Tíminn - 28.01.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 28. janúar 1975.
Þriðjudagur 28. janúar 1975
Vatsnberinn: (20. jan. - 18. febr)
Þú munt sannreyna það i dag, að það gengur
aldrei eins vel og þegar þú hefur gert góða áætl-
un og vinnur siðan eftir henni, alveg út i hvert
smáatriði. Þú skalt vera vel á verði gegn upp-
ljóstrunum i ótima — og hugsaðu um heilsuna.
Fiskarnir: (19. febr. - 20. marz)
Þér veitir ekkert af þvi að bæta sambandið við
fjölskyldu þina og vini. Vandræði skapast af þvi,
ef þú ferð að reiða þig of mikið a aðra, sérstak-
lega aðstoð i mikilvægu máli, sem þú ert i raun-
inni einn fær um að leysa af hendi.
Hrúturinn: (21. marz — 19. april)
Það eru útgjöldin, sem þú skalt halda i lág-
marki. Ctgjaldaáætlunin stenzt, eins og þú hafð-
ir sett hana upp, en frávik þolir hún ekki, alls
ekki á þann veg, sem þú hafðir hugsað þér.
Nautið: (20. april - 20. mai)
Það má heita, að næstum hvað sem er, geti or-
sakað deilur, leiðindi og jafnvel óþægindi i dag.
Þú ættir að halda þig fjarri sliku, — og alls ekki
hella oliu á bálið. Þolinmæði þin gæti hins vegar
unnið þér virðingu annarra.
Tviburamerkið: (21. mai - 20. júni)
Það er fleira ógert en þig hafði órað fyrir, svo að
þú skalt taka til höndunum við þau verkefni, sem
fyrir liggja, og slepptu þvi alveg að malda I mó-
inn. Ef einhver er að flýta sér, hleyptu honum
framúr. Þér liggur ekkert á.
Krabbinn: (21. júni - 22. júli)
Þetta er mikill annadagur hjá þér, og þú ættir að
gera þér grein fyrir þvi, en það er alveg eins
vist, að enginn bregðist við á þann hátt, sem þú
kysir helzt. Það er lika ýmislegt, sem gengur úr-
skeiðis. Láttu það verða sem minnst.
Ljónið: (23. júlí - 23. ágúst)
Það er hætt við þvi, að þvi verði ekki lengur sleg-
ið á frest að ræða f jölskyldumálin, og það verður
að gerast af hugsun og hreinskilni. Fljótfærni
gæti komið þér i erfiða aðstöðu, og þú einn ert
fær um að bjarga málinu við, ef svo fer.
Jómfrúin: 23. ágúst - 22. sept.)
Það er tvennt, sem þú þarft umfram allt að
passa upp á i dag: það er varúð I meðferð véla og
einstök gætni I umgengni þinni við annað fólk.
Það er rétt eins og einhvers konar kapp eða á-
reynsla geti gert kraftaverk á skapsmununum I
dag.
Vogin: (23. sept. - 22. okt.)
Þú skalt ekki láta hafa áhrif á þig i dag. Sérstak-
lega ekki, ef verið er að ræða við þig um fjárfest-
ingarmál og útfærslur á einhverjum sviðum.
Það er ekki rétti dagurinn til að ráðast I nein fyr-
irtæki eða þessháttar, og láttu aðra afskipta-
lausa.
Sporðdrekinn: (23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt sannreyna það i dag, að það gengur
ekkert af sjálfu sér, en hitt er annað mál, að það
væri alveg fráleitt að fara að láta áhyggjurnar
ná tökum á sér. Þú skalt bara gæta þess að sinna
þvi einu, sem ekki verður komizt hjá að sinna.
Oðrum skaltu láta það eftir að masa og þvaðra.
Bogmaðurinn: (22. nóv. - 21. des.)
Það litur út fyrir, að ýtni þin hafi verið einum of
mikil, og að þú hafir gengið einum.of langt. Þú
skalt taka þér smáhvíld og lita aftur yfir stöð-
una. Þegar þú hefur gert það gaumgæfilega
skaltu endurskoða afstöðu þina.
Steingeitin: (22. des. - 19. jan.)
Allir eru alltaf reiðubúnir að segja þér alveg upp
á hár, hvað þú eigir að gera og hvernig. Þú gerð-
ir afskaplega rangt i þvi, að taka þetta illa upp,
þetta er alls ekki i illu gert. Sýndu nærgætni,
forðastu deilur, en vertu ákveðinn og viljafastur.
Einangrun — Frysti- og kæliklefar
Tökum að okkur aö einangra frysti- og kæliklefa. Skiptum
ura einangrun I eldri klefum. Notum eingöngu sprautaða
polyurethane einangrun. Tökum aö okkur hvers konar
húsnæði.
EINANGRUNAHTÆKNI H.F.
