Tíminn - 03.07.1975, Blaðsíða 5
Fimmtudafiur 3. júli 1975.
TÍMINN
5
Sumarleyfi
sjónvarpsins
Hvaö sem liður skoðunum
manna á ágæti islenzka
sjónvarpsins, þá er það
staðreynd, að sjónvarpið er
orðið talsvert rikur þáttur i lifi
almennings. Margir sakna
þess vegna sjónvarpsins i
júlimánuði, meðan sumarleyfi
sjónvarpsmanna standa yfir,
þótt þeir séu Hka margir, sem
fagna lokun þess.
Sennilega þekkist það
hvergi á byggðu bóli, þar sem
sjónvarp er á annað borð, að
þessi fjölmiðill taki sér fri um
mánaðarskeið ár hvert. Út-
lendingum, sem hingað koma,
finnst þetta mjög einkenni-
legt, og telja, að slikt yrði
aldrei liðið I heimalöndum
þeirra, enda þótt alltaf séu
einhverjir, sem eru á móti
sjónvarpi.
Nægir ekki
óratugur?
Það mætti velvild og
skilningi af hálfu aimennings i
upphafi, þegar sjónvarpið hóf
göngu sina fyrir áratug eða
svo, að við ýmsa byrjunar-
örðugleika væri að etja. Þess
vegna var það látið gott heita,
að sjónvarpið lokaði um
mánaðartima vegna sumar-
leyfa. En nú verður að telja,
að sjónvarpið hafi slitið barns-
skónum, og áratugs
aðlögunartimi hefði átt að
nægja til að komast yfir
erfiðasta hjallann. Þvi verður
ekki trúað, að sjónvarpið geti
ekki, eins og aðrar rikis-
stofnanir, komið málum sin-
um þannig fyrir, að starfs-
menn þess taki sumarleyfi á
mismunandi tima. Núverandi
fyrirkomulag er fáránlegt, og
kemur ekki nema að litlu leyti
fjárhag við.
Stöðnuð stofnun?
Frá þvi að Islenzka
sjðnvarpið hóf göngu sina, er
vart hægt að segja, að neinar
stökkbreytingar til hins betra
hafi orðið. Það er þvi ekki
laust við, að ýmsum þyki is-
lenzka sjónvarpið vera
stöðnuð stofnun. Fréttatiminn
erágætt dæmi um það.Fréttir
sjónvarpsins eru vafalaust
það efni, sem mest er fylgzt
með. Hingað til hefur
sjónvarpið látið sér nægja að
vera með einn fréttatima,
sennilega vegna þess, að
þannig var það I byrjun. 1
sjónvarpsstöðvum i öllum ná-
lægum iöndum er hins vegar
sá háttur hafður á, að frétta-
timarnir eru tveir eða fleiri.
tslenzka sjónvarpið gæti
auðveldiega haft einn frétta-
manna á kvöldvakt, sem læsi
nýjustu fréttir I dagskrárlok.
Ekkert myndaefni þyrfti að
vera I slikum fréttaþætti.
Kostnaðarauki við slika þjón-
ustu er hverfandi litiil.
Engin samkeppni
Það er e.t.v. vegna þess, að
sjónvarpið telur sig ekki hafa
neina samkeppni, að litt er
hugsað um að bæta þjón-
ustuna við sjónvarpsneytend-
ur. Hijóðvarpsdeild Rikisút-
varpsins telur sig hins vegar
hafa samkeppni frá
sjónvarpinu. Af þvi hefur leitt,
að útvarpið hefur stórbætt
þjónustu sina, ekki einungis i
fréttafiutningi, heldur I dag-
skrárgerð almennt.
Það skal viðurkennt, að
erfitt eraðstanda svo að dag-
skrárgerð I sjónvarpi að öilum
liki. Málið snýst heldur ekki
einvörðungu um það, heldur
miklu fremur um hitt, að sjön-
varpsmenn hafi til að bera
einhverja sjálfsgagnrýni og
geri sér far um að fylgjast
með nýjungum erlendis.
Erfiður fjárhagur stofnunar-
innar setur starfseminni viss-
ar skorður, en þó er Ijóst, að
mörgu má breyta, án þess að
verulegur kostnaðarauki verði
af.
