Fréttablaðið - 23.01.2005, Síða 49
28 23. janúar 2005 SUNNUDAGUR
Það hefur verið
heldur sorg-
legt að
f y l g j a s t
með um-
r æ ð u n n i
um aðild
Íslands að
stríðinu í
Írak síðustu
vikur. Hver
stjórnarlið-
inn á fætur
öðrum lýsir
eigin sann-
færingu en
snýst svo hugur þegar foringinn
krefst þess – segir fjölmiðla hafa
oftúlkað orð sín eða snúið út úr til
að drepa málinu á dreif.
Það sem er kannski hjákátleg-
ast við þessa stjórnarliða er að
um leið og þeir skipta um skoðun
reyna þeir að réttlæta veru Ís-
lands á lista hinna svokölluðu
staðföstu þjóða. Ísland er á þess-
um lista af því að tveir menn
tóku ákvörðun um það upp á sitt
eindæmi, án þess að ræða það
við flokksfélaga sína eða aðra.
Hinir staðföstu stjórnarliðar
eru því ekki staðfastari en það
að þeir draga orð sín til baka um
leið og foringjarnir segja. Eitt-
hvað virðist orðið staðfastur því
hafa afbakast hjá þeim og svo
virðist jafnvel vera sem þeir viti
ekki hvaða merkingu það hefur.
Þeim og öðrum til upplýsing-
ar merkir orðið staðfastur, sam-
kvæmt orðabók Menningarsjóðs
frá árinu 1963, að vera; fastur
fyrir, stöðugur, stöðuglyndur,
óhvikull eða áreiðanlegur.
Orðabókin er vissulega komin
til ára sinna og svo getur verið
að merking orðsins hafi breyst
frá því að hún kom út fyrir um
fjörutíu árum. Það verður þó að
teljast heldur hæpið. Vel má líka
vera að stjórnarliðarnir hafi
ruglast á orðinu staðfastur og
staðfærður, sem í sumum tilfell-
um merkir; sem er breytt í sam-
ræmi við staðhætti: samanber
leikhús eða kvikmyndir. Með
öðrum orðum, staðfesta stjórn-
arliðanna felst í því að laga skoð-
anir sínar að nýjum stað og nýrri
leikmynd. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTJÁN HJÁLMARSSON ÓTTAST MERKINGU ORÐA
Staðfesta
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Með
Fréttablaðinu
alla
fimmtudaga
Vi› segjum fréttir
Laugardaginn 29. janúar kl.20:00
Borgarleikhúsið
Verð 2100 kr.
Midasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
Hvað er
að Bjarna
í dag?
Djísís! Ég
veit ekki
hvað er að
angra hann!
Rólegur Bjarni!
Svvvooonnna....
Róóóólegur!
Nei, sko....
þú ert með
pulsubita fastan
í nefinu!
Hann er
kominn aftur!
Þú mátt fá hann!
Leggstu!
Ég veit ekki!
Kannski hefur
hann fundið lykt-
ina af einhverju...
Svona! Hlauptu
og finndu!
Shit!
Hann er
brjálaður!