Tíminn - 28.01.1975, Side 12
12
TÍMIW
Þriöjudagur 28. janúar 1975.
ungum mönnum. Henni veittist því auðvelt að fyrirgefa
honum kæruleysið. Þar að auki var ekki laust við/ að hún
væri hreykin af honum. Eiríkur þurfti þess ekki einu
sinni með að f ara í útlendu skartklæðin til þess að setja á
sig glæsibrag. Katrín sá það vel, að stúlkurnar sneru sér
við og horfðu á eftir honum, þótt hann væri í hversdags-
fötunum. Hamvoðarbuxurnar og vaðmálsjakkinn gát'■
ekki dulið spengilegan vöxt hans né leynt falleguni,
frjálsmannlegum hreyfingum hans. Smáfellt andlit
hans og beint nef var eins og fagurmótuð marmara-
mynd, og jarpt hárið bylgjaðist alitaf jafn glæsilega,
jaf nvel þótt hann kæmi ógreiddur heim úr langri skógar-
ferð.
í samkvæmum flykktust ungu stúlkurnar utan um
þennan glæsilega herramann, og i dans var hann jafn
eftirsóttur og rikustu kapteinssynirnir, Hann var fót-
lipur og gat dansað hvað sem var. Hver gat trúað því, að
þvílíkir hæfileikar hefðu þroskazt á Klifinu? í jóla-
boðunum sat Katrín kvennamegin í stórstofunni, í
horninu við eldiviðarkassann, og skotraði augunum
laumulega yfir prjónana sína til þessa fallega sonar
síns, þar sem hann stóð í miðjum stúlknahópnum og
vakti öf und allra karlmannanna. Það var henni ekki svo
litil áraun að láta sem ekkert væri og halda aftur af
sigurbrosinu.
Gústaf var stundum viðskotaillur og sagðist blygðast
sín fyrir yfirstéttarsniðið á honum, en öðrum þræði
öfundaði hann bróður sinn, einkanlega þó af dans-
fiminni. Hann hafði fljótt komizt að raun um, að eina
leiðin til þess að nálgaststúlku í hópi hlæjandi stallsystra
var að bjóða henni í dans. Allar stúlkur kunnu og vildu
dansa en næsta fáir hinna fáu pilta í byggðinni gátu
dansað. Gústaf vildi fyrir enga muni verða að sérvillingi
eins oq Einar. Hann vildi vera hlutqengur þar, sem glatt
var á hjalla og sá að hann varð að lærá að dansa. En
það var erf iðara en svo. Það voru ekki allir fæddir með
danslistina í fótunum eins og virðast mátti um Eirík.
Gústaf stóð hér andspænis miklum vanda, og þegar
honum varð litið á bif urnar á sér, lá við, að hann léti hug-
fallast. Erfiðast var að komast í kunningsskap við
einhverja stelpu, sem vildi kenna honum að dansa, því að
enga átti hann systurina. Hefði Sanna litla bara lifað,
tautaði hann og stundi þungan. Hann var alltof feiminn
til þess að þora að fela forráð fóta sinna, ekki betur er
þeir létu að stjórn, einhverri þessara smávöxni.
keknislegu, dularf ullu vera, sem hann var samt sífe!! ao
hugsa um, en gat þó aldrei skilið. Hann varð að bíða og
sæta færis. En þegar hann hefði lært að dansa. skyldi
hann sýna þeim það, öllum þessum flissandi stelpu-
gægsnum, að hann kunni sporið, ekki síður en Eiríkur að
minnsta kosti. En hvernig átti hann að læra að dansa?
Loks var Eiríkur kúgaður með hótunum og ofbeldi til
þess að kenna honum listina. Hrörlegt húsið lék á
reiðskjálfi þegar dansæfingarnar komust í algleyming
og sjómennirnir tveir hoppuðu og sveifluðu sér fram og
aftur um gólfið, löðrandi í svita. Jónann var látirin
standa úti í horni og spila á munnhörpu, því að ekki var
hægt að dansa án hljóðfæraleiks. Drengirnir hlógu svo
undirtók i kofanum og hrinu eins og villimenn, og venju-
lega varð þeim sundurorða áður en lauk og þá endaði
dansinn með f angbrögðum. Eiríkur blótaði og ragnaði og
staðhæfði, að Gústaf væri svo leggjalangur og stór-
fættur, að hann gæti aldrei tileinkað sér hina sönru,
göfugu list: þar að auki væri hann stirður eins 05
drumbur, og fleiri vankanta taldi hann á honum.
,,Og svo læriðu aldrei að dansa nema sem kvenmaður
með þessu lagi", sagði hann. ,,Þegar þú ferð að dansa
við stúlku, verður þú að stjórna henni, og það get ég ekki
kennt þér".
