Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 54
Á efri hæð skemmtistaðarins Grand Rokk má búast við að allt kraumi og sjóði af menningu í kvöld þegar fé- lagsskapurinn Nýhil efnir þar til fermingarveislu. Auk ferminganna, sem nú eru að hefjast víða um land, er tilefni veisl- unnar útgáfa fyrstu skáldsögu Ný- hils, sem heitir „úfin, strokin“ og er eftir Örvar Þóreyjarson Smárason, sem reyndar hefur tekið sér höf- undarnafnið Örvar der Alte. Örvar hefur hingað til verið bet- ur þekktur sem tónlistarmaður en rithöfundur. Hann er meðlimur í hljómsveitinni Múm sem var meðal annars tilnefnd til íslensku tónlist- arverðlaunanna nú síðast fyrir plöt- una Summer Make Good. „Ég hef eiginlega verið að krota síðan ég var unglingur. Einhvern tímann datt mér svo í hug að skrifa drengjabók. Á tímabili voru drengjabækur það eina sem ég nennti að lesa og mér datt jafnvel í hug að endurskrifa eina slíka. Síðan hefur þetta verið að renna á milli stílabóka hjá mér. Ég man svo sem ekkert mikið eftir því hvað ég var að hugsa þegar ég hef verið að skrifa. Ég hef bara verið að skrifa þetta þegar ég er að reyna að kom- ast út úr hausnum á mér.“ En bókin átti sem sagt upphaf- lega að verða einhvers konar drengjabók, „bara fyrir drengi eins og sjálfan mig, en svo fór það allt að beyglast og bugast“. Örvar segir skriftirnar í sjálfu sér ósköp svipaðar því þegar tónlist er að verða til. „Þetta er í raun og veru mjög svipað ferli hjá mér.“ Af hljómsveitinni Múm er fátt að frétta þessa dagana. Hljómsveitin hefur verið í hálfgerðu fríi nú í vet- ur, en hugsar sér væntanlega til hreyfings á ný í sumar. Örvar hefur verið úti í Prag þar sem hann er að læra handritsskrif og kvikmyndafræði. „Bara svona til að taka mér smá frí,“ segir hann. Á fermingarveislunni á Grand Rokk í kvöld lesa þau Þórdís Björnsdóttir, Óttar Martin Norð- fjörð og Hólmfríður Helga einnig úr verkum sínum. Hilsner, öðru nafni Gummi flötti, Borko, Auxpan, Útburðir og Böðvar Brutalis sjá um tónlistaratriði, en plötusnúður verður Kira Kira. „Þetta eru allt gamlir vinir mín- ir,“ segir Örvar um félaga sína í Ný- hil. „Við bjuggum flest á tímabili í Berlín og einn veturinn voru þar mánaðarleg Nýhil-kvöld. Ég tók þátt í þeim.“ Að venju hvetur Nýhil eindregið til frammíkalla og hvers kyns upp- steyts í kvöld. „Þessi Nýhilkvöld úti í Berlín voru nú alltaf þannig að það var dagskrá í svona klukkutíma en svo leystist allt upp í vitleysu, en það hefur aldrei almennilega gerst hérna á Íslandi. Það væri samt skemmtilegt ef það gerðist núna.“ ■ 38 17. mars 2005 FIMMTUDAGUR EKKI MISSA AF… Djasskvintettinn Steinarnir koma fram á tón- leikum Jazzklúbbsins Múlans í kvöld í Gyllta sal Hótel Borgar. Kvintett þennan skipa saxó- fónleikararnir Ólafur Jónsson og Óskar Guð- jónsson ásamt gítarleikaranum Jóni Páli Bjarnasyni, bassaleikaranum Tómasi R. Einars- syni og trommuleikaranum Alfreð Alfreðssyni. Kvintettinn leitast við að sameina og um leið að brúa það skemmtilega kynslóðabil sem myndast hjá þessari nýstofnuðu sveit, sem hefur innanborðs hinn gamalreynda gítar- snilling Jón Pál ásamt hinum ungu eldhugum sem blása í saxófónana. Steinarnir leika fjölbreytta efnisskrá tónlistar frá miðri síðustu öld, eftir meistara á borð við Monk, Miles Davis, Bud Powell og Benny Gol- son. Djassklúbburinn Múlinn hefur haldið uppi föstum djasstónleikum í allan vetur, líkt og flest undanfarin ár, og má ganga að þeim vís- um annað hvert fimmtudagskvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 21, aðgangseyrir er kr. 1000 og allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Kl. 22.00 Tríó Hauks Gröndals verður með tón- leika á Pravda Bar við Austurstræti þar sem leikin verða þjóðlög frá Grikklandi, Tyrklandi, Makedóníu og Búlgaríu, en einnig slæðist með frumsamið efni sem er undir áhrifum frá Balkanskaga. menning@frettabladid.is Steinarnir brúa kynslóðabilið ÖRVAR DER ALTE Örvar í Múm var að senda frá sér skáldsöguna „úfin, strokin“ og les upp úr henni á Fermingarveislu Nýhils í kvöld, þar sem fleiri Nýhilistar ætla að lesa upp úr verkum sínum. Nýhil efnir til fermingarveislu ! HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 15 16 17 18 19 Fimmtudagur MARS                    !"