Tíminn - 13.05.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 13. mai 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
19
Komið ykkur inn. Hugið að Galt. Hringdu í lækni,
Preston. Teasle hljóp þvert yf ir herbergið — í átt að tal-
stöðinni. Hann var furðu sleginn, að Singleton hafði
reynt að skjóta. AAaðurinn var mjög duglegur á skrif-
stofunni og öll hans verk þaulhugsuð. En hann var
ókunnur slíkum vandamálum, þess vegna asnaðist hann
til að hlýða því fyrsta sem honum kom í hug.
Vænghurðin skall aftur, er Singleton hljóp inn i salinn.
Teasle þrýsti á rofa á talstöðinni og talaði í hljóðnemann.
Hendur hans skulf u, og hann var altekinn f lökurleika. —
Ward.... Hvar í f jandanum ertu, Ward? hrópaði hann í
hljóðnemann. En Ward svaraði ekki. Loksins náði hann
sambandi, sagði honum hvað gerzt hafði og skipulagði
viðbrögð sin. — Hann veit að Aðalvegurinn liggur út úr
bæn.um. Hann stefnir þangað — i vestur. Stöðvið hann.
Singleton kom hlaupandi yfir salinn til Teasle. — Galt.
Hann er dauður. Guð minn góður, iðrin á honum liggja
úti. Þessu bunaði hann út úr sér er hann kom.
Hann kyngdi og reyndi að ná andanum. — Preston er á
lífi. Ég veitekki hvað hann endist. BLÖÐIÐ FOSSAR OT
UAA AUGUN Á HONUAA.
— Hafðu stjórn á þér. Hringdu á sjúkrabíl. Hringdu á
lækni. Teasle þrýsti á annan rofa á talstöðinni. Hann réð
ekki við skjálftann í höndum sínum. Ógleðin magnaðist.
— Ríkislögreglan, sagði hann í hljóðnemann. — AAadison
kallar ríkislögregluna. Neyðartilfelli. Þeir svöruðu ekki.
Hannhrópaði. Úr tækinu heyrðist snarkandi mannsrödd:
— AAadison — ég er ekki heymarlaus. Hvað er um að
vera?
— Strokufangi. Einn lögreglumaður dauður. Teasle
sagði honum í skyndi, hvað gerzt hafði. Honum var illa
við að endurtaka það. Hann bað um vegatálma. Athygli
mannsins var þegar vakin. Singleton lagði frá sér
símann; Teasle hafði ekki einusinni heyrt hann hringja.
— Sjúkrabtllinn er að koma.
— Hringdu f yrir mig í Orval Kellerman. Teasle þrýsti á
annan rofa og sendi annan lögreglubíl á eftir „piltin-
um." Singleton var búinn að hringja. Hann var sem
betur fór búinn að jafna sig. — Ég náði sambandi við
konuna hans. Sjálf ur er hann úti. Hún vill ekki leyfa mér
að tala við hann.
Teasle tók við símanum. — Frú Kellerman — þetta er
Wilfred. Ég verðaðtala viðOrval ástundinni.
— Wilf red? Rödd hennar var skær og hvell. — Þetta var
óvænt. Við höfum ekki heyrt frá þér langa lengi. Hvers
vegna gat hún ekki talað hraðar? Við ætluðum að
heimsækja þig. Okkur þótti leitt að Anna skyldi fara f rá
þér.
Hann varð að grípa fram í fyrir henni. — Frú Keller-
men, ég verð að tal við Orval. Það er áreíðandi.
— Því miður, Wilfred. Hann er úti með hundana. Þú
veizt að ég get ekki truflað hann, þegar hann er með
hundana.
— Þú verður að fá hann í símann. Gerðu það fyrir mig.
Ég f ullvissa þig um, að þetta er mjög mikilvægt.
Hann heyrði andardrátt hennar. — Gottog vel. Ég skal
spyrja hann. En ég get ekki lofað þér því, að hann komi.
Þú veizt hvernig hann er þegar hann er að þjálfa
hundana.
Teasle heyrði, er hún lagði frá sér símtólið. Hann
kveikti sér i sígarettu í skyndi. Hann var búinn að vera
lögreglumaður í fimmtán ár. Aldrei hafði sloppið hjá
honum fangi og aldrei hafði neinn samstarfsmanna hans
látið líf ið við skyldustörf. Hann langaði mest til að berja
andliti Rambos við steinsteyptan vegg.
— Hvers vegna gerði hann þetta? sagði hann við Single-
ton. — Það er ekkert vit í þessu. Hann kemur hingað og
leitar uppi vandræðin. Á einu síðdegi breytist hann úr
f lakkara í morðingja. Er allt í lagi með þig? Seztu niður
og settu höfuðið milli hnjánna.
— Ég hef aldrei séð mann kviðristan fyrr, Jesús......
Við borðuðum saman hádegisverð.
— Það skiptir ekki máli hversu oft þú sér það. Þegar ég
var í Kóreu sá ég minnst fimmtán menn holrista með
byssustingjum. AAér varð alltaf óglatt. Ág þekkti einu
sinni mann í Louisville. Hann hafði verið tuttugu ár í lög-
reglunni. Eitt kvöldið fór hann á öldurhús, þar sem ein-
hver hafði verið stunginn með hníf. Bjórinn á gólfinu
var svo blóði blandaður, að hann fékk hjartaslag. Hann
reyndi að komast út í lögreglubílinn, en hann dó á
leiðinni."
Teasle heyrði að einhver tók upp símtólið á hinum enda
línunnar. Vonandi var það Orval.
— Hvað er um að vera Will? Þér er bezt að þetta sé eins
mikilvægt og þú lætur vera.
Það VAR hann. Orval hafði verið bezti vinur föður
hans. Teasle hafði farið með þeim á veiðar sérhvern
laugardag meðan veiðitíminn stóð yfir. Eftir að Teasle
missti föður sinn varð Orval honum sem annar faðir.
Orval var seztur í helgan stein. En hann var þó betur á
sig kominn en menn, sem voru hálf u yngri en hann. Blóð-
hundar hans voru bezt þjálf uðu hundarnir þar um slóðir.
— Orval, það strauk f rá okkur fangi. Það er enginn timi
í
j
•«
c
2
f
j
8
■v
&
5
o
Lm
Vissuð þið að
Gengis Khan drap
tiu milljón manns
meðan hann
lifði?
13. mai
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Jóna Rúna Kvaran les
„Disu ljósálf eftir Rothman
(2). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Fiskispjall kl.
10.05: Ásgeir Jakobsson
flytur þáttinn. Morgunpopp
kl. 10.25. Hljómplötusafnið
kl. 11.00: Endurt. þáttur
Gunnars Guðmundssonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Bak
við steininn’' eftir Cesar
MarValdimar Lárusson les
(5).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar
16.40 Litli barnatiminn Anna
Brynjúlfsdóttir stjórnar.
17.00 Lagið mitt Berglind
Bjarnadóttir stjórnar óska-
lagaþætti fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar-..
19.35 Sálin.i frumstæðum
trnarbrögðum Haraldur
Ólafsson lektor flytur siðara
erindi sitt. 20.00 Lög unga
fólksins Ragnheiður Drifa
Steinþórsdóttir kynnir.
20.50 Kennaramenntun Jónas
Pálsson skólastjóri flytur
þriðja erindi sitt um skóla-
mál.
21.20 Myndiistarþáttur i um-
sjá Magnúsar Tómassonar.
21.50 Tónleikakynning Gunnar
Guðmundsson segir frá tón-
leikum Sinfóniuhljómsveit-
ar íslands i vikunni.
22.00 Fréttir
22.15 Veðuríregnir Kvöldsag-
an: „Tyrkjaránið” eftir Jón
HelgasonHöfundur les (13).
22.35 Harmonikulög Þýzkir
harmonikuleikarar leika.
23.00 Á hljóðbcrgi Bob Hope i
Da Nang, Bien Hoa og Tan
Son Nhut.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
13. mai 1975
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Helen — nútimakona
Bresk framhaldsmynd. 12.
þáttur. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. Efni 11. þáttar: Helen
endurnýjar kunningskapinn
við Stephen. Frank kemst
aö þvi og getur ekki dulið af-
brýðisemi sina. Caroline
kemur aftur til sögunnar.
Hún hefur sagt skilið við
elskhuga sinn, og nú býður
hún Helenu og börnum
hennar að búa hjá sér.
Carole, sambýliskona
Franks, býðst atvinna i öðr-
um landshluta. Hún tekur
boðinu og vill fá Frank til að
flytjasí á brott með sér, en
hann neitar, og sambandi
þeirra virðist lokið.
21.30 Goethe Þýsk heimilda-
mynd um Johann Wolfgang
von Goethe og ævi hans. 1
myndinni er lesið úr verk-
um skáldsins og fluttir þætt-
ir Ur leikritum hans. Einnig
er fjallað um heimspeki-
stefnur, sem hann aðhylltist
lengur eða skemur og greint
frá visindaiðkunum hans og
uppgötvunum. Þýðandi
Auður Gestsdóttir. Þulir
Ingi Karl Jóhannesson og
Ellert Sigurbjörnsson.
22.10 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.40 dagskrárlok.