Tíminn - 06.02.1975, Qupperneq 15
Fimmtudagur 6. febrúar 1975
TÍMINN
15
/i
Framhaldssaga
i
íFYRIR
ÍBÖRN
5
Mark Twain:
Tumi gerist
leyni-
lögregla
mjög glöð yfir að sjá
okkur aftur og við
skemmtum okkur hið
bezta með þeim i
morgunverðarhléinu.
Hendersons-drengirn-
ir höfðu gengið fram
hjá þessum nýkomna,
daufdunba manni,
þegar þeir voru á leið-
inni i skólann, og
höfðu siðan sagt hin-
um frá honum, svo að
öll skólabörnin gátu
ekki um annað hugsað
en þennan undarlega
aðkomumann. Þau
voru öll mjög sólgin i
að sjá hann, þvi að
þau höfðu aldrei á ævi
sinni séð daufdumban
mann, og þetta var
náttúrlega mjög
spennandi allt saman.
Málið vakti hina stór-
kostlegustu athygli
meðal þeirra.
Tuma fannst sár-
grætilegt að við skyld-
um þurfa að þegja
núna, þvi að við
mundum hafa verið
heiðraðir sem hetjur,
ef við hefðum sagt
allt, sem við vissum.
En þegar alls var
gætt, var það i raun-
inni ennþá hetjulegra
að geta þagað. Vafa-
laust gátu það ekki
einu sinni tveir af
hverjum milljón
strákum.
Þetta ® var að
minnsta kosti skoðun
Tuma á málinu, og ég
held lika, að hún hafi
verið alveg rétt.
Ellefti kafli
Á næstu tveim eða
þrem dögum varð
hinn daufdumbi vel
Fétaq bókasiitnsKaxíiix).)
Félag bókasafnsfræðinga
gefur út plaköt:
Hvað ungur nemur
gamall temur
A EINS árs afmæli sinu, 10. nóv.
s.l., gaf Félag bókasafnsfræðinga
út plakat, teiknað af hinni kunnu
listakonu, Barböru Arnason.
Myndin sýnir fróðleiksfýsn litils
barns, og mætti ef til vill kalla
hana Hvað ungur nemur, gamall
temur.
Þetta er fyrsta veggspjaldið af
sjö, sem félagið hefur látið gera
og mun gefa út á skömmum tima.
Hin sex eru teiknuð af nemendum
i auglýsingadeild Myndlista- og
handíðaskólans. Plakötin eru
mjög ólik hvert öðru að gerð, en
eiga öll það sameiginlegt, að þau
minna á bækur og bóklestur. Þau
henta til skreytinga i bókasöfn,
skóla, ýmsar stofnanir og ekki
siður i barna- og unglingaher-
bergi.
Félag bókasafnsfræðinga, sem
er stéttarfélag lærðra bókavarða,
hefur nú starfað I rúmt ár, eins og
áður er sagt. Félagið vinnur nú að
ýmsum verkefnum, m.a. útgáfu
uppsláttarrita, og mun ágóði af
sölu plakatanna renna til þeirrar
starfsemi.
Plakötin verða til sölu i Safn-
arabúðinni við Bókhlöðustig,
Bóksölu stúdenta, Völuskrini,
Laugavegi 27, og hjá félagsmönn-
um.
r
iii—
BI
ffl
Kópavogur
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Kópavogi heldur fund
fimmtudaginn 6. febrúar næstkomandi kl. 20,30 i Félagsheimili
Kópavogs. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Kópavogskaupstaðar
1975. Framsögu hefur Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri. Stjórn-
in.
r ; á
Borgarnes — ndgrenni
Framsóknarvist verður spiluð i Samkomuhúsinu i Borgarnesi
föstudaginn 7. febrúarkl. 9. Fyrsta kvöld i þriggja kvölda spila-
keppni, tvenn kvöldverðlaun, glæsilegur lokavinningur. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir. Framsóknarfélagið Borgar-
vJ!í_____________________________________J
Lundúnaferð
Framsóknarfélögin i Reykjavik minna á Lundúnaferðina þann
11. febrúar n.k. og heim aftur aðfaranótt 18. febrúar. Vegna sér-
stakra ástæðna gefst fólki kostur á mjög ódýrri utanlandsferð.
