðstöðinni eru þrjú
sjónvörp og nota Kínverjarnir eitt,
Portúgalarnir eitt og Ítalirnir eitt.
Fótboltaleikir eru sýndir og svo er
hægt að tefla eða spila og fá lánaðar
bækur.
Félagsmiðstöðin er einnig opin í
hádeginu og er þá hægt að fá sér
kaffi. ■
SÓLEY ARNARDÓTTIR Sóley stýrir klúbbhúsinu á Kárahnjúkum og sést hún hér með
nokkrum viðskiptavinum í hádeginu. Þeir koma gjarnan þangað og fá sér kaffi.