„Hvernig í f járanum á ég að læra það? Einhver hefur
kennt þér það, og eins ættir þú að geta kennt mér það'.
„Nei. Ég dansa ekki sem stelpa. Þú verður að krækja
þér í einhvern kvenmann til þess að æf a þig á".
„Og hvar get ég það svo sem..en mamma? Auðvitað
mamma! Þú verður að kenna mér að stjórna í dansi".
„Ertu alveg frá þér, drengur. Ég hef ekki dansað i
tuttugu ár", hrópaði Katrín og bandaði frá sér
höndunum. En það var af og f rá, að Gústaf léti af þessu.
fyrst að hann hafði einu sinni bitið það í sig. Hann dró
hana frá hlóðunum og sveiflaði henni svo ofsalega
kringum sig, að hárnælurnar þeyttust í allar áttir.
„Það er alveg sama. Þú dansar samt, þú dansar
samt", æpti hann.
„Guð minn góður, drengur, guð minn góður! Láttu mig
vera. Hvað heldurðu, að stúlkurnar segi, ef þú ferð
svona að við þær, villingurinn þinn ".
„O, ekkert slaður. En ég get líka verið meyjar-
mannslegur, ef ég vil, skal ég segja þér, og líttu bara á!"
Ogisvo sló hann saman hælunum, studdi annarri hend-
inni á brjóstið og hneigði sig f imlega. „Má ég biðja um
einn dans?" sagði hann kurteislega, þó að gáskinn skini
út úr honum. Katrín gat ekki stillt sig um að hlæja, og nú
varð hún að láta undan.
A...Þér gengur allt illa, "N
getur þú ekki veriö eins )
■mM
Þriðjudagur
28. janúar
7.00 Morgunútvarp.
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Um aðstööu fatlaöra
barna, — fyrsti þáttur: Viö-
brögö foreldra. Umsjónar-
maður: Gisli Helgason.
15.00 Miödegistónieikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barna-
timinn^Finnborg Scheving
og Eddan Sigurbjörnsdóttir
sjá um timann.
17.00 Lagiö mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburöarkennsla I
spænsku og þýzku
17.50 Tónleikar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar,
19.35 Þúsund lækja land
Haraldur ólafsson lektor
flytur erindi um Kóreu.
20.00 Lög unga fólksins
Sverrir Sverrisson kynnir
20.50 Frá ýmsum hliöum
Guömundur Arni Stefáns-
son sér um fræðsluþátt fyrir
unglinga.
21.20 Tónlistarþáttur i umsjá
Jóns Asgeirssonar
21.50 Fróöleiksmolar um
Nýja testamentiöDr. Jakob
Jónsson talar um opin-
berunarritin og spá-
dómana.
22.00 Fréttir
22.16 Veðurfregnir Lestur
Passiusáima (2)
22.35 Kvöldsagan: ,,i
verum”, sjálfsævisaga
Theódórs Friörikssonar
Gils Guðmundsson les (22).
22.45 Harmonikulög Charles
Magnante leikur
23.00 A hljóðbergi Basil
Rathbone les kvæði og sögur
eftir Edgar Allan Poe.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
IsiórwAFff
Þriðjudagur
28. janúar
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrárkynning og
augiýsingar.
20.35 Úr dagbók kennara
(Diario di un Maestro)
Itölsk framhaldsmynd i
fjórum þáttum, byggð á
skáldsögu eftir Albino Bern-
ardini. 1. þáttur. Leikstjóri
Vittorio De Seta. Aðalhlut-
verk Bruno Cirino, Marisa
Fabbri og Nico Cundari.
Þýöandi Jón Gunnarsson.
Aöalpersónan er ungur
barnakennari, sem að loknu
námi flr stöðu við skóla i fá-
tækrahverfi i Rómaborg.
Drengirnir, sem hann á að
uppfræða, eru i efsta bekk
skólans og ekki sérlega
leiðitamir.
21.40 Þvi fer fjarri Skemmti-
þáttur með stuttum, leikn-
um atriðum og ýmiss konar
blönduðu efni. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
22.00 Heimshorn Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Sonja Diego.
22.30 Dagskrárlok.
A þriðjudagskvöldið 28.
janúar verður endursýndur
3ji þáttur finnska fram-
haldsleikritsins Söngur
Sólveigar, vegna rafmagns-
bilana, sem urðu á suður og
suövesturlandi, þegar
þátturinn var frumsýndur.
Það skal tekið fram að
útsending þáttarins fer
aðeins um endurvarps-
stööina á Vatnsendahæð.