Tíminn - 03.07.1975, Síða 5

Tíminn - 03.07.1975, Síða 5
Fimmtudafiur 3. júli 1975. TÍMINN 5 Sumarleyfi sjónvarpsins Hvaö sem liður skoðunum manna á ágæti islenzka sjónvarpsins, þá er það staðreynd, að sjónvarpið er orðið talsvert rikur þáttur i lifi almennings. Margir sakna þess vegna sjónvarpsins i júlimánuði, meðan sumarleyfi sjónvarpsmanna standa yfir, þótt þeir séu Hka margir, sem fagna lokun þess. Sennilega þekkist það hvergi á byggðu bóli, þar sem sjónvarp er á annað borð, að þessi fjölmiðill taki sér fri um mánaðarskeið ár hvert. Út- lendingum, sem hingað koma, finnst þetta mjög einkenni- legt, og telja, að slikt yrði aldrei liðið I heimalöndum þeirra, enda þótt alltaf séu einhverjir, sem eru á móti sjónvarpi. Nægir ekki óratugur? Það mætti velvild og skilningi af hálfu aimennings i upphafi, þegar sjónvarpið hóf göngu sina fyrir áratug eða svo, að við ýmsa byrjunar- örðugleika væri að etja. Þess vegna var það látið gott heita, að sjónvarpið lokaði um mánaðartima vegna sumar- leyfa. En nú verður að telja, að sjónvarpið hafi slitið barns- skónum, og áratugs aðlögunartimi hefði átt að nægja til að komast yfir erfiðasta hjallann. Þvi verður ekki trúað, að sjónvarpið geti ekki, eins og aðrar rikis- stofnanir, komið málum sin- um þannig fyrir, að starfs- menn þess taki sumarleyfi á mismunandi tima. Núverandi fyrirkomulag er fáránlegt, og kemur ekki nema að litlu leyti fjárhag við. Stöðnuð stofnun? Frá þvi að Islenzka sjðnvarpið hóf göngu sina, er vart hægt að segja, að neinar stökkbreytingar til hins betra hafi orðið. Það er þvi ekki laust við, að ýmsum þyki is- lenzka sjónvarpið vera stöðnuð stofnun. Fréttatiminn erágætt dæmi um það.Fréttir sjónvarpsins eru vafalaust það efni, sem mest er fylgzt með. Hingað til hefur sjónvarpið látið sér nægja að vera með einn fréttatima, sennilega vegna þess, að þannig var það I byrjun. 1 sjónvarpsstöðvum i öllum ná- lægum iöndum er hins vegar sá háttur hafður á, að frétta- timarnir eru tveir eða fleiri. tslenzka sjónvarpið gæti auðveldiega haft einn frétta- manna á kvöldvakt, sem læsi nýjustu fréttir I dagskrárlok. Ekkert myndaefni þyrfti að vera I slikum fréttaþætti. Kostnaðarauki við slika þjón- ustu er hverfandi litiil. Engin samkeppni Það er e.t.v. vegna þess, að sjónvarpið telur sig ekki hafa neina samkeppni, að litt er hugsað um að bæta þjón- ustuna við sjónvarpsneytend- ur. Hijóðvarpsdeild Rikisút- varpsins telur sig hins vegar hafa samkeppni frá sjónvarpinu. Af þvi hefur leitt, að útvarpið hefur stórbætt þjónustu sina, ekki einungis i fréttafiutningi, heldur I dag- skrárgerð almennt. Það skal viðurkennt, að erfitt eraðstanda svo að dag- skrárgerð I sjónvarpi að öilum liki. Málið snýst heldur ekki einvörðungu um það, heldur miklu fremur um hitt, að sjön- varpsmenn hafi til að bera einhverja sjálfsgagnrýni og geri sér far um að fylgjast með nýjungum erlendis. Erfiður fjárhagur stofnunar- innar setur starfseminni viss- ar skorður, en þó er Ijóst, að mörgu má breyta, án þess að verulegur kostnaðarauki verði af. -a.