Vissara er fyrir fólk að tryggja sér sæti sem fyrst þar sem allt
útlit er fyrir að færri komist i þessa ferð en vildu, miðað við
reynslu fyrri ferða.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni i sima 24480.
Fró Hverfasamtökum
framsóknarmanna í Breiðholti
Akveðið hefur verið að einhver úr stjórn félagsins verði til við-
tals og starfa fyrir félagið á skrifstofu flokksins Rauðarárstig 18
alla þriðjudaga og fimmtudaga á milli kl. 17 og 19,slmi skrifstof-
unnar er 24480. Stjórnin.
Þjóðháttakvikmyndin
Hér sjáum viö konu við rakningsgrind, og er hún að rekja þráð i vefinn,
sem er undirbúningsvinna fyrir sjálfan vcínaöinn.
frumsýnd
gébé Reykjavik — Föstudaginn 7.
febrúar kl. 21:00 veröur þjóð-
háttakvikmyndin islenzka, ,,i
dagsins önn”, frumsýnd á þrem-
ur stöðum á landinu samtimis.
Margir hafa beðið með óþreyju
eftir þessari mynd, en gerð henn-
ar seinkaði af ýmsum orsökum.
Méð sýningu myndarinnar er
dagskrá þjóöhátiðarnefndar 1974
tæmd, og störfum nefndarinnar
þar með lokið.
Kvikmyndin er unnin upp úr
stærra verki, sem gert hefur ver-
ið uin þjóðhætti i landinu af ýms-
um félagasamtökum i Arnes- og
Rangárvallasýslu. Það var á ár-
inu 1972, sem þessir aðilar sneru
sér til þjóðhátiðarnefndar 1974,
með ósk um samvinnu við gerð
myndarinnar, og yrði hún byggð
á þeim efniviði, sein þeir áttu
þegar á kvikmynd og verið var að
kvikmynda.
Þjóðháttakvikmyndin hefur átt
sér langan aðdraganda, en það
var á Selfossi, 11. nóveinber 1956,
sem fyrst var efnt til fundar um
myndina. Myndin var öll tekin á
16 mm filmu, en siðan var ráðizt i,
að frumkvæði þjóðhátiðarnefndar
1974, að stækka myndina i svo-
nefnda breiðfilmu. Var það gert
hjá Universal Film i London, og
hafði Jón Hermannsson umsjón
með staékkun myndarinnar og sá
jafnframt um frágang hennar i
sainráði við höfunda. Myndin er i
lituin, hljóðupptöku annaðist
Oddur Gústafsson, og tónlist og
flutning hennar annaðist Halldór
Pálsson flautuleikari.
Inngansorð kvikmyndarinnar
flytur formaður þjóðhátiðar-
nefndar 1974, Matthias Johannes-
sen, og varsá hluti tekinn á breið-
filinu af Jóni Hermannssyni og
Þrándi Thoroddsen.
1 þessari þjóðháttakvikmynd
gefur að lita aldagamla verk-
menningu, — skyrgerð, ullar-
vinnu, heyskap, ferðalög, eldivið-
aröflun og sinalamennsku, svo að
eitthvað sé nefnt. Leikarar eru
yfir sextiu i myndinni og eru allir
sjálfboðaliðar.
MMWtHMM*
:
Tíminn er
peningar
AuglýsicT
i Tímanum
Jörðin Eystri-Dalbær
Kirkjubæjarhreppi, Vestur-Skaftafells-
sýslu, er laus til ábúðar og sölu á komandi
vori.
Upplýsingar gefa Sigriður Jónsdóttir,
Eystri-Dalbæ. og Jón Helgason, Seglbúð-
um.