Tíminn - 31.05.1975, Síða 1

Tíminn - 31.05.1975, Síða 1
TARPAULIN RISSKEMMUR HF HÖRÐUR 6UNNARSS0N 'SKULAÍUNI ó SIMI al.V111 íí-ttic' Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif Landvélarhf MÁLINU „HALDID RÓLEGU" Gsal-Reykjavík — A fundi leið- toga Atiantshafsbandalagsins i Brussel siðustu tvo daga hafa Geir Haligrimsson forsætisráð- herra og Einar Agústsson utan- rikisráðherra átt viðræður viö fjölda ieiðtoga NATO-rikja, og hafa einkaviðræður þeirra eink- um snúizt um landhelgismálin, þar sem þeir skýrðu m.a. frá þeirri ákvörðun tslendinga að færa landhelgina út I 200 milur á þessu ári. I fyrradag áttu forsætisráð- herra og utanrikisráðherra viðræður við James Callaghan, utanrikisráðherra Bretlands, og i gær ræddu þeir við Helmut Sch- midt, kanslara V-Þýzkalands, og Genscher, utanrikisráðherra V- Þýzkakands. Skömmu áður en leiðtogafundinum lauk i gær, áttu islenzku fulltrúarnir á fundinum viöræður við Ford Bandarikjafor- seta og Kissinger utanrikisráð- herra. Auk þessa áttu þeir sam- eiginlega og hvor i sinu lagi við- ræður við fulltrúa Norðmanna, BRETAR OG ÞJODVERJAR ÓSKUÐU EFTIR FREKARI VIDRÆDUM VID OKKUR UM LANDHELGISMÁLID Dana og Kanadamanna, auk ann- arra fulltrúa á fundinum. Timinn hafði i gær tal af Einari Ágústssyni utanrikisráðherra og Geir Hallgrfmssyni forsætisráð- herra, skömmu eftir að leiðtoga- fundinum lauk i Brussel i gærdag. — Það kom þeim ekki á óvart, að við hugðumst stækka land- helgina út i 200 milur á þessu ári, sagði Einar Ágústsson um við- brögð áðurnefndra þjóðarleið- toga. — Hins vegar tjáðu þeir sig litið um málið, en við töldum rétt að nota þetta tækifæri til að greina þessum mönnum frá fyrir- ætlunum okkar hvað landhelgis- málin áhrærir. James Callaghan, brezki utanrikisráðherrann, og Helmut Schmidt kanslari óskuðu báðir eftir frekari viðræðum milli rikisstjórna landanna siðar, varðandi útfærsluna. — Við greindum þeim aðeins frá ákvörðun okkar varðandi út- færsluna, og hvernig við myndum standa að henni. önnur atriði komu ekki inn i þær umræður sagði Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra. — Út af fyrir sig var máli okkar tekið með skilningi. án þess að menn gæfu skuldbind- andi yfirlýsingar i þeim efnum. Geir Hallgrímsson kvað við- ræður þeirra við Bandarikjafor- seta og utanrikisráðherra Banda- rikjanna hafa snúizt um fiskveiði- málið, svo og varnarmálin, bæði vamarsamstarfið milli landanna og innan Atlantshafsbandalags- ins. — í viðræðum okkar við Bandarikjamenn um fiskveiði- málið, svo og varnarmálin, bæði vamarsamstarfið milli landanna og innan Atlantshafsbandalags- ins. — 1 viöræðum okkar við Bandarikjamenn um fiskveiði- málin kom fram, að þeir leggja rika áherzlu á, að hafréttarráð- stefnunni verði lokið sem allra fyrst. 1 viðræðum okkar um varn- armálin kom fram, að engin sér- stök vandamál eru milli þjóðanna hvað varnarsamstarfið áhrærir. — 1 þvi sambandi væri unnið samkvæmt þvi sem ráð væri fyrir gert i varnarsamningnum frá s.l. hausti. Einar Ágústsson utanrikisráð- herra er væntanlegur heim i dag, en Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra er væntanlegur heim i nótt. \ —fj—Reykjavik. „Það má segja það, að það er fullur vilji fyrir hendi til að ræða málið,” sagði Gunnar Thoroddsen, félagsmála- ráðherra, i viðtali við Tlmann I gærkvöldi, þegar blaðið spurðist fyrir um viðbrögð rikisstjórnarinnar við þvi að starfsmenn rikis- verksmiðjanna tóku ekki til starfa I gær þrátt fyrir bráðabirgða- lög rikisstjórnainnar I fyrradag.” Ég vona i lengstu lög að menn hlýði lögunum og hefji vinnu á nýjan leik,” sagði ráðherrann. í sama streng tók Halldór E. Sigurðsson, ráðherra, i viðtali við Tímann. „Ég trúi þvi ekki að menn átti sig ekki á hlutunum og sjái að það er ráðlegast fyrir þá að halda lögin,” sagði ráðherr- ann. Hvorugur vildi tjá sig ákveðið um viðbrögö rikisstjórnar- innar, en i gærkvöldi var helzt á mönnum að heyra, að málinu „yrði haldið rólegu” um helgina meðan kannað er, hvort ein- hverjar viðræður geta átt sér stað. Viðskipta- [)® róðherra um ræðu sína í Genf: Tilgangurinn var að vekja athygli ó vanda- mólinu en ekki setja fram hótanir um að rjúfa samstarfið GULLBRÚÐKAUP HERMANNS JÓNASSONAR OG VIGDÍSAR STEINGRÍMS- DÓTTUR I gær, 30. mai áttu gullbrúð- kaup þau hjón, sem á þriðja tug ára skipuðu lengst það sæti hérlendis, er virðulegast var og mestu þykir varða, hvemig skipað er — Vigdis Steingrimsdóttir og Hermann Jónasson, fyrrverandi for- sætisráðherra. Hermann var forsætisráð- herra þeirrar stjórnar, sem fékk það hlutverk árið 1934 að takast á við geigvænlegar af- leiöingar kreppunnar og sneri vörn i sókn, og hann var enn forsætisráðherra, er þjóðin varöað bregðast við margvis- legum vandkvæðum, sem fylgdu heimsstyrjöldinni og hernáminu árið 1940. Meðal pólitiskra afreksverka Her- manns verður þess jafnan get- ið, að hann kom á afurðasölu- lögunum, sem staðizt hafa timans tönn fram á þennan dag, og visaði á bug kröfu nasistastjórnarinnar þýzku Vigdis Steingrlmsdóttir og Her- mann Jónasson I lýðveldisveizl- unni að Hótel Borg árið 1944. um aðstöðu hér á landi, nokkr- um misserum áður en heims- styrjöldin hófst. Þótt ekki kæmi, annað til en þetta tvennt, má hann heita bjarg- vættur þjóðarinnar. Þótt hljóðara hafi verið um konu hans, Vigdisi Stein- grimsdóttur, hefur hún ekki siður gegnt hlutverki sinu af röggsemd og þreki, jafnt á þeim árum, er mestur styr stóð um mann hennar á stjórnmálasviðinu og á henni hvildi sú skylda að koma fram við hlið' hans utan lands og innan* sem og siðar. Timinn sendir þeim hjónum alúðarkveðjur, og mun fjöldi fólks I landinu taka þar undir. .......iiiii.... I LEIÐTOGA- 1 FUNDURINN I TALINN HAFA I HEPPNAZT I AAJÖG VEL I ------------------------------>Q miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiin Myndin hér fyrir ofan sýnir skólapilta taka áburð aftur af bíl við Aburðarverksmiðjuna I gærmorgun. Timamynd G.E.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.