Tíminn - 21.05.1975, Qupperneq 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 21. mai 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
24
greinar, sem lágu á leið hans, grýttar hæðirnar og kletta-
veggina. Hann kom upp eina hæðina og við blöstu útlínur
vatnsturns, sem bar við himin. Niður milli trjánna hafði
verið höggvið ofan af þeim, til að háspennuvírarnir
slægjust ekki í trjátoppana. Þar sem leiðin var óhindruð
var malarsandur og grjótruðningur. Hann skrönglaðist
upp — með harmkvælum. Yfir höfði hans voru há-
spennuvírarnir. Hann varð að komast upp á hæstu brún
áður en myrkrið skall á. Varð að sjá hvað var hinum
megin hæðarinnar og athuga hvert halda skyldi.
Á hæðarbrúninni, neðan við tankinn var lof tið svalt og
tært. Síðustu geislar sólarinnar féllu á hann áður en hún
hné til viðar, langt í f jarska — á vinstri hönd honum.
Hann staldraði við og teygaði í sig siðustu hitageislana.
Hann naut þess að f inna mjúkan jarðveginn undir fótum
sér. Næsta hæðarbrún var böðuð sólarbirtunni en hæðin
var í skugga og almyrkt þegar neðar dró. Þangað stef ndi
hann. Burt frá mjúkum jarðvegi hæðarbrúnarinnar nið-
ur í enn meiri malarsand og grjótruðning, niður í dal-
inn. Ef hann fyndi ekki það sem hann leitaði að þar —
yrði hann að taka á sig krók og fara aftur upp á við, til
vinstri í átt að vatnsfallinu, sem hann hafði komið auga
á. Síðan yrði hann að fylgja farveginum. Það yrði auð-
veldara að fara þá leiðina, meðfram bakkanum, og það
sem hann leitaði var svo til örugglega við vatnsfall.
Hann hentist niður malarsandinn í átt að dalnum, rann
og kollsteyptist. Saltur sveitinn jók sviðann í sárum
hans. Þegar hann kom niður tók litlu betra við. Mýrlendi
lá yfir dalinn þveran. Fen og dökkt vatn. En jarðvegur-
inn var að minnsta kosti mjúkur aftur og hann krækti
fyrir mýrina til vinstri þar til hann kom að vatnsfallinu
sem lagði til vatnið í hana. Hann hljóp ekki lengur, en
gekk rösklega. Honum taldist svo til, að hann hefði lagt
fimm mílur að baki, og nú var hann þreyttur. Hann var
enn ekki búinn að ná fullum kröftum frá því hann var
fangi í striðinu og ekki enn búinn að jafna sig eftir
spítalavistina. Samt sem áður voru honum í fersku
minni öll brögð sjálfsbjargarhvatarinnar. Þótt hann
kæmist ekki mikið lengra án vandræða hafði hann samt
sem áður rúmar fimm milur að baki.
Vatnsfallið hlykkjaðist áfram og breytti svo um
stefnu. Hann fylgdi því. Hann vissi, að bráðlega yrðu
sendir hundar á slóð hans. Þó reyndi hann ekki að fela
slóð sína með því að vaða vatnið. Það myndi aðeins tef ja
för hans og væri ekki þess virði. Auk þess hlaut að koma
að því, að hann þyrfti að fara upp úr vatninu á annan
hvorn bakkann. Maðurinn sem stjórnaði hundunum
myndi aðeins skipta hundahópnum í tvo hópa, sem færu
hvor með sínum bakkanum þar til þeir fyndu aftur slóð-
ina. Þá hefði hann eytt tíma sínum til einskis. Það
dimmdi hraðar en hann bjóst við. Hann klifraði upp
hæðina í síðasta dagsgrámanum. Svo hvarf skógurinn og
runnaþykknið í skugga. Innan skamms sáust aðeins út-
línur stærstu trjáa og grjótruðninga. Síðan hvarf allt í
myrkri. Hann heyrði vatnsniðinn, skordýrasuðið, söng
næturf uglanna og þrusk f rá þeim dýrum, sem eru á ferli
að nóttu til. Svo fór hann að kalla. Það var öruggt, að
þeir sem hann leitaði myndu ekki gefa til kynna nærveru
sína, ef hann léti sér nægja að ganga meðf ram vatnsfar-
veginum og kalla á einhvern. Hann varð að gera köll sín
forvitnileg. Hann varð að vekja hjá þeim löngun til að sjá
hver fjandinn væri á ferðinni. Hann kallaði á viet-
nömsku, þeirri litlu frönsku, sem hann hafði lært í
menntaskóla, hermdi eftir suðurríkjamálýzku, vestur-
ríkjamállýzku og málhreim svertingja. Hann tvinnaði
saman níðingslegustu klúryrði sem hann gat sært fram..
Vatnsfallið rann í svolítinn hyl í hæðarslakkanum. Þar
var engan að sjá. Hann gekk upp með farveginum og
kom að öðrum hyl. Enn sá hann engan. Hann hélt áf ram
að kalla. Nú varð hann að finna einhvern fljótlega. Að
örum kosti yrði hann kominn svo hátt upp, að hann kæmi
að uppsprettu vatnsfallsins. Þá yrði hann stefnulaus.
