Fréttablaðið - 17.03.2005, Page 41
FIMMTUDAGUR 17. mars 2005
Opið kl. 10-18 - Laugardaga 11-15út
ha
ld
sm
ei
ri
Fæðubótarefni
Eitt mesta úrval landsins af
fæðubótarefnum - Áratuga reynsla
Persónuleg ráðgjöf varðandi
mataræði og hreyfingu.
K
O
R
T
E
R
.
I
S
HREINT
KREATIN
RED KICK
33 skammtar
Kr. 1.995,-
FIT ACTIVE
20 skammtar
Kr. 1.350,-
500 gr.
Kr. 2.200,-
netverslun: www.hreysti.is
MEIRI OLÍA Prins Ahmad Fahd al-Sabah,
olíumálaráðherra Kúvæt og forseti OPEC,
tilkynnir fréttamönnum um ákvörðun sam-
takanna.
Framleiðslan
verður aukin
Samtök olíuframleiðsluríkja,
OPEC, munu auka framleiðslu
sína um 500.000 föt á dag frá og
með 1. apríl. Olíumálaráðherrar
ríkjanna ákváðu þetta á fundi
sínum í Isfahan í Íran í gær. Búist
er við að með þessu takist að róa
olíumarkaði og slá á hækkun
olíuverðs. OPEC útilokar ekki
að í sumar verði framleiðslan
aukin um önnur 500.000 föt á dag.
Spurn eftir olíu nálgast nú
framleiðslugetu heimsins óðfluga
og munar þar einna mest um
sívaxandi olíunotkun Kínverja.
Þeir kaupa um þriðjung hráolíu-
framleiðslunnar. ■
Útlit er fyrir að hagvöxtur í
Bretlandi verði 3 til 3,5 pró-
sent í ár ef marka má spár
breska fjármálaráðuneytis-
ins. Þetta er meiri hagvöxtur
en verið hefur síðastliðin
fimm ár að því er fram kom í
Hálf fimm fréttum KB banka
í gær.
Hagvöxtur í Bretlandi er
umtalsvert meiri en í flest-
um Evrópulöndum. Nýverið
hafa hagvaxtarspár í Frakk-
landi og Þýskalandi verið
færðar niður. Breska hag-
kerfið stækkar hins vegar á
svipuðum hraða og hið
bandaríska um þessar mund-
ir.
Gordon Brown, fjármála-
ráðherra Bretlands, sagði í
ræðu í breska þinginu í gær
að nú hafi hagvöxtur verið
jákvæður í þrjátíu ársfjórð-
unga samfleytt en það sé
lengsta samfellda hagvaxtar-
skeið í Bretlandi frá því
mælingar hófust árið 1701.
Hann kynnti þar fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar
sem meðal annars felur í sér
miklar opinberar fram-
kvæmdir.
Efnahagsaðstæður í Bret-
landi hafa stöðugt meiri
áhrif á gengi íslenskra fyrir-
tækja sem mörg hver hafa
fjárfest mjög mikið í hinum
ýmsu geirum bresks at-
vinnulífs. - þk
Góðum hagvexti spáð í Bretlandi
GUNNLAUGUR SIGMUNDSSON
Forstjóri Kögunar.
Auka hlut í
Kögun
KB banki jók enn við hlut sinn í
hugbúnaðarfyrirtækinu Kögun í
gær. Nú á KB banki 20,8 prósent í
Kögun. Aðalfundur félagsins var
haldinn í vikunni en þá urðu engar
breytingar á stjórn félagsins.
Samkvæmt heimildum er KB
banki ekki að safna hlutum í
Kögun til að framselja til annars
fjárfestis. Fjárfestingarbankinn
Straumur er stærsti hluthafinn í
Kögun.
Gengi bréfa í Kögun hafa
hækkað mjög í verði í Kauphöll
Íslands á síðustu misserum og
eru nú fjórðungi hærri en fyrir
mánuði síðan. - þk
MEÐ RAUÐU TÖSKUNA Gordon Brown á leið í
breska þingið með hina frægu tösku sem inniheldur
fjárlagafrumvarp bresku ríkisstjórnarinnar.
M
YN
D
A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA