Fréttablaðið - 23.01.2005, Page 45
24 23. janúar 2005 SUNNUDAGUR
Við hrósum...
...Erni Andréssyni, formanni Afrekssjóðs íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og félögum hans í
sjóðnum fyrir að taka styrkina af sundmanninum Erni Arnarsyni og frjálsíþróttakonunni Völu
Flosadóttur. Bæði Örn og Vala hafa verið á hæstu styrkjum undanfarin fjögur ár án þess að sýna
mikið og hefur Afrekssjóður lofað að fylgjast betur með íþróttamönnum og meta á hverju ári.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
20 21 22 23 24 25 26
Sunnudagur
JANÚAR
Við minnum á...
... að heimsmeistaramótið í handbolta
hefst í Túnis í dag. Ísland spilar gegn
Tékklandi í dag og er leikurinn í beinni
útsendingu, bæði hjá Ríkissjónvarpinu og
Ríkisútvarpinu.
H M Í H A N D B O L T A
T Ú N I S
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handknattleik spilar sinn fyrsta
leik á HM í Túnis á morgun.
Fréttablaðið fékk Sigurð Bjarna-
son fyrrum landsliðsmann til að
rýna í leikina framundan og
spurði hann hvernig honum litist
á landsliðið í dag.
Sigurður segist jákvæður á
möguleika landsliðsins og líst
mjög vel á keppnina sem hefst um
helgina. „Það hefur yfirleitt verið
þannig að þegar nýr þjálfari tekur
við liðinu, kemur hann með ferska
vinda inn í þetta og við skulum
vona að sagan endurtaki sig í
þetta skiptið. Það er ekki síst þess
vegna sem ég er bjartsýnn á gengi
liðsins núna því Viggó getur byrj-
að með hreint borð og getur bara
valið þá menn sem eru að spila
best í dag. Hann þarf ekki að vera
að velta því fyrir sér hver var að
spila vel á síðasta móti og hver
ekki. Núna þurfa allir leikmenn-
irnir í hópnum að spila fyrir sæti
sínu og eru í samkeppni hjá nýj-
um þjálfara. Liðið er ungt og það
veltur dálítið á Viggó að ná að
mótívera ungu leikmennina svo
þeir öðlist nauðsynlegt sjálfs-
traust. Ég treysti Viggó fyllilega
til þess að ná að gera það. Þess-
vegna er ég bjartsýnn á þetta og
þó ég ætli ekki endilega að segja
að liðið fari í úrslit, gæti ég alveg
trúað að þeir fari í krossspil. Ég
set markið bara nokkuð hátt eins
og liðið sjálft“, sagði Sigurður.
Hann segir það ráða miklu um
gengi liðsins hvernig fyrstu tveir
leikirnir fara, en þeir eru gegn
Tékkum á morgun og Slóvenum á
þriðjudag. „Strákarnir vita það
alveg sjálfir að þetta eru algjörir
lykilleikir og krefjast 100% bar-
áttu. Þeir vita að þeir verða að
eiga góðan leik til að vinna þessi
lið, sem hafa gengið í gegnum ein-
hverjar breytingar eins og við.
Þetta verða skemmtilegir leikir
og öll þessi lið gætu náð langt. Ég
hef alltaf sagt að við eigum að
vinna þessar „júggaþjóðir“ og við
vitum alveg hvað þarf til þess.
Þetta eru svona pirraðir einstakl-
ingar sem þarf að halda pirruðum
ef við eigum að vinna þá – klípa
aðeins í þá og ögra þeim í maður á
mann einvígi til að trufla einbeit-
ingu þeirra. Það skemmir fyrir
liðsheildinni hjá þeim og er
raunar veikleiki þessara liða“,
sagði Sigurður glaðbeittur.
baldur@frettabladid.is
SIGURÐUR BJARNASON Segir að nýr þjálfari hafi yfirleitt komið með ferska strauma
inn í íslenska liðið og er bjartsýnn á gott gengi íslenska landsliðsins á
heimsmeistaramótinu í Túnis.
Þurfum að klípa að-
eins í þá og pirra þá
Sigurður Bjarnason telur fyrstu tvo leikina á HM í Túnis algera lykilleiki og
hefur góð ráð handa strákunum í landsliðinu.
■ ■ LEIKIR
13.15 KS og Þór mætast í Bog-
anum í Powerade-mótinu í fótbolta.
15.15 Hvöt og Tindastóll mætast í
Boganum í Powerade-mótinu í
fótbolta.
17.00 Haukar og Keflavík mætast
á Ásvöllum í undanúrslitum
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í
körfubolta kvenna.
19.00 FH og Leiknir mætast í
Egilshöll á Reykjavíkurmóti karla í
fótbolta.
19.15 Breiðablik og Njarðvík
mætast í Smáranum í undanúrslitum
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í
körfubolta karla.