Pósthólf 9154 — Reykja vfk — Simi 7-21-63 á kvöldin.
■
IHIH SÍbBiÍ!,
Margvislegar kenningar eru
fram bornar og misjafnlega
frumlegar og rökstuddar. Að
sumum þessara kenninga getur
verið gaman, þó að menn séu
ekki við þvi búnir eða um það
færir að taka afstöðu til þeirra.
Einn þeirra manna, sem sett
hefur fram margar nýstárlegar
skoðanir um söguleg efni, er
Skúli Ólafsson, og er hér bréf
frá honum, þar sem hann fjallar
um áhrif Orms skálds á ritun
miðaldaensku. En Orm skáld
telur hann vera Orm Skeggja-
son, ábóta á Munkaþverá.
Ormur kórsbróðir
Bréf Skúla er svolátandi:
„Eftir sigur Normanna 1066
varð franska mál heldra fólks á
Englandi, en latina ritmál þar.
Varla getur heitið, að ritað væri
á máli meginþorra Englend-
inga, engilsaxnesku, þar til
laust eftir 1200, eða I 150 ár.
Um 1205 birtist ljóð Layamons
um Brut, sem varð þjóðsöguleg-
ur konungur á Englandi, en
Ormulum (Orm samdi það) eft-
ir Orm kórsbróður hafði tölu-
verð áhrif á ritun enskunnar,
með breytingum hans (t.d. tvö-
földum samhljóða eftir stuttan
hljóðstaf og 3 mismunandi stafi
fyrir g). Þessar breytingar
Orms urðu til þess, að lesa mátti
textann viðstöðulaust, en með
fyrra rithætti var það ekki hægt.
Efnisvalið er sótt til Gregory I,
Beda og Ælfries, sem allir komu
við kristnisögu Englands, og er
það ekki dýrt kveðið, en talið
mikils virði málfræðilega.
Þorlákur Þórhallsson helgi
Skálholtsbiskup (1178—93) var i
námsferð erlendis i 6 ár
(1154—60), þ.á.m. I Lincoln á
Englandi. Páll Jónsson systur-
sonur hans, Skálholtsbiskup
1195—1211, var einnig við nám I
Englandi, Gissur ísleifsson
valdi Þorlák Runólfsson, dótt-
urson SNORRA KARLSEFNIS-
SONAR (Snorri fæddist á VIN-
LANDI), sem eftirmann sinn og
lét vigja hann til biskups, þó að
ekkert biskupsembætti væri
laust á Islandi. Með þessu hefur
Gissur viljað tryggja tslending-
um ihlutunarrétt I kirkjumálum
Grænlands og VtNLANDS, en
fyrsta verkefni Þorláks Run-
ólfssonar Skálholtsbiskups
(1118—1133) var að greiða götu
Vlnlandsfara á vegum páfa-
stóls. Hingað komu 35 skip, sum
við illan leik I erfiðu árferði
(annað mesta aðstreymi til
landsins frá upphafi landnáms
hér). Talið er að 2000 manns
hafi látizt hér á landi 1119—20 úr
hungri og sóttum, og varð
minna úr Vinlandsferðinni en til
stóð. Annar afkomandi KARLS-
EFNIS á biskupsstóli var Björn
Gilsson Hólabiskup 1147—62 og
þriðji afkomandi KARLSEFNIS
varð Hólabiskup 1163—1201, þ.e.
Brandur Sæmundarson. Telja
má öruggt, að Brandur biskup
hafi fylgt þvi fast eftir að láta
mennta einhvern af afkomend-
um KARLSEFNIS, sem tæki við
biskupsembætti að Hólum eftir
hann. Þessi maður var eflaust
Ormur Skeggjason, ábóti að
Munkaþverá, sem trúlega hefur
stundað nám á Englandi, en
Orms skalts er getið i Yorkshire
fyrir andlát Hinriks II, 1189, og
Orm skalt (skáld) telja sumir
höfund að Ormulum, þótt það sé
ritað eftir 1200 af munki.
Keppinautur
Guðmundar góða
Gengið var framhjá Ormi við
biskupskjör 1201, þar sem Kol-
beinn Tumason taldi Guðmund
Arason ráðþægari. En hér fór
likt og I viðskiptum Hinriks II og
Thomasar Beckets. Guðmundur
biskup fékk Sigurð Ormsson,
ráðsmann sinn og frænda Orms,
til þess að endurbæta staðinn að
Munkaþverá. og vann með þvi
stuðning Orms, en fullur fjand-
skapur varð milli biskups og
Kolbeins og Sigurðar Ormsson-
ar. Kolbeinn féll. 1 viðureign við
lið biskups 1208, en 1209 komu
höfðingjar úr öllum landsfjórð-
ungum með 700 manna liði norð-
ur að Hólum, og varð biskup að
fara með Snorra Sturlusyni i
Reykholt. Liði biskups var
tvistrað, og urðu margir að flýja
land (til Grænlands), og aðrir
urðu héraðsrækir og guldu háar
fjársektir. Guðmundur biskup
var á hrakningum, og mikilhæf-
ir vinir hans voru drepnir —
Snorri Grimsson (sem talinn er
höfundur Orkneyingasögu) og
Hrafn Sveinbjarnarson læknir
(hann er nefndur I alþjóðlegu
læknatali lærður á Italiu).
