Tíminn - 18.07.1975, Qupperneq 5
Föstudagur 18. júli 1975.
TÍMINN
5
Fataverzlun fyrir
DÖMUR & HERRA
OPIÐ TIL KL.10 I KVOLD
GLUGGAVIFTA
Aðalfundur
Rithöfunda-
sambands
íslands
VS-Reykjavik — Aðalfundur Rit-
höfundasambands tslands var
haldinn i Norræna húsinu 25. mai
s.l. og framhaldsaðalfundur á
sama stað mánuði siðar, eða 26.
jjúni. Formaður Rithöfundasam-
bandsins, Sigurður A. Magnús-
son, rakti i itarlegri skýrslu það
helztSt^sem gerzthafði siðan sam-
bandið var stofnað á Rithöfunda-
þingi i mai 1974. Gat hann m.a.
veglegrar bókagjafar sænskra
rithöfunda og höfðinglegrar gjaf-
ar erfingja Guðmundar Böðvars-
sonar skálds og Ingibjargar
Sigurðardóttur konu hans, en frá
þeirri veglegu gjöf hefur áður
verið sagt i blöðum.
Fyrrverandi starfsmaður Rit-
höfundasambandsins, Asi i Bæ,
gerði grein fyrir fjárreiðum sam-
bandsins og reikningum liðins
árs. Kom þar fram, að fjárhagur-
inn er ákaflega bágborinn vegna
mikilla og vaxandi umsvifa.
Úr stjórn gengu Ingimar Er-
lendur Sigurðsson og Vésteinn
Lúðviksson, og gaf Vésteinn ekki
kost á sér til endurkjörs. Kosnir
voru Ingimar Erlendur Sigurðs-
son og Kristinn Reyr. Fyrir voru i
stjórninni Sigurður A. Magnús-
son, Stefárt Júliusson og ólafur
Haukur Simonarson. Úr vara-
stjórn gekk Ása Sólveig, og var
hún endurkjörin, en fyririvara-
stjórn var Jenna Jensdóttir.
■ t
Indriði G. Þorsteinsson gerði
stutta grein fyrir störfum Rithöf-
undaráðs, en að lokum var fjallað
um önnur mál, og komu þá fram
tillögur um starfshópa 'til að
annast ýmsa þætti hinna marg-
þættu- verkefna sambandsins. 1
starfshóp höfunda barna- og ung-
lingabóka til að annast samskipti
við Norðurlönd og undirbúa nor-
ræn barnabókaþing voru valin
Jenna Jensdóttir, Vilborg Dag-
bjartsdóttir, Herdis Egilsdóttir,
Anna Kristin Brynjúlfsdóttir og
Ingólfur Jónsson frá Prestbakka.
I starfshóp um kjaramál voru
valdir Björn Bjarman, Indriði G.
Þorsteinsson og Þorgeir Þor-
geirsson. 1 starfshóp um hús-
næðismál sambandsins voru
valdir Jónas Guðmundsson,
Kristinn Reyr og úlfar Þormóðs-
son.
BAÐVIFTA
Fimmtudaginn 17. júll athugaði flugvél Landhelgisgæzlunnar, TF-
SÝR, hafisinn fyrir vestanverðu Norðurlandi og Vestfjörðum.
Við Horn var isinn um 12 sml. undan landi, og liggur ísjaðarinn þaðan
inn með Hornströndum um 10-15 sml. undan landi, allt að Veiðileysu-
firði. Einstakir jakar og fshrafl ná þó inn undir Kaldbaksvfk.
ísjaðarinn liggur sfðan f NA, um 8 sml. N-af Rifsnesi á Skaga, og
þaðan um 16 sml. V-af Kolbeinsey.
Utan meginfssins er fárra sjómilna breitt belti, af einstökum smá-
jökum og ishrafli.
Undan Kögri er isröndin um 8 sml. undan landi, en jakahrafl nær, og
liggur þaðan þvi sem næst VSV.
Um 150 feta hár borgarisjaki er á 66 gr. 40 N og 25 gr. 49 v.
Suðurlands
andsbraut 8 • Reykjavik • Simi 8-46-70
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
e
VEGGVIFTA
BORÐVIFTA
Bil beggja farið
Þjóðviljinn býsnast yfir
niðurskurði fjárlaganna þessa
dagana. Það eru ofur eðlileg
viðbrögð stjórnarandstöðu-
blaðs að haga sér þannig. Von-
in um ný atkvæði byggist ekki
sizt á þvi, að dómi Þjóðviljans,
að ala á óánægju sem viðast.
