Tíminn - 19.02.1975, Qupperneq 6
6
TÍMINN
MiOvikudagur 19. febrúar 1975.
NORRÆNT
MENNINGAR-
SAAASTARF FÆRIR
ÚT KVÍARNAR
ÞEGAR menningarmálasamn-
ingurinn tók gildi fyrir rúmlega
þremur árum, geröu menn sér
háar vonir um áhrif hans til að
auka virkni hins norræna
menningarsamstarfs. Nýtt skipu-
lag samstarfsins á vegum rikis-
stjórnanna leysti af hólmi þá
starfsemi, sem fariö haföi fram
um 25 ára skeiö, einkum undir
forustu norrænu menningarmála-
nefndarinnar, sem samstarfs-
stofnunar rikisstjórnanna á þessu
sviði.
Sú starfsemi, sem fariö hefur
fram samkvæmt menningar-
málasamningnum frá ársbyrjun
1972, er einkum að þvi leyti frá-
brugöin fyrri skipan, aö nú er
unnt aö meta verkefni, raöa þeim
i forgangsröð og vinna að þeim á
grundvelli heildarskipulags þar
sem samstarfsstofnunin getur
bæði átt frumkvæði um aðgerðir
og annazt framkvæmdir þeirra.
,, Menningarf járlögin”
Meðal mikilvægustu gagna um
hina samnorrænu starfsemi á
sviði menningarmála eru hin
sameiginlegu „norrænu
menningarf járlög”. Með þeim
varð það kleift að vinna mark-
visst frá ári til árs að framkvæmd
stefnumiða og starfsáætlana.
Gerð sameinaðrar fjárhags-
áætlunar um menningarmála-
samstarfið var eitt af allra fyrstu
verkefnunum, sem nýju stofnan-
irnar hófust handa um 1972 og
fyrstu ,,fjárlögin” tóku þvi til
1973. Heildarfjárveitingin var
þá 32 millj. danskra króna. Næsta
ár hækkaði hún i 35 millj. og á
þessu ári, 1975, er niðurstöðutala
„menningarfjárlaganna” 40
millj. danskra króna. Leggja ber
þó áherzlu á, að starfsemin sjálf
og aukning hennar frá ári til árs,
verður ekki mæld með þessum
fjárveitingatölum einum saman.
Ýmis viðfangsefni eru kostuð
meö fjárveitingum i einstökum
löndum og margs konar mikils-
verður árangur af norrænu
menningarmálasamstarfi hefur
litil — stundum jafnvel engin —
áhrif á fjárlögin. Dæmi um slikt
er samstarfið um gagnkvæmt
gildi háskólaprófa á Norðurlönd-
um og samræming reglna um
fjárhagsaðstoð við námsmenn.
Ennfremur ber að nefna hina um-
fangsmiklu samvinnu um
rannsókna- og þróunarstarf á
sviði fræðslumála. Hún styðst
einungis að litlu leyti við fjárveit-
ingar i „menningarfjárlögun-
um”, en er annars kostuð af
hverju landi fyrir sig. Arangur
þessa starfs birtist ekki sem af-
mörkuð samnorræn starfsemi
heldur gætir hans i þvi starfi, sem
unnið er i hverju einstöku landi.
Samnorrænar stofnanir og ann-
að fastmótað samstarf, sem kom-
ið hafði verið á laggirnar fyrir
1972, hafa haldizt við lýði eftir til-
komu menningarmálasamnings-
ins og fá þvi nú fé i „menningar-
fjárlögunum”. Hin samræmda
fjárlagagerð og sú forgangsröð-
um, sem henni fylgir hefur gert
kleift að koma við æskilegri yfir-
sýn og mati á starfsemi þeirra
stofnana, sem fyrir voru. Með
þessu móti hefur starfseminni i
ýmsum tilvikum veriö fengin
fastari skipan en áður, og á ýms-
um sviðum hefur reynzt unnt að
færa út kviarnar, þar sem slikt
hefur verið talið nauðsynlegt. 1
nokkrum tilvikum hefur matið
leitt til rækilegrar könnunar og
athugana á framtiðarstarfi og
markmiðum.
Ýmis ný starfsemi hefir einnig
verið tekin i „menningarfjárlög-
in” á þessum þremur árum.
Tveimur nýjum fastastofnunum
hefur verið komið á fót, norrænu
eldfjallastöðinni á Islandi, sem
vigð var haustiö 1974, og norrænu
Samastofnuninni i Norður-
Noregi, en vigsla hennar fór fram
að vori sama ár.
Einkennandi fyrir norrænt
menningarmálasamstarf tima-
biliö 1972-1975 hefir þó verið
markviss viðleitni ráðherra-
nefndarinnar til meiri sveigjan-
leika, aukinnar dreifingar starf-
seminnar i þvi skyni að ná til sem
fjölmennastra hópa og yfirleitt sú
stefna að stuðla að starfsemi,
sem ekki er bundin við fastar
stofnanir.
Almenn menningarmál
A sviði almennra menningar-
mála hefur þannig á þessu
þriggja ára timabili verið unnt að
veita norrænu æskulýðssamstarfi
verulegan stuðning. Gestaleikja-
starfsemi hefur verið komið i
skipulegt horf og langþráður
stuðningur við þýðingar bók-
mennta grannlandanna er nú haf-
inn. Unnið er að þvi að undirbúa
þátttöku fjölmennra almanna-
samtaka i menningarsamstarf-
inu, svo og sérstakt samnorrænt
átak i þágu þeirrar menningar-
miðlunar sem að börnum veit.
Aukiö sjónvarpssamstarf innan
Noröurlanda hefur lengi veriö
mönnum hugstætt og hafa i þvi
skyni farið fram umfangsmiklar
athuganir á árunum 1972 til 1974 á
vegum stofnana menningarmála-
samningsins. 1 skýrslu ráðherra-
nefndarinnar er gerð grein fyrir
meginatriðum tillagna, sem
fólgnar eru i nýframkomnu loka-
áliti sjónvarpsnefndar þeirrar, er
ráðherranefndina skipaði. Alitið i
heild er lagt fram sem fylgiskjal
með skýrslu ráðherranefndar-
innar fyrir árið 1974 og afstaöa
Norðurlandaráðs til tillagna sjón-
varpsnefndarinnar mun skipta
miklu varðandi framhaldsmeð-
ferð málsins.
Að þvi leyti sem aukningu verð-
ur við komið á sjónvarpssam-
starfinu á Noröurlöndum, mun
hún hafa i för með sér, að svo-
nefnd jarðarsvæði fái kost á um-
fangsmeira menningarefni, en
hingaö til. Þetta er þó ekki eina
dæmið um ráðstafanir sem bein-
ast að þessum svæðum. Sama-
stofnunin, sem nú er tekin til
starfa af fullum krafti treystir
grundvöll menningarstarfs og
annarrar samvinnu varðandi
málefni minnihlutahóps, sem
byggir viölent svæði i þremur
löndum. Vonir þær, sem bundnar
voru við starfsemi Norræna húss-
ins i Reykjavik, hafa fyllilega
ræzt, og m.a. með hliðsjón af
reynslunni þaðan hefur verið
gerð áætlun um norræna
menningarmiðstöð i Þórshöfn i
Færeyjum.
Annað mál, sem unnt verður
væntanlega að taka ákvörðun um
áður en mjög langt liöur, er fram-
tiðarskipulag samstarfs á sviði
myndlistar.
Fræðslumál
A sviði fræðslumála hefur
menningarmálasamningurinn
haft i för með sér að fastri skipan
hefur verið komið á samstarfið i
þessum efnum. Fyrstu árin hafa
aðgerðirnar einkum miðast við
grunnskólastigið og hafa þar
myndazt skilyrði til árangursriks
norræns samstarfs, sem reynzt
getur mikilsvert bæði fyrir al-
menna áætlunargerð i skólamál-
um landanna og hiö daglega
skólastarf. Hið umfangsmikla
samhæfingar- og þróunarstarf,
sem m.a. hefur leitt til margvis-
legra tillagna og álitsgerða, tekur
til forskóla, grunnskóla, fræðslu
fullorðinna, sérskóla og stjórn-
sýslu á sviði fræðslumála. Með
þvi að beita sameinuðum kröftum
að meöferð þróunarvandamála
og nýta samanlagða reynslu i
fimm löndum hefur nú þegar
myndazt mikilsveröur grunnur
að þróun skólans á innlendum
vettvangi. Og unnt er að efla hiö
norræna samstarf enn frekar til
aö auðvelda hagkvæma nýtingu
mannafla og aðstöðu með sam-
hæfingu innlends og samnorræns
þróunarstarfs. Næsta verkefni, er
átak á sviði fullorðinsfræðslu,
framhalds- og endurmenntunar,
svo og starfsmenntunar og há-
skólanáms.
Visindarannsóknir
A sviði visindamála hefur um
langan aldur þróazt viðtækt sam-
starf. Það er lika á þessu sviði,
sem mest hefur kveðið að föstum
samstarfsstofnunum, svo sem
fram kemur m.a. i norrænu
menningarfjárlögunum. Þær
samstarfshugmyndir, sem fram-
kvæmdar hafa verið fram að
þessu, hafa hins vegar i mörgum
tilvikum beinzt að fremur þröngt
afmörkuðum sérsviðum.
Framtiðarþróun visindasam-
starfs á Norðurlöndum ætti ekki
eingöngu og raunar ekki fyrst og
fremst að miða að þvi að koma á
fót föstum samnorrænum
rannsókna- og samstarfsstofnun-
um, heldur fremur beinast að
samstarfi um tiltekin rannsókna-
verkefni og — mun meira en hing-
aö til — að almennum aðgerðum i
þvi skyni að stuðla að auknum
vísindalegum samskiptum milli
visindamanna og rannsókna-
stofnana á Norðurlöndum.
Þess gætir nokkuð að sérstak-
lega hinir yngri visindamenn láti
sér sjást yfir þá möguleika, sem i
boði eru i grannlöndunum, en
stofni fremur til tengsla við
rannsóknarstarfsemi, sem fram
fer utan Norðurlanda. Þetta verð-
ur ekki einungis skýrt með þvi að
þörfin á fjölþjóðlegum samskipt-
um fer sivaxandi. í mörgum
tilvikum eru það að verulegu leyti
önnur atriði, sem úrslitum ráða.
Fyrir samstarfsstofnanir þær,
sem komið hefur verið á laggirn-
ar samkvæmt menningarmála-
samningnum, ætti það að vera
brýnt verkefni að örva til aukinna
samskipta innan Norðurlanda.
Með samskiptum af þessu tagi
fást skilyrði fyrir sameiginlegu
rannsóknaumhverfi, sem getur
orðið grundvöllur að frekari efl-
ingu visindasamstarfs á Norður-
löndum.
Ráðstöfunarfjárveiting
og Menningarsjóður
Norðurlanda
Akveðiö var þegar árið 1971, aö
I norrænu „menningarfjárlögun-
um” skyldi sérstök fjárveiting
æthið til ráðstöfunar fyrir ráð-
herranefndina. Þessi fjárveiting,
5-6 millj. danskra króna á ári,
hefur reynzt mjög mikilvæg,
sérstaklega fyrir starfsemi, sem
ráðherranefndin hefur átt frum-
kvæði að, svo og til tilraunastarfs.
Reynslan hefur orðið sú, að eðli-
leg verkaskipting hefur smám
saman þróazt milli ráöherra-
nefndarinnar og ráðstöfnunarf jár
hennar annars vegar og
menningarsjóðsins hins vegar.
Þessa verkaskiptingu hefur ekki
þurft að valdbjóða. Það hefur tal-
izt eðlilegt að ráðherranefndin
kostaði af ráðstöfunarfé sinu
starfsemi, sem með einhverjum
hætti er tengd opinberrri stjórn-
sýslu á Norðurlöndum eða algjör-
um nýjungum, sem ráðherra-
nefndin hefur ákveðið að efna til.
Starfsemi menningarsjóðsins
beinist að hinu frjálsa
menningarstarfi, félagssamtök-
um og óhefðbundnum verkefnum.
Með tillögum þeim, sem ráð-
herranefndin hefur lagt fyrir
þetta þing um nýtt samkomulag
um menningarsjóðinn, fært til
samræmis við nýjar aðstæður,
hefir nefndin viljað leggja áherzlu
á, hversu mikilvægu hlutverki
hún telur sjóðinn hafa að gegna i
norrænu menningarlifi. Ráð-
herranefndin kaus að leita um-
sagnar Norðurlandaráðs um mál-
ið áður en endanlega verður
gengið frá texta samkomulagsins
og formleg umfjöllun þess hafin i
hverju einstöku landi.
Skipulag
Ráðherranefndin telur með
hliösjón af þriggja ára reynslu, að
það skipulag menningarsam-
starfsins, sem ákveðið er i
menningarmálasamningnum, sé
hagkvæmt og hafi géfizt vel.
Sérlega mikilsverð er, að dómi
ráðherranefndarinnar, hin fasta
samvinna við menningarmála-
nefnd Norðurlandaráðs. Bæði
varðandi fjárlagaundirbúning og
áætlanagerð um samstarfið er
haft samráð milli menningar-
málanefndarinnar og ráðherra-
nefndarinnar og annarra sam-
starfsstofnana samkvæmt menn-
ingarmálasamningnum.
Ráðgjafarnefndir ráðherra-
nefndarinnar, þrjár talsins, svo
og allar aðrar nefndir,
stjórnunarhópar o.s.frv., sem
starfa á grundvelli menningar-
málasamningsins, eru trygging
þess, að framkvæmd samnings-
ins sé i traustum tengslum bæði
við fjölmenna þjóðfélagshópa og
við þá aðila, sem sérþekkingu
hafa á hinu viðtæka sviði, sem
menningarmálasamningurinn
spannar. Ráðherranefndinni er
ánægja að þeirri staðreynd, að
hin skipulögðu tengsl samstarfs-
stofnananna við Norrænu félögin
hafa i för með sér þátttöku mikils
fjölda manna i starfseminni.
Norræna menningarmálaskrif-
stofan gegnir undirstöðuhlutverki
I samstarfskerfinu. Þegar
menningarmálaskrifstofan tók til
starfa fyrir rúmum þremur ár-
um, var ekki unnt að sjá
nákvæmlega fyrir, hversu um-
fangsmikil starfsemin mundi
verða. Verkefni skrifstofunnar
var i upphafi aðeins hægt að
marka i megindráttum, en nú, að
þremur árum liðnum, hafa
einstök atriði verið mótuð og
starfsemi skrifstofunnar gengur
vel. An skrifstofu, sem veldur
verkefnum sinum og er þar með
fær um að sjá ráðherranefndinni
fyrir nauðsynlegum undirstöðu-
gögnum fyrir starfsemi hennar,
væri ókleift að ná þeim
markmiðum, sem að er stefnt
með menningarmálasamningn-
um.
Aö endingu vil ég vekja athygli
á þeim „stefnumiðum fyrir nor-
rænt menningarmálasamstarf”,
sem ráðherranefndin samþykkti i
desember 1974 og Norðurlanda-
ráði er gerð grein fyrir i sérstöku
fylgiskjali með skýrslu ráðherra-
nefndarinnar. Með þessari leið-
söguáætlun eru markaðir megin-
drættir starfsins á næstu árum án
ákveðinna timamarka. Með stoð i
þeim greinimörkum og megin-
sjónarmiðum, sem þar er lýst, er
tryggður fastur grunnur undir
hina árlegu greinargerð fyrir
starfsáætlun nánustu framtiðar,
jafnframt þvi að unnt verður að
taka með skjótum hætti tillit til
nýrra samstarfshugmynda og
hnika til fyrri áætlunum. Mikil-
vægur liður i áframhaldandi
áætlanagerð verður sú þátttaka
af hálfu Norðurlandaráðs, sem
gert er ráð fyrir i mennir.gar-
málasamningnum.
Það bar til tiðinda á þingi Norðurlandaráðs, að Vilhjálmur Hjálmars-
son menntamálaráðherra mælti á islenzka tungu, er hann ávarffcði
þingheim. Mun það i fyrsta skipti, að islenzka er töluð af ræðustóli i
fundarsölum þess.
Ræða menntamálaráðherrans birtist hér i heild. í henni er glöggt
rakið, hversu menningarmálasamstarf Norðurlandaþjóðanna er nú
orðið viðamikið og hvaða vonir má gera sér um, að það verði meira og
nánara á komandi árum£fling þess er Islendingum ekki sizt mikilvæg
á timum, er áhrif úr annarri átt leita mjög á.