þ. Sjómannafélag Reykjavíkur Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavikur verður haldinn laugardaginn 5. júli í Lindarbæ og hefst kl. 14. FUNDAREFNI: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Félagar fjölmennið á fundinn og sýnið félagsskirteini við innganginn. Stjórnin. Jörð óskast sem fyrst Ungur fjárbóndi óskar eftir jörð til kaups. Er jarðlaus á komandi hausti. Æskilegt að jörðin fáist á hagstæðum kjörum, leiga gæti komið til greina. Tilboð sendist afgreiðslu Timans fyrir 20. júli merkt ,,Áhugi 1598”. Ferð d sögu- slóðir Laxdælu um helgina Otivist ráðgerir ferð á sögu- slóðir Laxdælu um helgina. Lagt verður af stað á laugardags- morgun 5.7. kl. 8 og komið heim á sunnudagskvöldi. Gist verður I svef npokaplássi á Laugum. Leiðsögumaður I ferðinni verður Einar Kristjánsson skóla- stjóri, en hann er meðal fróðustu manna um Dalina og sögusviö Laxdælu. Eyjólfur Halldórsson, þrautreyndur ferðamaöur og Dalamaður, verður Einari til að- stoðar. önnur helgarferð Otivistar verður á Goðaland (Bása) og verður gist þar I tjöldum og gengið um nágrennið undir leiðsögn Jóns I. Bjarnasonar. Á laugardag og sunnudag veröa svo eftirmiðdagsgöngur um Katlagil — Seljadal og Trölla- dyngju — Grænud>ngju. Brottför i þær ferðir er kl. 13. Auglýsilf iTÍtnanum Sólaóir hjólbaróar til sölu á ýmsar stærðir fólksbíla. Mjög hagstætt verð. Full óbyrgð tekin ó sólningunni. Sendum um allt land gegn póstkröfu ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 REYKJAVÍK, SPERRY=^=I\EW HOLLAIND Baggafæri og fyrir rafmótor NEW HOLLAND baggafæribönd má koma fyrir hvort sem er i nýjum eða gömlum hlöðum. Vegna einfaldrar byggingar færi- bandanna eru þau létt og lipur i meðförum. Lengd færibandanna er eftir þörfum hvers og eins og má lengja þau um 2 og/eða 3 metra í senn. Hafið samband við sölumann. Til afgreiðslu nú þegar Nónari upplýsingar hjó sölumanni G/obusa LÁGMÚLI 5, SlMI 81555 Hússtjórnarskólinn og Gagnfræðaskólinn Blöndúósi auglýsa: Vegna nýsamþykktra laga um hússtjórn- arskóla hafa Hússtjórnarskólinn og Gagn- fræðaskólinn á Blönduósi ákveðið sam- starf næsta vetur. Nemendur Hússtjórn- arskólans geta fengið kennslu i bóklegum fögum þriðja og fjórða bekkjar gagn- fræðaskóla og tekið gagnfræðapróf og nemendur Gangfræðaskólans geta tekið hússtjórnarfög sem valgreinar. í Hús- stjórnarskólanum verður heimavist fyrir stúlkur og mötuneyti fyrir þær og aðra nemendur er þess óska. Nánari upplýsing- ar veitir skólastjóri Hússtjórnarskólans frú Aðalbjörg Ingvarsdóttir i sima 95-4239 og skólastjóri Gagnfræðaskólans Hr. Bergur Felixson i sima 13049 i Reykjavik. Umsóknir um skólavist sendist skólastjór- um skólanna á Blönduósi fyrir 25. júli. Skólanefndir. Húsbyggjendur ef ykkur vantar smið út á land, hringið þá i sima 3-51-67. Kennarar Kennara vantar að barnaskóla Þorláks- hafnar. Húsnæði fyrir hendi. Nánari upp- lýsingar gefa formaður skólanefndar i sima 99-3632 og skólastjóri i sima 99-3638. Skólanefnd.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.