19.30 Haukar og Grótta/KR
mætast á Ásvöllum í DHL-deild
kvenna í handbolta.
21.00 Þróttur og Víkingur mætast
í Egilshöll í Reykajvíkurmóti karla í
fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Juventus og
Brescia í ítölsku A-deildinni í
fótbolta.
15.00 Heimsmeistaramótið í
handbolta á RÚV. Bein útsending frá
leik Íslands og Tékklands á
heimsmeistaramótinu í handbolta.
16.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik Arsenal og
Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í
fótbolta.
17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Villarreal og
Valencia í spænsku 1. deildinni í
fótbolta.
20.00 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Philadelphia
Eagles og Atlanta Falcons í NFL-
deildinni.
22.10 Helgarsportið á RÚV.
23.30 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik New England
Patriots og Pittsburgh Steelers í
NFL-deildinni.
AFREKSSJÓÐUR Afrekssjóður
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands tilkynnti í gær styrkveit-
ingar sínar fyrir árið 2005. Alls
nema þær um 47 milljónum króna
til einstaklinga og sérsambanda
en Örn Andrésson, formaður
sjóðsins, sagði á blaðamannafundi
í gær að sjóðurinn ætti á bilinu
fimmtán til sextán milljónir sem
hann myndi hugsanlega deila út á
árinu ef tilefni gæfist til.
Athygli vekur að aðeins tveir
íþróttamenn, frjálsíþróttakonan
Þórey Edda Elísdóttir og fimleika-
maðurinn Rúnar Alexandersson,
fá A-styrk en þau tvö báru af
öðrum þátttakendum á Ólympíu-
leikunum í Aþenu.
Fjórir íþróttamenn, Vala
Flosadóttir, Örn Arnarson, Jón
Arnar Magnússon og júdókappinn
Bjarni Skúlason, sem voru á A-
styrk á síðasta ári, fá ekki styrk
þetta árið. Reyndar var ekki sótt
um styrk fyrir Bjarna og Jón
Arnar en Vala og Örn þurfa að
sýna meira en þau hafa gert að
undanförnu til að hljóta náð fyrir
augum sjóðsins.
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, sagði að með
þessu væri verið að koma til móts
við þá gagnrýni sem hefði verið
uppi á borðinu að undanförnu um
að erfiðara væri að detta út af
styrkjalistanum en að komast á
hann og því yrði breytt.
„Við munum verða með stífara
eftirlit með hverjum þeim sem
fær styrki hjá okkur,“ sagði
Stefán en því hefur víða verið
haldið á lofti að styrkjum þeim
sem sundkappinn Örn Arnarson
og frjálsíþróttakonan Vala Flosa-
dóttir hafa verið á undanfarin
þrjú ár án þess að sýna nokkuð
hafi verið illa varið. Örn og Vala
hafa hvort um sig fengið rúmar
tíu milljónir frá Afrekssjóði und-
anfarin fimm ár en gerður var
fjögurra ára samningur við þau
eftir frækna frammistöðu þeirra
á Ólympíuleikunum í Sydney
fyrir rúmum fjórum árum.
- ósk
Afrekssjóður úthlutaði í gær styrkjum til íþróttamanna fyrir árið 2005:
Vala og Örn fá ekki lengur A-styrk
Á TOPPNUM Vala Flosadóttir sést hér svífa yfir rána á Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000. Nú hlýtur hún ekki náð fyrir augum Afrekssjóðs.
Keflavík styrkir sig:
Ný Rose í
hnappagat
Keflavíkur
KÖRFUBOLTI Kvennalið Keflavíkur í
körfuboltanum, sem hefur unnið
alla 18 leiki tímabilsins með meira
en tíu stigum, hefur fyllt skarðið
sem Reshea Bristol skildi eftir
hér á dögunum. Bristol varð að
snúa heim til Bandaríkjanna
vegna persónulegra ástæðna eftir
að hafa verið með 21,5 stig, 8,4
fráköst, 7,8 stoðsendingar og 6,8
stolna bolta að meðaltali í deild-
inni í vetur og því var ljóst að það
yrði ekki auðvelt að feta í fótspor
hennar.
Hinn nýi bandaríski leikmaður
Keflavíkurliðsins er LaToya Rose,
sem er 24 ára gömul og útskrifað-
ist frá Texas A&M-háskólanum
vorið 2002. Rose, sem er 168 senti-
metrar á hæð, var með 10,8 stig
og 2 stoðsendingar að meðaltali á
lokaári sínu í skólanum en hún
þykir sterk skytta og góður liðs-
maður. ■
BRISTOL VERÐUR SAKNAÐ
Reshea Bristol var efst í deildinni í þriggja
stiga nýtingu (44%), stoðsendingum (7,8)
og stolnum boltum (6,8) þegar hún þurfti
að yfirgefa Keflavík.