Þannig fór. Sviti hans kólnaði í kvöldsvalanum. Hann
kom að þeim stað, þar sem vatnsfallið átti upptök sín á
blautlendu svæði. Hann heyrði vatnsniðinn frá vatnsupp-
sprettunni. Hann hrópaði enn einu sinni og lét klúryrði
sín bergmála i myrkvuðum hæðunum. Svo beið hann um
stund en lagði svo af stað upp í móti. Honum taldist svo
til, að héldi hann áf ram upp hæðirnar hlyti hann að koma
að öðru vatnsfalli. Þá yrði hann að fylgja farvegi þess.
Hann var kominn um þrjátíu fet fram hjá vatnsfallinu
þegar tveir sterkir geislar f rá vasaljósum féllu á hann —
frá vinstri og hægri. Hann snöggstanzaði og var graf-
kyrr. Undir venjulegum kringumstæðum hefði hann
stokkið burt frá geisla vasaljóssins, og skriðið inn í
myrkið umhverfis. Líf manns var í húfi, þegar hann
eigraði um hæðirnar að næturlagi og sletti sér fram í
hluti, sem komu honum ekki við. Margur maðurinn hafði
verið skotinn í höfuðið fyrir það sama og hann var að
gera nú. Þeir höfðu verið huslaðir í grunna gröf og villi-
dýr næturinnar fengu þar auðunna bráð.
Ljósgeislarnir lýstu beint á hann. Annar á andlit hans
Stór tyrknesk borg
hverfur tvisvar
sinnum og
breytistlrústir.
Aö lokum stöövast
timavélin, stillirinn hættir
aö snúast...i/Ennþá I
Tyrklandi
Vicki....
Þar var ein borg ^Trojuborg! Viö
eyöilögö og endur- komum inn I
byggð þrisvar. y^Trojustríðið:
] yélsku Drekv,
'\jassf
f0- mfeb.-ÞlnDiana\
, ég vona bara aö .
hann fái þetta bréf.,„
Seinna 1 |/ Bréf fyrirwálker I pósthólf fHeyröu, ég hef
Bangalla....:\^sjö. ^aldrei séö hann, hvei
m,,,,.—\r\r~ --^ '----------l.er þetta?
Miðvíkudagur 21. maí
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar
14.30 Miödegissagan: ,,Á
vigslóð” eftir James Hilton
Axel Thorsteinson les þýð-
ingu sina (2).
15.00 Miðdegistónleikar
Casenti hljóðfæraflokkurinn
í Vancouver leikur Svitu
fyrir klarinettu fiðlu og
pianó eftir Darius Mil-
haud/Leontyne Price syng-
ur þætti úr óperunni
„Antonius og Kleopatra”
op. 40 eftir Samuel Barber.
Nýja filharmoniusveitin i
Lundunum leikur með:
Thomas Schippers stjórnar.
Jaqueline Du Pré og
Konunglega filharmoniu-
sveitin i Lundúnum leika
Sellókonsert eftir Frederick
Delius: Sir Malcolm
Sargent stjórnar.
16.00 Fréttir Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17..00 Lagiö mitt Berglind
Bjarnadóttir stjórnar óska-
lagaþætti fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Smásaga: „Skjóliö”
eftir Gunnar M. Magnúss
Höfundur les.
17.50 Síödegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins. .
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurtog svaraöErlingur
Sigurðarson leitar svara við
spurningum hlustenda.
20.00 Einsöngur I útvarpssal:
Elisabet Erlingsdóttir syng-
urlög eftir Karl O. Runólfs-
son og Pál ísólfsson: Guð-
rún Kristinsdóttir leikur á
pianó.
20.20 Sumarvaka a. Hvltár-
bakkaskólinn Magnús
Sveinsson kennari les
nokkra kafla úr nýlegri bók
sinni, einkum greinar og
ljóö eftir nemendur skólans.
b. Holtagróöur Baldur
Pálmason les nokkur kvæði
eftir Maríus Ólafsson. c.
Frá bernskustöövum Ágúst
Vígfússon kennari flytur
frásögn. d. Kórsöngur
Kirkjukór Húsavíkur syng-
ur lög eftir Dvorák, Stein-
grlm Sigfússon og Pálmar
Þ. Eyjólfsson. Ladislav
Vojta stjórnar. Steingrímur
Sigfússon annast orgel-
undirleik.
21.30 Útvarpssagan:
„Móöirin” eftir Maxlm
Gorkí Halldór Stefánsson
þýddi. Siguröur Skúlason
leikari byrjar lesturinn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöld-
sagan ,,Tyrkjarániö” eftir
Jón Heigason Hofundur les
(16).
22.35 Nútimatónlist Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.20 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Miðvikudagur 21. mai
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Umhverfis jöröina á 80
dögum Breskur teikni-
myndaflokkur. 13. þáttur.
Þýöandi Ellert Sigurbjörns-
son.
21.05 Stjórnmáiaumræöur
Umræðuþáttur i sjónvarps-
sal með þátttöku formanna
allra stjórnmálaflokkanna.
Umræöunum stýrir Eiður
Guðnason. Bein útsending.
22.05 Marinella Grisk söng-
kona syngur lög frá landi
slnu. Þátturinn er tekinn
upp á skemmtistaö i Aþenu,
þar sem Marinella vinnur,
og er einnig skyggnst að
tjaldabaki, þegar hún er aö
búa sig undir að skemmta
gestum. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
22.55 Dagskrárlok.