Prestur að nafni Valdi var hjá
Hrafni og klerkar (óvigð prests-
efni), svo að þar hefur verið
skóli. Eftir vig Hrafns 1213 er
getið um, að skip Ólafs hafi
týnzt, (þessi Ólafur gat hafa
verið systursonur Guðnýjar
móður Snorra Sturlusonar), og
með þessu skipi gátu þeir hafa
farið, sem urðu hart úti i þess-
um ófriði, þ.á.m. Valdi prestur,
Ormur ábóti (hann er talinn á-
samt Karli ábóta, sem ritaði
sögu Sverris konungs, og þriðja
ábótanum i liði Guðmundar
biskups) 1208, og er andlátsár
þeirra Karls og Orms talið 1212,
en þar gæti skakkað einu ári.
Enn um Orm skáld
Ormur ábóti gat hafa haft
fulla ástæðu til þess að hverfa
frá íslandi. Hann varð ekki
biskup, stuðningur hans við
Guömund biskup kostaði hann
vinslit við Sigurð Ormsson,
frænda og velgjörðarmanns
Orms, og óvinátta höfðingjanna
gat kostað hann lifið. Sama má
segja um Valda prest, og þeir
hafa e.t.v. verið bræður. Ormur
átti til skálda að telja og gat
hafa getið sér orð sem skáld á
Englandi á námsárum sinum
þar, og Islendingar voru á þess-
um tlmum miklir ritsnillingar,
miðað við nágrannaþjóðirnar.
Orm skalt (skáld) og Orm
munk, bróður Valda (Walters),
má liklega telja einn og sama
mann.
Höfundur Ormulum, sem
kallar sig Orm eða Orminn, not-
ar það mörg norræn (Islenzk)
orð (sbr. Vor tids leksikon og
Salmonsens Konversation
Leksikon), að'ekki verður fram-
hjá þvi komizt, að hann hefur
verip talinn af norrænu bergi
brotinn. Samtimamenn hans,
Gunnlaugur munkur, Karl ábóti
og Snorri Sturluson eru það
þekktir rithöfundar, að ekki
gerist þörf að leita iengra en til
íslands til þess að finna hvata
að ritum Ormulum, þegar þar
við bætist, að tslendingar stund-
uðu nám i Englandi á 12. öld, og
einn þeirra hefur trúlega verið
Ormur Skeggjason ábóti.
Þeir sem tóku sér far með
skipum, sem „týndust”, voru
taldir hafa andazt sama ár og
skipið fór frá Islandi, og dæmi
eru til þess, að konur manna
voru giftar á ný, þegar menn
skiluðu sér heim til íslands eftir
dvöl erlendis, t.d. á Grænlandi.
Viðurnefni Ólafs skirfils gæti
verið dregið af enskri mynt,
skarfur (þ.e. sildingur), og á-
stæðan til þess, að hann hefur
ekki kosið að snúa aftur til Is-
lands, gat verið ófriðarástandið
á Islandi, m.a. i Miðfirði, þar
sem menn réðust i það stórvirki
að reisa Borgarvirki, sér til
varnar.
Rvik 20.1 1975
DIPREIÐA
EIGCADUR!
AukiS ÖRYGGI, SPARNAÐ og ÁNÆGJU
í keyrslu y8ar, með þvi að lóía okkur
annast stillingarnar á bifreiðinni.
Framkvæmum véla-, hjóla- og Ijósastillingar
ósamt tilheyrandi viðgerðum.
Ný og fullkomin stillitaoki.
’O. CnoilbeiU/on h/í
Stilli- og Auðbrekku 51
vélaverkstæði Kópavogi, sími 43140
Rafgeymar
í miklu úrvali
-----11IjOSSS£f------------
Skipholti 35 - Simar:
S-I3-S0 verzlun 8-13 51 verkst«ði • 813-52 skrifstoU
Olíu- og
loftsíur
í flestaV
tegundir
bif reiða
og vinnu
véla
HIjOSSI
Skipholti 35 ■ Simar: .....
8-13-50 verzlun 8 13-51 verkstaði 8-13-53 skrifstofa
JOHNS-MANVILLE
iglerullar-
19 einangrun
\
V
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið
þér frian álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Sendum hvert á land sem er.
JðN LOFTSSON HF. Wk
Hringbrout 121 . Simi 10-600