#$   %$&$      #           '   (    ) #) # # ## $*+( )#+  #,  (,  # #$-    + # .  #(/#    ,   0 1     23    # $    45 62   0 #  6   #    #     # ( $ 4.#    0   1# # )   #     # )   0 # 0  $        40      # )( 77 8$  9 $ :(  (0 #7; 40      # )( 777 $  9<$3= :(  (0 #77; .   # #  3= #   #2 #   03 0 #    #   2   +#  (   0    $  )#    !  "  !    # $% && ' $( &&# 0      # )( ) $$$     *  +    ,   -"!  !    FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Phil Elvrum verður með tón- leika í Frumleikhúsinu Keflavík, ásamt Woelv og Þóri.  21.00 Djasskvintettinn Steinarnir kemur fram á tónleikum djass- klúbbsins Múlans í Gyllta sal Hótel Borgar. Kvintettinn er skipaður saxó- fónleikurunum Ólafi Jónssyni og Óskari Guðjónssyni, gítarleikaran- um Jóni Páli Bjarnasyni, Tómasi R. Einarssyni bassaleikara og trommu- leikaranum Alfreð Alfreðssyni.  21.00 Siggi Björns spilar á Græna hattinum, Akureyri.  21.00 Hljómsveitirnar Ask the Slave, Future Future, Reykjavík og Days of our Lives spila á rokktón- leikum á Gauknum.  22.00 Tríó Hauks Gröndal saxó- fónleikara spilar á Pravda Bar. Með Hauki leika þeir Davíð Þór Jónsson á píanó og Helgi Svavar Helgason á trommur og slagverk. ■ ■ OPNANIR  14.00 Gerða Kristín Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn- ingarsalnum á fyrstu hæð Hrafnistu í Hafnarirði.  20.00 Magnús Sigurðarson, Egill Sæbjörnsson og Leen Voet opna sýningar í Nýlistasafninu, Laugavegi 26. ... tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í kvöld og annað kvöld, þar sem píanósnillingurinn Liene Circene leikur með hljóm- sveitinni nokkur bráðskemmtileg verk. Hljómsveitarstjóri verður Owain Arwel Hughes, sem hleypur í skarðið í forföllum Rumons Gamba að þessu sinni. ... samsýningu í húsakynnum Reykjavíkurakademíunnar á ljós- myndum eftir tíu listamenn sem allir kenna við Myndlistaskólann í Reykjavík. ... blúshátíðinni sem hefst í næstu viku þar sem K.K. kemur meðal annars fram ásamt gömlu hljómsveitinni sinni Grinders. Þar mætir einnig Björgvin Gíslason með hljómsveitinni Kentár og svo syngur hin magnaða Deitra Farr negrasálma með Blúsmönnum Andreu og Kammerkór Hafnar- fjarðar á föstudaginn langa. ■ ■ SKEMMTANIR  22.00 Hljómsveitin Groundfloor spilar á Póstbarnum. ■ ■ FYRIRLESTRAR  12.15 Leena-Maija Rossi heldur fyrirlesturinn „Sugarfolks in Syruphill“ á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum í stofu 101 í Lög- bergi. Rossi fjallar þar um staðlaðar birtingarmyndir gagnkynhneigðar í auglýsingum.  20.00 Roewan Crowe, myndlistar- maður og rithöfundur, sem er hér á landi í boði Femínistafélagsins, held- ur fyrirlestur í SÍM - húsinu. ■ ■ FUNDIR  20.00 Sameiginlegt pressukvöld B.Í. og Félags fréttamanna um út- varpsmálið verður á veitinghúsinu Ljóta andarunganum. Frummælend- ur eru G. Pétur Matthíasson frétta- maður á RÚV og Þórólfur Þórlinds- son prófessor. ■ ■ SAMKOMUR  16.00 Listaháskóli Íslands heldur kynningarfund í Samkomuhúsinu á Akureyri um nýja námsbraut til B.A. prófs við Leiklistardeild skólans.  21.00 Örvar der Alte, Þórdís Björnsdóttir, Óttar Martin Norð- fjörð og Hólmfríður Helga lesa upp úr verkum sínum á fermingarveislu Nýhils, sem haldin verður á efri hæð skemmtistaðarins Grand Rokk. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.