Það má þvi búast við, að
næstu vikurnar flytji Þjóðvilj-
inn daglega fréttir af niður-
skurði hér og þar.
Það skal tekið undir með
Þjóðviljanum, að niður-
skurðurinn kemur sér sums
staðar illa einkum á nauðsyn-
legum framkvæmdum, eins og
á sviði skólamála, heilbrigðis-
mála og samgöngumála. Um
það er ekki minnsti ágreining-
ur milli stjórnarflokkanna og
stjórnarandstöðunnar. En
stundum verður að gera fleira
en gott þykir. Staðreynd er, að
staöa rikissjóðs leyfir ekki
allar þær frmkvæmdir, sem
samþykktar voru við slðustu
fjárlagagerð. Um tvennt var
að velja, skera niður útgjöld
rikisins eða afla nýrra tekna
til að endar næðu saman.
Niðurstaðan hefur orðiö sú, að
farið er bil beggja, fjárlögin
skorin niður um tæplega tvo
milljarða króna og nýrra
tekna aflað fyrir svipaða upp-
hæð. Sýnist það skynsamleg-
asta lausnin.
Misbjóða dóm-
greind almennings
Það er eftirtektarvert I
sambandi við skrif Þjóðvilj-
ans um þessi mál, að engin til-
raun er gerð til þess að benda
á aðrar leiðir til lausnar
vandanum. Samkvæmt
kenningu blaðsins er engin
þörf á þvl að draga úr útgjöld-
um rikissjóðs. Gamli kröfu-
gerðarandinn svifur yfir vötn-
unum — llkt og fyrir siðustu
kjarasamninga, þegar Þjóð-
viljinn tók ekki aðeins undir
ýtrustu kröfur, sem gerðar
voru, heldur bætti við þær.
Verkalýðsforustan hafnaði
kenningum Þjóðviljans þá, og
gerðir voru hóflegir kjara-
samningar. Allur almenning-
ur skildi, að ekki voru efni til
nema mjög takmarkaöra
kjarabóta. Á sama hátt skilur
almenningur nú, að nauðsyn-
legt er að gera sérstakar ráð-
stafanir vegna slæmrar stöðu
rikissjóðs. Og þó að niður-
skurður sá, sem nú er fyrir-
hugaður, virðist mikill I fljótu
bragði, er hann þó ekki nema
litill hluti fjárlaganna.
Tilraunir Þjóðviljans til að
ala á óánægju vegna þessara
ráðstafana munu mistakast af
þeirri einföldu ástæðu, að þær
misbjóða dómgreind fólks.
Þegar ilia árar, hvort sem það
er hjá bóndanum, útgerðar-
manninum, einstakiingum eða
fyrirtækjum, þá haga menn
sér eftir þvl og sýna gætni.
Rikissjóður er ekkcrt annað
en stórt fyrirtæki, sem þarf að
taka tillit til allra aðstæðna.
Ef hins vegar væri farið eftir
kenningum Þjóðviljans,
myndi fljótlega skapast algert
öngþveiti. Sllkt ástand telja
islenzkir kommúnistar mjög
æskilegt. En þeim verður ekki
að ósk sinni. Stjórnarandstaða
eins og sú, sem undanfarið
hefur sést á slðum Þjóðvilj-
ans, á engan hljómgrunn. Og
það eru sannarlega
aumkunarverðir menn, sem
sitja með sveittan skallann á
ritstjórnarskrifstofum Þjóð-
viljans, viku eftir viku og
mánuð eftir mánuð, og ná
aldrei tökum á verkefni slnu,
sem kannski er heldur ekki við
að búast.
—a.þ.
LOFT ræstlviftur
FYRIR
heimilið
vinnustaðinn
gripahúsið
íbúð óskast til leigu
fyrir erlendan sérfræðing, sem dvelur hér september-
mánuð á vegum Rannsóknarstofu Háskólans.Æskilegt er,
að Ibúðin sé 2-3 herbergi með húsgögnum.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri Rannsóknarstofunnar,
simi 19506.
rm
mmtm.
m
:
'L
NYTT: KUREKASTIGVEl>4
fyrir dömur oa herrn N
K
m
WÁ
m
Wí
Bankastræti 9 - Sími 11811