-a.þ.
Sjómannafélag
Reykjavíkur
Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavikur
verður haldinn laugardaginn 5. júli í
Lindarbæ og hefst kl. 14.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Félagar fjölmennið á fundinn og sýnið félagsskirteini við
innganginn.
Stjórnin.
Jörð óskast sem fyrst
Ungur fjárbóndi óskar eftir jörð til kaups.
Er jarðlaus á komandi hausti. Æskilegt að
jörðin fáist á hagstæðum kjörum, leiga
gæti komið til greina.
Tilboð sendist afgreiðslu Timans fyrir 20.
júli merkt ,,Áhugi 1598”.
Ferð d sögu-
slóðir Laxdælu
um helgina
Otivist ráðgerir ferð á sögu-
slóðir Laxdælu um helgina. Lagt
verður af stað á laugardags-
morgun 5.7. kl. 8 og komið heim á
sunnudagskvöldi. Gist verður I
svef npokaplássi á Laugum.
Leiðsögumaður I ferðinni
verður Einar Kristjánsson skóla-
stjóri, en hann er meðal fróðustu
manna um Dalina og sögusviö
Laxdælu. Eyjólfur Halldórsson,
þrautreyndur ferðamaöur og
Dalamaður, verður Einari til að-
stoðar.
önnur helgarferð Otivistar
verður á Goðaland (Bása) og
verður gist þar I tjöldum og
gengið um nágrennið undir
leiðsögn Jóns I. Bjarnasonar.
Á laugardag og sunnudag veröa
svo eftirmiðdagsgöngur um
Katlagil — Seljadal og Trölla-
dyngju — Grænud>ngju. Brottför i
þær ferðir er kl. 13.
Auglýsilf
iTÍtnanum
Sólaóir
hjólbaróar
til sölu á ýmsar stærðir fólksbíla.
Mjög hagstætt verð.
Full óbyrgð tekin ó sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu
ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 REYKJAVÍK,
SPERRY=^=I\EW HOLLAIND
Baggafæri
og fyrir rafmótor
NEW HOLLAND baggafæribönd má
koma fyrir hvort sem er i nýjum eða
gömlum hlöðum.
Vegna einfaldrar byggingar færi-
bandanna eru þau létt og lipur i
meðförum.
Lengd færibandanna er eftir þörfum hvers
og eins og má lengja þau um 2 og/eða 3
metra í senn.
Hafið samband við sölumann.
Til afgreiðslu nú þegar
Nónari upplýsingar hjó sölumanni
G/obusa
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Hússtjórnarskólinn
og Gagnfræðaskólinn
Blöndúósi auglýsa:
Vegna nýsamþykktra laga um hússtjórn-
arskóla hafa Hússtjórnarskólinn og Gagn-
fræðaskólinn á Blönduósi ákveðið sam-
starf næsta vetur. Nemendur Hússtjórn-
arskólans geta fengið kennslu i bóklegum
fögum þriðja og fjórða bekkjar gagn-
fræðaskóla og tekið gagnfræðapróf og
nemendur Gangfræðaskólans geta tekið
hússtjórnarfög sem valgreinar. í Hús-
stjórnarskólanum verður heimavist fyrir
stúlkur og mötuneyti fyrir þær og aðra
nemendur er þess óska. Nánari upplýsing-
ar veitir skólastjóri Hússtjórnarskólans
frú Aðalbjörg Ingvarsdóttir i sima 95-4239
og skólastjóri Gagnfræðaskólans Hr.
Bergur Felixson i sima 13049 i Reykjavik.
Umsóknir um skólavist sendist skólastjór-
um skólanna á Blönduósi fyrir 25. júli.
Skólanefndir.
Húsbyggjendur
ef ykkur vantar smið út á land, hringið þá
i sima 3-51-67.
Kennarar
Kennara vantar að barnaskóla Þorláks-
hafnar. Húsnæði fyrir hendi. Nánari upp-
lýsingar gefa formaður skólanefndar i
sima 99-3632 og skólastjóri i sima 99-3638.
Skólanefnd.